Coat of arms
Stjórnarráð Íslands
  • Verkefni
    • Almannatryggingar og lífeyrir
    • Almannaöryggi
    • Atvinnuvegir
    • Auðlindir
    • Efnahagsmál
    • Félags- og fjölskyldumál
    • Fjarskipti
    • Húsnæðis- og mannvirkjamál
    • Líf og heilsa
    • Kosningar
    • Lög og réttur
    • Mannauðsmál ríkisins
    • Mannréttindi og jafnrétti
    • Menningarmál
    • Menntamál
    • Neytendamál
    • Opinber fjármál
    • Persónuréttur
    • Rekstur og eignir ríkisins
    • Samgöngur
    • Sjálfbært Ísland
    • Skipulagsmál
    • Stjórnskipan og þjóðartákn
    • Sveitarstjórnir og byggðamál
    • Trú og lífsskoðun
    • Umhverfi og náttúruvernd
    • Upplýsingatæknimál ríkisins
    • Utanríkismál
    • Útlendingar
    • Vinnumál
    • Vísindi, nýsköpun og rannsóknir
    • Öll verkefni
    • Efst á baugi
      • Fréttir
      • Nýjast
      • Fyrirspurnir frá Alþingi
      • Fyrir fjölmiðla
      • Eldri fréttir
    • Gögn
      • Rit og skýrslur
      • Úrskurðir og álit
      • Eyðublöð
      • Stefnur og áætlanir
      • Styrkir og sjóðir
      • Hugtakasafn
      • Lög og reglugerðir
      • Málaskrár ráðuneyta
      • Mælaborð
      • Hönnunarstaðall
    • Ráðuneyti
      • Forsætisráðuneytið
      • Atvinnuvegaráðuneytið
      • Dómsmálaráðuneytið
      • Félags- og húsnæðismálaráðuneytið
      • Fjármála- og efnahagsráðuneytið
      • Heilbrigðisráðuneytið
      • Innviðaráðuneytið
      • Menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðuneytið
      • Mennta- og barnamálaráðuneytið
      • Umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytið
      • Utanríkisráðuneytið
      • Sendiskrifstofur
      • Samstarfsráðherra Norðurlanda
      • Starfsfólk
      • Stofnanir
      • Nefndir
      • Símanúmer og staðsetning ráðuneyta
      • Umbra
    • Ríkisstjórn
      • Skipan ríkisstjórnar
      • Ríkisstjórnarfundir
      • Stjórnarsáttmáli
      • Ráðherranefndir
      • Reglur um starfshætti
      • Reglur um ferðakostnað og starfskjör ráðherra
      • Siðareglur, hagsmunir og hagsmunaverðir
      • Þingmálaskrá
      • Ríkisráð
      • Sögulegt efni
      • Fyrir fjölmiðla
    EN
    • Verkefni
      • Almannatryggingar og lífeyrir
      • Almannaöryggi
      • Atvinnuvegir
      • Auðlindir
      • Efnahagsmál
      • Félags- og fjölskyldumál
      • Fjarskipti
      • Húsnæðis- og mannvirkjamál
      • Líf og heilsa
      • Kosningar
      • Lög og réttur
      • Mannauðsmál ríkisins
      • Mannréttindi og jafnrétti
      • Menningarmál
      • Menntamál
      • Neytendamál
      • Opinber fjármál
      • Persónuréttur
      • Rekstur og eignir ríkisins
      • Samgöngur
      • Sjálfbært Ísland
      • Skipulagsmál
      • Stjórnskipan og þjóðartákn
      • Sveitarstjórnir og byggðamál
      • Trú og lífsskoðun
      • Umhverfi og náttúruvernd
      • Upplýsingatæknimál ríkisins
      • Utanríkismál
      • Útlendingar
      • Vinnumál
      • Vísindi, nýsköpun og rannsóknir
      • Öll verkefni
    • Efst á baugi
      • Fréttir
      • Nýjast
      • Fyrir fjölmiðla
      • Eldri fréttir
      • Fyrirspurnir frá Alþingi
    • Gögn
      • Rit og skýrslur
      • Úrskurðir og álit
      • Eyðublöð
      • Stefnur og áætlanir
      • Styrkir og sjóðir
      • Hugtakasafn
      • Lög og reglugerðir
      • Málaskrár ráðuneyta
      • Mælaborð
      • Hönnunarstaðall
    • Ráðuneyti
      • Forsætisráðuneytið
      • Atvinnuvegaráðuneytið
      • Dómsmálaráðuneytið
      • Félags- og húsnæðismálaráðuneytið
      • Fjármála- og efnahagsráðuneytið
      • Heilbrigðisráðuneytið
      • Innviðaráðuneytið
      • Menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðuneytið
      • Mennta- og barnamálaráðuneytið
      • Umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytið
      • Utanríkisráðuneytið
      • Sendiskrifstofur
      • Samstarfsráðherra Norðurlanda
      • Starfsfólk
      • Stofnanir
      • Nefndir
      • Símanúmer og staðsetning ráðuneyta
      • Umbra
    • Ríkisstjórn
      • Skipan ríkisstjórnar
      • Ríkisstjórnarfundir
      • Stjórnarsáttmáli
      • Ráðherranefndir
      • Reglur um starfshætti
      • Reglur um ferðakostnað og starfskjör ráðherra
      • Siðareglur, hagsmunir og hagsmunaverðir
      • Þingmálaskrá
      • Ríkisráð
      • Sögulegt efni
      • Fyrir fjölmiðla
    Close navigation
    Covid-19
    Efnisorð

    Ekkert fannst

    Tegund
    Tegund

    Leita eftir efnisorðum

    Sýnir 51–100 af 908
    Raða eftir:
    14. jan. 2022Covid-19, Forsætisráðuneytið, Heilbrigðisráðuneytið

    Ríkisstjórnin ræddi stöðu og horfur í faraldrinum

    Ríkisstjórnin ræddi á fundi sínum í dag um stöðu og horfur í COVID-19 faraldrinum. Markmið stjórnvalda er sem fyrr að standa vörð um líf og heilsu landsmanna en lágmarka efnahagsleg og samfélagsleg áhrif faraldursins.

