ATHUGIÐ: Þessi grein er eldri en fimm ára.
26. september 2001
/
Utanríkisráðuneytið
Jón Egill Egilsson sendiherra afhendir trúnaðarbréf í Þýskalandi
FRÉTTATILKYNNING
frá utanríkisráðuneytinu
________
Nr. 86
Jón Egill Egilsson sendiherra afhenti í dag, miðvikudaginn 26. september 2001, dr. h.c. Johannes Rau, forseta Sambandslýðveldisins Þýskalands, trúnaðarbréf sitt sem sendiherra Íslands í Þýskalandi.
Utanríkisráðuneytið
Reykjavík, 26. september 2001.