Coat of arms
Stjórnarráð Íslands
  • Verkefni
    • Almannatryggingar og lífeyrir
    • Almannaöryggi
    • Atvinnuvegir
    • Auðlindir
    • Efnahagsmál
    • Félags- og fjölskyldumál
    • Fjarskipti
    • Húsnæðis- og mannvirkjamál
    • Líf og heilsa
    • Kosningar
    • Lög og réttur
    • Mannauðsmál ríkisins
    • Mannréttindi og jafnrétti
    • Menningarmál
    • Menntamál
    • Neytendamál
    • Opinber fjármál
    • Persónuréttur
    • Rekstur og eignir ríkisins
    • Samgöngur
    • Sjálfbært Ísland
    • Skipulagsmál
    • Stjórnskipan og þjóðartákn
    • Sveitarstjórnir og byggðamál
    • Trú og lífsskoðun
    • Umhverfi og náttúruvernd
    • Upplýsingatæknimál ríkisins
    • Utanríkismál
    • Útlendingar
    • Vinnumál
    • Vísindi, nýsköpun og rannsóknir
    • Öll verkefni
    • Efst á baugi
      • Fréttir
      • Nýjast
      • Fyrirspurnir frá Alþingi
      • Fyrir fjölmiðla
      • Eldri fréttir
    • Gögn
      • Rit og skýrslur
      • Úrskurðir og álit
      • Eyðublöð
      • Stefnur og áætlanir
      • Styrkir og sjóðir
      • Hugtakasafn
      • Lög og reglugerðir
      • Málaskrár ráðuneyta
      • Mælaborð
      • Hönnunarstaðall
    • Ráðuneyti
      • Forsætisráðuneytið
      • Atvinnuvegaráðuneytið
      • Dómsmálaráðuneytið
      • Félags- og húsnæðismálaráðuneytið
      • Fjármála- og efnahagsráðuneytið
      • Heilbrigðisráðuneytið
      • Innviðaráðuneytið
      • Menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðuneytið
      • Mennta- og barnamálaráðuneytið
      • Umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytið
      • Utanríkisráðuneytið
      • Sendiskrifstofur
      • Samstarfsráðherra Norðurlanda
      • Starfsfólk
      • Stofnanir
      • Nefndir
      • Símanúmer og staðsetning ráðuneyta
      • Umbra
    • Ríkisstjórn
      • Skipan ríkisstjórnar
      • Ríkisstjórnarfundir
      • Stjórnarsáttmáli
      • Ráðherranefndir
      • Reglur um starfshætti
      • Reglur um ferðakostnað og starfskjör ráðherra
      • Siðareglur, hagsmunir og hagsmunaverðir
      • Þingmálaskrá
      • Ríkisráð
      • Sögulegt efni
      • Fyrir fjölmiðla
    EN
    • Verkefni
      • Almannatryggingar og lífeyrir
      • Almannaöryggi
      • Atvinnuvegir
      • Auðlindir
      • Efnahagsmál
      • Félags- og fjölskyldumál
      • Fjarskipti
      • Húsnæðis- og mannvirkjamál
      • Líf og heilsa
      • Kosningar
      • Lög og réttur
      • Mannauðsmál ríkisins
      • Mannréttindi og jafnrétti
      • Menningarmál
      • Menntamál
      • Neytendamál
      • Opinber fjármál
      • Persónuréttur
      • Rekstur og eignir ríkisins
      • Samgöngur
      • Sjálfbært Ísland
      • Skipulagsmál
      • Stjórnskipan og þjóðartákn
      • Sveitarstjórnir og byggðamál
      • Trú og lífsskoðun
      • Umhverfi og náttúruvernd
      • Upplýsingatæknimál ríkisins
      • Utanríkismál
      • Útlendingar
      • Vinnumál
      • Vísindi, nýsköpun og rannsóknir
      • Öll verkefni
    • Efst á baugi
      • Fréttir
      • Nýjast
      • Fyrir fjölmiðla
      • Eldri fréttir
      • Fyrirspurnir frá Alþingi
    • Gögn
      • Rit og skýrslur
      • Úrskurðir og álit
      • Eyðublöð
      • Stefnur og áætlanir
      • Styrkir og sjóðir
      • Hugtakasafn
      • Lög og reglugerðir
      • Málaskrár ráðuneyta
      • Mælaborð
      • Hönnunarstaðall
    • Ráðuneyti
      • Forsætisráðuneytið
      • Atvinnuvegaráðuneytið
      • Dómsmálaráðuneytið
      • Félags- og húsnæðismálaráðuneytið
      • Fjármála- og efnahagsráðuneytið
      • Heilbrigðisráðuneytið
      • Innviðaráðuneytið
      • Menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðuneytið
      • Mennta- og barnamálaráðuneytið
      • Umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytið
      • Utanríkisráðuneytið
      • Sendiskrifstofur
      • Samstarfsráðherra Norðurlanda
      • Starfsfólk
      • Stofnanir
      • Nefndir
      • Símanúmer og staðsetning ráðuneyta
      • Umbra
    • Ríkisstjórn
      • Skipan ríkisstjórnar
      • Ríkisstjórnarfundir
      • Stjórnarsáttmáli
      • Ráðherranefndir
      • Reglur um starfshætti
      • Reglur um ferðakostnað og starfskjör ráðherra
      • Siðareglur, hagsmunir og hagsmunaverðir
      • Þingmálaskrá
      • Ríkisráð
      • Sögulegt efni
      • Fyrir fjölmiðla
    Close navigation
    Atvinnuvegir
    Efnisorð

