Coat of arms
Stjórnarráð Íslands
  • Verkefni
    • Almannatryggingar og lífeyrir
    • Almannaöryggi
    • Atvinnuvegir
    • Auðlindir
    • Efnahagsmál
    • Félags- og fjölskyldumál
    • Fjarskipti
    • Húsnæðis- og mannvirkjamál
    • Líf og heilsa
    • Kosningar
    • Lög og réttur
    • Mannauðsmál ríkisins
    • Mannréttindi og jafnrétti
    • Menningarmál
    • Menntamál
    • Neytendamál
    • Opinber fjármál
    • Persónuréttur
    • Rekstur og eignir ríkisins
    • Samgöngur
    • Sjálfbært Ísland
    • Skipulagsmál
    • Stjórnskipan og þjóðartákn
    • Sveitarstjórnir og byggðamál
    • Trú og lífsskoðun
    • Umhverfi og náttúruvernd
    • Upplýsingatæknimál ríkisins
    • Utanríkismál
    • Útlendingar
    • Vinnumál
    • Vísindi, nýsköpun og rannsóknir
    • Öll verkefni
    • Efst á baugi
      • Fréttir
      • Nýjast
      • Fyrirspurnir frá Alþingi
      • Fyrir fjölmiðla
      • Eldri fréttir
    • Gögn
      • Rit og skýrslur
      • Úrskurðir og álit
      • Eyðublöð
      • Stefnur og áætlanir
      • Styrkir og sjóðir
      • Hugtakasafn
      • Lög og reglugerðir
      • Málaskrár ráðuneyta
      • Mælaborð
      • Hönnunarstaðall
    • Ráðuneyti
      • Forsætisráðuneytið
      • Atvinnuvegaráðuneytið
      • Dómsmálaráðuneytið
      • Félags- og húsnæðismálaráðuneytið
      • Fjármála- og efnahagsráðuneytið
      • Heilbrigðisráðuneytið
      • Innviðaráðuneytið
      • Menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðuneytið
      • Mennta- og barnamálaráðuneytið
      • Umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytið
      • Utanríkisráðuneytið
      • Sendiskrifstofur
      • Samstarfsráðherra Norðurlanda
      • Starfsfólk
      • Stofnanir
      • Nefndir
      • Símanúmer og staðsetning ráðuneyta
      • Umbra
    • Ríkisstjórn
      • Skipan ríkisstjórnar
      • Ríkisstjórnarfundir
      • Stjórnarsáttmáli
      • Ráðherranefndir
      • Reglur um starfshætti
      • Reglur um ferðakostnað og starfskjör ráðherra
      • Siðareglur, hagsmunir og hagsmunaverðir
      • Þingmálaskrá
      • Ríkisráð
      • Sögulegt efni
      • Fyrir fjölmiðla
    EN
    • Verkefni
      • Almannatryggingar og lífeyrir
      • Almannaöryggi
      • Atvinnuvegir
      • Auðlindir
      • Efnahagsmál
      • Félags- og fjölskyldumál
      • Fjarskipti
      • Húsnæðis- og mannvirkjamál
      • Líf og heilsa
      • Kosningar
      • Lög og réttur
      • Mannauðsmál ríkisins
      • Mannréttindi og jafnrétti
      • Menningarmál
      • Menntamál
      • Neytendamál
      • Opinber fjármál
      • Persónuréttur
      • Rekstur og eignir ríkisins
      • Samgöngur
      • Sjálfbært Ísland
      • Skipulagsmál
      • Stjórnskipan og þjóðartákn
      • Sveitarstjórnir og byggðamál
      • Trú og lífsskoðun
      • Umhverfi og náttúruvernd
      • Upplýsingatæknimál ríkisins
      • Utanríkismál
      • Útlendingar
      • Vinnumál
      • Vísindi, nýsköpun og rannsóknir
      • Öll verkefni
    • Efst á baugi
      • Fréttir
      • Nýjast
      • Fyrir fjölmiðla
      • Eldri fréttir
      • Fyrirspurnir frá Alþingi
    • Gögn
      • Rit og skýrslur
      • Úrskurðir og álit
      • Eyðublöð
      • Stefnur og áætlanir
      • Styrkir og sjóðir
      • Hugtakasafn
      • Lög og reglugerðir
      • Málaskrár ráðuneyta
      • Mælaborð
      • Hönnunarstaðall
    • Ráðuneyti
      • Forsætisráðuneytið
      • Atvinnuvegaráðuneytið
      • Dómsmálaráðuneytið
      • Félags- og húsnæðismálaráðuneytið
      • Fjármála- og efnahagsráðuneytið
      • Heilbrigðisráðuneytið
      • Innviðaráðuneytið
      • Menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðuneytið
      • Mennta- og barnamálaráðuneytið
      • Umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytið
      • Utanríkisráðuneytið
      • Sendiskrifstofur
      • Samstarfsráðherra Norðurlanda
      • Starfsfólk
      • Stofnanir
      • Nefndir
      • Símanúmer og staðsetning ráðuneyta
      • Umbra
    • Ríkisstjórn
      • Skipan ríkisstjórnar
      • Ríkisstjórnarfundir
      • Stjórnarsáttmáli
      • Ráðherranefndir
      • Reglur um starfshætti
      • Reglur um ferðakostnað og starfskjör ráðherra
      • Siðareglur, hagsmunir og hagsmunaverðir
      • Þingmálaskrá
      • Ríkisráð
      • Sögulegt efni
      • Fyrir fjölmiðla
    Close navigation
    Utanríkismál
    Efnisorð