    14. jan. 2022Heilbrigðisráðuneytið, Covid-19, Líf og heilsa

    COVID-19: Aðgerðir til að efla stöðu Landspítalans

    Ríkisstjórnin hefur ákveðið að tryggja Landspítala svigrúm sem gerir kleift að greiða starfsfólki sérstaklega fyrir viðbótarvinnuframlag næstu fjórar vikurnar. Talið er að þannig megi betur tryggja mönnun við erfiðar aðstæður meðan mesti þunginn í faraldrinum gengur yfir. „Við þurfum að gera ráð fyrir að næstu vikur verði krefjandi og ástandið er mjög þungt á Landspítala. Stjórnvöld standa þétt að baki spítalanum og þessi ákvörðun er liður í því. Það er ótrúlegt hve miklu er hægt að áorka með góðri samstöðu, samvinnu og útsjónarsemi. Stjórnendur og starfsfólk heilbrigðisþjónustunnar hefur sýnt það og sannað á afgerandi hátt síðustu misserin og ég met það mikils.“ segir Willum Þór Þórsson heilbrigðisráðherra.

    13. jan. 2022Heilbrigðisráðuneytið, Covid-19, Líf og heilsa

    Nýtt hjúkrunarheimili í Árborg opnar í mars

    Nýtt hjúkrunarheimili á Selfossi fyrir 60 íbúa verður afhent tilbúið til notkunar í byrjun mars. Heimilið er samstarfsverkefni ríkis og Sveitarfélagsins Árborgar og kemur m.a. í stað tveggja hjúkrunarheimila sem lögð voru af á Suðurlandi árið 2016. Heilbrigðisstofnun Suðurlands mun reka heimilið, ásamt 40 öðrum hjúkrunarrýmum sem eru við stofnunina á Selfossi.

    12. jan. 2022Covid-19, Ferðaþjónusta, Atvinnuvegir, Atvinnuvegaráðuneytið

    Endurreisn ferðaþjónustunnar lykill að endurreisn efnahagslífsins og bættra lífskjara

    „Það sem er efst í huga mér, og eflaust okkar allra, við þessi áramót er endurreisn ferðaþjónustunnar eftir þann mikla samdrátt sem hefur átt sér stað í kjölfar COVID-19 faraldursins. Endurreisn ferðaþjónustunnar er lykilinn að endurreisn íslensks efnahagslífs og bættra lífskjara hér á landi,“ sagði Lilja Dögg Alfreðsdóttir, ferðamálaráðherra, í opnunarávarpi sínu á Nýjársmálstofu Samtaka ferðaþjónustunnar, Íslenska ferðaklasans og KPMG. Málstofan bar yfirskriftina Ferðaþjónusta nýrra tíma og var markmið hennar að velta upp helstu áskorunum og tækifærum ferðaþjónustunnar.

    11. jan. 2022Heilbrigðisráðuneytið, Covid-19, Líf og heilsa

    COVID-19: Gildandi takmarkanir innanlands framlengdar til 2. febrúar

    Heilbrigðisráðherra hefur ákveðið að framlengja óbreyttar gildandi takmarkanir á samkomum innanlands til og með 2. febrúar næstkomandi. Ákvörðun ráðherra byggist á tillögum sóttvarnalæknis sem telur nauðsynlegt að takmarka áfram sem mest útbreiðslu Covid-19 til að verja heilbrigðiskerfið. Samhliða nýrri reglugerð um samkomutakmarkanir hefur ráðherra til hagræðis sett sérstaka reglugerð um skólastarf, líkt og gert hefur verið á fyrri stigum faraldursins.

    08. jan. 2022Heilbrigðisráðuneytið, Covid-19, Líf og heilsa

    COVID-19: Tilkynning varðandi útskrift að lokinni einangrun

    Athygli er vakin á því að þeir sem lokið hafa sjö daga einangrun eftir staðfest smit af völdum Covid-19 geta nú og mega útskrifa sig sjálfir, að því tilskildu að þeir finni ekki fyrir sjúkdómseinkennum. Covid-göngudeild Landspítala hefur alla jafna samband við fólk fyrir útskrift, en vegna mikils álags er ekki skylt að bíða eftir skilaboðum frá Covid-göngudeildinni, að því gefnu að öll skilyrði fyrir útskrift séu uppfyllt. Einangrun hefst frá þeim tíma að telja sem fyrir liggur jákvætt PCR-próf um sýkingu viðkomandi. Hvorki jákvætt heimapróf né hraðpróf telst viðmið fyrir upphaf einangrunar.

