22. september 2026
/
Dómsmálaráðuneytið

Úrskurður 3/2026 Gildi ágreiningsatkvæða við þjóðaratkvæðagreiðslu

Tilvísun: LKS2026090001

Árið 2026, 22. september kl. 14:00 er landskjörstjórn komin saman á fundi í Eddu, húsi íslenskunnar, Arngrímsgötu 5 í Reykjavík, til að úrskurða um gildi ágreiningsatkvæða og lýsa úrslitum þjóðaratkvæðagreiðslunnar sem fram fór þann 29. ágúst sl.

Fyrir er tekið að úrskurða um 16 ágreiningsatkvæði úr Suðvesturkjördæmi og kveðinn upp svofelldur

úrskurður nr. 3/2026:

Ágreiningsatkvæðin bárust landskjörstjórn frá yfirkjörstjórn Suðvesturkjördæmis þann 1. september sl. Um ágreining er að ræða milli umboðsmanna og yfirkjörstjórnar Suðvesturkjördæmis og eru ágreiningsatkvæðin send landskjörstjórn til úrskurðar, sbr. 3. mgr. 99. gr. kosningalaga nr. 112/2021.

Af 16 ágreiningsatkvæðum eru 13 kjörfundaratkvæði og þrjú utankjörfundaratkvæði. Landskjörstjórn hefur farið yfir öll gögn málsins og eru niðurstöður eftirfarandi:

1. Atkvæði skráð nr. 1

Lýsing á atkvæði og ágreiningi
Um er að ræða atkvæðaseðil þar sem merkt er X við svarkostinn Já. Jafnframt er skrifað „Já“ á bakhlið atkvæðaseðilsins en síðan krotað yfir það. Umboðsmaður Já-sjónarmiðs taldi atkvæðið gilt, þar sem kjósandi hafði strikað yfir Já á bakhlið atkvæðaseðilsins. Yfirkjörstjórn úrskurðaði atkvæðið ógilt.

Niðurstaða landskjörstjórnar
Landskjörstjórn staðfestir niðurstöðu yfirkjörstjórnar með vísan til c-liðar 1. mgr. 104. gr. kosningalaga og álits og tillagna kjörbréfanefndar Alþingis 2013, kafla I.3.b og álits og tillagna kjörbréfanefndar Alþingis 2025, sbr. greinargerð undirbúningsnefndar fyrir rannsókn kosninga, 2025, kafla III.2, en atkvæðið telst auðkennt.

2. Atkvæði skráð nr. 2

Lýsing á atkvæði og ágreiningi
Um er að ræða atkvæðaseðil þar sem merkt er X við svarkostinn Já og krot sett í ferninginn. Jafnframt eru fjögur strik fyrir utan ferninginn, hvert og eitt út frá miðju hverrar hliðar hans, auk þess sem strikað er undir svarkostinn Já. Umboðsmaður Já-sjónarmiðs taldi atkvæðið gilt, þar sem vilji kjósanda væri skýr. Yfirkjörstjórn úrskurðaði atkvæðið ógilt.

Niðurstaða landskjörstjórnar
Landskjörstjórn staðfestir niðurstöðu yfirkjörstjórnar með vísan til c-liðar 1. mgr. 104. gr. kosningalaga en atkvæðið telst auðkennt.

3. Atkvæði skráð nr. 3

Lýsing á atkvæði og ágreiningi
Um er að ræða utankjörfundaratkvæði þar sem merkt er X í ferning við svarkostinn Já. Einnig  eru tvö lítil x auk eins ógreinilegs tákns fyrir ofan ferninginn. Umboðsmaður Nei-sjónarmiðs taldi atkvæðið ógilt, þar sem það væri auðkennt. Yfirkjörstjórn úrskurðaði atkvæðið gilt, vilji kjósanda væri skýr og atkvæðið væri ekki auðkennt.

Niðurstaða landskjörstjórnar
Landskjörstjórn fellst ekki á niðurstöðu yfirkjörstjórnar. Atkvæðið telst auðkennt með vísan til c-liðar 1. mgr. 104. gr. kosningalaga og skal því meta ógilt.

4. Atkvæði skráð nr. 4

Lýsing á atkvæði og ágreiningi
Um er að ræða utankjörfundaratkvæði þar sem strik eru dregin horn í horn og lóðrétt og lárétt strik milli allra hliða ferningsins við svarkostinn Nei. Nokkur strikanna ná aðeins út fyrir ferninginn og líkjast að einhverju leyti kroti. Umboðsmaður Nei-sjónarmiðs taldi atkvæðið gilt, þar sem vilji kjósandans væri skýr. Yfirkjörstjórn úrskurðaði atkvæðið ógilt.