    Ekkert fannst

    Tegund
    Tegund

    Leita eftir efnisorðum

    Sýnir 501–550 af 1862
    Raða eftir:
    09. des. 2024Utanríkismál, Úkraína, Utanríkisráðuneytið

    Úkraína og hlutverk ÖSE í öryggismálum í Evrópu í forgrunni ráðherrafundar ÖSE

    Stuðningur Öryggis- og samvinnustofnunar Evrópu (ÖSE) við Úkraínu og hlutverk stofnunarinnar í öryggismálum í Evrópu og alþjóðlegum aðgerðum til að byggja upp og viðhalda friði voru á meðal umræðuefna á árlegum ráðherrafundi ÖSE sem fór fram á Möltu 5. og 6. desember. Malta hefur gegnt formennsku í ÖSE á þessu ári en Finnland tekur við formennskukeflinu á nýju ári.

    06. des. 2024Utanríkisráðuneytið, Utanríkismál, Atvinnuvegaráðuneytið

    Íslenskt lambakjöt orðið verndað afurðaheiti í Bretlandi

    Sameiginleg nefnd fríverslunarsamnings EES EFTA-ríkjanna við Bretland samþykkti í vikunni gagnkvæma viðurkenningu á landfræðilegum afurðaheitum Íslands og Bretlands. Íslenskt lambakjöt er þar með orðið verndað afurðaheiti í Bretlandi sem þýðir að hægt verður að vísa sérstaklega til íslensks uppruna vörunnar þegar kjötið er selt á breskum markaði.

    05. des. 2024Utanríkisráðuneytið, Alþjóðasamningar, Utanríkisviðskipti, Utanríkismál

    Uppfærslu fríverslunarsamnings við Úkraínu lokið

    Ísland náði í vikunni samkomulagi við Úkraínu um uppfærslu fríverslunarsamnings sem verið hefur í gildi milli ríkjanna frá árinu 2012. Ísland leiddi samningaviðræðurnar fyrir hönd EFTA-ríkjanna sem einnig telja Liechtenstein, Noreg og Sviss. Með samningnum styðja EFTA ríkin við efnahagsstefnu Úkraínu sem miðar að aukinni samþættingu við markaði Vestur-Evrópu. Uppfærslan felur einnig í sér stuðningsyfirlýsingu við Úkraínu á tímum innrásarstríðs Rússlands.

    05. des. 2024Utanríkismál, Átök fyrir botni Miðjarðarhafs, Öryggis- og varnarmál, Úkraína, Utanríkisráðuneytið

    Utanríkisráðherrar Atlantshafsbandalagsins ræddu stríðið í Úkraínu og átökin í Mið-Austurlöndum

    Áframhaldandi stríðsrekstur Rússlands og stuðningur bandalagsríkja við varnarbaráttu Úkraínu, sem og átökin fyrir botni Miðjarðarhafs, voru helstu umræðuefni á utanríkisráðaherrafundi Atlantshafsbandalagsins sem lauk í gær í höfuðstöðvum bandalagsins í Brussel. Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir utanríkisráðherra sótti fundinn.

    29. nóv. 2024Utanríkisráðuneytið, Alþjóðamál, Utanríkisviðskipti, Utanríkismál

    Fríverslunarsamningur við Taíland í höfn

    Ísland hefur náð samkomulagi um fríverslunarsamning við Taíland. Samningurinn kveður á um tollfríðindi fyrir allar helstu útflutningsafurðir Íslands til Tælands. Samningurinn tryggir meðal annars fullt tollfrelsi inn á Taílandsmarkað fyrir flök af laxi, þorsk, grálúðu og loðnuhrogn, vélbúnað til matvælaframleiðslu og stoðtæki.