    Ekkert fannst

    Tegund
    Tegund

    Leita eftir efnisorðum

    Sýnir 551–600 af 1496
    Raða eftir:
    24. nóv. 2022Atvinnuvegaráðuneytið, Auðlindir, Alþjóðasamningar, Sjávarútvegur, Atvinnuvegir

    Norðaustur-Atlantshafsfiskveiðiráðið bannar löndun á karfa af Reykjaneshrygg

    Á 40. ársfundi Norðuraustur-Atlantshafsfiskveiðiráðsins (NEAFC) sem haldinn var í London dagana 15.-18. nóvember, samþykktu aðildarríki ráðsins að banna löndun, umskipun eða aðra þjónustu við skip sem stunda veiðar á karfa á Reykjaneshrygg. Rússar hafa haldið þar áfram karfaveiðum þrátt fyrir skýra vísindaráðgjöf Alþjóðahafrannsóknaráðsins (ICES). Tilgangur samþykktarinnar er að þrengja að þessum veiðum og þrýsta á að öll aðildarríki samþykki vísindaráðgjöf ICES sem grunn veiðistjórnunar.

    24. nóv. 2022Atvinnuvegaráðuneytið, Auðlindir, Alþjóðamál, Fæðuöryggi, Fiskeldi, Landbúnaður, Sjávarútvegur, Úkraína, Atvinnuvegir

    Engar einfaldar lausnir í boði vegna áskorana í landbúnaðarframleiðslu heimsins

    Á Matvælaþingi sem haldið var í Silfurbergi í Hörpu í gær flutti Olga Trofimtseva, fyrrum matvælaráðherra Úkraínu, erindi um framtíðarhorfur og áskoranir í matvælaframleiðslu í landbúnaði á heimsvísu.

    23. nóv. 2022Atvinnuvegaráðuneytið, Auðlindir, Landbúnaður, Atvinnuvegir

    Úthlutun nýliðunarstuðnings

    Matvælaráðuneytið hefur úthlutað nýliðunarstuðningi í landbúnaði fyrir árið 2022 í samræmi við reglugerð 430/2021 um almennan stuðning við landbúnað. Markmiðið með stuðningnum er að aðstoða nýliða við að hefja búskap og auðvelda ættliðaskipti í landbúnaði.

    23. nóv. 2022Atvinnuvegaráðuneytið, Auðlindir, Landbúnaður, Atvinnuvegir

    Niðurstöður innlausnarmarkaðar fyrir greiðslumark sauðfjár

    Innlausnarmarkaður ársins 2022 með greiðslumark í sauðfé var haldinn þann 15.nóvember. Matvælaráðuneytinu bárust 226 umsóknir um kaup og 22 umsóknir um sölu.

    22. nóv. 2022Atvinnuvegaráðuneytið, Auðlindir, Fiskeldi, Landbúnaður, Sjávarútvegur, Atvinnuvegir

    Skotar og Íslendingar takast á við svipaðar áskoranir í landbúnaði

    Pete Ritchie frá samtökunum Nourish Scotland flutti erindi á Matvælaþingi sem hófst í morgun. Í erindinu kom fram að Skotar glíma við svipuð vandamál í landbúnaði og Íslendingar. Til að mynda er mikil áhersla lögð á ræktun sauðfés og nautgripa í báðum löndum, og stór landsvæði henta ekki til hefðbundinnar akuryrkju.

    22. nóv. 2022Menningar-٫ nýsköpunar- og háskólaráðuneytið, Menningarmál, Utanríkismál, Vísindi nýsköpun og rannsóknir, Atvinnuvegir

    Lilja leiðir viðskiptasendinefnd til Suður Kóreu

    Lilja Alfreðsdóttir menningar- og viðskiptaráðherra fer fyrir íslenskri viðskiptasendinefnd til Suður Kóreu þar sem sérstök áhersla er lögð á menningu og skapandi greinar. Tilefni ferðarinnar er að í ár fagna Ísland og Suður Kórea 60 ára stjórnmálasambandi milli landanna en löndin tóku upp formlegt stjórnmálasamband þann 10. október 1962. Var þessum tímamótum meðal annars fagnað fyrr í haust þegar að sérstök sendinefnd á vegum Suður Kóreskra stjórnvalda heimsótti Ísland.

