Framtíð þróunarsamvinnu til umræðu á ráðherrafundi ESB-ríkja, Bretlands, Kanada, Noregs og Íslands
Martin Eyjólfsson, ráðuneytisstjóri, tók þátt í óformlegum fundi þróunarmálaráðherra ESB-ríkja í Dyflinni 8. og 9. október, ásamt þróunarmálaráðherrum Noregs og Bretlands og ráðuneytisstjóra þróunarmálaráðuneytis Kanada. Írland, sem gegnir nú formennsku í ráðherraráði Evrópusambandsins, er eitt fárra ESB-ríkja sem hafa aukið framlög sín til þróunarsamvinnu.
Á fundinum var m.a. rætt um stöðu og framtíð alþjóðlegrar þróunarsamvinnu sem stendur frammi fyrir vaxandi áskorunum. Sárafátækt stendur í stað, átök og hungur fara vaxandi og áhrif loftslagsbreytinga verða sífellt alvarlegri. Á sama tíma mælist samdráttur í framlögum til opinberrar þróunaraðstoðar meiri en nokkru sinni fyrr en framlög drógust saman um 23% á milli áranna 2024 og 2025, en samdrátturinn var enn meiri þegar litið er til stuðnings við Afríku Sunnan Sahara.
Samhæfing og samstarf líkt þenkjandi ríkja gegnir lykilhlutverki í að tryggja aukin áhrif þróunarsamvinnu og voru framtíðarhorfur í þróunarsamvinnu sem og leiðir til aðgerða meðal umræðuefna á fundinum. Tom Fletcher, yfirmaður mannúðarmála hjá Sameinuðu þjóðunum (OCHA), fjallaði jafnframt um helstu áskoranir og umbætur á sviði mannúðaraðstoðar og þær flóknu mannúðarkrísur sem heimurinn stendur frammi fyrir.
Ráðuneytisstjóri lagði meðal annars áherslu á mikilvægi samráðs í þróunarsamvinnu sem og samstarf og miðlun þekkingar á sviðum þar sem styrkleikar liggja svo sem á sviði sjávarútvegsmála, landgræðslu, jarðhita og jafnréttis í tilviki Íslands. En eins og fram kom í ávarpi utanríkisráðherra á allsherjarþingi Sameinuðu þjóðanna í New York í september er fjárfesting í þróunarsamvinnu og mannúðaraðstoð fjárfesting í stöðugleika, viðnámsþrótti og friði.