    07. jan. 2022Heilbrigðisráðuneytið, Covid-19, Líf og heilsa

    COVID-19: Breyttar reglur um sóttkví

    Heilbrigðisráðherra hefur ákveðið að breyta reglum um sóttkví í samræmi við tillögur sóttvarnalæknis. Breytingarnar byggja á faglegu mati og góðri bólusetningarstöðu þjóðarinnar. „Við þurfum að halda samfélaginu gangandi eins og framast er kostur, hvort sem við horfum til skólanna, velferðarþjónustu eða margvíslegrar atvinnustarfsemi og eins og staðan er núna eru þetta bráðnauðsynleg viðbrögð.“ segir Willum Þór Þórsson, heilbrigðisráðherra. Breytingarnar taka gildi á miðnætti.

    07. jan. 2022Mennta- og barnamálaráðuneytið, Covid-19, Menntamál

    Sóttvarnir í skólum: Samráð og vöktun

    Ásmundur Einar Daðason mennta- og barnamálaráðherra hefur sett á laggirnar nýtt vöktunarteymi um sóttvarnir í skólastarfi.

    04. jan. 2022Covid-19, Ferðaþjónusta, Atvinnuvegir, Atvinnuvegaráðuneytið

    Staða íslenskrar ferðaþjónustu þokkaleg í árslok 2021: Viðspyrnuaðgerðir nema 31 ma. kr. og hafa skipt sköpum

    Heimsfaraldurinn COVID-19 hefur enn mikil áhrif á íslenska ferðaþjónustu og hefur KPMG unnið fjárhagsgreiningu á áætlaðri stöðu íslenskrar ferðaþjónustu í árslok 2021. Greiningin er unnin í samstarfi við Ferðamálastofu og að ósk atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytisins en ráðuneytið óskaði eftir greiningu á stöðunni við árslok.

    04. jan. 2022Forsætisráðuneytið, Heilbrigðisráðuneytið, Covid-19, Dómsmálaráðuneytið

    Sóttvarnaaðgerðir á landamærum óbreyttar til 28. febrúar

    Á fundi ríkisstjórnar í morgun var ákveðið að framlengja óbreytta reglugerð um sóttvarnaráðstafanir á landamærum vegna COVID-19 til 28. febrúar nk. Þá var ákveðið að tillaga um fyrirkomulag á landamærum fyrir vorið verði kynnt fyrir 20. febrúar.

    30. des. 2021Heilbrigðisráðuneytið, Covid-19, Líf og heilsa

    COVID-19: Einangrun stytt í 7 daga - reglur um styttri tíma

    Í samráði við sóttvarnalækni hefur heilbrigðisráðherra gert breytingu á reglugerð um sóttkví og einangrun og sóttvarnaráðstafanir á landamærum Íslands vegna COVID-19, nr. 1240/2021. Með reglugerðarbreytingunni er einangrun einstaklinga sem hafa greinst með COVID-19 þannig stytt í 7 daga. Telji læknar COVID-19 göngudeildar Landspítala hins vegar nauðsynlegt að framlengja einangrun einstaklings er þeim það heimilt.

    29. des. 2021Heilbrigðisráðuneytið, Covid-19, Líf og heilsa

    Ákvörðun sóttvarnalæknis um einangrun staðfest fyrir dómi

    Héraðsdómur Reykjavíkur hefur staðfest ákvörðun sóttvarnalæknis um einangrun fimm einstaklinga vegna smita af völdum Covid. Samkvæmt upplýsingum frá embætti landlæknis er þetta í þriðja sinn sem látið er reyna á lögmæti ákvörðunar sóttvarnalæknis um einangrun fyrir dómi. Héraðsdómur Reykjavíkur staðfesti einnig ákvörðun sóttvarnalæknis um einangrun einstaklings með úrskurði 22. október 2020 og sömuleiðis í sambærilegu máli með úrskurði 13. apríl síðastliðinn. Dómstólar hafa einnig fjallað um mál einstaklinga sem mótmælt hafa ákvörðun sóttvarnalæknis um sóttkví þeirra. Tíu slík mál hafa farið fyrir héraðsdóm, síðast var úrskurðað í gær, og í öllum tilvikum hafa ákvarðanir sóttvarnalæknis verið staðfestar.…

    28. des. 2021Félags- og húsnæðismálaráðuneytið, Covid-19, Félags- og fjölskyldumál

    Styrkur til Hjálparstarfs kirkjunnar

    Markmiðið að efla félagslega ráðgjöf við notendur þjónustunnar.

    28. des. 2021Heilbrigðisráðuneytið, Covid-19, Líf og heilsa

    COVID-19: Heilbrigðisstofnanir taka á móti 30 sjúklingum til að létta álagi af LSH

    Stefnt er að því að flytja hátt í 30 sjúklinga frá Landspítala á aðrar heilbrigðisstofnanir víðsvegar um landið til að bregðast við erfiðum aðstæðum á spítalanum vegna Covid. Skortur er á legurýmum auk þess sem hátt í 200 starfsmenn sjúkrahússins eru frá vinnu, ýmist smitaðir af Covid eða í sóttkví.

    28. des. 2021Félags- og húsnæðismálaráðuneytið, Covid-19

    Hvatt til skráningar í bakvarðasveit

    Sérstaklega óskað eftir fólki með reynslu og menntun í heilbrigðis- og félagsþjónustu.

    22. des. 2021Heilbrigðisráðuneytið, Covid-19, Líf og heilsa

    COVID-19: Undanþágur til veitingamanna 23. desember

    Heilbrigðisráðherra hefur ákveðið að veita veitingastöðum undanþágu frá fjöldatakmörkun nýrrar reglugerðar um takmarkanir á samkomum þann 23. desember. Veitingastöðum verður því heimilt að taka á móti 50 gestum í rými þann 23. desember í stað 20 líkt og kveðið er á um í reglugerð. Að fjöldatakmörkunum slepptum verður skylt að viðhafa allar þær sóttvarnaráðstafanir sem kveðið er á um í reglugerðinni. Veitingastöðum ber því að loka á þeim tíma sem kveðið er á um í reglugerðinni, þ.e. kl. 21.00.

