ATHUGIÐ: Þessi grein er eldri en fimm ára.
31. október 2008
/
Utanríkisráðuneytið
Afhending trúnaðarbréfs í Kairó
Þann 26. október afhenti Dr. Sigríður Dúna Kristmundsdóttir Hosni Mubarak, forseta Egyptalands, trúnaðarbréf sitt sem sendiherra Íslands gagnvart Egyptalandi. Þá átti Sigríður Dúna fund með Ahmed Abdoul Gheit, utanríkisráðherra landsins, þar sem efnhagsástandið á Íslandi bar m.a. á góma.