Coat of arms
Stjórnarráð Íslands
  • Verkefni
    • Almannatryggingar og lífeyrir
    • Almannaöryggi
    • Atvinnuvegir
    • Auðlindir
    • Efnahagsmál
    • Félags- og fjölskyldumál
    • Fjarskipti
    • Húsnæðis- og mannvirkjamál
    • Líf og heilsa
    • Kosningar
    • Lög og réttur
    • Mannauðsmál ríkisins
    • Mannréttindi og jafnrétti
    • Menningarmál
    • Menntamál
    • Neytendamál
    • Opinber fjármál
    • Persónuréttur
    • Rekstur og eignir ríkisins
    • Samgöngur
    • Sjálfbært Ísland
    • Skipulagsmál
    • Stjórnskipan og þjóðartákn
    • Sveitarstjórnir og byggðamál
    • Trú og lífsskoðun
    • Umhverfi og náttúruvernd
    • Upplýsingatæknimál ríkisins
    • Utanríkismál
    • Útlendingar
    • Vinnumál
    • Vísindi, nýsköpun og rannsóknir
    • Öll verkefni
    • Efst á baugi
      • Fréttir
      • Nýjast
      • Fyrirspurnir frá Alþingi
      • Fyrir fjölmiðla
      • Eldri fréttir
    • Gögn
      • Rit og skýrslur
      • Úrskurðir og álit
      • Eyðublöð
      • Stefnur og áætlanir
      • Styrkir og sjóðir
      • Hugtakasafn
      • Lög og reglugerðir
      • Málaskrár ráðuneyta
      • Mælaborð
      • Hönnunarstaðall
    • Ráðuneyti
      • Forsætisráðuneytið
      • Atvinnuvegaráðuneytið
      • Dómsmálaráðuneytið
      • Félags- og húsnæðismálaráðuneytið
      • Fjármála- og efnahagsráðuneytið
      • Heilbrigðisráðuneytið
      • Innviðaráðuneytið
      • Menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðuneytið
      • Mennta- og barnamálaráðuneytið
      • Umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytið
      • Utanríkisráðuneytið
      • Sendiskrifstofur
      • Samstarfsráðherra Norðurlanda
      • Starfsfólk
      • Stofnanir
      • Nefndir
      • Símanúmer og staðsetning ráðuneyta
      • Umbra
    • Ríkisstjórn
      • Skipan ríkisstjórnar
      • Ríkisstjórnarfundir
      • Stjórnarsáttmáli
      • Ráðherranefndir
      • Reglur um starfshætti
      • Reglur um ferðakostnað og starfskjör ráðherra
      • Siðareglur, hagsmunir og hagsmunaverðir
      • Þingmálaskrá
      • Ríkisráð
      • Sögulegt efni
      • Fyrir fjölmiðla
    EN
    • Verkefni
      • Almannatryggingar og lífeyrir
      • Almannaöryggi
      • Atvinnuvegir
      • Auðlindir
      • Efnahagsmál
      • Félags- og fjölskyldumál
      • Fjarskipti
      • Húsnæðis- og mannvirkjamál
      • Líf og heilsa
      • Kosningar
      • Lög og réttur
      • Mannauðsmál ríkisins
      • Mannréttindi og jafnrétti
      • Menningarmál
      • Menntamál
      • Neytendamál
      • Opinber fjármál
      • Persónuréttur
      • Rekstur og eignir ríkisins
      • Samgöngur
      • Sjálfbært Ísland
      • Skipulagsmál
      • Stjórnskipan og þjóðartákn
      • Sveitarstjórnir og byggðamál
      • Trú og lífsskoðun
      • Umhverfi og náttúruvernd
      • Upplýsingatæknimál ríkisins
      • Utanríkismál
      • Útlendingar
      • Vinnumál
      • Vísindi, nýsköpun og rannsóknir
      • Öll verkefni
    • Efst á baugi
      • Fréttir
      • Nýjast
      • Fyrir fjölmiðla
      • Eldri fréttir
      • Fyrirspurnir frá Alþingi
    • Gögn
      • Rit og skýrslur
      • Úrskurðir og álit
      • Eyðublöð
      • Stefnur og áætlanir
      • Styrkir og sjóðir
      • Hugtakasafn
      • Lög og reglugerðir
      • Málaskrár ráðuneyta
      • Mælaborð
      • Hönnunarstaðall
    • Ráðuneyti
      • Forsætisráðuneytið
      • Atvinnuvegaráðuneytið
      • Dómsmálaráðuneytið
      • Félags- og húsnæðismálaráðuneytið
      • Fjármála- og efnahagsráðuneytið
      • Heilbrigðisráðuneytið
      • Innviðaráðuneytið
      • Menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðuneytið
      • Mennta- og barnamálaráðuneytið
      • Umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytið
      • Utanríkisráðuneytið
      • Sendiskrifstofur
      • Samstarfsráðherra Norðurlanda
      • Starfsfólk
      • Stofnanir
      • Nefndir
      • Símanúmer og staðsetning ráðuneyta
      • Umbra
    • Ríkisstjórn
      • Skipan ríkisstjórnar
      • Ríkisstjórnarfundir
      • Stjórnarsáttmáli
      • Ráðherranefndir
      • Reglur um starfshætti
      • Reglur um ferðakostnað og starfskjör ráðherra
      • Siðareglur, hagsmunir og hagsmunaverðir
      • Þingmálaskrá
      • Ríkisráð
      • Sögulegt efni
      • Fyrir fjölmiðla
    Close navigation
    Framkvæmd búvörusamninga
    Efnisorð

