07. nóv. 2022Mannréttindi og jafnrétti, Utanríkismál, Evrópuráðið, Dómsmálaráðuneytið, Forsætisráðuneytið
Heimsókn forsætisráðherra til Strassborgar
Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra flutti í dag aðalræðuna á World Forum on Democracy sem fram fer í Strassborg. Forsætisráðherra er í vinnuheimsókn í borginni og sat m.a. ráðherrafund í morgun þar sem samþykkt var tillaga um að leiðtogafundur Evrópuráðsins verði haldinn í Reykjavík í maí á næsta ári.