Coat of arms
Stjórnarráð Íslands
  • Verkefni
    • Almannatryggingar og lífeyrir
    • Almannaöryggi
    • Atvinnuvegir
    • Auðlindir
    • Efnahagsmál
    • Félags- og fjölskyldumál
    • Fjarskipti
    • Húsnæðis- og mannvirkjamál
    • Líf og heilsa
    • Kosningar
    • Lög og réttur
    • Mannauðsmál ríkisins
    • Mannréttindi og jafnrétti
    • Menningarmál
    • Menntamál
    • Neytendamál
    • Opinber fjármál
    • Persónuréttur
    • Rekstur og eignir ríkisins
    • Samgöngur
    • Sjálfbært Ísland
    • Skipulagsmál
    • Stjórnskipan og þjóðartákn
    • Sveitarstjórnir og byggðamál
    • Trú og lífsskoðun
    • Umhverfi og náttúruvernd
    • Upplýsingatæknimál ríkisins
    • Utanríkismál
    • Útlendingar
    • Vinnumál
    • Vísindi, nýsköpun og rannsóknir
    • Öll verkefni
    • Efst á baugi
      • Fréttir
      • Nýjast
      • Fyrirspurnir frá Alþingi
      • Fyrir fjölmiðla
      • Eldri fréttir
    • Gögn
      • Rit og skýrslur
      • Úrskurðir og álit
      • Eyðublöð
      • Stefnur og áætlanir
      • Styrkir og sjóðir
      • Hugtakasafn
      • Lög og reglugerðir
      • Málaskrár ráðuneyta
      • Mælaborð
      • Hönnunarstaðall
    • Ráðuneyti
      • Forsætisráðuneytið
      • Atvinnuvegaráðuneytið
      • Dómsmálaráðuneytið
      • Félags- og húsnæðismálaráðuneytið
      • Fjármála- og efnahagsráðuneytið
      • Heilbrigðisráðuneytið
      • Innviðaráðuneytið
      • Menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðuneytið
      • Mennta- og barnamálaráðuneytið
      • Umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytið
      • Utanríkisráðuneytið
      • Sendiskrifstofur
      • Samstarfsráðherra Norðurlanda
      • Starfsfólk
      • Stofnanir
      • Nefndir
      • Símanúmer og staðsetning ráðuneyta
      • Umbra
    • Ríkisstjórn
      • Skipan ríkisstjórnar
      • Ríkisstjórnarfundir
      • Stjórnarsáttmáli
      • Ráðherranefndir
      • Reglur um starfshætti
      • Reglur um ferðakostnað og starfskjör ráðherra
      • Siðareglur, hagsmunir og hagsmunaverðir
      • Þingmálaskrá
      • Ríkisráð
      • Sögulegt efni
      • Fyrir fjölmiðla
    EN
    • Verkefni
      • Almannatryggingar og lífeyrir
      • Almannaöryggi
      • Atvinnuvegir
      • Auðlindir
      • Efnahagsmál
      • Félags- og fjölskyldumál
      • Fjarskipti
      • Húsnæðis- og mannvirkjamál
      • Líf og heilsa
      • Kosningar
      • Lög og réttur
      • Mannauðsmál ríkisins
      • Mannréttindi og jafnrétti
      • Menningarmál
      • Menntamál
      • Neytendamál
      • Opinber fjármál
      • Persónuréttur
      • Rekstur og eignir ríkisins
      • Samgöngur
      • Sjálfbært Ísland
      • Skipulagsmál
      • Stjórnskipan og þjóðartákn
      • Sveitarstjórnir og byggðamál
      • Trú og lífsskoðun
      • Umhverfi og náttúruvernd
      • Upplýsingatæknimál ríkisins
      • Utanríkismál
      • Útlendingar
      • Vinnumál
      • Vísindi, nýsköpun og rannsóknir
      • Öll verkefni
    • Efst á baugi
      • Fréttir
      • Nýjast
      • Fyrir fjölmiðla
      • Eldri fréttir
      • Fyrirspurnir frá Alþingi
    • Gögn
      • Rit og skýrslur
      • Úrskurðir og álit
      • Eyðublöð
      • Stefnur og áætlanir
      • Styrkir og sjóðir
      • Hugtakasafn
      • Lög og reglugerðir
      • Málaskrár ráðuneyta
      • Mælaborð
      • Hönnunarstaðall
    • Ráðuneyti
      • Forsætisráðuneytið
      • Atvinnuvegaráðuneytið
      • Dómsmálaráðuneytið
      • Félags- og húsnæðismálaráðuneytið
      • Fjármála- og efnahagsráðuneytið
      • Heilbrigðisráðuneytið
      • Innviðaráðuneytið
      • Menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðuneytið
      • Mennta- og barnamálaráðuneytið
      • Umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytið
      • Utanríkisráðuneytið
      • Sendiskrifstofur
      • Samstarfsráðherra Norðurlanda
      • Starfsfólk
      • Stofnanir
      • Nefndir
      • Símanúmer og staðsetning ráðuneyta
      • Umbra
    • Ríkisstjórn
      • Skipan ríkisstjórnar
      • Ríkisstjórnarfundir
      • Stjórnarsáttmáli
      • Ráðherranefndir
      • Reglur um starfshætti
      • Reglur um ferðakostnað og starfskjör ráðherra
      • Siðareglur, hagsmunir og hagsmunaverðir
      • Þingmálaskrá
      • Ríkisráð
      • Sögulegt efni
      • Fyrir fjölmiðla
    Close navigation
    Menningarmál
    Efnisorð