Niðurstaða landskjörstjórnar
Landskjörstjórn staðfestir niðurstöðu yfirkjörstjórnar með vísan til c-liðar 1. mgr. 104. gr. kosningalaga og álits og tillagna kjörbréfanefndar Alþingis 2025, sbr. greinargerð undirbúningsnefndar fyrir rannsókn kosninga, 2025, kafla III.1, en atkvæðið telst auðkennt.

5. Atkvæði skráð nr. 5-9

Lýsing á atkvæði og ágreiningi
Um er að ræða fimm atkvæðaseðla sem eiga það sammerkt að X er skrifað innan fernings við svarkost Nei á öllum atkvæðaseðlunum. Á atkvæðaseðli nr. 5 má einnig greina lóðrétt strik sem nær frá miðju efri hliðar ferningsins að miðju neðri hliðar hans og sker strikið þannig miðjupunkt X-ins. Á atkvæðaseðli nr. 6 er samskonar strik og á atkvæðaseðli nr. 5, en daufara og ber þess merki að reynt hafi verið að stroka það út. Strikið nær ekki alveg að efri hlið ferningsins en fer út fyrir ferninginn við neðri hlið hans. Á atkvæðaseðlum nr. 7 - 9 eru strik dregin horn í horn og lóðrétt og lárétt strik milli allra hliða ferningsins. Í hvern ferning er þannig bæði merkt X og + (plús). Umboðsmaður Nei-sjónarmiðs taldi öll atkvæðin gild, þar sem vilji kjósanda væri skýr. Yfirkjörstjórn úrskurðaði atkvæðin ógild.

Niðurstaða landskjörstjórnar
Landskjörstjórn fellst ekki á niðurstöður yfirkjörstjórnar. Greinilegt er hvernig atkvæðin eiga að falla, vilji kjósanda telst skýr og atkvæðin teljast ekki auðkennd í skilningi c-liðar 104. gr. sbr. 1. mgr. 105. gr. kosningalaga. Atkvæðin skal meta gild og greidd svarkosti Nei.

6. Atkvæði skráð nr. 10

Lýsing á atkvæði og ágreiningi
Um er að ræða atkvæðaseðil þar sem merkt er með breiðu V í ferning við svarkost Nei. Bæði strikin í V-inu eru breið en grennra strik tengir þau saman efst. Umboðsmaður Nei-sjónarmiðs taldi atkvæðið gilt, þar sem vilji kjósandans væri skýr. Yfirkjörstjórn úrskurðaði atkvæðið ógilt þar sem það væri auðkennanlegt.

Niðurstaða landskjörstjórnar
Landskjörstjórn fellst ekki á niðurstöðu yfirkjörstjórnar. Greinilegt er hvernig atkvæðið á að falla, vilji kjósanda telst skýr og atkvæðið telst ekki auðkennt í skilningi c-liðar 104. gr. sbr. 1. mgr. 105. gr. kosningalaga. Atkvæðið skal meta gilt og greitt svarkosti Nei.

7. Atkvæði skráð nr. 11

Lýsing á atkvæði og ágreiningi
Um er að ræða atkvæðaseðil þar sem krotað er ólögulega í ferning við svarkost Nei. Umboðsmaður Nei-sjónarmiðs taldi atkvæðið gilt, þar sem vilji kjósandans væri skýr. Yfirkjörstjórn úrskurðaði atkvæðið ógilt.

Niðurstaða landskjörstjórnar
Landskjörstjórn staðfestir niðurstöðu yfirkjörstjórnar með vísan til b-liðar 1. mgr. 104. gr. kosningalaga þar sem vilji kjósanda telst ekki skýr.

8. Atkvæði skráð nr. 12

Lýsing á atkvæði og ágreiningi
Um er að ræða atkvæðaseðil þar sem merkt er X á milli svarkosta Já og Nei, þannig að neðsti hluti vinstri hliðar X-ins nær inn í ferning við svarkost Nei. Að auki má greina örlítil strik eða krot utan við ferning við svarkost Já. Umboðsmaður Nei-sjónarmiðs taldi atkvæði gilt, þar sem vilji kjósandans væri skýr. Yfirkjörstjórn úrskurðaði atkvæðið ógilt.