    22. nóv. 2022Atvinnuvegaráðuneytið, Ferðaþjónusta, Atvinnuvegir

    Frumvarp um bílaleigur og kröfur til leyfishafa vegna íslenskra aðstæðna í Samráðsgátt

    Lilja Dögg Alfreðsdóttir, menningar- og viðskiptaráðherra, hefur sett í samráðsgátt stjórnvalda drög að frumvarpi um breytingu á lögum um leigu skráningarskyldra ökutækja, nr. 65/2015. Er frumvarpið síðari hluta lagabreytinga sem byggja á tillögum OECD um samkeppnishæfni, í þeim tilgangi að halda áfram að bæta rekstrarskilyrði íslenskrar ferðaþjónustu.

    22. nóv. 2022Atvinnuvegaráðuneytið, Auðlindir, Fæðuöryggi, Fiskeldi, Heimsmarkmiðin, Landbúnaður, Loftslagsmál, Sjávarútvegur, Verslun, Atvinnuvegir

    Svandís Svavarsdóttir, matvælaráðherra, setti Matvælaþing 2022 í morgun

    Fullur salur er í Silfurbergi í Hörpu þar sem samankomnir eru fulltrúar allra þeirra greina sem koma að framleiðslu, vinnslu og dreifingu matvæla á Íslandi. Einnig er finna meðal þinggesta fjölbreyttan hóp fulltrúa félagasamtaka og stofnana sem tengjast matvælum á einn eða annan hátt. Sýnir fjölbreytnin vel áhuga fólks á málefninu. Þetta er í fyrsta sinn sem Matvælaþing er. haldið hér á landi.

    21. nóv. 2022Atvinnuvegaráðuneytið, Auðlindir, Landbúnaður, Sjávarútvegur, Fiskeldi, Atvinnuvegir

    Matvælaþing hefst á morgun

    Svandís Svavarsdóttir, matvælaráðherra, opnar Matvælaþing í Silfurbergi í Hörpu á morgun 22. nóvember.

    18. nóv. 2022Atvinnuvegaráðuneytið, Auðlindir, Auðlindin okkar, Sjávarútvegur, Atvinnuvegir

    Skilvirkari gagnaöflun og vinnsla lykilatriði fyrir sjávarútveginn

    Matvælaráðuneytið og Intellecta hafa gert með sér samning um markvissari og skilvirkari öflun og úrvinnslu gagna í sjávarútvegi. Þetta var kynnt á fjórða fundi samráðsnefndar um sjávarútvegsstefnu sem haldinn var 16. nóvember sl. Nefndin hefur yfirsýn yfir starfshópa verkefnisins „Auðlindin okkar“.

    17. nóv. 2022Menningar-٫ nýsköpunar- og háskólaráðuneytið, Menningarmál, Atvinnuvegir

    Þjóðargjöf í viku íslenskunnar: 550 eintök af heildarútgáfu Íslendingasagnanna

    „Það er mér heiður og ánægja að taka við þessari merku þjóðargjöf,“ segir Lilja Dögg Alfreðsdóttir, menningar- og viðskiptaráðherra sem í dag tók við 550 eintökum af heildarútgáfu Íslendingasagnanna sem gefin verða til mennta-, menningar- og heilbrigðisstofnana vítt og breitt um landið. Saga forlag hafði veg og vanda af fimm binda hátíðarútgáfu sagnanna, sem út kom í tilefni af 100 ára afmæli fullveldisins.

    16. nóv. 2022Atvinnuvegaráðuneytið, Auðlindir, Fiskeldi, Landbúnaður, Sjávarútvegur, Atvinnuvegir

    Matvælaráðherra kynnir drög að matvælastefnu

    Svandís Svavarsdóttir, matvælaráðherra, kynnti í febrúar áherslur og verklag við gerð matvælastefnu í Samráðsgátt stjórnvalda. Síðan hefur vinnuhópur á vegum ráðuneytisins unnið að útfærslu stefnunnar og hafa nú verið gefin út drög að matvælastefnu sem ráðherra mun kynna á Matvælaþingi 22. nóvember.

    16. nóv. 2022Atvinnuvegaráðuneytið, Auðlindir, Auðlindin okkar, Sjávarútvegur, Atvinnuvegir

    Góð mæting í Hofi á fundi Auðlindarinnar okkar

    Fjölbreyttur hópur fundarfólks tók þátt í umræðum á fjórða og síðasta fundi fundaraðarinnar Auðlindin okkar sem haldinn var 15. nóvember í Hofi á Akureyri.