    26. nóv. 2024Utanríkisráðuneytið, Evrópusamvinna, Utanríkisviðskipti, Utanríkismál

    Ólgutímar á alþjóðavettvangi og samkeppnishæfni í brennidepli á fundi EES-ráðsins

    Ólgutímar á alþjóðavettvangi og samkeppnishæfni voru meðal helstu umræðuefna á fundi EES-ráðsins og fundi með þingmannanefnd EFTA og ráðgjafarnefnd EFTA í gær.

    22. nóv. 2024Utanríkismál, Norrænt samstarf, Öryggis- og varnarmál, Úkraína, Utanríkisráðuneytið

    Norðurlöndin einróma um öflugri stuðning við Úkraínu

    Áframhaldandi og öflugri stuðningur við varnarbaráttu Úkraínu og aukið samstarf Norðurlandanna á sviði öryggis- og varnarmála voru helstu umræðuefni fundar varnarmálaráðherra norrænu ríkjanna sem fram fór í gær.

    20. nóv. 2024Utanríkisráðuneytið, Alþjóðamál, Sendiráð Íslands í Washington DC, Utanríkismál

    Aukið samstarf milli Íslands og Utah

    Aukið samstarf í orkumálum með áherslu á jarðvarmanýtingu, ferðaþjónustu, heilbrigðistækni, fjármálatækni og upplýsingatækni er efni viljayfirlýsingar Íslands og Utah-ríkis sem undirrituð var í þinghúsi Utah í Salt Lake City í síðustu viku.

    20. nóv. 2024Utanríkisráðuneytið, Alþjóðamál, Þróunarsamvinna, Utanríkismál

    Jarðhitaskóli GRÓ útskrifar 26 nemendur frá þrettán löndum

    Tuttugu og sex nemendur frá þrettán löndum í Afríku, Asíu og Suður Ameríku útskrifuðust úr sex mánaða námi Jarðhitaskóla GRÓ 14. nóvember síðastliðinn. Þetta er 45. nemendahópur Jarðhitaskólans en í fyrsta skipti í sögu skólans voru konur í meirihluta útskriftarnema, eða 14 konur og 12 karlar.

    14. nóv. 2024Utanríkisráðuneytið, Alþjóðamál, Utanríkisviðskipti, Utanríkismál, Sendiráð Íslands í París, Sendiskrifstofa

    Tvíhliða samráð Íslands og Spánar

    Tvíhliða samráð Íslands og Spánar fór fram öðru sinni í Madríd í gær þar sem rætt var um sameiginlega hagsmuni ríkjanna á alþjóðavettvangi og vaxandi samskipti ríkjanna. Ríkin fagna 75 ára stjórnmálasambandi í ár og af því tilefni efndu Íslandsstofa, Spænsk-íslenska verslunarráðið og sendiráð Íslands í París til viðskiptadagskrár í Madríd með þátttöku fulltrúa atvinnulífsins.

    01. nóv. 2024Utanríkismál, Utanríkisráðuneytið

    Tvíhliða samráð Íslands og Króatíu

    Ísland og Króatía áttu tvíhliða samráð í Reykjavík í gær þegar Martin Eyjólfsson, ráðuneytisstjóri utanríkisráðuneytisins, fundaði með Andreja Metelko-Zgombić, ráðuneytisstjóra Evrópumála í utanríkisráðuneyti Króatíu.

    31. okt. 2024Utanríkismál, Norrænt samstarf, Úkraína, Utanríkisráðuneytið

    Stuðningur við Úkraínu og Belarús í brennidepli á fundi utanríkisráðherra Norðurlanda

    Samvinna um öryggismál, málefni Úkraínu og ástandið í Mið-Austurlöndum voru til umræðu á fundi utanríkisráðherra Norðurlandanna í vikunni, sem haldinn var samhliða 76. þingi Norðurlandaráðs. Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir utanríkisráðherra sat fundinn sem utanríkisráðherra Svíþjóðar stýrði þar sem Svíþjóð fer með formennsku í norrænu samstarfi utanríkisráðherranna í ár.

    29. okt. 2024Utanríkisráðuneytið, Alþjóðamál, Þróunarsamvinna, Utanríkismál

    Umbætur alþjóðlegra fjármálastofnana og fjármögnun þróunar í brennidepli á ársfundi Alþjóðabankans

    Samstaða með Úkraínu, áhyggjur af vaxandi átökum í Mið-Austurlöndum og Súdan og mikilvægi þess að tryggja öfluga fjármögnun til fátækustu ríkjanna í gegnum Alþjóðabankann bar hæst í ávarpi Norðurlandanna og Eystrasaltsríkjanna á ársfundi Alþjóðabankans í Washington D.C. í síðustu viku. Fjármálaráðherra Lettlands flutti ávarpið fyrir hönd kjördæmi Norðurlandanna og Eystrasaltsríkjanna.

