ATHUGIÐ: Þessi grein er eldri en fimm ára.
23. janúar 2002
/
Mennta- og barnamálaráðuneytið
Bæklingur um málþroska
Til heilsugæslustöðva og
leikskóla
Bæklingur um málþroska
Menntamálaráðuneytið hefur á undanförnum árum gefið út og dreift til heilsugæslustöðva og leikskóla bæklingi um málþroska. Vegna fjölda fyrirspurna ákvað ráðuneytið að endurprenta bæklinginn í þó nokkru upplagi og dreifa til framangreindra aðila.
Vakin er athygli á því að hægt er að panta viðbótarupplag af bæklingnum hjá afgreiðslu ráðuneytisins eða senda beiðni í netfangið: postur@mrn.stjr.is.
Loks er vakin athygli á því að hægt er að nálgast bæklinginn um málþroska á heimasíðu menntamálaráðuneytisins, menntamalaraduneyti.is.