Coat of arms
Stjórnarráð Íslands
  • Verkefni
    • Almannatryggingar og lífeyrir
    • Almannaöryggi
    • Atvinnuvegir
    • Auðlindir
    • Efnahagsmál
    • Félags- og fjölskyldumál
    • Fjarskipti
    • Húsnæðis- og mannvirkjamál
    • Líf og heilsa
    • Kosningar
    • Lög og réttur
    • Mannauðsmál ríkisins
    • Mannréttindi og jafnrétti
    • Menningarmál
    • Menntamál
    • Neytendamál
    • Opinber fjármál
    • Persónuréttur
    • Rekstur og eignir ríkisins
    • Samgöngur
    • Sjálfbært Ísland
    • Skipulagsmál
    • Stjórnskipan og þjóðartákn
    • Sveitarstjórnir og byggðamál
    • Trú og lífsskoðun
    • Umhverfi og náttúruvernd
    • Upplýsingatæknimál ríkisins
    • Utanríkismál
    • Útlendingar
    • Vinnumál
    • Vísindi, nýsköpun og rannsóknir
    • Öll verkefni
    • Efst á baugi
      • Fréttir
      • Nýjast
      • Fyrirspurnir frá Alþingi
      • Fyrir fjölmiðla
      • Eldri fréttir
    • Gögn
      • Rit og skýrslur
      • Úrskurðir og álit
      • Eyðublöð
      • Stefnur og áætlanir
      • Styrkir og sjóðir
      • Hugtakasafn
      • Lög og reglugerðir
      • Málaskrár ráðuneyta
      • Mælaborð
      • Hönnunarstaðall
    • Ráðuneyti
      • Forsætisráðuneytið
      • Atvinnuvegaráðuneytið
      • Dómsmálaráðuneytið
      • Félags- og húsnæðismálaráðuneytið
      • Fjármála- og efnahagsráðuneytið
      • Heilbrigðisráðuneytið
      • Innviðaráðuneytið
      • Menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðuneytið
      • Mennta- og barnamálaráðuneytið
      • Umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytið
      • Utanríkisráðuneytið
      • Sendiskrifstofur
      • Samstarfsráðherra Norðurlanda
      • Starfsfólk
      • Stofnanir
      • Nefndir
      • Símanúmer og staðsetning ráðuneyta
      • Umbra
    • Ríkisstjórn
      • Skipan ríkisstjórnar
      • Ríkisstjórnarfundir
      • Stjórnarsáttmáli
      • Ráðherranefndir
      • Reglur um starfshætti
      • Reglur um ferðakostnað og starfskjör ráðherra
      • Siðareglur, hagsmunir og hagsmunaverðir
      • Þingmálaskrá
      • Ríkisráð
      • Sögulegt efni
      • Fyrir fjölmiðla
    EN
    • Verkefni
      • Almannatryggingar og lífeyrir
      • Almannaöryggi
      • Atvinnuvegir
      • Auðlindir
      • Efnahagsmál
      • Félags- og fjölskyldumál
      • Fjarskipti
      • Húsnæðis- og mannvirkjamál
      • Líf og heilsa
      • Kosningar
      • Lög og réttur
      • Mannauðsmál ríkisins
      • Mannréttindi og jafnrétti
      • Menningarmál
      • Menntamál
      • Neytendamál
      • Opinber fjármál
      • Persónuréttur
      • Rekstur og eignir ríkisins
      • Samgöngur
      • Sjálfbært Ísland
      • Skipulagsmál
      • Stjórnskipan og þjóðartákn
      • Sveitarstjórnir og byggðamál
      • Trú og lífsskoðun
      • Umhverfi og náttúruvernd
      • Upplýsingatæknimál ríkisins
      • Utanríkismál
      • Útlendingar
      • Vinnumál
      • Vísindi, nýsköpun og rannsóknir
      • Öll verkefni
    • Efst á baugi
      • Fréttir
      • Nýjast
      • Fyrir fjölmiðla
      • Eldri fréttir
      • Fyrirspurnir frá Alþingi
    • Gögn
      • Rit og skýrslur
      • Úrskurðir og álit
      • Eyðublöð
      • Stefnur og áætlanir
      • Styrkir og sjóðir
      • Hugtakasafn
      • Lög og reglugerðir
      • Málaskrár ráðuneyta
      • Mælaborð
      • Hönnunarstaðall
    • Ráðuneyti
      • Forsætisráðuneytið
      • Atvinnuvegaráðuneytið
      • Dómsmálaráðuneytið
      • Félags- og húsnæðismálaráðuneytið
      • Fjármála- og efnahagsráðuneytið
      • Heilbrigðisráðuneytið
      • Innviðaráðuneytið
      • Menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðuneytið
      • Mennta- og barnamálaráðuneytið
      • Umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytið
      • Utanríkisráðuneytið
      • Sendiskrifstofur
      • Samstarfsráðherra Norðurlanda
      • Starfsfólk
      • Stofnanir
      • Nefndir
      • Símanúmer og staðsetning ráðuneyta
      • Umbra
    • Ríkisstjórn
      • Skipan ríkisstjórnar
      • Ríkisstjórnarfundir
      • Stjórnarsáttmáli
      • Ráðherranefndir
      • Reglur um starfshætti
      • Reglur um ferðakostnað og starfskjör ráðherra
      • Siðareglur, hagsmunir og hagsmunaverðir
      • Þingmálaskrá
      • Ríkisráð
      • Sögulegt efni
      • Fyrir fjölmiðla
    Close navigation
    Samgöngur og fjarskipti
    Efnisorð