Niðurstaða landskjörstjórnar
Landskjörstjórn staðfestir niðurstöðu yfirkjörstjórnar. Óljóst er hvernig atkvæðið á að falla og vilji kjósanda telst því ekki skýr í skilningi b-liðar 1. mgr. 104. gr. kosningalaga.

9. Atkvæði skráð nr. 13

Lýsing á atkvæði og ágreiningi
Um er að ræða atkvæðaseðil þar sem ferningur við svarkost Nei hefur verið skyggður en skyggingin strokuð út að mestu og merkt X í ferninginn. Umboðsmaður Nei-sjónarmiðs taldi atkvæðið gilt, þar sem vilji kjósandans væri skýr. Yfirkjörstjórn úrskurðaði atkvæðið ógilt þar sem vilji kjósanda væri ekki skýr.

Niðurstaða landskjörstjórnar
Landskjörstjórn fellst ekki á niðurstöðu yfirkjörstjórnar. Vilji kjósanda telst skýr og greinilegt hvernig atkvæðið á að falla. Því á engin stafliður 104. gr. við, sbr. 1. mgr. 105. gr. kosningalaga. Atkvæðið skal meta gilt og greitt svarkosti Nei.

10. Atkvæði skráð nr. 14

Lýsing á atkvæði og ágreiningi
Um er að ræða atkvæðaseðil þar sem merkt er X í ferning við svarkost Nei og jafnframt skrifað X yfir orðið Nei. Umboðsmaður Nei-sjónarmiðs taldi atkvæðið gilt, þar sem vilji kjósandans væri skýr. Yfirkjörstjórn úrskurðaði atkvæðið ógilt.

Niðurstaða landskjörstjórnar
Landskjörstjórn staðfestir niðurstöðu yfirkjörstjórnar. Atkvæðið telst auðkennt með vísan til c-liðar 1. mgr. 104. gr. kosningalaga.

11. Atkvæði skráð nr. 15

Lýsing á atkvæði og ágreiningi
Um er að ræða utankjörfundaratkvæði þar sem merkt er X í ferning við svarkost Nei. Jafnframt er krotað í ferninginn, þó ekki þannig að hann sé skyggður að fullu. Umboðsmaður Nei-sjónarmiðs taldi atkvæðið gilt, þar sem vilji kjósandans væri skýr. Yfirkjörstjórn úrskurðaði atkvæðið ógilt þar sem vilji kjósanda væri ekki skýr.

Niðurstaða landskjörstjórnar
Landskjörstjórn staðfestir niðurstöðu yfirkjörstjórnar. Atkvæðið telst auðkennt með vísan til c-liðar 1. mgr. 104. gr. kosningalaga.

12. Atkvæði skráð nr. 16

Lýsing á atkvæði og ágreiningi
Um er að ræða atkvæðaseðil þar sem krotað er í ferning við svarkost Nei. Umboðsmaður Nei sjónarmiðs taldi atkvæðið gilt, þar sem vilji kjósandans væri skýr. Yfirkjörstjórn úrskurðaði atkvæðið ógilt.

Niðurstaða landskjörstjórnar
Landskjörstjórn staðfestir niðurstöðu yfirkjörstjórnar. Ekki má með öruggum hætti sjá hvernig atkvæðið á að falla. Vilji kjósanda telst því ekki skýr í skilningi b-liðar 1. mgr. 104. gr. kosningalaga.

ÚRSKURÐARORÐ

Ákvarðanir yfirkjörstjórnar Suðvesturkjördæmis um gildi ágreiningsatkvæða skráð nr. 1, 2, 4, 11, 12, 14, 15 og 16 við þjóðaratkvæðagreiðslu 29. ágúst 2026 eru staðfestar og atkvæðin úrskurðuð ógild.

Ákvörðun yfirkjörstjórnar Suðvesturkjördæmis um gildi ágreiningsatkvæðis skráð nr. 3 greitt „Já” svarkosti við þjóðaratkvæðagreiðslu 29. ágúst 2026 er felld úr gildi og atkvæðið úrskurðað ógilt.

Ákvarðanir yfirkjörstjórnar Suðvesturkjördæmis um gildi ágreiningsatkvæða skráð nr. 5, 6, 7, 8, 9, 10 og 13 við þjóðaratkvæðagreiðslu 29. ágúst 2026 eru felldar úr gildi og atkvæðin úrskurðuð gild og greidd „Nei“ svarkosti.

Landskjörstjórn, 22. september 2026

Kristín Edwald, formaður
Arnar Kristinsson
Ebba Schram
Indriði Ingi Stefánsson
Magnús Karel Hannesson