    Ekkert fannst

    Tegund
    Tegund

    Leita eftir efnisorðum

    Sýnir 51–83 af 83
    Raða eftir:
    01. jún. 2021Atvinnuvegaráðuneytið, Framkvæmd búvörusamninga, Landbúnaður, Atvinnuvegir

    Hringferð um Ræktum Ísland! hefst í kvöld

    Fyrsti fundur í hringferð um Ræktum Ísland!, umræðuskjal um landbúnaðarstefnu fyrir Ísland, fer fram í Landbúnaðarháskólanum á Hvanneyri kl. 20 í kvöld. Á morgun fer fram fundur á Ísafirði en alls er boðað til 10 opinna funda um allt land á næstu 16 dögum.

    26. maí 2021Atvinnuvegaráðuneytið, Framkvæmd búvörusamninga, Landbúnaður, Atvinnuvegir

    Kristján Þór og BÍ semja um nýtt íslenskt búvörumerki

    Kristján Þór Júlíusson, sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra, undirritaði í dag samning við Bændasamtök Íslands um gerð íslensks búvörumerkis. Um er að ræða nýtt valfrjálst upprunamerki fyrir íslenskar landbúnaðarvörur. Því er ætlað að afmarka með skýrari hætti innlenda landbúnaðarframleiðslu á heimamarkaði og bæta þar með upplýsingagjöf til neytenda. . Með því verður sérstaða íslenskra búvara betur tryggð en sambærileg merki eru til í Noregi, Svíþjóð og Finnlandi.

    20. maí 2021Atvinnuvegir, Auðlindir, Vísindi nýsköpun og rannsóknir, Framkvæmd búvörusamninga, Loftslagsmál, Náttúruvernd, Nýsköpun, Orka, Orkusjóður, Umhverfis-٫ orku- og loftslagsráðuneytið, Innviðaráðuneytið, Menningar-٫ nýsköpunar- og háskólaráðuneytið

    Hæsti styrkur Orkusjóðs um árabil: 320 milljónir í styrki til orkuskipta

    Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir, ráðherra ferðamála-, iðnaðar- og nýsköpunar, og Guðmundur Ingi Guðbrandsson, umhverfis- og auðlindaráðherra, hafa ákveðið að auglýstir verðir styrkir til orkuskipta að upphæð 320 milljónir kr. af þeim fjárveitingum sem veittar eru til loftslagsmála í ár. Um er að ræða hæstu upphæð sem sjóðurinn hefur úthlutað um árabil og eru megin áherslur nú á ný svið, svo sem þungaflutninga og vinnuvélar. Að auki býður sjóðurinn nú í fyrsta sinn stuðning til líf- og rafeldsneytisframleiðslu og orkugeymslna. Áframhaldandi stuðningur er við uppbyggingu hleðslunets fyrir rafbíla.