    Ekkert fannst

    Tegund
    Tegund

    Leita eftir efnisorðum

    Sýnir 551–600 af 835
    Raða eftir:
    15. nóv. 2017Samgöngur og fjarskipti, Fjarskipti, Upplýsingatæknimál ríkisins, Netöryggi, Innviðaráðuneytið

    Ísland í efsta sæti meðal þjóða heims í þróun upplýsingasamfélagsins

    Ísland er komið í efsta sæti meðal þjóða heims á lista Alþjóðafjarskiptasambandsins um stöðuna í upplýsingatækni og fjarskiptum. Á síðasta ári var Ísland í öðru sæti listans en hefur nú skotist upp fyrir Suður-Kóreu sem hefur verið í efsta sætinu síðustu ár. Sviss skipar þriðja sætið og Danmörk er í því fjórða.

    14. nóv. 2017Samgöngur og fjarskipti, Vegasamgöngur, Innviðaráðuneytið

    Minningarathöfn um þá sem látist hafa í umferðinni

    Sunnudaginn 19. nóvember verður minnst þeirra sem látist hafa í umferðarslysum. Athöfn verður haldin við þyrlupall bráðamóttöku Landspítalans í Fossvogi í Reykjavík og hefst hún klukkan 11.

    14. nóv. 2017Samgöngur og fjarskipti, Fjarskiptasjóður, Fjarskipti, Innviðaráðuneytið

    Niðurstaða A hluta umsóknarferlis fyrir Ísland ljóstengt á næsta ári

    Umsóknarferli fjarskiptasjóðs vegna verkefnisins Ísland ljóstengt 2018 sem nú stendur yfir skiptist í A og B hluta. A hlutinn er nokkurs konar forval og er þeim hluta lokið en B hlutinn eru skil á eiginlegum styrkbeiðnum sem nú fer í hönd.

    12. nóv. 2017Samgöngur og fjarskipti, Vegasamgöngur, Innviðaráðuneytið

    Norðfjarðargöng formlega opnuð

    Norðfjarðargöng, milli Eskifjarðar og Norðfjarðar, voru formlega opnuð í gær við hátíðlega athöfn en talið er að yfir þúsund manns hafi verið viðstödd. Fjarðabyggð efndi til margs konar viðburða í sveitarfélaginu um helgina af þessu tilefni.

    09. nóv. 2017Samgöngur og fjarskipti, Innviðaráðuneytið

    Drög að breytingum á reglugerð um radíóáhugamenn til umsagnar

    Til umsagnar eru hjá ráðuneytinu drög að breytingum á reglugerð um radíóáhugamenn. Er lagt til að uppbyggingu kallmerkja radíóáhugamanna verði breytt. Unnt er að senda ráðuneytinu umsagnir um drögin til og með 23. nóvember næstkomandi á netfang ráðuneytisins.