    22. des. 2021Covid-19, Ferðaþjónusta, Atvinnuvegir, Atvinnuvegaráðuneytið

    Tillögur ráðgjafa um þróun ferðamannastaða: Mikilvægast að hlúa að sérstöðu þeirra

    Atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytið hefur nú birt niðurstöður og tillögur franskra ráðgjafa sem heimsóttu Jökulsárlón, Gullfoss, Geysi og Þingvelli í haust í tengslum við Vörðu, verkefni um heildstæða stjórnun áfangastaða. Meðal þess sem ráðgjafarnir leggja til er að hlúa að sérstöðu og staðaranda hvers áfangastaðar, hafa innviði lágstemmda og huga að miðlun menningararfs. ​

    21. des. 2021Heilbrigðisráðuneytið, Covid-19, Líf og heilsa

    Bráðvantar fleira heilbrigðisstarfsfólk í bakvarðasveitina

    Heilbrigðisráðuneytið sendir hér með út ákall til heilbrigðismenntaðs fólks sem er reiðubúið að skrá sig í bakvarðasveit heilbrigðisþjónustunnar. Í ljósi mikillar fjölgunar Covid-smita í samfélaginu má gera ráð fyrir vaxandi álagi hjá heilbrigðisstofnunum og hætt er við auknum forföllum starfsfólks vegna smita og sóttkvíar. Alls hafa 152 heilbrigðisstarfsmenn skráð sig í bakvarðasveitina frá því að hún var endurvakin í október síðastliðinn. Sem fyrr er jafnan mest þörf fyrir sjúkraliða, hjúkrunarfræðinga og lækna en einnig er óskað eftir fólki á skrá úr öðrum heilbrigðisstéttum. Athygli er vakin á því að nemar í hjúkrunarfræði, læknisfræði og sjúkraliðanámi geta skráð sig í bakvarðasveitina.

    21. des. 2021Heilbrigðisráðuneytið, Covid-19, Líf og heilsa

    Samið við GL Iceland um Covid-flutninga á höfuðborgarsvæðinu

    Fyrirtækið Gray Line mun annast flutninga Covid-smitaðra á höfuðborgarsvæðinu sem ekki þurfa á flutningi að halda í sjúkrabíl. Sjúkratryggingar Íslands hafa gert samning um þessa þjónustu við fyrirtækið sem staðfestur hefur verið af heilbrigðisráðuneytinu. Markmiðið er að létta álagi af Slökkviliði höfuðborgarsvæðisins sem annast sjúkraflutninga. Covid-flutningar hafa verið umfangsmiklir í starfseminni undanfarið og fyrirsjáanlegt að þörf fyrir þessa flutninga mun halda áfram að aukast á næstunni vegna fjölgunar smita. Flutningar samkvæmt samningnum hefjast eins fljótt og auðið er og í síðasta lagi 1. janúar næstkomandi.

    21. des. 2021Innviðaráðuneytið, Flug og flugvellir, Samgöngur og fjarskipti, Covid-19

    Samið um lágmarksflug til Vestmannaeyja fram á vor

    Samið hefur verið við Flugfélagið Erni um lágmarksflug milli Reykjavíkur og Vestmannaeyja til 1. júní á næsta ári.

    21. des. 2021Heilbrigðisráðuneytið, Covid-19, Líf og heilsa

    COVID-19: Undanþágur frá sóttvarnaráðstöfunum fyrir þjóðhagslega mikilvæg fyrirtæki halda gildi

    Heilbrigðisráðherra veitti síðastliðið vor undanþágur frá reglum um sóttvarnaaðgerðir fyrir þjóðhagslega mikilvæg fyrirtæki svo unnt væri að halda starfsemi þeirra órofinni. Ráðherra hefur ákveðið að áður veittar undanþágur haldi gildi sínu þannig að hertar sóttvarnaráðstafanir raski ekki umræddri starfsemi. Sömu skilyrði fyrir undanþágum gilda og áður, en þær voru veittar að undangengnu samráði við sóttvarnalækni, almannavarnadeild ríkislögreglustjóra og Matvælastofnun.

    21. des. 2021Heilbrigðisráðuneytið, Covid-19, Líf og heilsa

    COVID-19: Innanlandstakmarkanir hertar til að sporna við hraðri útbreiðslu smita

    Almennar fjöldatakmarkanir verða 20 manns og nándarregla 2 metrar í stað 1 með ákveðnum undantekningum. Veitinga- og skemmtistöðum, krám og öðrum stöðum með vínveitingaleyfi ber að loka kl. 21 á kvöldin. Sund- og baðstöðum, líkamsræktarstöðvum og skíðasvæðum verður heimilt að taka á móti 50% af hámarksfjölda. Hraðprófsviðburðir verða takmarkaðir við 200 manns. Hvatt verður til fjarvinnu á vinnustöðum eins og kostur er. Þetta er megininntak hertra innanlandstakmarkana sem heilbrigðisráðherra hefur ákveðið í samræmi við tillögur sóttvarnalæknis til að sporna við hraðri útbreiðslu Covid-smita. Reglugerð þessa efnis tekur gildi fimmtudaginn 23. desember og gildir í þrjár vikur.