    19. maí 2021Atvinnuvegaráðuneytið, Covid-19, Framkvæmd búvörusamninga, Landbúnaður, Atvinnuvegir

    Margvísleg tækifæri til bættrar afkomu í sauðfjárrækt

    Tækifæri íslenskra sauðfjárbænda til bættrar afkomu liggja í áframhaldandi hagræðingu í búrekstri, hagræðingu í rekstri sláturhúsa og hagkvæmara fyrirkomulagi útflutnings. Þetta eru helstu niðurstöður skýrslu Landbúnaðarháskóla Íslands um um afkomu sauðfjárbænda á Íslandi og leiðir til að bæta hana. Skýrslan var unnin að beiðni Kristjáns Þórs Júlíussonar, sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra, og var kynnt í dag á opnum streymisfundi.

    19. maí 2021Atvinnuvegaráðuneytið, Framkvæmd búvörusamninga, Landbúnaður, Atvinnuvegir

    Streymisfundur kl. 9:30: Kristján Þór kynnir skýrslu um afkomu sauðfjárbænda á Íslandi og leiðir til að bæta hana

    Landbúnaðarháskóli Íslands hefur skilað atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytinu skýrslu um afkomu sauðfjárbænda á Íslandi og leiðir til að bæta hana. Skýrslan var unnin að beiðni Kristjáns Þórs Júlíussonar, sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra, og er hluti af samningi ráðuneytisins við skólann fyrir árin 2020-2023.

    14. maí 2021Byggðamál, Covid-19, Fiskeldi, Framkvæmd búvörusamninga, Landbúnaður, Matvælasjóður, Nýsköpun, Sjávarútvegur, Atvinnuvegir, Menningar-٫ nýsköpunar- og háskólaráðuneytið

    Matvælasjóður auglýsir úthlutun í annað sinn: 630 milljónir til úthlutunar

    Kristján Þór Júlíusson, sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra, og Margrét Hólm Valsdóttir, formaður Matvælasjóðs, opnuðu í dag fyrir umsóknir í Matvælasjóð. Þetta er í annað sinn sem sjóðurinn auglýsir úthlutun. Matvælasjóður mun fá 250 milljón króna viðbótarframlag á þessu ári og er heildarúthlutunarfé sjóðsins alls 630 milljónir króna. Hlutverk sjóðsins að styrkja þróun og nýsköpun við framleiðslu og vinnslu íslenskra matvæla og hliðarafurða þeirra úr landbúnaðar- og sjávarafurðum á landsvísu.

    05. maí 2021Umhverfi og náttúruvernd, Covid-19, Framkvæmd búvörusamninga, Landbúnaður, Nýsköpun, Loftslagsmál, Atvinnuvegir, Menningar-٫ nýsköpunar- og háskólaráðuneytið

    Umræðuskjal um Landbúnaðarstefnu fyrir Ísland kynnt

    Landnýting, loftslagsmál og umhverfisvernd, nýsköpun og tækni eru þrjár lykilbreytur sem munu marka landbúnaðarstefnu fyrir Ísland til framtíðar. Kristján Þór Júlíusson, sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra, stóð í dag fyrir fjarfundi þar sem kynntvar Ræktum Ísland! umræðuskjal um landbúnaðarstefnu fyrir Ísland.

    05. maí 2021Atvinnuvegaráðuneytið, Framkvæmd búvörusamninga, Landbúnaður, Atvinnuvegir

    Streymisfundur í dag um Ræktum Ísland! umræðuskjal um Landbúnaðarstefnu fyrir Ísland

    Kristján Þór Júlíusson, sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra, býður til opins streymis-fundar um Ræktum Ísland!, umræðuskjal um Landbúnaðarstefnu fyrir Ísland, miðvikudaginn 5. maí kl. 09:30.

    04. maí 2021Atvinnuvegaráðuneytið, Covid-19, Framkvæmd búvörusamninga, Landbúnaður, Atvinnuvegir

    Kristján Þór heimilar slátrun beint frá býli

    Kristján Þór Júlíusson, sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra, hefur undirritað reglugerð um slátrun í litlum sauðfjár- og geitasláturhúsum sem heimilar bændum að slátra sauðfé og geitum á búunum sjálfum og dreifa á markaði. Slík framleiðsla og dreifing hefur hingað til verið óheimil. Í reglugerðinni er kveðið á um að dýralæknar sinni heilbrigðisskoðunum bæði fyrir og eftir slátrun og mun kostnaður þess greiðast úr ríkissjóði.

