22. september 2026 /

Úrskurður 1/2026 Gildi ágreiningsatkvæðis við þjóðaratkvæðagreiðslu

Tilvísun: LKS2026090001

Árið 2026, 22. september kl. 14:00 er landskjörstjórn komin saman á fundi í Eddu, húsi íslenskunnar, Arngrímsgötu 5 í Reykjavík, til að úrskurða um gildi ágreiningsatkvæða og lýsa úrslitum þjóðaratkvæðagreiðslunnar sem fram fór þann 29. ágúst sl.

Fyrir er tekið að úrskurða um eitt ágreiningsatkvæði úr Reykjavíkurkjördæmi suður og kveðinn upp svofelldur

úrskurður nr. 1/2026:

Ágreiningsatkvæðið barst landskjörstjórn frá yfirkjörstjórn Reykjavíkurkjördæmis suður þann 31. ágúst sl. Um ágreining er að ræða milli umboðsmanns Já-sjónarmiðs og yfirkjörstjórnar Reykjavíkurkjördæmis suður og er ágreiningsatkvæðið sent landskjörstjórn til úrskurðar, sbr. 3. mgr. 99. gr. kosningalaga nr. 112/2021.

Landskjörstjórn hefur farið yfir öll gögn málsins og eru niðurstöður eftirfarandi:

Lýsing á atkvæði og ágreiningi
Um er að ræða utankjörfundaratkvæði þar sem við atkvæðagreiðsluna er ekki notaður kjörseðill sá sem landskjörstjórn lét gera. Atkvæðaseðillinn er án spurningar og svarkosta. Skrifað er Já á atkvæðaseðilinn. Umboðsmaður taldi atkvæðið gilt þar sem kjósandinn lýsti yfir vilja sínum með skýrum hætti en fékk atkvæðaseðil af eldri gerð. Yfirkjörstjórn úrskurðaði atkvæðið ógilt með vísan til þess að um rangan atkvæðaseðil væri að ræða.

Niðurstaða landskjörstjórnar
Landskjörstjórn staðfestir niðurstöðu yfirkjörstjórnar með vísan til þess að ekki hafi verið notuð fyrirskipuð kjörgögn sbr. d-lið 1. mgr. 104. gr. kosningalaga.

ÚRSKURÐARORÐ

Ákvörðun yfirkjörstjórnar Reykjavíkurkjördæmis suður um gildi ágreiningsatkvæðis við þjóðaratkvæðagreiðslu 29. ágúst 2026 er staðfest.

Landskjörstjórn, 22. september 2026

Kristín Edwald, formaður
Arnar Kristinsson
Ebba Schram
Indriði Ingi Stefánsson
Magnús Karel Hannesson