    Ekkert fannst

    Tegund
    Tegund

    Leita eftir efnisorðum

    Sýnir 501–550 af 953
    Raða eftir:
    26. maí 2022Menningar-٫ nýsköpunar- og háskólaráðuneytið, Alþjóðamál, Menningarmál

    Opið fyrir umsóknir í Grænlandssjóð: Verkefni sem efla samskipti milli Grænlands og Íslands

    Grænlandssjóður auglýsir eftir styrkumsóknum í sjóðinn. Umsóknarfrestur er til og með 22. júní 2022.

    23. maí 2022Menningar-٫ nýsköpunar- og háskólaráðuneytið, Menningarmál, Atvinnuvegir

    Ráðherra mælti fyrir frumvarpi um kvikmyndaendurgreiðslur

    „Mikill áhugi er á þessum áformum ríkisstjórnarinnar, bæði hér heima fyrir og ekki síður erlendis. Þannig bíða nokkur stór og áhugaverð erlend verkefni, sem reiðubúin eru að hefja tökur á þessu ári, eftir formlegri ákvarðanatöku stjórnvalda og umræddri lagabreytingu,“ sagði Lilja Dögg Alfreðsdóttir, menningar- og viðskiptaráðherra í framsöguræðu sinni á Alþingi þar sem hún fjallaði um breytingar á lögum um tímabundnar endurgreiðslur vegna kvikmyndagerðar á Íslandi. Ráðherra sagði mikið til þess unnið að afgreiða frumvarpið sem lög frá Alþingi fyrir þinglok á vorþingi.

    20. maí 2022Menningar-٫ nýsköpunar- og háskólaráðuneytið, Menningarmál, Vísindi nýsköpun og rannsóknir, Nýsköpun, Atvinnuvegir

    Aðstoðarframkvæmdastjóri Microsoft Cloud les Arnald Indriðason

    Óhætt er að segja að það kom menningarmálaráðherra skemmtilega á óvart að Scott Guthrie er einlægur aðdáandi rithöfundarins Arnalds Indriðasonar og virðist hafa lesið flestar bækur hans.

    20. maí 2022Atvinnuvegaráðuneytið, Menningarmál, Neytendamál, Vísindi nýsköpun og rannsóknir, Hönnun, Nýsköpun, Rafræn viðskipti, Atvinnuvegir

    Fyrstu hundrað dagar MVF: Ný tækifæri og sókn áfram veginn

    „Með samþættingu málefnasviða nýs menningar- og viðskiptaráðuneytis eru skapaðar forsendur fyrir ný tækifæri og sókn í þágu samfélagsins alls og stuðlað að vexti og velsæld til framtíðar,” segir Lilja.

    19. maí 2022Menningar-٫ nýsköpunar- og háskólaráðuneytið, Vísindi nýsköpun og rannsóknir, Nýsköpun, Menningarmál

    Þróun gervigreindartækni nýtist tungumálum eins og íslensku

    „Eitt af því sem liðsinnt getur framþróun tungumála eins og íslensku er ör þróun gervigreindar, þar felast mörg tækifæri sem flest eru ókönnuð enn,“ segir Lilja Alfreðsdóttir menningar- og viðskiptaráðherra heimsótti fyrirtækið OpenAi í San Fransisco í vikunni. Heimsóknin var liður í fundaröð sendinefndar Guðna Th. Jóhannessonar forseta Íslands til Bandaríkjanna sem miðar að því tryggja að íslenska verði hluti af stafrænum tæknilausnum framtíðarinnar.

    19. maí 2022Menningar-٫ nýsköpunar- og háskólaráðuneytið, Mannauðsmál ríkisins, Menningarmál, Fjármála- og efnahagsráðuneytið

    Fyrsti kjarasamningur vegna danshöfunda í Þjóðleikhúsinu undirritaður

    Félag íslenskra listamanna í kvikmyndum og sviðslistum (FÍL) og íslenska ríkið hafa undirritað kjarasamning fyrir danshöfunda í Þjóðleikhúsinu.