    30. apr. 2021Atvinnuvegaráðuneytið, Framkvæmd búvörusamninga, Landbúnaður, Atvinnuvegir

    Fjárfestingastuðningur í nautgriparækt

    Atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytið hefur greitt fjárfestingastuðning í nautgriparækt vegna framkvæmda á árinu 2020. Helmingur af samþykktri styrkupphæð var greiddur við upphaf framkvæmdar á umsóknarári og síðari helmingur við skila á lokaskýrslu vegna framkvæmda á árinu 2020.

    09. apr. 2021Atvinnuvegaráðuneytið, Covid-19, Framkvæmd búvörusamninga, Landbúnaður, Atvinnuvegir

    Styrkir til rannsókna- og þróunarverkefna búgreina

    Atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytið auglýsir eftir umsóknum um styrki til rannsókna- og þróunarverkefna í garðyrkju, samkvæmt VIII. kafla reglugerðar nr. 1273/2020 um stuðning við garðyrkju, þróunarverkefna í sauðfjár- og nautgriparækt, samkvæmt VIII. kafla reglugerðar um almennan stuðning í landbúnaði. Athygli er vakin á að umsýsla með styrkjunum fluttist um sl. áramót frá Framleiðnisjóði landbúnaðarins til atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytisins.

    08. apr. 2021Vísindi nýsköpun og rannsóknir, Covid-19, Framkvæmd búvörusamninga, Landbúnaður, Nýsköpun, Atvinnuvegir, Menningar-٫ nýsköpunar- og háskólaráðuneytið

    Kristján Þór opnaði Mælaborð landbúnaðarins

    Kristján Þór Júlíusson, sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra, opnaði Mælaborð landbúnaðarins á opnum streymisfundi í dag. Mælaborðið er aðgengilegt á vefnum www.mælaborðlandbúnaðarins.is​​

    08. apr. 2021Atvinnuvegaráðuneytið, Framkvæmd búvörusamninga, Landbúnaður, Atvinnuvegir

    Opinn streymisfundur um Mælaborð landbúnaðarins

    Kristján Þór Júlíusson, sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra, kynnir Mælaborð landbúnaðarins á opnum streymisfundi fimmtudaginn 8. apríl kl. 13.

    07. apr. 2021Atvinnuvegir, Auðlindir, Neytendamál, Vísindi nýsköpun og rannsóknir, Fiskeldi, Framkvæmd búvörusamninga, Landbúnaður, Matvælasjóður, Nýsköpun, Sjávarútvegur, Atvinnuvegaráðuneytið

    Margrét Hólm nýr formaður Matvælasjóðs

    Kristján Þór Júlíusson, sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra, hefur skipað Margréti Hólm Valsdóttur nýjan formann Matvælasjóðs.

    07. apr. 2021Atvinnuvegaráðuneytið, Framkvæmd búvörusamninga, Landbúnaður, Atvinnuvegir

    Niðurstöður tilboðsmarkaðar fyrir greiðslumark mjólkur

    Atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytinu bárust 188 gild tilboð um kaup og sölu á tilboðsmarkaði fyrir greiðslumark mjólkur þann 6. apríl 2021. Greiðslumark er tiltekið magn mjólkur mælt í lítrum sem veitir rétt til beingreiðslna úr ríkissjóði og fara aðilaskipti að greiðslumarki fram á markaði. Þetta er fyrsti markaður ársins og viðskiptin taka gildi frá 1. janúar sl., þ.e. kaupandi getur nýtt greiðslumarkið á yfirstandandi framleiðsluári.

    23. mar. 2021Atvinnuvegaráðuneytið, Framkvæmd búvörusamninga, Landbúnaður, Atvinnuvegir

    Fjárfestingastuðningur í svínarækt

    Atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytið auglýsir eftir umsóknum um fjárfestingastuðning í svínarækt. Um umsóknir og úthlutun stuðningsins gilda ákvæði VII. kafla reglugerðar um almennan stuðning við landbúnað nr. 1260/2018. Umsóknum um fjárfestingastuðning vegna framkvæmda á árunum 2020-2021 skal skilað inn rafrænt á afurd.is eigi síðar en 6. apríl 2021.