    03. nóv. 2017Fjarskiptasjóður, Samgöngur og fjarskipti, Fjarskipti, Innviðaráðuneytið

    Ísland ljóstengt 2018 - spurningar og svör vegna umsókna í A-hluta

    Fjarskiptasjóður auglýsti nýverið umsóknarferli vegna verkefnisins Ísland ljóstengt sem er landsátak stjórnvalda í uppbyggingu ljósleiðarakerfa utan markaðssvæða í dreifbýli. Fyrirspurnarfrestur vegna styrkumsókna í A-hluta umsóknarferlisins vegna 2018 rann út í gær, 2. nóvember, sl. Meðfylgjandi eru svör við þeim átta spurningum sem bárust.

    27. okt. 2017Samgöngur og fjarskipti, Siglingar, Innviðaráðuneytið

    Tillögur til breytinga á starfsemi faggiltra skoðunarstofa skipa

    Samgöngu- og sveitarstjórnarráðuneytið birtir nú til kynningar drög að breytingu á reglugerð um starfshætti faggiltra skoðunarstofa skipa og búnaðar, nr. 94/2004, með síðari breytingum. Unnt er að senda ráðuneytinu umsagnir til 10. nóvember næstkomandi .

    27. okt. 2017Samgöngur og fjarskipti, Innviðaráðuneytið

    Samráð um staðla fyrir skynvædd samgöngukerfi

    Framkvæmdastjórn Evrópusambandsins stendur nú fyrir opnu samráði um staðla fyrir samvinnu skynvæddra samgöngukerfa. Samráðið stendur til 5. janúar 2018.

    25. okt. 2017Samgöngur og fjarskipti, Flug og flugvellir, Siglingar, Innviðaráðuneytið

    Bætt verði við ferðum í vetraráætlun Baldurs

    Jón Gunnarsson samgöngu- og sveitarstjórnarráðherra hefur beint þeim tilmælum til Vegagerðarinnar að ferðum Breiðafjarðarferjunnar Baldurs verði fjölgað í vetur í samræmi við óskir heimamanna á sunnanverðum Vestfjörðum. Jafnframt verður bætt við ferðum í flugáætlun milli Bíldudals og Reykjavíkur frá 1. febrúar á næsta ári. Er þetta gert til þess að bregðast við miklum vexti í atvinnulífinu á svæðinu og aukinnar þarfar fyrir almenningssamgöngur.

    23. okt. 2017Samgöngur og fjarskipti, Flug og flugvellir, Innviðaráðuneytið

    Heimild til flutnings á hergögnum um íslenskt yfirráðasvæði ekki veitt

    Samgöngu- og sveitarstjórnarráðuneytinu barst hinn 20. október síðastliðinn erindi frá Samgöngustofu varðandi heimild til flutnings á hergögnum um íslenskt yfirráðasvæði. Sneri erindið að beiðni erlends flugrekanda um leyfi stofnunarinnar til að flytja 16 tonn af táragasi frá Kína til Venesúela með viðkomu á Keflavíkurflugvelli fyrir áhafnahvíld. Erindið var sent ráðuneytinu til samráðs í samræmi við 3. mgr. 3. gr. reglugerðar nr. 937/2005 um flutning hergagna.

    23. okt. 2017Samgöngur og fjarskipti, Innviðaráðuneytið

    Hefja á endurskoðun regluverks um leigubifreiðaakstur

    Samgöngu- og sveitarstjórnarráðherra hefur skipað starfshóp til að endurskoða regluverk um leigubifreiðaakstur. Hópurinn skili ráðherra rökstuddum tillögum eigi síðar en um miðjan janúar 2018.

    14. okt. 2017Samgöngur og fjarskipti, Innviðaráðuneytið

    Herða ber refsingar við ítrekuðum umferðarlagabrotum

    Samgönguþingi unga fólksins lauk á fjórða tímanum í dag en á síðari hluta þingsins störfuðu umræðuhópar og síðan var samþykkt ályktun þingsins sem beint er til samgöngu- og sveitarstjórnarráðherra.

    14. okt. 2017Samgöngur og fjarskipti, Innviðaráðuneytið

    Umferðarlagabrot, almenningssamgöngur og bílprófsaldur meðal umræðuefna á samgönguþingi unga fólksins

    Á sjötta tug ungmenna frá flestum framhaldsskólum landsins situr nú samgönguþing unga fólksins í Reykjavík. Fjallað er um ýmsar hliðar samgöngumála og umferðar í erindum og umræðuhópum. Í lok þingsins verður samþykkt ályktun sem beint var til samgöngu- og sveitarstjórnarráðherra.