    17. maí 2022Atvinnuvegaráðuneytið, Neytendamál, Upplýsingatæknimál ríkisins, Vísindi nýsköpun og rannsóknir, Nýsköpun, Rafræn viðskipti, Menningarmál, Menntamál

    Forseti og ráðherra funda með stórfyrirtækjum um íslenskuna

    Markmið ferðarinnar er að sýna forsvarsmönnum þessara fyrirtækja fram á mikilvægi þess að íslensk tunga eigi sinn sess í þróun á nýjustu máltæknilausnum svo unnt verði að tala íslensku við tölvur og tæki og tryggja þannig framtíð íslenskunnar í stafrænum heimi.

    13. maí 2022Menningar-٫ nýsköpunar- og háskólaráðuneytið, Menningarmál

    Endurnýjuðu samning um Film in Iceland: Kynna landið sem stórkostlegan tökustað

    Vaxandi áhugi hefur verið á Íslandi sem tökustað og verkefni Film in Iceland, er að kynna Ísland sem áhugaverðan tökustað, endurgreiðslukerfi vegna framleiðslu kvikmynda- og sjónvarpsefnis, innviði íslenska kvikmyndaumhverfisins og að taka við fyrirspurnum erlendra framleiðanda og aðstoða þá eftir fremsta megni. Rennir þetta mikilvægum stoðum undir þau markmið stjórnvalda að efla íslenskan kvikmyndaiðnað og gera Ísland að eftirsóknarverðum tökustað fyrir fjölbreytt kvikmynda- og sjónvarpsverkefni.

    13. maí 2022Menningarmál, Menningar-٫ nýsköpunar- og háskólaráðuneytið

    Stærri kvikmyndaverkefni fá 35% endurgreiðslu kostnaðar: Ráðherra leggur fram frumvarp á vorþingi

    Lilja Dögg Alfreðsdóttir, menningar- og viðskiptaráðherra mun leggja fram frumvarp um breytingu á lögum um endurgreiðslur vegna kvikmyndagerðar á Alþingi nú á vorþingi.

    13. maí 2022Menningar-٫ nýsköpunar- og háskólaráðuneytið, Covid-19, Menningarmál

    Rekstrarsamningar undirritaðir við ÚTÓN og Tónverkamiðstöð

    „Það er alltaf gleðilegt að renna styrkari stoðum undir íslenska tónlist, tónlistarmenn, og tónverkasöguna eins og við gerum með þessum samningum. ÚTÓN og Tónverkamiðstöð hafa staðið í stafni í þessum málum. Viðspyrnustyrkurinn vegna heimsfaraldursins mun einnig hafa mikið að segja. Við ætlum að halda vel á spilunum í þessum málum, segir Lilja.

    11. maí 2022Menningar-٫ nýsköpunar- og háskólaráðuneytið, Menningarmál

    Ráðherra fundaði með HBO, Netflix og Amazon

    Lilja Dögg Alfreðsdóttir, menningar- og viðskiptaráðherra, fundaði með fulltrúum bandarískra kvikmyndaframleiðenda til að ræða tækifæri fyrir erlend framleiðslufyrirtæki þegar kemur að kvikmyndagerð á Íslandi.

    11. maí 2022Menningar-٫ nýsköpunar- og háskólaráðuneytið, Úkraína, Menningarmál

    Lilja hitti meðlimi Pussy Riot á æfingu

    Lilja Dögg Alfreðsdóttir, menningar- og viðskiptaráðherra, hitti meðlimi hljómsveitarinnar Pussy Riot á æfingu sveitarinnar í Reykjavík. Hljómsveitin undirbýr tónleikaröð sína um Evrópu hér á landi og hefur verið við æfingar í Þjóðleikhúsinu. Listamaðurinn Ragnar Kjartansson hefur verið þeim innan handar hér á landi.

    10. maí 2022Menningar-٫ nýsköpunar- og háskólaráðuneytið, Menningarmál

    Kvikmyndaendurgreiðslur í Samráðsgátt: Stærri verkefni fái 35% endurgreiðslu kostnaðar

    Lilja Dögg Alfreðsdóttir, menningar- og viðskiptaráðherra, hefur sett drög að frumvarpi um breytingu á lögum um endurgreiðslur vegna kvikmyndagerðar í Samráðsgátt stjórnvalda. Endurskoðun laganna er áherslumál í stjórnarsáttmála ríkisstjórnarinnar og upplýsti ráðherra ríkisstjórn um stöðu vinnunnar sl. föstudag.