    23. mar. 2021Atvinnuvegaráðuneytið, Umhverfi og náttúruvernd, Landbúnaður, Framkvæmd búvörusamninga, Atvinnuvegir

    Sigurborg stýrir verkefni um endurskoðun reglna og stjórnsýslu um dýrasjúkdóma

    Sigurborg Daðadóttir, yfirdýralæknir, hefur verið ráðin tímabundið til starfa í atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytinu. Hún mun taka að sér endurskoðun á regluverki og stjórnsýslu um dýrasjúkdóma.

    04. mar. 2021Atvinnuvegaráðuneytið, Framkvæmd búvörusamninga, Landbúnaður, Atvinnuvegir

    Fjárfestingastuðningur í nautgriparækt

    Opnað hefur verið fyrir umsóknir um fjárfestingastuðning í nautgriparækt í samræmi við reglugerð um stuðning við sauðfjárrækt nr. 1252/2019, VIII. kafla. Umsóknum um fjárfestingastuðning vegna framkvæmda á árunum 2020-2021 skal skilað inn rafrænt á afurd.is eigi síðar en 31. mars. ​

    04. mar. 2021Atvinnuvegaráðuneytið, Framkvæmd búvörusamninga, Landbúnaður, Atvinnuvegir

    Fjárfestingastuðningur í sauðfjárrækt

    Opnað hefur verið fyrir umsóknir um fjárfestingastuðning í sauðfjárrækt í samræmi við reglugerð um stuðning við sauðfjárrækt nr. 1253/2019, V. kafla. Umsóknum um fjárfestingastuðning vegna framkvæmda á árunum 2019-2020 skal skilað inn rafrænt á Bændatorginu eigi síðar en 15. mars

    01. mar. 2021Auðlindir, Neytendamál, Skipulagsmál, Sveitarstjórnir og byggðamál, Byggðamál, Framkvæmd búvörusamninga, Landbúnaður, Atvinnuvegir, Atvinnuvegaráðuneytið

    Opinn fundur um leiðbeiningar um flokkun landbúnaðarlands

    Kristján Þór Júlíusson, sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra, býður til opins fundar um leiðbeiningar um flokkun landbúnaðarlands, með tilliti til ræktunnar, miðvikudaginn 3. mars kl. 15:00.

    25. feb. 2021Atvinnuvegaráðuneytið, Framkvæmd búvörusamninga, Landbúnaður, Atvinnuvegir

    Skýrslu um tilraunaverkefni við slátrun sauðfjár skilað

    Hólmfríður Sveinsdóttir, doktor í lífvísindum og næringarfræðingur, hefur skilað sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra skýrslu um niðurstöðu tilraunaverkefnis um aukna verðmætasköpun við slátrun sauðfjár á Íslandi. Alls tóku 25 býli þátt í verkefninu. Ávinningur tilraunaverkefnisins var þríþættur. Í fyrsta lagi að kanna áhuga á meðal bænda á að taka þátt í tilraunaverkefninu og þeim lausnum sem þar á að prófa. Í öðru lagi að kanna umfang opinbers eftirlits og tímalengd skoðunar og í þriðja lagi að kanna möguleika á framkvæmd rafrænnar skoðunnar. Skýrsluna má nálgast hér.

    25. feb. 2021Atvinnuvegir, Framkvæmd búvörusamninga, Landbúnaður, Atvinnuvegaráðuneytið

    Tilboðsmarkaður 1. apríl 2021 með greiðslumark í mjólk

    Markaður fyrir greiðslumark mjólkur verður haldinn þann 1. apríl næstkomandi.