    16. nóv. 2022Atvinnuvegaráðuneytið, Auðlindir, Sjávarútvegur, Atvinnuvegir

    Matvælaráðherra kynnir drög að verndun hafsvæða fyrir botnveiðum

    Svandís Svavarsdóttir matvælaráðherra hefur lagt fram reglugerðardrög í samráðsgátt um verndun svæða fyrir botnveiðum. Drögin eru byggð á skýrslu sem Hafrannsóknastofnun skilaði til ráðuneytisins árið 2021 og fjallar um verndun viðkvæmra botnvistkerfa í fiskveiðilandhelgi Íslands.

    16. nóv. 2022Atvinnuvegaráðuneytið, Félags- og fjölskyldumál, Menningarmál, Menntamál, Neytendamál, Sveitarstjórnir og byggðamál, Vísindi nýsköpun og rannsóknir, Barnaréttur, Ferðaþjónusta, Iðnaður, Jafnrétti, Mannréttindi, Sveitarfélög, Atvinnuvegir

    Dúndur diskó Bragi Valdimar fékk verðlaun Jónasar

    Bragi Valdimar Skúlason, tónlistarmaður og textasmiður, hlaut í dag Verðlaun Jónasar Hallgrímssonar. Verðlaunin eru veitt árlega, á degi íslenskrar tungu, þeim einstaklingi sem hefur með sérstökum hætti unnið íslenskri tungu gagn í ræðu eða riti, með skáldskap, fræðistörfum eða kennslu og stuðlað að eflingu hennar, framgangi eða miðlun til nýrrar kynslóðar. Sérstaka viðurkenningu dags íslenskrar tungu hlaut að þessu sinni verkefnið Tungumálatöfrar á Ísafirði sem býður upp á upp á málörvandi umhverfi í gegnum skapandi kennsluaðferðir fyrir fjöltyngd börn.

    15. nóv. 2022Atvinnuvegaráðuneytið, Utanríkisráðuneytið, Atvinnuvegir, Auðlindir, Utanríkismál, Heimsmarkmiðin, Umhverfis-٫ orku- og loftslagsráðuneytið

    Matvælaráðherra flutti yfirlýsingu Íslands á COP27

    Svandís Svavarsdóttir, matvælaráðherra, flutti í dag yfirlýsingu Íslands á aðildarríkjaþingi loftslagssamnings Sameinuðu þjóðanna, COP27. Þingið er haldið í Sharm El Sheikh í Egyptalandi.

    15. nóv. 2022Menningar-٫ nýsköpunar- og háskólaráðuneytið, Ferðakostnaður, Atvinnuvegir

    Umsækjendur um stöðu ferðamálastjóra

    Alls bárust 14 umsóknir um embætti ferðamálastjóra, en staðan var auglýst þann 21. október sl. og umsóknarfrestur rann út þann 10. nóvember sl. Einn umsækjandi dró umsókn sína til baka.

    10. nóv. 2022Atvinnuvegaráðuneytið, Auðlindir, Alþjóðasamningar, Sjávarútvegur, Atvinnuvegir

    Guðmundur Þórðarson ráðinn í stöðu samningamanns

    Guðmundur Þórðarson hefur verið ráðinn í stöðu samningamanns í fiskveiðisamningum á skrifstofu sjávarútvegs í matvælaráðuneytinu.

    10. nóv. 2022Atvinnuvegaráðuneytið, Auðlindir, Auðlindin okkar, Sjávarútvegur, Atvinnuvegir

    Snarpar umræður í Vestmannaeyjum á fundi Auðlindarinnar okkar

    Líflegar umræður og skoðanaskipti áttu sér stað á vel sóttum þriðja fundi fundaraðarinnar „Auðlindin okkar“ sem haldinn var 8. nóvember í Akóges-salnum í Vestmannaeyjum. Umhverfis- og loftlagsmál, hafrannsóknir, stafræn þróun, fyrirsjáanleiki, orðspor sjávarútvegs, samfélagssátt, strandveiðar, orkuskipti og byggðakvóti voru fundargestum ofarlega í huga.

    10. nóv. 2022Atvinnuvegaráðuneytið, Ferðaþjónusta, Atvinnuvegir

    Rannsóknaráætlun í ferðaþjónustu 2023-2025

    Menningar- og viðskiptaráðuneytið hefur birt í samráðsgátt stjórnvalda drög að rannsóknaráætlun í ferðaþjónustu fyrir 2023-2025. Áætlunin er unnin af Ferðamálastofu með aðkomu ráðgefandi nefndar um gagnaöflun og rannsóknir. Er hér um fjórðu slíka rannsóknaráætlun að ræða (þær fyrri náðu til 2020-2022, 2021-2023 og 2022-2024).

    10. nóv. 2022Menningar-٫ nýsköpunar- og háskólaráðuneytið, Menningarmál, Alþjóðamál, Atvinnuvegir

    Lilja hitti þingkonu og sendiherra Georgíu

    Lilja Dögg Alfreðsdóttir menningar- og viðskiptaráðherra átti fund með Eliso Bolkvadze þingkonu og formanni menningarnefndar georgíska þingsins og Nata Menabde sendiherra Georgíu gagnvart Íslandi. Þær eru hér á landi í tengslum við heimsþing kvenleiðtoga sem nú fer fram í Hörpu þar sem um 500 kvenleiðtogar frá yfir 100 löndum taka þátt.