    09. maí 2022Menningar-٫ nýsköpunar- og háskólaráðuneytið, Alþjóðamál, Úkraína, Menningarmál

    Ráðherra ávarpaði UNESCO fund í Perlunni

    „Ísland hefur lengi verið hluti af UNESCO og við erum ákaft stuðningsfólk fjölþjóðahyggju. Við vinnum sleitulaust að markmiðum UNESCO og gildum stofnunarinnar og á Íslandi deilum við sýn UNESCO um að stuðla að friði og öryggi á grundvelli samvinnu ríkja með samtali á vettvangi menningar, menntunar , samskipta og vísinda,“ segir Lilja, en Ísland var kjörið í framkvæmdanefnd UNESCO í fyrra.

    07. maí 2022Menningar-٫ nýsköpunar- og háskólaráðuneytið, Norrænt samstarf, Menningarmál

    Lilja fundaði með menningarmálaráðherrum Norðurlandanna

    Lilja Dögg Alfreðsdóttir, menningar- og viðskiptaráðherra, fundaði með menningarmálaráðherrum Norðurlandanna í Óperuhúsinu í Ósló þann 4. maí. Þetta var fyrsti ráðherrafundur ársins undir formennsku Noregs. Aðild að samstarfinu eiga Danmörk, Finnland, Ísland, Noregur og Svíþjóð auk Álandseyja, Færeyja og Grænlands.

    06. maí 2022Menningarmál, Norrænt samstarf, Menningar-٫ nýsköpunar- og háskólaráðuneytið

    Fleiri handrit koma til landsins og aukin áhersla á rannsóknir

    „Ég er mjög ánægð með gang vinnunnar og legg mikla áherslu á að breytingar verði gerðar á handritasáttmálanum. Eins og ég hef sagt áður þá viljum við fá fleiri handrit lánuð til lengri tíma og við viljum vinna þetta með dönskum stjórnvöldum,“ segir ráðherra.

    06. maí 2022Atvinnuvegaráðuneytið, Menningarmál, Neytendamál, Ferðaþjónusta, Atvinnuvegir

    584 milljónir til ferðamannastaða hringinn í kringum landið: Sækjum íslenska áfangastaði heim í sumar!

    „Íslensk ferðaþjónusta hefur nýtt tímann vel undanfarið, þrátt fyrir flóknar áskoranir, og staðið vel og rækilega að uppbyggingu. Það þýðir að hringinn í kringum landið hafa verið byggðir upp einstakir áfangastaðir og í öllum landshlutum má finna hlaðborð menningar, nýsköpunar og ferðaþjónustu. Mig langar að hvetja ykkur öll til að ferðast um Ísland, heimsækja stórfenglega náttúru okkar og upplifa menninguna hringinn í kringum landið,“ segir Lilja Dögg Alfreðsdóttir, ferðamálaráðherra.

    03. maí 2022Atvinnuvegaráðuneytið, Efnahagsmál og opinber fjármál, Menningarmál, Neytendamál, Ferðaþjónusta, Nýsköpun, Atvinnuvegir

    Daníel Svavarsson verður skrifstofustjóri í menningar- og viðskiptaráðuneytinu

    Daníel Svavarsson hefur verið skipaður skrifstofustjóri á skrifstofu verðmætasköpunar í menningar- og viðskiptaráðuneytinu frá 1. maí sl.

    30. apr. 2022Menningar-٫ nýsköpunar- og háskólaráðuneytið, Menntamál, Barnaréttur, Jafnrétti, Menningarmál

    Lilja afhjúpaði risastórt lestrarrúm á Borgarbókasafninu: Segðu mér sögu til heiðurs barnabókahöfundum

    „Barnabókmenntir eru oft fyrsta snerting barnsins við heim menningar og lista og skapar rætur fjölbreyttra blóma sem blómstra í börnunum okkar og eru mikilvægur hlekkur í skapandi og gefandi uppeldi. Undanfarin ár hafa stjórnvöld lagt aukna áherslu á að styðja við barnabókmenntir og hefur útgáfa á barnabókum stóraukist í kjölfarið. Við eigum barnabókahöfundum mikið að þakka fyrir að auðga barnæsku okkar og samfélag. Við þá vil ég segja kærar þakkir“ segir Lilja Alfreðsdóttir.

    30. apr. 2022Atvinnuvegaráðuneytið, Menningarmál, Neytendamál, Ferðaþjónusta, Efnahagsmál og opinber fjármál

    Lilja fundaði með sendinefnd Alþjóðagjaldeyrissjóðsins

    Lilja Alfreðsdóttir, menningar- og viðskiptaráðherra, fundaði með sendinefnd Alþjóðagjaldeyrissjóðsins í tilefni af árlegri heimsókn starfsmanna sjóðsins. Á fundinum með ráðherra var fjallað um þróun alþjóðlegra efnahagsmála og alþjóðsviðskipta ásamt umræðu um efnahagsþróun innanlands þ.m.t. þátt ferðaþjónustunnar og viðskipta- og menningarmála.