    12. okt. 2017Samgöngur og fjarskipti, Fjarskiptasjóður, Fjarskipti, Innviðaráðuneytið

    Umsóknarferli vegna verkefnisins Ísland ljóstengt 2018 hafið

    Fjarskiptasjóður auglýsir nú umsóknarferli vegna verkefnisins Ísland ljóstengt sem er landsátak stjórnvalda í uppbyggingu ljósleiðarakerfa utan markaðssvæða í dreifbýli.

    10. okt. 2017Samgöngur og fjarskipti, Innviðaráðuneytið, Upplýsingatæknimál ríkisins

    Undirrituðu yfirlýsingu um rafræna stjórnsýslu

    Fulltrúar ríkja innan Evróusambandsins og ríkja innan Evrópska efnahagssvæðisins undirrituðu yfirlýsingu um rafræna stjórnsýslu í Tallinn í síðustu viku. Ragnhildur Hjaltadóttir, ráðuneytisstjóri samgöngu- og sveitarstjórnarráðuneytisins, undirritaði yfirlýsinguna fyrir hönd Íslands.

    10. okt. 2017Samgöngur og fjarskipti, Fjarskiptasjóður, Fjarskipti, Innviðaráðuneytið

    Sveitarfélög fá byggðastyrki til lagningar ljósleiðara

    Jón Gunnarsson, samgöngu- og sveitarstjórnarráðherra hefur ákveðið að verja samtals 100 milljónum króna af fjárveitingu byggðaáætlunar árið 2018 til að gera strjálbýlum sveitarfélögum hægara um vik við lagningu ljósleiðarakerfa. Sambærilegur styrkur var veittur vegna slíkra framkvæmda árið 2017.

    04. okt. 2017Samgöngur og fjarskipti, Flug og flugvellir, Innviðaráðuneytið

    Innanlandsflug nauðsynlegur hlekkur í samgöngukerfinu

    Innanlandsflug sem almenningssamgöngur var yfirskrift málþings um innanlandsflug sem nokkur samtök sveitarfélaga, atvinnuþróunarfélög, Byggðastofnun, Austurbrú, samgöngu- og sveitarstjórnarráðuneytið og fleiri aðilar stóðu að í dag.

    29. sep. 2017Samgöngur og fjarskipti, Sveitarstjórnir og byggðamál, Innviðaráðuneytið

    Nefnd geri tillögur um jarðgangatengingu við Seyðisfjörð

    Jón Gunnarsson samgöngu- og sveitarstjórnarráðherra tók í dag þátt í aðalfundi Sambands sveitarfélaga á Austurlandi sem haldinn er á Breiðdalsvík. Ráðherra hafði um morguninn flogið ásamt vegamálastjóra og forsætisráðherra yfir þau svæði á Suðausturlandi þar sem víða hefur orðið tjón á samgöngumannvirkjum og flætt yfir tún bæja vegna vatnavaxta og úrkomu. Er nú unnið að viðgerðum á Hringveginum þar sem vegasamband rofnaði.

    29. sep. 2017Samgöngur og fjarskipti, Innviðaráðuneytið

    Atvinnuleyfum leigubifreiða á höfuðborgarsvæðinu fjölgað um 20

    Breyting á reglugerð um leigubifreiðar tók gildi við birtingu í Stjórnartíðindum í gær og snýst hún um að fjölga atvinnuleyfum leigubifreiða um 20 á höfuðborgarsvæðinu. Fjöldi atvinnuleyfa á þessu svæði hefur verið óbreyttur frá 2003.

    28. sep. 2017Samgöngur og fjarskipti, Flug og flugvellir, Samgönguáætlun, Vegasamgöngur, Innviðaráðuneytið

    Fjármögnun, ákvarðanataka, öryggi og innanlandsflug meðal umræðuefna á samgönguþingi

    Erindi um ýmsar hliðar samgöngumála voru flutt á samgönguþingi sem staðið hefur yfir í Hveragerði í dag. Á fyrsta hluta þingsins var fjallað um vinnu við samgönguáætlanir sem nú stendur og rætt um efnið í pallborði.