    24. feb. 2021Atvinnuvegaráðuneytið, Framkvæmd búvörusamninga, Landbúnaður, Atvinnuvegir

    Áhugaverður fundur um landbúnaðarkerfi Breta eftir Brexit

    Kristján Þór Júlíusson, sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra, boðaði til fundar í morgun um breytingar á landbúnaðarkerfi Bretlands eftir útgöngu úr Evrópusambandinu. Á fundinum fór Torfi Jóhannesson, doktor í búvísindum og starfsmaður Norrænu ráðherranefndarinnar, yfir þær breytingar sem boðaðar hafa verið. Við útgöngu Breta úr Evrópusambandinu þurftu þeir að móta sér nýja stefnu um hvernig ætti að styðja innlendan landbúnað þar sem sameiginleg landbúnaðarstefna ESB féll úr gildi um leið. Bretar hafa valið að fara nýjar leiðir á margan hátt.

    17. feb. 2021Atvinnuvegaráðuneytið, Covid-19, Framkvæmd búvörusamninga, Landbúnaður, Atvinnuvegir

    Aðgerðaáætlun til eflingar íslensks landbúnaðar kynnt

    Kristján Þór Júlíusson, sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra, kynnti í morgun tímasetta aðgerðaáætlun í 12 liðum til eflingar íslensks landbúnaðar. Aðgerðunum er ætlað að styrkja stoðir íslensks landbúnaðar í ljósi þeirra beinu og óbeinu áhrifa sem COVID-19 hefur haft á greinina. Tilgangur aðgerðanna er að skapa öfluga viðspyrnu fyrir íslenskan landbúnað og auðvelda honum að nýta tækifæri framtíðarinnar.

    17. feb. 2021Atvinnuvegaráðuneytið, Covid-19, Framkvæmd búvörusamninga, Landbúnaður, Atvinnuvegir

    Aðgerðaáætlun til eflingar íslensks landbúnaðar kynnt

    Kristján Þór Júlíusson, sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra, kynnti í morgun tímasetta aðgerðaáætlun í 12 liðum til eflingar íslensks landbúnaðar. Aðgerðunum er ætlað að styrkja stoðir íslensks landbúnaðar í ljósi þeirra beinu og óbeinu áhrifa sem COVID-19 hefur haft á greinina. Tilgangur aðgerðanna er að skapa öfluga viðspyrnu fyrir íslenskan landbúnað og auðvelda honum að nýta tækifæri framtíðarinnar.

    15. feb. 2021Atvinnuvegaráðuneytið, Framkvæmd búvörusamninga, Landbúnaður, Atvinnuvegir

    Kynning á aðgerðaáætlun til eflingar íslensks landbúnaðar

    Kristján Þór Júlíusson, sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra, boðar til kynningar á aðgerðaáætlun til eflingar íslenskum landbúnaði miðvikudaginn 17. febrúar kl. 9:45.

    11. feb. 2021Auðlindir, Líf og heilsa, Covid-19, Ferðaþjónusta, Fiskeldi, Framkvæmd búvörusamninga, Landbúnaður, Nýsköpun, Sjávarútvegur, Atvinnuvegir, Atvinnuvegaráðuneytið

    Skýrslu um fæðuöryggi á Íslandi skilað

    Innlend matvælaframleiðsla stendur fyrir stórum hluta fæðuframboðs á Íslandi og þá sérstaklega próteini. Garðyrkjan sér fyrir um 43% af framboði grænmetis, búfjárrækt um 90% af kjöti, 96% af eggjum og 99% af mjólkurvörum. Mikilvægt er að marka stefnu um hvernig tryggja megi fæðuöryggi þjóðarinnar. Þetta eru​niðurstöður skýrslu um fæðuöryggi á Íslandi sem unnin var af Landbúnaðarháskóla Íslands að beiðni Kristjáns Þórs Júlíussonar.

    08. feb. 2021Atvinnuvegir, Líf og heilsa, Covid-19, Ferðaþjónusta, Fiskeldi, Framkvæmd búvörusamninga, Landbúnaður, Nýsköpun, Sjávarútvegur, Almannaöryggi, Atvinnuvegaráðuneytið

    Kristján Þór kynnir skýrslu um fæðuöryggi Íslands

    Kristján Þór Júlíusson, sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra, býður til opins fundar um skýrslu Landbúnaðarháskóla Íslands um fæðuöryggi á Íslandi fimmtudaginn 11. febrúar kl 10:15.