    29. apr. 2022Menningar-٫ nýsköpunar- og háskólaráðuneytið, Covid-19, Menningarmál

    Listamannalaun fyrir ungt sviðslista- og tónlistarfólk samþykkt á Alþingi

    „Við getum verið ótrúlega stolt af þeirri miklu frumsköpun og framleiðslu á menningu sem okkar frábæra listafólk drífur áfram, jafnvel þótt á móti blási. Mannsandinn nærist meðal annars á menningu, því að skemmta sér í góðra vina hópi, sækja tónleika, leiksýningar eða aðra menningarviðburði. Við höfum einsett okkur að styðja við menningu og listir í gegnum faraldurinn og stjórnvöld munu halda áfram að skapa menningu í landinu góð skilyrði,“ segir ráðherra.

    26. apr. 2022Menningar-٫ nýsköpunar- og háskólaráðuneytið, Menningarmál

    Lilja heimsótti sköpunarmiðstöð norrænna listamanna í Róm

    Lilja Alfreðsdóttir, menningar- og viðskiptaráðherra, heimsótti norrænu sköpunarmiðstöðina Circolo Scandinavo í Róm. Heimsóknin var hluti af ferð ráðherra til Ítalíu þar sem hún tók þátt í viðburðum tengdum alþjóðlegu listahátíðinni Feneyjatvíæringnum 2022 þar sem Ísland er eitt 58 þátttökulanda.

    25. apr. 2022Menningar-٫ nýsköpunar- og háskólaráðuneytið, Menningarmál, Innflytjendur, Atvinnuvegir

    Lilja fundaði með menningarmálaráðherra Eistlands

    Lilja Alfreðsdóttir, menningar- og viðskiptaráðherra, og Tiit Terik, menningarmálaráðherra Eistlands, áttu fund í Feneyjum. Fundurinn var hluti af ferð ráðherra á alþjóðlegu listahátíðina Feneyjartvíæringinn 2022 þar sem Ísland tekur þátt á ásamt 57 öðrum þjóðlöndum.

    22. apr. 2022Menningarmál, Menningar-٫ nýsköpunar- og háskólaráðuneytið

    Segðu mér sögu: Vitundarvakning um mikilvægi barnabóka og barnabókahöfunda

    Dagur bókarinnar verður haldinn hátíðlegur um allan heim þann 23. apríl.

    22. apr. 2022Atvinnuvegaráðuneytið, Ferðaþjónusta, Neytendamál, Verslun, Menningarmál

    Jóhanna aðstoðar Lilju

    Jóhanna Hreiðarsdóttir hefur verið ráðin aðstoðarmaður Lilju Alfreðsdóttur, ferðamála-, viðskipta- og menningarmálaráðherra. Hún hefur þegar hafið störf.

    21. apr. 2022Menningar-٫ nýsköpunar- og háskólaráðuneytið, Atvinnuvegir, Menningarmál

    Lilja opnaði íslenska skálann í Feneyjum

    Lilja Alfreðsdóttir, menningarmálaráðherra, opnaði íslenska skálann á alþjóðlegu listahátíðinni Feneyjatvíæringnum í dag við hátíðlega athöfn. Tvíæringurinn hefur verið haldinn í Feneyjum annað hvert ár, með nokkrum undantekningum, allar götur síðan 1895. Hátíðin er þungamiðja í alþjóðlegum listum og menningu. Að þessu sinni taka 213 listamenn frá 58 löndum þátt. Ísland tók fyrst þátt í hátíðinni árið 1960 þegar þeir Jóhannes Sveinsson Kjarval og Ásmundur Sveinsson voru valdir til þátttöku.

    08. apr. 2022Menningar-٫ nýsköpunar- og háskólaráðuneytið, Menningarmál, Hönnun, Atvinnuvegir

    „Getum lært margt af Dönum á sviði hönnunar og skapandi greina“

    Hönnun og hugvit sem útflutningsvara og hlutverk hennar í ímyndarsköpun og verðmætasköpun var meðal þess sem Lilja Dögg Alfreðsdóttir menningar- og viðskiptaráðherra kynnti sér í Kaupmannahöfn í vikunni. Ráðherra heimsótti helstu lykilaðila hönnunar í Danmörku, þar sem talið DDC – dönsku hönnunarmiðstöðina, DAC miðstöð arkitektúrs í Danmörku og Creative Danmark sem styður við skapandi greinar í alþjóðlegri markaðssókn.