    09. des. 2021Covid-19, Ferðaþjónusta, Atvinnuvegir, Atvinnuvegaráðuneytið

    Lilja Dögg heimsótti Ferðamálastofu

    Lilja Dögg Alfreðsdóttir, ferðamála-, viðskipta- og menningarmálaráðherra, heimsótti í vikunni starfsstöð Ferðamálastofu í Reykjavík. Ráðherra fundaði þar með Skarphéðni Berg Steinarssyni ferðamálastjóra, og öðru starfsfólki stofnunarinnar, kynnti sér verkefnin sem fram undan eru og ræddi um framtíðarsýn sína fyrir greinina.

    07. des. 2021Heilbrigðisráðuneytið, Covid-19, Líf og heilsa

    COVID-19: Hjúkrunardeild fyrir covid-sjúklinga opnuð tímabundið á Eir

    Í dag verður opnuð á hjúkrunarheimilinu Eir sérstök hjúkrunareining fyrir covid-sjúklinga. Deildin er einkum hugsuð sem sérstakt úrræði fyrir íbúa á hjúkrunarheimilum sem veikjast af völdum Covid-19 og þurfa á sólarhringsumönnun að halda og einnig aldraða sem geta ekki haldið einangrun heima og þurfa umönnun. Hjúkrunardeildin er í húsnæði þar sem Eir hefur rekið dagdvöl fyrir 24 aldraða. Til að gera þetta mögulegt var dagdvölinni fundið annað húsnæði við Höfðabakka 9. Willum Þór Þórsson heilbrigðisráðherra kynnti sér aðstæður í nýju húsnæði dagdvalarinnar fyrir helgi og ræddi við starfsfólk og stjórnendur.

    03. des. 2021Heilbrigðisráðuneytið, Covid-19, Líf og heilsa

    Landspítali fær fjármagn til að útvista tilteknum aðgerðum og stytta þannig biðlista

    Willum Þór Þórsson heilbrigðisráðherra hefur ákveðið að veita Landspítala 60 milljónir króna sem gerir spítalanum kleift að útvista vel á annað hundrað valdra aðgerða og stytta með því biðlista. Um er að ræða tiltölulega einfaldar aðgerðir sem ekki er líklegt að kalli á innlögn á sjúkrahús eða gjörgæsluþjónustu.

    03. des. 2021Heilbrigðisráðuneytið, Covid-19, Líf og heilsa

    Kaup á nýju lyfi gegn alvarlegum veikindum af völdum Covid-19

    Heilbrigðisyfirvöld hafa ákveðið kaup á nýju lyfi sem heitir Sotrovimab frá GlaxoSmithKline og þykir gefa góða raun til að draga úr hættu á alvarlegum veikindum fólks vegna Covid-19 við vissar aðstæður. Lyfið er svokallað einstofna mótefni. Meðferð með einstofna mótefnum gagnast best þeim sem eru óbólusettir og/eða þeim sem mynda illa mótefni vegna lyfja eða sjúkdóma og er notkunin bundin við upphaf veikinda hjá þeim sem eru í aukinni hættu á að þróa með sér alvarlegan sjúkdóm. Til að byrja með hefur verið ákveðið að kaupa 72 skammta af lyfinu sem svokallað undanþágulyf og er það væntanlegt er til landsins síðar í þessum mánuði.

    02. des. 2021Heilbrigðisráðuneytið, Covid-19, Líf og heilsa

    COVID-19: Ný tölfræði um gagnsemi bólusetningar

    Birtar hafa verið á vefnum Covid.is nýjar tölfræðiupplýsingar sem sýna annars vegar samanburð á fjórtán daga nýgengi smita eftir aldurshópum og bóluefnastöðu og hins vegar nýgengi innlagna á sjúkrahús eftir stöðu bólusetningar. Samkvæmt tölfræðinni er nýgengi sjúkrahússinnlagna nú 0,5 hjá fullorðnum sem hafa fengið örvunarbólusetningu, það er um tólf sinnum hærra (5,9) hjá þeim sem eru fullbólusettir og 68 sinnum hærra (34,0) hjá þeim sem ekki eru fullbólusettir en hjá þeim sem fengið hafa örvunarbólusetningu.

    01. des. 2021Heilbrigðisráðuneytið, Covid-19, Líf og heilsa

    COVID-19: Hraðpróf fyrir viðburði og aðgengi að þeim

    Til að koma betur til móts við fólk sem vill sækja viðburði hefur Heilsugæsla höfuðborgarsvæðisins lengt opnunartíma fyrir hraðpróf til kl. 17.00 á laugardögum. Miðvikudaga, fimmtudaga og föstudaga er opið frá kl. 8.00-20.00 en skemur aðra daga. Heilbrigðisstofnanir um allt land bjóða upp á hraðpróf vegna Covid-19. Auk þess veita einkaaðilar þessa þjónustu í Reykjanesbæ, á Akureyri og á fjórum stöðum í Reykjavík. Hér fylgja nánari upplýsingar um hraðprófsstaði og skráningu í hraðpróf.