    23. okt. 2024Utanríkismál, Norrænt samstarf, Utanríkisráðuneytið

    Hátíðarhöld í Berlín í tilefni af 25 ára afmæli norrænu sendiráðanna

    Halla Tómasdóttir, forseti Íslands, sótti hátíðarhöld í tilefni af 25 ára afmæli norrænu sendiráðanna Í Berlín í vikunni ásamt þjóðhöfðingjum og utanríkisráðherrum Norðurlandanna.

    22. okt. 2024Utanríkisráðuneytið, Alþjóðamál, Utanríkismál

    Utanríkisráðherrar ræddu og áréttuðu mikilvægi vestnorræns samstarfs

    Sameiginleg tækifæri og áskoranir í vestnorrænni samvinnu voru til umræðu á þríhliða fundi utanríkisráðherra Íslands, Færeyja og Grænlands, sem fram fór í Reykjavík síðastliðinn föstudag.

    22. okt. 2024Utanríkisráðuneytið, Alþjóðamál, Öryggis- og varnarmál, Úkraína, Utanríkismál

    Varnarmálaráðherrar Atlantshafsbandalagsins ræddu sameiginlegar varnir og Úkraínu

    Sameiginlegar varnir, áframhaldandi stuðningur við Úkraínu og aukið samstarf við Indó-Kyrrahafsríkin voru meðal helstu umræðuefna á fundi varnarmálaráðherra Atlantshafsbandalagsins, sem lauk á föstudag í höfuðstöðvum bandalagsins í Brussel.

    17. okt. 2024Utanríkismál, Úkraína, Utanríkisráðuneytið

    Utanríkisráðherrar Norðurlandanna og Eystrasaltsríkjanna heimsóttu Úkraínu og Moldóvu

    Utanríkisráðherrar Norðurlandanna og Eystrasaltsríkjanna heimsóttu Úkraínu í gær. Andrii Sybhia, utanríkisráðherra Úkraínu, átti fund með ráðherrunum í hafnarborginni Odesa. Heimsóknin hófst með því að lagður var blómsveigur að minnismerki um fallna hermenn. Þá kynntu fulltrúar hafnaryfirvalda og fyrirtækja í matvælaframleiðslu fyrir ráðherrunum mikilvægi áburðar- og kornúflutnings frá Odesa fyrir matvælaöryggi á heimsvísu.

    15. okt. 2024Utanríkisráðuneytið, Utanríkismál, Utanríkisviðskipti, Fjármála- og efnahagsráðuneytið

    Ísland og Brasilía undirrita tvísköttunarsamning

    Tvísköttunarsamningur milli Íslands og Brasilíu var undirritaður í húsakynnum utanríkisráðuneytisins við Austurhöfn í gær. Samningurinn, sem nær til tekjuskatta, var undirritaður af Bergdísi Ellertsdóttur, sendiherra og staðgengli ráðuneytisstjóra, fyrir hönd Íslands og Rodrigo de Azeredo Santos, sendiherra, fyrir hönd Brasilíu.

    14. okt. 2024Utanríkismál, Norrænt samstarf, Öryggis- og varnarmál, Utanríkisráðuneytið

    Styrkur og samlegð í norrænu varnarsamstarfi til umræðu

    Yfirmenn hermála Norðurlandanna funduðu í síðustu viku um frekari útfærslu á varnasamstarfi ríkjanna og hvernig hægt er að auka sameiginlega getu og viðbragð innan ramma NORDEFCO. Fundurinn fór fram í Keflavík og var haldinn í samstarfi Íslands og Danmerkur, sem fer með formennsku í norræna varnarsamstarfinu í ár.

    11. okt. 2024Utanríkismál, Öryggis- og varnarmál, Utanríkisráðuneytið

    Traust varnarsamstarf áréttað á fundi með yfirherforingja Bandaríkjahers

    Áskoranir í öryggismálum, samstarf á norðurslóðum og tvíhliða varnarsamstarf Íslands og Bandaríkjanna voru meðal málefna sem rædd voru á fundi Þórdísar Kolbrúnar Reykfjörð Gylfadóttur utanríkisráðherra með Charles Q. Brown, formanni bandaríska herráðsins. Um var að ræða fyrstu heimsókn formanns bandaríska herráðsins til Íslands í áraraðir.

