ATHUGIÐ: Þessi grein er eldri en fimm ára.
3. nóvember 2016
/
Dómsmálaráðuneytið

Drög að lagafrumvarpi um rafrænar þinglýsingar til umsagnar

Drög að frumvarpi til breytinga á lögum um þinglýsingar (rafrænar þinglýsingar) eru nú til umsagnar hjá innanríkisráðuneytinu. Unnt er að senda ráðuneytinu athugasemdir til og með 28. nóvember næstkomandi og skulu þær sendar á netfangið postur@irr.is.

Frumvarpið var fyrst til umsagnar hjá ráðuneytinu í nóvember 2015. Gerðar hafa verið nokkrar breytingar á frumvarpinu síðan og er það því aftur til kynningar nú.