    27. nóv. 2021Heilbrigðisráðuneytið, Covid-19, Utanríkisráðuneytið

    COVID-19: Hertar sóttvarnaaðgerðir á landamærum vegna nýja kórónaveiruafbrigðisins Ómíkron

    Öllum sem koma til landsins og hafa dvalið meira en sólarhring síðastliðna 14 daga á skilgreindum hááhættusvæðum verður skylt að fara í PCR-próf við komuna til landsins og síðan í sóttkví sem lýkur með öðru PCR prófi fimm dögum síðar. Þetta gildir um alla sem dvalið hafa á hááhættusvæði, hvort sem þau eru bólusett eða ekki eða með sögu um fyrri sýkingu af Covid-19. Þessir einstaklingar þurfa jafnframt að framvísa neikvæðu Covid-prófi við byrðingu erlendis fyrir komuna til Íslands (þó að undanskildum þeim sem eru með tengsl við Ísland). Enn fremur ber þeim að fylla út rafrænt forskráningareyðublað þar sem m.a. kemur fram hvar þau hyggjast dvelja í sóttkví á Íslandi. Börn fædd 2016 og síðar eru undanskilin þessum reglum.…

    25. nóv. 2021Covid-19, Ferðaþjónusta, Atvinnuvegir, Atvinnuvegaráðuneytið

    Vegna ákvörðunar Persónuverndar um Ferðagjöf

    Vegna ákvörðunar Persónuverndar varðandi Ferðagjöf vill atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytið koma eftirfarandi á framfæri:

    15. nóv. 2021Innviðaráðuneytið, Covid-19, Sveitarstjórnir og byggðamál

    Sveitarstjórnum heimilað að taka ákvarðanir að nýju á fjarfundum vegna faraldursins

    Vegna fjölgunar COVID-19 smita í samfélaginu hefur ráðherra veitt sveitarstjórnum tímabundna heimild til að ákveða að sveitarstjórnarmönnum sé heimilt að taka þátt í fundum sveitarstjórna eða nefnda og ráða á vegum sveitarfélaga, þrátt fyrir að um annað sé getið í samþykktum þeirra.

    12. nóv. 2021Heilbrigðisráðuneytið, Covid-19, Líf og heilsa

    COVID-19: Undanþágur frá sóttvarnaráðstöfunum fyrir þjóðhagslega mikilvæg fyrirtæki

    Heilbrigðisráðherra veitti síðastliðið vor undanþágur frá reglum um sóttvarnaaðgerðir fyrir þjóðhagslega mikilvæg fyrirtæki svo unnt væri að halda starfsemi þeirra órofinni. Heilbrigðisráðherra hefur ákveðið að áður veittar undanþágur haldi gildi sínu þannig að hertar sóttvarnaráðstafanir raski ekki umræddri starfsemi. Sömu skilyrði fyrir undanþágum gilda og áður, en þær voru veittar að undangengnu samráði við sóttvarnalækni, almannavarnadeild ríkislögreglustjóra og Matvælastofnun.

    12. nóv. 2021Heilbrigðisráðuneytið, Covid-19, Líf og heilsa

    COVID-19: Hertar aðgerðir, 50 manna fjöldatakmarkanir – stórátak í örvunarbólusetningum

    Heilbrigðisráðherra hefur í samræmi við tillögur sóttvarnalæknis ákveðið að herða til muna sóttvarnaaðgerðir til að sporna við hraðri útbreiðslu Covid-19. Aðgerðirnar taka gildi á miðnætti. Almennar fjöldatakmarkanir verða 50 manns en með notkun hraðprófa verður heimilt að efna til viðburða með að hámarki 500 manns í sóttvarnahólfi. Opnunartími veitingastaða verður styttur um klukkustund. Hámarksfjöldi gesta á sund- og baðstöðum, líkamsræktarstöðvum og skíðasvæðum miðast við 75% af heimiluðum hámarksfjölda samkvæmt starfsleyfi. Reglugerð um þessar aðgerðir gildir til og með 8. desember.

    12. nóv. 2021Heilbrigðisráðuneytið, Covid-19, Líf og heilsa

    COVID-19: Upplýsingar um hvar hægt er að fara í hraðpróf

    Heilbrigðisstofnanir um allt land bjóða upp á hraðpróf vegna Covid-19. Í Reykjavík er hægt að fara í sýnatöku á vegum heilsugæslunnar við Suðurlandsbraut. Auk þess veita einkaaðilar þessa þjónustu í Reykjanesbæ, á Akureyri og á fjórum stöðum í Reykjavík. Hraðpróf eru notendum að kostnaðarlausu.

    05. nóv. 2021Heilbrigðisráðuneytið, Covid-19, Líf og heilsa

    COVID-19: Brýn þörf fyrir fleira fólk í bakvarðasveit heilbrigðisþjónustunnar

    Vegna örrar fjölgunar Covid-19 smita með auknu álagi á heilbrigðiskerfið bráðvantar fleira heilbrigðisstarfsfólk á skrá í bakvarðasveit heilbrigðisþjónustunnar. Óskað er eftir liðsinni heilbrigðisstarfsfólks sem er reiðubúið að koma tímabundið til starfa með skömmum fyrirvara, hvort sem er í fullt starf, hlutastarf eða tímavinnu, eftir því sem aðstæður leyfa.

    05. nóv. 2021Heilbrigðisráðuneytið, Covid-19, Líf og heilsa

    COVID-19: Bólusetningarátak; örvunarskammtar og óbólusettir

    Um 160.000 manns um land allt verða boðaðir í örvunarbólusetningu fyrir áramót. Á höfuðborgarsvæðinu verður bólusett í Laugardalshöllinni á tímabilinu 15. nóvember til 8. desember á mánudögum, þriðjudögum og miðvikudögum. Örvunarskammtar eru ætlaðir þeim sem þegar eru bólusettir og fengu síðari bóluefnaskammtinn fyrir a.m.k. fimm mánuðum. Fólk verður boðað með strikamerki sem send verða í smáskilaboðum (SMS). Þeir sem áður hafa fengið boð í bólusetningu en ekki þegið hana, eru hvattir til að mæta.