    11. okt. 2024Utanríkismál, Norðurslóðir, Öryggis- og varnarmál, Utanríkisráðuneytið

    Yfirmenn hermála norðurskautsríkja funduðu á Íslandi

    Yfirmenn hermála á Íslandi, Bandaríkjunum, Danmörku, Noregi, Finnlandi, Kanada og Svíþjóð héldu fund á öryggissvæðinu í Keflavík á miðvikudag þar sem öryggismál á norðurslóðum voru til umræðu.

    09. okt. 2024Utanríkisráðuneytið, Almannavarnir, Mannréttindi, Utanríkismál, Mannréttindaráð SÞ

    Ísland kjörið í mannréttindaráð Sameinuðu þjóðanna

    Ísland hlaut kjör til setu í mannréttindaráði Sameinuðu þjóðanna í dag í kosningum sem fóru fram í allsherjarþinginu í New York. Samtals nítján ríki voru í framboði fyrir átján laus sæti ráðsins fyrir þriggja ára kjörtímabil sem hefst í byrjun árs 2025 og er til ársloka 2027.

    03. okt. 2024Utanríkismál, Utanríkisráðuneytið

    Ísland og Filippseyjar höfðu pólitískt samráð í New York

    Efnt var til pólitísks samráðs milli Íslands og Filippseyja þann 27. september sl. í tengslum við nýafstaðna ráðherraviku allsherjarþings Sameinuðu þjóðanna í New York. Bergdís Ellertsdóttir, sendiherra og staðgengill ráðuneytisstjóra utanríkisráðuneytisins, fundaði þá með Theresu P. Lazaro, skrifstofustjóra málefna tvíhliða mála, á sendiskrifstofu Filippseyja þar í borg.

    02. okt. 2024Utanríkisráðuneytið, Alþjóðamál, Öryggis- og varnarmál, Utanríkismál

    Þróun öryggismála rædd í Varsjá

    Aukinn varnarviðbúnað Atlantshafsbandalagins, eindreginn stuðning við Úkraínu og mikilvægi þess að standa vörð um lýðræði og alþjóðlög voru leiðarstefið á Warsaw Security Forum, alþjóðlegri öryggisráðstefnu sem haldin var í Varsjá dagana 1.-2. október.

    01. okt. 2024Utanríkismál, Utanríkisráðuneytið

    Um 140 ræðismenn Íslands samankomnir í Reykjavík

    Tveggja daga Ræðismannaráðstefna Íslands fer nú fram í Reykjavík, þar sem um 140 kjörræðismenn Íslands frá 71 landi eru samankomnir. Ráðstefnan fer fram á fimm ára fresti og er nú haldin í níunda skiptið. Blásið var til fyrstu ráðstefnunnar árið 1971.

    28. sep. 2024Utanríkismál, Alþjóðamál, Átök fyrir botni Miðjarðarhafs, Úkraína, Fastanefnd Íslands hjá S.þ., Utanríkisráðuneytið, Mannréttindaráð SÞ

    Samtakamáttur aldrei mikilvægari en nú

    Virðing fyrir mannréttindum, einstaklingsfrelsinu og alþjóðalögum voru leiðarstef í ávarpi Þórdísar Kolbrúnar Reykfjörð Gylfadóttur utanríkisráðherra, sem hún flutti á 79. allsherjarþingi Sameinuðu þjóðanna í kvöld. Þá voru þær áskoranir sem alþjóðasamfélagið stendur frammi fyrir nú um stundir, meðan stríð geisa og víða er gerð aðför að lýðræðinu utanríkisráðherra sömuleiðis ofarlega í huga.

    27. sep. 2024Utanríkismál, Alþjóðamál, Utanríkisráðuneytið

    Utanríkisráðherra flytur ávarp í allsherjarþingi Sameinuðu þjóðanna á morgun

    Allsherjarþing Sameinuðu þjóðanna fer nú fram í New York í 79. sinn, þar sem leiðtogar aðildarríkjanna 193 koma saman. Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir utanríkisráðherra flytur ávarp sitt í þinginu á morgun, laugardag, en hún hefur tekið þátt í fjölmörgum fundum og viðburðum í tengslum við ráðherraviku allsherjarþingsins í vikunni.

    27. sep. 2024Utanríkismál, Úkraína, Utanríkisráðuneytið

    Ríkjahópur um sprengjuleit og eyðingu í Úkraínu fundar í Reykjavík

    Fulltrúar ríkja sem skipa ríkjahóp um sprengjuleit- og eyðingu í Úkraínu, áttu sameiginlegan fund í Reykjavík dagana 26. og 27. september. Ísland og Litáen leiða vinnu hópsins sem styður við þjálfun og kaup á margvíslegum búnaði til sprengjuleitar og eyðingar. Alls taka 22 ríki þátt í starfi hópsins.

