ATHUGIÐ: Þessi grein er eldri en fimm ára.
3. ágúst 2017
/
Innviðaráðuneytið
Framlengdur umsagnarfrestur um reglugerðardrög um fjármál sveitarfélaga
Framlengdur hefur verið frestur til að veita umsögn um drög að tveimur reglugerðum er varða fjármál sveitarfélaga. Er hann framlengdur til og með 18. ágúst næstkomandi og skulu umsagnir berast á netfangið postur@srn.is.
Breytingarnar snúast annars vegar um reglugerð um bókhald, fjárhagsáætlanir og ársreikninga sveitarfélaga og hins vegar um reglugerð um fjárhagsleg viðmið og eftirlit með fjármálum sveitarfélaga.