    07. apr. 2022Menningar-٫ nýsköpunar- og háskólaráðuneytið, Menningarmál, Hönnun, Norrænt samstarf, Atvinnuvegir

    Lilja fundar með iðnaðar- og viðskiptaráðherra Noregs

    „Það hefur verið virkilega lærdómsríkt að heyra hvernig norsk stjórnvöld hafa séð tækifærin sem felast í að styðja við og efla hönnun til þess takast á við samfélagslegar áskoranir og auka lífsgæði. Þau leggja áherslu á að þetta sé hugarfarsbreyting og að það að fá hönnuði að borðinu strax í upphafi verkefna sé til þess fallið að bæta lokaafurðina, hvort sem um er að ræða í opinberri þjónustu eða annars staðar. Á endanum stuðlar slík nálgun að aukinni samkeppnishæfni samfélagsins sem er ávallt mikilvægt að hlúa vel að,“ sagði Lilja Alfreðsdóttir, menningar- og viðskiptaráðherra.

    07. apr. 2022Menningar-٫ nýsköpunar- og háskólaráðuneytið, Menningarmál, Úkraína, Atvinnuvegir

    Á elleftu milljón safnaðist í Hörpu í tengslum við Samstöðutónleika Sinfóníuhljómsveitar Íslands með Úkraínu

    „Ég er hrærð að fylgjast með þessum mikla stuðningi sem tónleikarnir og söfnunin fengu. Verkefnið er ærið, fatlað fólk er sérstaklega berskjaldað í átökum og við getum verið stolt af því hvernig menningarlífið á Íslandi hefur sýnt stuðning sinn í verki fyrir þau sem eiga um sárt að binda. Ég er þakklát öllu því fólki sem lagði verkefninu lið, en framganga þeirra er ómetanleg,“ segir Lilja Dögg Alfreðsdóttir, menningar- og viðskiptaráðherra.

    30. mar. 2022Menningar-٫ nýsköpunar- og háskólaráðuneytið, Menningarmál, Fjármálaáætlun, Atvinnuvegir

    Bryndís stýrir undirbúningi Tónlistarmiðstöðvar

    Bryndís Jónatansdóttir hefur verið ráðin verkefnastjóri undirbúnings og stofnunar nýrrar Tónlistarmiðstöðvar. Stofnun Tónlistarmiðstöðvar verður að veruleika strax á næsta ári, en henni er ætlað er að verða einn af hornsteinum íslensks tónlistarlífs og tónlistariðnaðar.

    29. mar. 2022Menningar-٫ nýsköpunar- og háskólaráðuneytið, Efnahagsmál og opinber fjármál, Menningarmál, Covid-19, Fjármálaáætlun, Atvinnuvegir

    Fjármálaáætlun: Tónlistarmiðstöð tekur til starfa í upphafi árs 2023

    Stofnun Tónlistarmiðstöðvar verður að veruleika strax á næsta ári, en henni er ætlað er að verða einn af hornsteinum íslensks tónlistarlífs og tónlistariðnaðar.

    26. mar. 2022Menningar-٫ nýsköpunar- og háskólaráðuneytið, Menningarmál, Atvinnuvegir

    Mælti fyrir breytingu á listamannalaunum: Framfaraskref fyrir ungt og listskapandi fólk

    Lilja Dögg Alfreðsdóttir, menningar og viðskiptaráðherra, hefur mælt fyrir frumvarpi um tímabundna fjölgun starfslauna til handa sviðslistafólki og tónlistarflytjendum. Nánar tiltekið er um að ræða, breytingu á lögum um listamannalaun, nr. 53/2009.

    22. mar. 2022Menningar-٫ nýsköpunar- og háskólaráðuneytið, Menningarmál, Atvinnuvegir

    Kvikmyndaiðnaðurinn samkeppnishæfur: Vinna hafin við endurskoðun laga um endurgreiðslur vegna kvikmyndagerðar

    Lilja Dögg Alfreðsdóttir, menningar- og viðskiptaráðherra hefur sett af stað vinnu við breytingar á lögum nr. 43/1999, um tímabundnar endurgreiðslur vegna kvikmyndagerðar á Íslandi. Verið er að setja saman starfshóp sem falið verður að vinna frumvarp til breytinga á lögunum.

    18. mar. 2022Menningar-٫ nýsköpunar- og háskólaráðuneytið, Menningarmál, Úkraína, Forsætisráðuneytið

    Samstöðutónleikar Sinfó fyrir Úkraínu

    Ágóði miðasölunnar mun renna til hjálparstarfs í Úkraínu, en fjöldi Úkraínumanna er nú á flótta frá heimalandi sínu og mikil þörf á aðstoð frá alþjóðasamfélaginu.