    04. feb. 2021Atvinnuvegaráðuneytið, Covid-19, Framkvæmd búvörusamninga, Landbúnaður, Atvinnuvegir, Fjármála- og efnahagsráðuneytið

    Endurskoðaður rammasamningur ríkis og bænda undirritaður

    Kristján Þór Júlíusson, sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra: „Það er afskaplega ánægjulegur áfangi að hafa nú lokið við endurskoðun á öllum fjórum búvörusamningunum á þessu kjörtímabili. Að baki er mikil vinna með umfangsmiklum breytingum á starfsskilyrðum íslensks landbúnaðar til hins betra. Í samkomulaginu sem nú var undirritað er að finna ákvæði sem ég er sannfærður um að muni styrkja undirstöður landbúnaðarins, m.a. ákvæði um að ný landbúnaðarstefna fyrir Ísland, sem mun liggja fyrir í vor, verði grunnur að endurskoðun búvörusamninga árið 2023.…

    03. feb. 2021Atvinnuvegaráðuneytið, Covid-19, Framkvæmd búvörusamninga, Landbúnaður, Atvinnuvegir

    15 milljónir til að styrkja nýjar ræktunaraðferðir í grænmetisframleiðslu

    Lóðréttur landbúnaður með vatnsræktun, færanleg gróðurgöng og lengri uppskerutími gulróta með hitalögnum er á meðal nýrra ræktunaraðferða í garðyrkju sem fengu í dag ræktunarstyrki að upphæð 15 milljóna króna samtals. Kristján Þór Júlíusson, sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra, úthlutaði átta styrkjum til verkefna í dag.

    29. jan. 2021Atvinnuvegaráðuneytið, Framkvæmd búvörusamninga, Landbúnaður, Atvinnuvegir

    Umsóknir um aðlögunarsamninga í sauðfjárrækt

    Atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytið auglýsir eftir umsóknum um aðlögunarsamninga í sauðfjárrækt. Umsóknarfrestur er 15. febrúar n.k. Sækja skal um á meðfylgjandi eyðublaði og skila undirrituðu á postur@anr.is.

    11. jan. 2021Atvinnuvegaráðuneytið, Landbúnaður, Atvinnuvegir, Framkvæmd búvörusamninga

    Heildargreiðslumark fyrir 2021 verður 145 milljónir lítra

    Kristján Þór Júlíusson, sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra, hefur undirritað breytingu á reglugerð um stuðning við nautgriparækt, en þar er kveðið á um að heildargreiðslumark ársins 2021 verði 145 milljón lítrar af mjólk. Þetta er þriðja árið í röð þar sem heildargreiðslumarkið helst óbreytt. ​ Heildargreiðslumark mjólkur er tiltekið magn mjólkur sem beingreiðslur ríkissjóðs miðast við og er ákveðið fyrir upphaf hvers verðlagsárs. Ákvörðunin byggir á neyslu innlendra mjólkurvara sem farið hafa um afurðarstöðvar landsins undanfarna 12 mánuði og áætlun ráðherra fyrir komandi verðlagsár. Framkvæmdanefnd búvörusamninga hefur fjallað um málið og gerði ekki athugasemdir við tillögu að óbreyttu heildargreiðslumarki.

    Atvinnuvegaráðuneytið, Covid-19, Framkvæmd búvörusamninga, Landbúnaður, Atvinnuvegir

    Aðgerðaáætlun til eflingar íslensks landbúnaðar kynnt

    Kristján Þór Júlíusson, sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra, kynnti í morgun tímasetta aðgerðaáætlun í 12 liðum til eflingar íslensks landbúnaðar. Aðgerðunum er ætlað að styrkja stoðir íslensks landbúnaðar í ljósi þeirra beinu og óbeinu áhrifa sem COVID-19 hefur haft á greinina. Tilgangur aðgerðanna er að skapa öfluga viðspyrnu fyrir íslenskan landbúnað og auðvelda honum að nýta tækifæri framtíðarinnar.

    • First
    • Prev
    • 1
    • 2
    • Next
    • Last
    Logo
    • Um vefinn
    • Áskrift
    • Veftré
    • Fyrirvari
    +354 545 8000
    Staðsetning ráðuneyta, opnunartími og netföng
    Hafa samband

    Hafa samband