    05. nóv. 2021Heilbrigðisráðuneytið, Covid-19, Líf og heilsa

    COVID-19: Innanlandsaðgerðir hertar vegna mikillar fjölgunar smita

    Skylt verður að bera grímu þegar ekki er unnt að virða 1 metra nálægðarreglu, fjöldatakmarkanir verða 500 manns, veitingastöðum með vínveitingaleyfi verður skylt að loka tveimur tímum fyrr en nú. Með notkun hraðprófa verður heimilt að halda viðburði fyrir allt að 1.500 manns. Heilbrigðisráðherra hefur ákveðið þessar aðgerðir samkvæmt tillögum sóttvarnalæknis sem hefur áhyggjur af mikilli fjölgun smita, auknum veikindum og vaxandi álagi á heilbrigðiskerfið. Reglur um grímunotkun taka gildi á morgun (á miðnætti aðfaranótt 6. nóvember) en aðrar breytingar miðvikudaginn 10. nóvember og gilda í fjórar vikur til þriðjudags 8. desember.

    04. nóv. 2021Heilbrigðisráðuneytið, Covid-19

    COVID-19: Sóttvarnaaðgerðir á landamærum óbreyttar til 15. janúar 2022

    Heilbrigðisráðherra hefur ákveðið að framlengja óbreytta reglugerð um sóttvarnaráðstafanir á landamærum vegna Covid-19, í samræmi við tillögu sóttvarnalæknis. Reglugerðin gildir til 15. janúar 2022. Ástæðan er mikil fjölgun smita innanlands að undanförnu. Sóttvarnalæknir bendir á að faraldurinn sé í töluverðum vexti, þeim fari fjölgandi sem veikjast alvarlega og faraldurinn sé farinn að hafa íþyngjandi áhrif á starfsemi Landspítala. Um 2% þeirra sem greinast með Covid-19 þurfa að leggjast inn á sjúkrahús.

    28. okt. 2021Heilbrigðisráðuneytið, Covid-19, Líf og heilsa

    COVID-19: Sóttkví og einangrun – reglur um styttri tíma

    Sóttvarnalæknir hefur lokið endurskoðun á reglum um sóttkví og einangrun vegna Covid-19 og er niðurstaðan sú að stytta megi einangrun smitaðra og sóttkví þeirra sem hafa verið útsettir fyrir Covid, án þess að auka hættu á útbreiðslu veirunnar. Heilbrigðisráðherra hefur gert breytingu á reglugerð nr. 1100/2021 þessa efnis, í samræmi við tillögur sóttvarnalæknis. Að uppfylltum skilyrðum getur tími í einangrun orðið skemmstur sjö dagar. Almenn krafa um dvöl í sóttkví styttist úr sjö dögum í fimm, að því gefnu að henni ljúki með neikvæðri niðurstöðu úr PCR prófi. Ef einstaklingur undirgengst ekki PCR próf til að ljúka sóttkví þarf hann að sæta henni í 14 daga. Reglugerðin tekur gildi frá og með 29. október og taka breyttar reglur einnig til þeirra sem þegar eru í sóttkví eða einangrun.

    27. okt. 2021Heilbrigðisráðuneytið, Covid-19, Líf og heilsa

    COVID-19: Bakvarðasveit heilbrigðisþjónustu virkjuð – heilbrigðisstarfsfólk óskast á skrá

    Vegna fjölgunar COVID-19 smita hefur verið ákveðið að virkja bakvarðasveit heilbrigðisþjónustunnar. Þetta er nauðsynlegt viðbragð til að mæta mönnunarvanda sem skapast getur vegna veikinda eða tímabundinnar sóttkvíar heilbrigðisstarfsfólks ef smit kemur upp á heilbrigðisstofnunum, líkt og gerst hefur á Landspítala þar sem deild 12G er nú í sóttkví. Biðlað er til heilbrigðisstarfsfólks sem hefur tök á að veita tímabundið liðsinni ef á reynir um að skrá sig í bakvarðasveitina. Á Landspítala vantar nú einkum hjúkrunarfræðinga og sjúkraliða.

    25. okt. 2021Heilbrigðisráðuneytið, Covid-19, Líf og heilsa

    COVID-19: Staða bólusetninga, horfur og næstu skref

    Smitum af völdum Covid-19 hér á landi hefur fjölgað nokkuð undanfarið og þróun í ýmsum ríkjum Evrópu þar sem fjölgun smita er enn hraðari og sjúkrahúsinnlögnum fjölgar ört, kallar á stöðumat hér. Vitað er að bólusetning gegn veirunni veitir góða vörn og ver fólk fyrir alvarlegum veikindum. Um 76% landsmanna eru nú fullbólusett en til að fyrirbyggja hraðari útbreiðslu og mikil veikindi hér þarf að gera enn betur. Um 34.400 einstaklingar 12 ára og eldri eru óbólusettir.

    21. okt. 2021Fjármála- og efnahagsráðuneytið, Efnahagsmál og opinber fjármál, Rekstur og eignir ríkisins, Covid-19

    Minni þörf fyrir sértækan stuðning samhliða efnahagsbata

    Samhliða augljósum efnahagsbata að undanförnu hefur dregið úr sértækum stuðningi ríkissjóðs við rekstraraðila vegna heimsfaraldurs kórónuveiru og færri sækja um þau úrræði sem enn eru virk.