    08. nóv. 2022Menningar-٫ nýsköpunar- og háskólaráðuneytið, Atvinnuvegir, Menningarmál, Menntamál, Norrænt samstarf, Forsætisráðuneytið

    Kynntu sér Oodi bókasafnið í Helsinki

    Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra og Lilja Alfreðsdóttir menningar- og viðskiptaráðherra heimsóttu Oodi, eða Óður nýlegt almenningsbókasafn í Helsinki. Heimsóknin var hluti af ferð ráðherra á 74. þing Norðurlandaráðs sem fram fór í borginni.

    04. nóv. 2022Atvinnuvegaráðuneytið, Landbúnaður, Atvinnuvegir

    Opnað fyrir skil á haustskýrslum

    Matvælaráðuneytið hefur opnað fyrir skráningar á haustskýrslum fyrir árið 2022 í Bústofni.

    03. nóv. 2022Atvinnuvegaráðuneytið, Auðlindir, Auðlindin okkar, Sjávarútvegur, Atvinnuvegir

    Líflegar umræður um Auðlindina okkar á Eskifirði

    Líflegar umræður sköpuðust á öðrum fundi fundaraðarinnar „Auðlindin okkar“ sem haldinn var 1. nóvember í Valhöll á Eskifirði. Fjöldi manns fylgdist með fundinum í streymi á netinu og var góð þátttaka í umræðum bæði í sal og í gegnum streymið. Á þriðja þúsund áhorfendur hafa nú fylgst með streymi frá fundaröðinni.

    03. nóv. 2022Atvinnuvegaráðuneytið, Utanríkisráðuneytið, Atvinnuvegir, Auðlindir, Heimsmarkmiðin, Loftslagsmál, Umhverfis-٫ orku- og loftslagsráðuneytið

    Matvælaráðherra sækir loftslagsráðstefnu Sameinuðu þjóðanna í Egyptalandi

    Svandís Svavarsdóttir matvælaráðherra mun fyrir hönd íslenskra stjórnvalda sækja tuttugasta og sjöunda aðildarríkjafund Loftslagssamnings Sameinuðu þjóðanna (COP27) sem stendur yfir 6.-18. nóvember í Sharm El Sheikh í Egyptalandi. Þar mun ráðherra ávarpa ráðherrafund og taka þátt í hliðarviðburðum. Guðlaugur Þór Þórðarson, umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra mun ávarpa viðburð á vegum Hringborðs Norðurslóða ávarpa í gegnum streymi.

    02. nóv. 2022Menningar-٫ nýsköpunar- og háskólaráðuneytið, Menningarmál, Norrænt samstarf, Atvinnuvegir

    Sterk menning er það sem heldur okkur saman

    Lilja Alfreðsdóttir sótti 74. þing Norðurlandaráðs í Helsinki þar sem hún fundaði með norrænum menningarmálaráðherrum. Á fundinum kynnti Lilja formennskuáherslur Íslands á sviði menningarmála en Ísland tekur við formennsku í samstarfinu á næsta ári.

    02. nóv. 2022Atvinnuvegaráðuneytið, Auðlindir, Matvælasjóður, Atvinnuvegir

    Berglind tekur sæti í stjórn Matvælasjóðs

    Svandís Svavarsdóttir matvælaráðherra hefur skipað Berglindi Häsler í stjórn Matvælasjóðs. Berglind tekur við af Karli Frímannssyni sem setið hefur í stjórn sjóðsins frá stofnun hans árið 2020.

    01. nóv. 2022Atvinnuvegaráðuneytið, Auðlindir, Menningarmál, Menntamál, Neytendamál, Umhverfi og náttúruvernd, Norrænt samstarf, Atvinnuvegir

    Átta íslenskir listamenn og verkefni tilnefnd til verðlauna Norðurlandaráðs

    50 verk og verkefni frá átta löndum eru tilnefnd til verðlauna Norðurlandaráðs fyrir árið 2022. Tilkynnt verður um verðlaunahafa á verðlaunahátíð í Helsingfors í 1. nóvember í tengslum við þing Norðurlandaráðs 2022, en hægt er að fylgjast með hátíðinni í beinni útsendingu á RÚV.

