ATHUGIÐ: Þessi grein er eldri en fimm ára.
7. september 2012
/
Atvinnuvegaráðuneytið

Ritun sögu ferðaþjónustunnar

Samtök ferðaþjónustunnar hafa, í samstarfi við atvinnu- og nýsköpunarráðuneytið, ákveðið að hefja skrif á sögu ferðaþjónustunnar. Ritnefnd hefur verið kölluð saman en hana skipa Hildur Jónsdóttir, Farvegur ehf. - formaður, Áslaug Alfreðsdóttir, Hótel Ísafirði, Guðjón Arngrímsson, Icelandair, Helga Haraldsdóttir, atvinnu- og nýsköpunarráðuneyti og Magnús Oddsson, fyrrv. ferðamálastjóri.

Gera má ráð fyrir að ritið komi út á árinu 2015.