    20. sep. 2024Utanríkismál, Norrænt samstarf, Öryggis- og varnarmál, Utanríkisráðuneytið

    Stefnurammi fyrir norrænt varnarsamstarf

    Norðurlöndin tilkynntu í dag um undirritun tillagna að frekari útfærslu varnarsamstarfs ríkjanna (Nordic Defence Concept), sem markar mikilvægan áfanga í norrænni varnarsamvinnu sem heild.

    19. sep. 2024Utanríkisráðuneytið, Utanríkismál, Umhverfis-٫ orku- og loftslagsráðuneytið

    Ísland og Indónesía undirrita viljayfirlýsingu um samstarf í jarðhitamálum

    Viljayfirlýsing um samstarf Íslands og Indónesíu í jarðhitamálum var undirrituð í gær á árlegu jarðhitaþingi (IIGCE) sem fram fór í Jakarta, höfuðborg Indónesíu. Samstarfið lýtur að endurnýjanlegri orku, með áherslu á þróun jarðhita.

    18. sep. 2024Utanríkisráðuneytið, Alþjóðamál, Þróunarsamvinna, Úkraína, Utanríkismál, Norrænt samstarf

    Enduruppbygging Úkraínu og nýsköpun í þróunarsamvinnu í brennidepli á fundi þróunarsamvinnuráðherra Norðurlandanna

    Nýsköpun í þróunarsamvinnu, stuðningur við enduruppbyggingu Úkraínu, græn orkuskipti í þróunarríkjum og lýðræðisþróun í Austur-Evrópu voru meðal viðfangsefna á fundi þróunarsamvinnuráðherra Norðurlandanna sem fram fór í Stokkhólmi í dag. Benjamin Dousa, nýskipaður þróunarsamvinnuráðherra Svíþjóðar, tók þar á móti norrænum starfssystkinum sínum en fundurinn er liður í formennsku Svíþjóðar í norrænu samstarfi.

    13. sep. 2024Utanríkismál, Öryggis- og varnarmál, Utanríkisráðuneytið, Úkraína, Átök fyrir botni Miðjarðarhafs

    Varautanríkisráðherra Bandaríkjanna á Íslandi

    Aukið samstarf Bandaríkjanna og Íslands, m.a. á sviðum tækni og nýsköpunar, og tvíhliða samskipti þjóðanna voru á meðal umræðuefna á fundi Þórdísar Kolbrúnar Reykfjörð Gylfadóttur utanríkisráðherra og Kurt M. Campbell, varautanríkisráðherra Bandaríkjanna, sem fram fór í utanríkisráðuneytinu í morgun.

    09. sep. 2024Utanríkismál, Evrópuráðið, Utanríkisráðuneytið, Gervigreind

    Fyrsti alþjóðasamningurinn á sviði gervigreindar undirritaður

    Ísland er aðili að nýjum rammasamningi Evrópuráðsins um gervigreind og mannréttindi, sem undirritaður var í Vilníus í Litáen í síðustu viku.

    06. sep. 2024Utanríkismál, Utanríkisráðuneytið

    Mikilvægt að auka pólitíska umræðu um EES-samstarfið

    Þróun innri markaðarins og EES-samningurinn í breyttum heimi var í brennidepli á opnum fundi utanríkisráðuneytisins og Alþjóðamálastofnunar Háskóla Íslands 3. september síðastliðinn. Frummælendur á fundinum voru Enrico Letta, fyrrverandi forsætisráðherra Ítalíu og höfundur nýlegrar skýrslu um framtíð innri markaðarins, og Line Eldring, formaður nefndar sem nýlega skilaði skýrslu um reynslu Noregs af EES-samstarfinu.

    23. ágú. 2024Utanríkismál, Utanríkisráðuneytið

    Varnir Íslands æfðar á Norður-Víkingi 2024

    Varnaræfingin Norður-Víkingur fer fram á Íslandi og hafsvæðinu kringum landið dagana 26. ágúst til 3. september.

    21. ágú. 2024Utanríkisráðuneytið, Alþjóðamál, Utanríkisviðskipti, Utanríkismál

    Vinátta og viðskipti efst á baugi í heimsókn til Færeyja

    Tvíhliða samskipti og viðskipti Íslands og Færeyja voru í brennidepli í ferð utanríkisráðherra til Færeyja í vikunni. Með ráðherra í för var viðskiptasendinefnd skipuð fulltrúum ellefu fyrirtækja auk Íslandsstofu. Ferðin var að frumkvæði og tilstuðlan færeysk-íslenska viðskiptaráðsins en tilgangur ráðsins er að styrkja viðskiptatengsl Íslands og Færeyja.