    31. okt. 2022Atvinnuvegaráðuneytið, Neytendamál, Ferðaþjónusta, Atvinnuvegir

    Ráðherra fundaði með Leiðsögn

    „Leiðsögumenn gegna afar mikilvægu hlutverki í íslenskri ferðaþjónustu. Góðir og vel menntaðir leiðsögumenn gera ferðalagið ekki bara betra og skemmtilegra, heldur stuðla að öryggi ferðamanna, aukinni fagmennsku og margeykur líkurnar á því að ferðamenn mæli með landinu sem áfangastað eftir heimsóknina,“ segir Lilja Dögg Alfreðsdóttir, menningar- og viðskiptaráðherra, sem fundaði með Leiðsögn – stéttarfélagi leiðsögumanna. Ráðherra hitti Friðrik Rafnsson, formann Leiðsagnar og Hörpu Björnsdóttur ritara félagsins. Félagið á 50 ára afmæli um þessar mundir og mun halda glæsilega afmælishátíð af því tilefni í nóvember.

    27. okt. 2022Atvinnuvegaráðuneytið, Fiskeldi, Atvinnuvegir

    Villa í svari við fyrirspurn um erfðablöndun

    Þann 25. október sl. svaraði matvælaráðherra fyrirspurn varðandi laxeldi frá þingmanninum Brynju Dan Gunnarsdóttur. Síðasti liður fyrirspurnarinnar af fjórum sneri að erfðablöndun milli eldislaxa sem sloppið hafa úr sjókvíum og villtra laxastofna, og var spurt hvort ráðherra teldi þörf á að bregðast við vísbendingum um slíkt með einhverjum hætti.

    26. okt. 2022Atvinnuvegaráðuneytið, Auðlindir, Auðlindin okkar, Sjávarútvegur, Atvinnuvegir

    Málefnaleg umræða um sjávarútveg á Ísafirði

    Góð mæting var á fund sem haldinn var í gær í Edinborgarhúsinu á Ísafirði á vegum verkefnisins Auðlindarinnar okkar. Einnig fylgdist fjöldi manns með fundinum í streymi á netinu og var góð þátttaka í umræðum bæði í sal og í gegnum streymi.

    26. okt. 2022Menningar-٫ nýsköpunar- og háskólaráðuneytið, Vísindi nýsköpun og rannsóknir, Atvinnuvegir

    37,2% þjóðarframleiðslu Íslands frá hugverkadrifnum atvinnugreinum

    Hugverkadrifnar atvinnugreinar eru skilgreindar sem atvinnugreinar þar sem fjöldi skráðra hugverkaréttinda á hvern starfsmann er yfir meðaltali, hvort sem það eru skráð einkaleyfi, vörumerki, hönnun, höfundarréttur eða afurðaheiti.

    25. okt. 2022Atvinnuvegir, Auðlindir, Landbúnaður, Atvinnuvegaráðuneytið, Fæðuöryggi

    Álag á jarðræktarstyrki og landgreiðslur greiddar út

    Greiddar voru í dag rúmar 465 milljónir til umsækjenda vegna álags á jarðræktarstyrki og landgreiðslna. Greiðslurnar eru samkvæmt tillögum spretthóps sem Svandís Svavarsdóttir matvælaráðherra setti á laggirnar í júní sl. vegna alvarlegrar stöðu landbúnaðar.

    25. okt. 2022Atvinnuvegaráðuneytið, Auðlindir, Fiskeldi, Atvinnuvegir

    Matvælaráðherra kallar eftir upplýsingum um eftirlit með fiskeldi

    Í ljósi atvika hefur matvælaráðherra óskað eftir upplýsingum frá Matvælastofnun um fyrirkomulag eftirlits með rekstrarleyfishöfum fiskeldis frá því seiði eru sett í kvíar og þar til slátrun er lokið.

    25. okt. 2022Atvinnuvegaráðuneytið, Landbúnaður, Atvinnuvegir, Dýravelferð

    Matvælaráðherra kallar eftir upplýsingum frá Matvælastofnun

    Svandís Svavarsdóttir matvælaráðherra hefur kallað eftir upplýsingum frá Matvælastofnun um framkvæmd eftirlits og verkferla vegna velferðar dýra þegar grunur leikur á að umráðamenn séu ekki að uppfylla ákvæði laga, hvort sem um er að ræða almennt eftirlit eða samkvæmt ábendingum sem berast stofnuninni.

    24. okt. 2022Atvinnuvegaráðuneytið, Auðlindir, Sjávarútvegur, Atvinnuvegir

    Bandaríkin fresta breytingum á innflutningsreglum um meðafla sjávarspendýra

    Haf- og loftslagstofnun Bandaríkjanna (NOAA) hefur framlengt frest vegna innleiðingu reglna um vernd sjávarspendýra við fiskveiðar og fiskeldi til 31. desember 2023. Reglurnar gilda um innflutning til Bandaríkjanna á sjávarafurðum úr fiskveiðum þar sem sjávarspendýr eru meðafli eða úr fiskeldi sem getur haft áhrif á sjávarspendýr.