    19. okt. 2021Heilbrigðisráðuneytið, Covid-19, Líf og heilsa

    COVID-19: Verulegar afléttingar innanlandstakmarkana strax og að fullu 18. nóvember

    Almennar fjöldatakmarkanir verða 2.000 manns, grímuskyldu verður aflétt, opnunartími veitingastaða lengdur um klukkustund og skráningarskyldu gesta aflétt. Regla um nándarmörk verður áfram 1 metri. Þetta er megininntak breytinga á reglugerð um samkomutakmarkanir sem tekur gildi 20. október samkvæmt ákvörðun heilbrigðisráðherra. Stefnt er að fullri afléttingu samkomutakmarkana innanlands frá og með 18. nóvember.

    05. okt. 2021Heilbrigðisráðuneytið, Líf og heilsa, Covid-19

    COVID-19: Takmarkanir innanlands framlengdar til 20. október

    Heilbrigðisráðherra hefur fallist á tillögu sóttvarnalæknis um að framlengja gildandi sóttvarnaráðstafanir innanlands vegna faraldurs Covid-19. Reglugerð heilbrigðisráðherra þess efnis hefur verið send Stjórnartíðindum til birtingar og gildir hún til og með 20. október næstkomandi.

    04. okt. 2021Heilbrigðisráðuneytið, Covid-19, Líf og heilsa

    Skanni C-19 - Smáforrit fyrir viðburðahaldara

    Embætti landlæknis hefur gefið út smáforritið Skanna C-19 sem er sérstaklega ætlað til að auðvelda þeim sem standa fyrir fjölmennum viðburðum að sannprófa gildi vottorða um neikvæða niðurstöðu úr skimun fyrir Covid-19 (PCR- og hraðpróf) á einfaldan og fljótvirkan hátt.

    04. okt. 2021Covid-19, Ferðaþjónusta, Atvinnuvegir, Atvinnuvegaráðuneytið

    Aðgerðir til álagsstýringar á ferðamannastöðum: Bætt stýring stuðlar að jákvæðri upplifun gesta og heimamanna

    VSÓ ráðgjöf hefur skilað atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytinu skýrslu um álagsstýringu á ferðamannastöðum sem unnin var að beiðni ráðuneytisins. Skýrslunni var ætlað að koma með tillögur að aðgerðum í verkfærakistu til álagsstýringar fyrir ferðamannastaði.

    28. sep. 2021Heilbrigðisráðuneytið, Covid-19, Líf og heilsa

    COVID-19: Breyttar reglur um takmarkanir á landamærunum 1. október

    Felld verður niður krafa um að einstaklingar með tengsl við Ísland þurfi að framvísa vottorði um neikvætt Covid próf við komu til landsins. Farþegar í tengiflugi sem ekki fara út fyrir landamærastöð verða einnig undanþegnir framvísun slíks vottorðs. Sem fyrr þurfa þeir sem eru með tengsl við Ísland að fara í sýnatöku eftir komu til landsins, að undanskildum börnum sem fædd eru 2005 eða síðar. Þetta er meginefni breytinga á takmörkunum á landamærum vegna Covid-19 sem heilbrigðisráðherra hefur ákveðið í samræmi við tillögur sóttvarnalæknis og er gert ráð fyrir að þær gildi til 6. nóvember næstkomandi.

    27. sep. 2021Utanríkisráðuneytið, Alþjóðamál, Covid-19, Jafnrétti, Loftslagsmál, Mannréttindi, Orka, Sameinuðu þjóðirnar, Fastanefnd Íslands hjá S.þ., Utanríkismál, Sendiskrifstofa

    Loftslagsmál og mannréttindi efst á baugi í ræðu ráðherra á allsherjarþinginu

    Guðlaugur Þór Þórðarson, utanríkis- og þróunarsamvinnuráðherra, talaði fyrir aðgerðum í loftslagsmálum, jafnari dreifingu bóluefna og mikilvægi mannréttinda og alþjóðalaga fyrir hagsæld og framþróun ríkja í ræðu á allsherjarþingi Sameinuðu þjóðanna í dag.

    23. sep. 2021Mennta- og barnamálaráðuneytið, Menntamál, Covid-19

    Mundu að hnerra í regnbogann: Bók um skólastarf og COVID-19

    Heimsfaraldur COVID-19 hefur haft fjölþætt áhrif á skóla- og frístundastarf hér á landi. Í bókinni Mundu að hnerra í regnbogann, sem nú er komin út, er að finna persónulegar frásagnir skólafólks; kennara, nemenda, stjórnenda og annars starfsfólks skóla á öllum skólastigum, af viðburðaríkum en krefjandi tíma vegna COVID-19

    22. sep. 2021Fjármála- og efnahagsráðuneytið, Efnahagsmál og opinber fjármál, Rekstur og eignir ríkisins, Covid-19

    Stuðningur vegna niðurfellingar viðburða á vegum íþrótta- og æskulýðsfélaga

    Á ríkisstjórnarfundi á þriðjudag var fjármála- og efnhagsráðuneytinu ásamt mennta- og menningarmálaráðuneytinu falið að greina vanda aðila í íþrótta- og æskulýðsstarfi sem hafa þurft að aflýsa viðburðum vegna sóttvarnarráðstafna. Þar er litið til viðburða sem hafa verið mikilvægar tekjuöflunarleiðir í starfinu.

    • First
    • Prev
    • 1
    • 2
    • 3
    • 4
    • 5
    • Next
    • Last
    Logo
    • Um vefinn
    • Áskrift
    • Veftré
    • Fyrirvari
    +354 545 8000
    Staðsetning ráðuneyta, opnunartími og netföng
    Hafa samband

    Hafa samband