    17. ágú. 2024Utanríkisráðuneytið, Alþjóðamál, Öryggis- og varnarmál, Utanríkismál

    Utanríkisráðherra heimsótti öryggissvæðið í Keflavík í tengslum við loftrýmisgæslu Bretlands

    Flugsveit frá breska flughernum sinnir nú reglubundinni loftrýmisgæslu Atlantshafsbandalagsins á Íslandi. Flugsveitin samanstendur af fjórum F-35 orrustuþotum og 180 liðmönnum.

    16. ágú. 2024Utanríkisráðuneytið, Alþjóðamál, Úkraína, Utanríkismál

    Íslendingar jákvæðir í garð alþjóðastarfs

    Yfirgnæfandi meirihluti landsmanna, eða 90,2 prósent, segja skipta miklu máli að Ísland hafi gott orðspor í alþjóðasamfélaginu. Alls segja 75 prósent hagsæld Íslands byggja að miklu leyti á alþjóðlegri samvinnu og 76,8 prósent segja hagsæld Íslands byggja á alþjóðlegum viðskiptum. Þá telja 74,2 prósent að þátttaka Íslands í alþjóðasamvinnu styrki fullveldi Íslands. Þetta kemur fram í niðurstöðum árlegrar skoðanakönnunar sem Maskína gerir fyrir utanríkisráðuneytið.

    14. ágú. 2024Utanríkisráðuneytið, Alþjóðamál, Norrænt samstarf, Utanríkisviðskipti, Afríka, Utanríkismál

    Fyrsta sameiginlega heimsókn norrænna utanríkisráðherra til Afríku

    Alþjóðaöryggismál, viðskipti, fjölþjóðlegt samstarf og grænar lausnir voru til umræðu í fyrstu sameiginlegu heimsókn utanríkisráðherra Norðurlanda til Afríku dagana 12. – 14. ágúst. Í ferðinni heimsóttu ráðherrarnir Nígeríu og Gana en ferðin er liður í áherslu Norðurlandanna á að efla samvinnu og viðskipti við ríki í Afríku.

    02. ágú. 2024Utanríkisráðuneytið, Alþjóðamál, Öryggis- og varnarmál, Utanríkismál

    Loftrýmisgæsla Atlantshafsbandalagsins hefst í næstu viku

    Bresk flugsveit er væntanleg til landsins í byrjun næstu viku, en þá hefst loftrýmisgæsla Atlantshafsbandalagsins. Flugsveitin samanstendur af fjórum F-35 orrustuþotum og 180 liðsmönnum.

    31. júl. 2024Utanríkisráðuneytið, Alþjóðamál, Þróunarsamvinna, Skólar GRÓ, Utanríkismál

    Ársskýrsla GRÓ 2023 komin út

    Alls útskrifuðust 92 sérfræðingar árið 2023 úr fimm til sex mánaða námi í skólunum fjórum sem starfræktir eru á vegum GRÓ – Þekkingarmiðstöðvar þróunarsamvinnu, það er Jafnréttisskólanum, Jarðhitaskólanum, Landgræðsluskólanum og Sjávarútvegsskólanum. Þá útskrifuðust fimm fyrrverandi nemendur með meistaragráðu og einn með doktorsgráðu á skólastyrk frá GRÓ, en á árinu voru alls 36 fyrrverandi nemendur í framhaldsnámi við íslenska háskóla á skólastyrk frá GRÓ.

    31. júl. 2024Utanríkisráðuneytið, Alþjóðamál, Jafnrétti, Þróunarsamvinna, Utanríkismál, Sendiráð Íslands í Freetown, Sendiskrifstofa

    Opnun á skurðstofu til meðhöndlunar fæðingarfistils í Síerra Leóne

    Ný skurðstofa til meðhöndlunar fæðingarfistils var vígð við hátíðlega athöfn á ríkissjúkrahúsinu í borginni Bo í Síerra Leóne fyrr í mánuðinum. Endurbæturnar á skurðstofunni voru fjármagnaðar af íslenskum stjórnvöldum og eru hluti af verkefni sem Mannfjöldasjóður Sameinuðu þjóðanna (UNFPA) vinnur í samstarfi við stjórnvöld í Síerra Leóne.

    19. júl. 2024Utanríkismál, Norðurslóðir, Öryggis- og varnarmál, Utanríkisráðuneytið

    Ísland og Kanada horfa til aukins samstarfs um öryggis- og varnarmál

    Aukið samstarf Íslands og Kanada um öryggis- og varnarmál á Norðurslóðum var til umfjöllunar á ráðstefnu (e. Canada-Iceland Seminar: Maritime Defence and Security in the North) sem haldin var nýverið í Ottawa, höfuðborg Kanada.