    10. mar. 2022Menningarmál, Norrænt samstarf, Menningar-٫ nýsköpunar- og háskólaráðuneytið

    Norðurlöndin verði samþættasta svæði heims

    Lilja Dögg Alfreðsdóttir, menningar- og viðskiptaráðherra, fundaði í dag með Paula Lehtomäki, framkvæmdastjóra Norrænu ráðherranefndarinnar sem stödd er hér á landi.

    03. mar. 2022Menningar-٫ nýsköpunar- og háskólaráðuneytið, Menningarmál

    Evrópsku kvikmyndaverðlaunin í Reykjavík 2022

    Samkomulag við Evrópsku kvikmynda akademíuna um Evrópsku kvikmyndaverðlaunin var undirritað í Höfða í dag. Vegna heimsfaraldurs var Evrópsku kvikmyndaverðlaununum 2020 frestað en hátíðin verður haldin í Hörpu 10. desember nk. Viðstaddur undirritunina var Matthijs Wouter Knol forstjóri Evrópsku kvikmyndaakademíunnar.

    01. mar. 2022Menningar-٫ nýsköpunar- og háskólaráðuneytið, Menningarmál

    Lab Loka fær hæsta styrk úr Sviðslistasjóði

    Hæsti styrkur Sviðslistasjóðs rennur að þessu sinni til Lab Loka, alls 12 milljónir kr, en í sýningunni taka þátt 20 leikarar, söngvarar og hljóðfæraleikarar á aldrinum 70-90 ára.

    25. feb. 2022Annað, Menningarmál, Menningar-٫ nýsköpunar- og háskólaráðuneytið

    Styrkir og sjóðir á sviði menningarmála

    / Menningar-٫ nýsköpunar- og háskólaráðuneytið Styrkir og sjóðir á sviði menningarmála Styrkir og sjóðir á sviði menningarmála Efnisorð

    22. feb. 2022Umhverfis-٫ orku- og loftslagsráðuneytið, Umhverfi og náttúruvernd, Náttúruvernd, Menningarmál

    Ráðherra undirritar samning um varðveislu minja frá Kvískerjum

    Guðlaugur Þór Þórðarson, umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra, undirritaði í gær samning við Sveitarfélagið Hornafjörð um skráningu, flokkun og varðveislu minja frá Kvískerjum.

    11. feb. 2022Menningar-٫ nýsköpunar- og háskólaráðuneytið, Menningarmál, Norrænt samstarf, Atvinnuvegir

    Sterk menning er það sem heldur okkur saman

    Lilja Alfreðsdóttir sótti 74. þing Norðurlandaráðs í Helsinki þar sem hún fundaði með norrænum menningarmálaráðherrum. Á fundinum kynnti Lilja formennskuáherslur Íslands á sviði menningarmála en Ísland tekur við formennsku í samstarfinu á næsta ári.

    09. feb. 2022Menningar-٫ nýsköpunar- og háskólaráðuneytið, Norrænt samstarf, Menningarmál

    Menningarsjóður Íslands og Finnlands auglýsir eftir umsóknum

    Tilgangur sjóðsins er að efla menningartengsl Íslands og Finnlands.

    01. feb. 2022Atvinnuvegaráðuneytið, Neytendamál, Ferðaþjónusta, Menningarmál

    „Ferðamenn eyði 700 milljörðum á Íslandi árið 2030“

    „Með samþættingu málefnasviða nýs menningar- og viðskiptaráðuneytis eru skapaðar forsendur fyrir ný tækifæri og sókn í þágu samfélagsins alls og stuðlað að vexti og velsæld til framtíðar,” sagði Lilja Dögg Alfreðsdóttir, ferðamála-, menningar- og viðskiptaráðherra á opnum kynningarfundi í Norðurljósasal Hörpu í dag. Nýtt menningar- og viðskiptaráðuneyti tekur til starfa í dag.

    01. feb. 2022Atvinnuvegaráðuneytið, Menningarmál, Neytendamál, Ferðaþjónusta, Nýsköpun, Atvinnuvegir

    Streymisfundur í dag: Kynning á nýju menningar- og viðskiptaráðuneyti

    Lilja Dögg Alfreðsdóttir, ferðamála-, menningar- og viðskiptaráðherra, býður til kynningarfundar um nýtt menningar- og viðskiptaráðuneyti þriðjudaginn 1. febrúar 2022 kl. 14:00. Hér má fylgjast með streyminu:

    28. jan. 2022Menningarmál, Neytendamál, Ferðaþjónusta, Atvinnuvegir, Atvinnuvegaráðuneytið

    500 gestir í hverju hólfi á sitjandi viðburðum

    „Það er að rofa til, við göngum af stað í afléttingarnar með skipulögðum hætti og nú geta viðburðir farið aftur af stað með 500 gestum í sóttvarnarhólfi. Þetta skiptir sköpum fyrir íslenskt menningarlíf. Það er einnig mikilvægt að hafa rýmkað til fyrir veitingastaði, skemmtistaði og krár,“ segir Lilja Dögg Alfreðsdóttir, ferðamála-, menningar- og viðskiptaráðherra.