    21. okt. 2022Atvinnuvegaráðuneytið, Landbúnaður, Atvinnuvegir

    Greiðslumark mjólkur samþykkt fyrir 2023

    Framkvæmdanefnd búvörusamninga hefur samþykkt að greiðslumark mjólkur á árinu 2023 verði 149 milljónir lítra. Það nemur 1,7% aukningu frá yfirstandandi ári, eða 2,5 milljónum lítra.

    21. okt. 2022Atvinnuvegaráðuneytið, Auglýsingar tollkvóta, Landbúnaður, Atvinnuvegir

    Auglýsing um tollkvóta vegna innflutnings á ostum frá Noregi.

    Með vísan til 65. gr. B búvörulaga nr. 99/1993, með síðari breytingum og til reglugerðar um úthlutun á tollkvótum vegna innflutnings á ostum frá Noregi nr. 1152/2022, er hér með auglýst eftir umsóknum um tollkvóta fyrir eftirfarandi innflutning á smurostum frá Noregi og með upprunavottorð þaðan fyrir tímabil.

    21. okt. 2022Atvinnuvegaráðuneytið, Auglýsingar tollkvóta, Landbúnaður, Atvinnuvegir

    Auglýsing um tollkvóta vegna innflutnings á landbúnaðarvörum frá ríkjum Evrópusambandsins

    Með vísan til samnings milli Íslands og Evrópusambandsins um viðskipti með landbúnaðarvörur á grundvelli 19. gr. EES-samningsins og til reglugerðar nr. 1150/2022 um úthlutun á tollkvótum vegna innflutnings á landbúnaðarvörum frá ríkjum Evrópusambandsins er hér með auglýst eftir umsóknum um tollkvóta fyrir eftirfarandi innflutning á landbúnaðarvörum, upprunnum í ríkjum Evrópusambandsins og með upprunavottorð þaðan fyrir tímabilið 1. janúar – 30. júní 2023.

    21. okt. 2022Atvinnuvegaráðuneytið, Auglýsingar tollkvóta, Atvinnuvegir

    Auglýsing um tollkvóta vegna innflutnings á blómum

    Með vísan til 65. gr. búvörulaga nr. 99/1993, með síðari breytingum og til reglugerðar um úthlutun á tollkvótum vegna innflutnings á blómum, trjám o.fl. nr. 1151/2022, er hér með auglýst eftir umsóknum um tollkvóta fyrir eftirfarandi innflutningsmagn blóma sem sótt skal um í stykkjatölu fyrir tímabilið 1. janúar - 30. júní 2023. ​

    21. okt. 2022Atvinnuvegaráðuneytið, Vísindi nýsköpun og rannsóknir, Heilbrigðismál, Lýðheilsa og forvarnir, Atvinnuvegir, Heilbrigðisráðuneytið

    Auglýst eftir umsóknum í Sýklalyfjaónæmis- og súnusjóð

    Auglýst er eftir umsóknum um styrki úr Sýklalyfjaónæmis- og súnusjóði. Sjóðurinn er fjármagnaður af matvælaráðuneyti og heilbrigðisráðuneyti, og renna samtals 30 milljónir kr. í sjóðinn árlega.

    21. okt. 2022Rit og skýrslur, Atvinnuvegir, Auðlindir, Auðlindin okkar, Sjávarútvegur, Atvinnuvegaráðuneytið

    Greinargerð um stöðu vinnu við sjávarútvegsstefnu matvælaráðherra

    október 2022 / Atvinnuvegaráðuneytið Greinargerð um stöðu vinnu við sjávarútvegsstefnu matvælaráðherra Greinargerð um stöðu vinnu við sjávarútvegsstefnu matvælaráðherra

    21. okt. 2022Atvinnuvegaráðuneytið, Auðlindir, Auðlindin okkar, Sjávarútvegur, Atvinnuvegir

    Auðlindin okkar heldur fundaröð á landsbyggðinni

    Samræðufundir á landsbyggðinni eru hluti verkefnisins Auðlindin okkar sem Svandís Svavarsdóttir matvælaráðherra setti á laggirnar í maí sl. Tilgangur verkefnisins er að greina áskoranir og tækifæri í sjávarútvegi og tengdum greinum ásamt því að meta þjóðhagslegan ávinning fiskveiðistjórnunarkerfisins.

    20. okt. 2022Menningar-٫ nýsköpunar- og háskólaráðuneytið, Menningarmál, Atvinnuvegir

    Hvernig greiða streymisveitur menningarframlag í Evrópu?

    Menningarframlag streymisveitna hefur verið til skoðunar á Íslandi. Nú greiða erlendar streymisveitur skatt af þeim tekjum sem íslenskir neytendur á íslenskum fjölmiðlamarkaði greiða til streymisveitna. Erlend fyrirtæki sem selja rafræna þjónustu, fjarskiptaþjónustu eða útvarps- og sjónvarpsþjónustu til neytenda hér á landi eru skyldug til þess að innheimta og standa skil á virðisaukaskatti á Íslandi.