    17. júl. 2024Mannréttindi og jafnrétti, Utanríkismál, Mannréttindi, Átök fyrir botni Miðjarðarhafs, Úkraína, Utanríkisráðuneytið, Mannréttindaráð SÞ

    Sumarlotu mannréttindaráðs Sameinuðu þjóðanna lokið í Genf

    Sumarlotu mannréttindaráðs Sameinuðu þjóðanna, sem hófst 18. júní sl, er lokið eftir fjögurra vikna fundarsetur og samningaviðræður.

    11. júl. 2024Utanríkisráðuneytið, Utanríkismál, Öryggis- og varnarmál, Úkraína, Forsætisráðuneytið

    Samstaða innan Atlantshafsbandalagsins um áframhaldandi öflugan stuðning við Úkraínu

    Áframhaldandi og einarður stuðningur Atlantshafsbandalagsins við varnarbaráttu Úkraínu var áréttaður á þriggja daga leiðtogafundi bandalagsins, sem lauk í Washington D.C. í Bandaríkjunum í dag. Bandalagsríkin ítrekuðu jafnframt mikilvægi þess að halda áfram að styrkja fælingar- og varnarstöðu sína samhliða því að efla samvinnu við helstu samstarfsríki til mæta nýjum áskorunum.

    08. júl. 2024Utanríkisráðuneytið, Utanríkismál, Öryggis- og varnarmál, Forsætisráðuneytið

    Forsætisráðherra og utanríkisráðherra sækja leiðtogafund Atlantshafsbandalagsins í Washington

    Bjarni Benediktsson forsætisráðherra og Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir utanríkisráðherra sækja leiðtogafund Atlantshafsbandalagsins sem hefst í Washington D.C. á morgun og stendur fram á fimmtudag. Þar verður þess minnst að 75 ár eru liðin frá stofnun bandalagsins.

    02. júl. 2024Innviðaráðuneytið, Utanríkismál, Evrópusamvinna, Flug og flugvellir, Samgöngur

    Vel heppnuð heimsókn sendiráðunauta ESB og EFTA til Íslands

    Sendiráðunautar ESB og EFTA ríkja á sviði flugs og siglinga heimsóttu Ísland í lok júní í boði íslenskra stjórnvalda.

    26. jún. 2024Utanríkisráðuneytið, Alþjóðamál, Mannréttindi, Utanríkisviðskipti, Utanríkismál, Mannréttindaráð SÞ

    Utanríkisráðherra í Genf vegna framboðs Íslands til mannréttindaráðs Sameinuðu þjóðanna

    Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir utanríkisráðherra fundaði í gær í Genf með stofnunum á sviði mannréttinda, mannúðar og alþjóðaviðskipta. Auk þess átti ráðherra fund með frjálsum félagasamtökum um alvarlegt bakslag í mannréttindamálum á heimsvísu, en frjáls félagasamtök gegna mikilvægu hlutverki í starfi mannréttindaráðs Sameinuðu þjóðanna vegna sérþekkingar sinnar.

    26. jún. 2024Utanríkisráðuneytið, Alþjóðamál, Utanríkismál

    Tvíhliða stjórnmálasamráð Íslands og Japans

    Stjórnmálasamráð Íslands og Japans fór fram í utanríkisráðuneytinu 24. júní síðastliðinn þar sem tvíhliða samskipti, fjölþjóðleg samvinna og alþjóðleg málefni voru efst á baugi, einkum innrásarstríð Rússlands í Úkraínu, átökin fyrir botni Miðjarðarhafs og staðan á Indó-Kyrrahafssvæðinu.

    25. jún. 2024Utanríkisráðuneytið, Alþjóðamál, Heimsmarkmiðasjóður atvinnulífs, Utanríkismál

    Fjögur fyrirtæki fá styrki úr Heimsmarkmiðasjóði atvinnulífs

    Fjögur fyrirtæki fengu í síðustu viku styrki frá utanríkisráðuneytinu úr Heimsmarkmiðasjóði atvinnulífs vegna samstarfsverkefna í þróunarríkjum. Markmið sjóðsins er að hvetja til þátttöku og framlags atvinnulífsins til þróunarsamvinnu. Fyrirtækin sem um ræðir eru Hananja, VAXA Technologies, Íslenski sjávarklasinn og Kerecis.

    • First
    • Prev
    • 9
    • 10
    • 11
    • 12
    • 13
    • Next
    • Last
    Logo
    • Um vefinn
    • Áskrift
    • Veftré
    • Fyrirvari
    +354 545 8000
    Staðsetning ráðuneyta, opnunartími og netföng
    Hafa samband

    Hafa samband