    27. jan. 2022Atvinnuvegir, Menningarmál, Neytendamál, Atvinnuvegaráðuneytið, Ferðaþjónusta

    Skúli Eggert Þórðarson verður ráðuneytisstjóri nýs menningar- og viðskiptaráðuneytis

    Skúli Eggert Þórðarson verður skipaður ráðuneytisstjóri nýs menningar- og viðskiptaráðuneytis og hefur störf þann 1. febrúar nk.

    27. jan. 2022Utanríkisráðuneytið, Atvinnuvegir, Menningarmál, Norrænt samstarf, Nýsköpun, Sendiráð Íslands í Ottawa, Menningar-٫ nýsköpunar- og háskólaráðuneytið

    Menningarátakið Nordic Bridges hefst í dag

    „Loksins getum við hleypt Nordic Bridges af stokkunum í Kanada! Það er afar gleðilegt og dagskrá Nordic Bridges er metnaðarfull, fjölbreytt og fræðandi. Með verkefnum eins og þessum minnum við á norræna samtímamenningu og byggjum brýr og styrkjum tengslin. Ég hlakka til að fylgjast með hátíðinni,“ segir Lilja Dögg Alfreðsdóttir, ferðamála-, menningar- og viðskiptaráðherra.

    25. jan. 2022Atvinnuvegir, Menningarmál, Covid-19, Menningar-٫ nýsköpunar- og háskólaráðuneytið

    450 milljónir í viðspyrnuaðgerðir til tónlistar og sviðslista

    „Það er nauðsynlegt að grípa til aðgerða sem miða að því að efla slagkraft tónlistar og sviðslistageiranna til framtíðar. Við veljum að fara þá leið að styrkja þá sjóði og samtök sem báðar greinarnar hafa aðgengi að og ná þannig til sem flestra. Við einsettum okkur að standa með menningunni í gegnum heimsfaraldurinn og eru þessar aðgerðir liður í því,“ segir Lilja Dögg Alfreðsdóttir menningarmálaráðherra.

    21. jan. 2022Menningarmál, Menningar-٫ nýsköpunar- og háskólaráðuneytið

    Þurfum að rannsaka handritin og kynna börnin okkar fyrir þeim

    „Handritin eru mikilvægur hluti menningararfleifðar okkar sem nauðsynlegt er að viðhalda og miðla - og þar eru tækifæri til að gera betur. Við þurfum að rannsaka handritin og kynna börnin okkar fyrir þeim og komandi kynslóðir,“ segir Lilja Dögg Alfreðsdóttir, menningarmálaráðherra sem ræddi við þátt danska ríkisútvarpsins, Deadline, í vikunni um áherslur sínar á að fá fleiri íslensk handrit til Íslands frá Danmörku og hvatningu hennar til danskra stjórnvalda að sinna rannsóknum á handritunum betur.

    20. jan. 2022Menningarmál, Evrópusamvinna, Atvinnuvegir, Menningar-٫ nýsköpunar- og háskólaráðuneytið

    Lilja Dögg ávarpaði höfundarréttarráð

    Aðalefni fundar höfundaréttarráðs að þessu sinni var kynning á tilskipun ESB 2019/790 um höfundarétt og skyld réttindi á stafræna innri markaðnum sem oftast er nefnd DSM tilskipunin. „Innleiðing DSM tilskipunar í íslenskan rétt mun hafa mikilvæg áhrif á hvernig höfundaréttar er höndlaður í netheimi og einnig hafa áhrif á samninga höfunda og listflytjenda um not verka og listflutnings, hvort sem er á netinu eða annars staðar. Þetta eru atriði sem eru hugleikin öllum sem höndla með verk sem háð eru höfundarétti sem og listflutning,“ sagði Lilja.

    20. jan. 2022Menningarmál, Menningar-٫ nýsköpunar- og háskólaráðuneytið

    Ferðastyrkir til sænsks-íslensks samstarfs

    Nú eru til umsóknar ferðastyrkir til að styðja íslenska þátttakendur í sænsk-íslenskum samstarfsverkefnum.

    • First
    • Prev
    • 9
    • 10
    • 11
    • 12
    • 13
    • Next
    • Last
    Logo
    • Um vefinn
    • Áskrift
    • Veftré
    • Fyrirvari
    +354 545 8000
    Staðsetning ráðuneyta, opnunartími og netföng
    Hafa samband

    Hafa samband