    20. okt. 2022Atvinnuvegaráðuneytið, Ferðaþjónusta, Atvinnuvegir

    Ferðamálastjóri lætur af störfum

    Skarphéðinn Berg Steinarsson hefur ákveðið að láta af störfum sem ferðamálastjóri frá áramótum. Lilja Dögg Alfreðsdóttir ráðherra ferðamála hefur fallist á lausnarbeiðni Skarphéðins.

    19. okt. 2022Efnahagsmál og opinber fjármál, Neytendamál, Viðskipti, Atvinnuvegir, Atvinnuvegaráðuneytið

    Stuðningur við einkarekna fjölmiðla verði framlengdur

    Menningar- og viðskiptaráðuneytið hefur lagt fram í Samráðsgátt stjórnvalda drög að frumvarpi sem framlengir gildistíma um stuðning til einkarekinna fjölmiðla til ársins 2025, en að óbreyttu myndi stuðningurinn falla úr gildi um áramót.

    18. okt. 2022Auðlindir, Landbúnaður, Landgræðsla og skógrækt, Atvinnuvegir, Atvinnuvegaráðuneytið

    Matvælaráðherra áformar sameiningu Landgræðslunnar og Skógræktarinnar

    Svandís Svavarsdóttir matvælaráðherra kynnti ákvörðun sína um sameiningu Landgræðslunnar og Skógræktarinnar fyrir ríkisstjórn í morgun. Eftir hádegi hélt ráðherra fundi með starfsmönnum beggja stofnana þar sem tilkynnt var um fyrrgreinda ákvörðun. Við sameiningu munu allir starfsmenn flytjast yfir í nýja stofnun, og verður áhersla lögð á að fyrirliggjandi mannauður og þekking haldist í málaflokknum. Réttindi og skyldur starfsfólks munu færast til nýrrar stofnunar, en umræða um skipulag mun bíða nýs forstöðumanns.

    16. okt. 2022Atvinnuvegaráðuneytið, Efnahagsmál og opinber fjármál, Menningarmál, Neytendamál, Verslun, Viðskipti, Atvinnuvegir

    Auglýsingar til íslenskra neytenda eiga að vera á íslensku

    Neytendastofa hefur tekið til meðferðar átta mál vegna tungumáls í auglýsingum sem eiga að höfða til íslenskra neytenda frá árinu 2005. Eitt mál er til skoðunar hjá stofnuninni, en samkvæmt lögum um eftirlit með viðskiptaháttum og markaðssetningu (nr. 57/2005) eiga slíkar auglýsingar að vera á íslensku. Í öllum tilfellum var auglýsingunum breytt vegna athugasemda stofnunarinnar. Á árunum 1993-2005 voru 35 sambærileg mál tekin til skoðunar á grundvelli þá gildandi laga.

    12. okt. 2022Menningar-٫ nýsköpunar- og háskólaráðuneytið, Menningarmál, Menntamál, Atvinnuvegir

    Ráðherra heimsótti stofnun Vigdísar

    Lilja Dögg Alfreðsdóttir, menningar- og viðskiptaráðherra, fundaði með Jóni Atla Benediktssyni rektor Háskóla Íslands, Ásdísi Rósu Magnúsdóttur, forstöðumanns stofnunar Vigdísar Finnbogadóttur í erlendum tungumálum, Ann-Sofie Nielsen Gremaud stjórnarformann Vigdísarstofnunar og fleira starfsfólki HÍ og stofnunarinnar í dag.Ráðherra fékk góða kynningu á því merka starfi sem sinnt er hjá stofnuninni, helstu verkefnum og húsnæðinu Veröld Vigdísar. Ráðherra fékk einnig kynningu á fyrirhugaðri sýningu í Loftskeytamiðstöðinni um ævi og störf frú Vigdísar Finnbogadóttur sem verður opnuð á vormánuðum.

    12. okt. 2022Menningar-٫ nýsköpunar- og háskólaráðuneytið, Atvinnuvegir, Félags- og fjölskyldumál, Menntamál, Útlendingar, Vinnumál, Vísindi nýsköpun og rannsóknir, Háskólar, Innflytjendur, Nýsköpun, Félags- og húsnæðismálaráðuneytið

    Ísland býður erlenda sérfræðinga velkomna

    Fjórar leiðir hafa nú verið kynntar fyrir ríkisstjórn sem ætlað er að liðka fyrir komu erlendra sérfræðinga og aðgengi að sérhæfðri þekkingu, en þær falla undir ábyrgðarsvið nokkurra ráðuneyta.

    • First
    • Prev
    • 10
    • 11
    • 12
    • 13
    • 14
    • Next
    • Last
    Logo
    • Um vefinn
    • Áskrift
    • Veftré
    • Fyrirvari
    +354 545 8000
    Staðsetning ráðuneyta, opnunartími og netföng
    Hafa samband

    Hafa samband