ATHUGIÐ: Þessi grein er eldri en fimm ára.
6. október 2003
/
Félags- og húsnæðismálaráðuneytið

Skipanir í embætti

Félagsmálaráðherra hefur í dag skipað Ásmund Stefánsson í embætti ríkissáttasemjara og Margréti Maríu Sigurðardóttur í embætti framkvæmdastjóra Jafnréttisstofu. Skipanir þessar eru til fimm ára frá og með 1. nóvember nk.