    28. sep. 2017Samgöngur og fjarskipti, Flug og flugvellir, Samgönguáætlun, Vegasamgöngur, Innviðaráðuneytið

    Mikilvægt að finna fleiri leiðir til fjármögnunar samgönguframkvæmda

    Samgönguþing stendur nú yfir á Hótel Örk í Hveragerði en á fyrsta hluta þess er farið yfir stöðu við vinnslu samgönguáætlana. Jón Gunnarsson, samgöngu- og sveitarstjórnarráðherra, flutti ávarp í upphafi og síðan var umfjöllun um samgönguáætlun.

    22. sep. 2017Samgöngur og fjarskipti, Innviðaráðuneytið

    Ávarpaði hjólaráðstefnu í lok samgönguviku

    Samgönguviku sem hefur staðið yfir frá síðasta laugardegi lýkur í dag. Meðal dagskrárliða í dag var ráðstefnan Hjólum til framtíðar – ánægja og öryggi og flutti Jón Gunnarsson, samgöngu- og sveitarstjórnarráðherra, ávarp og fjallaði meðal annars um fjölbreytta samgöngumtla og nýjar áherslur sem þeim tengjast.

    21. sep. 2017Samgöngur og fjarskipti, Flug og flugvellir, Samgönguáætlun, Siglingar, Vegasamgöngur, Innviðaráðuneytið

    Skráning á samgönguþing stendur yfir

    Skráning stendur nú yfir á samgönguþing sem haldið verður fimmtudaginn 28. september. Á þinginu verður meðal annars fjallað um framtíðarsýn í samgöngum, flug sem almenningssamgöngur, orkuskipti í samgöngum og næstu samgönguáætlun.

    18. sep. 2017Samgöngur og fjarskipti, Flug og flugvellir, Innviðaráðuneytið

    Drög að reglugerð um tilkynningu atvika í almenningsflugi til umsagnar

    Samgöngu- og sveitarstjórnarráðuneytið kynnir nú til umsagnar drög að reglugerð um tilkynningu atvika í almenningsflugi sem og greiningu á og eftirfylgni með þeim. Unnt er að senda ráðuneytinu umsagnir til 2. október næstkomandi á netfangið postur@srn.is.

    14. sep. 2017Samgöngur og fjarskipti, Vegasamgöngur, Innviðaráðuneytið

    Fyrsta sprenging í Dýrafjarðargöngum

    Jón Gunnarsson samgöngu- og sveitarstjórnarráðherra sprengdi í dag fyrstu sprengingu í jarðgöngum milli Dýrafjarðar og Arnarfjarðar. Framkvæmdir eru komnar vel af stað og er gert ráð fyrir að göngin verði tilbúin haustið 2020.

    14. sep. 2017Samgöngur og fjarskipti, Innviðaráðuneytið

    Brugðist við athugasemdum varðandi lög um farþega- og farmflutninga á landi

    Eftir gildistöku nýrra laga um farþegaflutninga og farmflutninga á landi 1. júní sl. hafa komið fram ábendingar frá Samgöngustofu og lögreglu um að kveða þyrfti skýrar á um tiltekin atriði í lögunum. Tilgangur frumvarpsins er að bregðast við þeim athugasemdum.

    12. sep. 2017Samgöngur og fjarskipti, Fjarskipti, Fjarskiptasjóður, Netöryggi, Innviðaráðuneytið

    Verkefnið Ísland ljóstengt heldur áfram og netöryggi eflt

    Fjárheimild til fjarskiptasjóðs verður alls 1.425 milljónir króna samkvæmt fjárlagafrumvarpinu sem kynnt var í dag.

    12. sep. 2017Samgöngur og fjarskipti, Flug og flugvellir, Siglingar, Vegasamgöngur, Innviðaráðuneytið

    Rúmlega 34 milljarðar króna í samgönguverkefni

    Heildarframlag til samgöngumála verður 34,3 milljarðar króna samkvæmt fjárlagafrumvarpi næsta árs sem kynnt var í dag. Hækkar það um nálægt einum milljarði króna frá fjárlögum 2017. Við afgreiðslu fjárlaga 2017 hækkuðu framlög til samgöngumála um 4,5 milljarða króna og er sú hækkun í frumvarpinu nú.

    08. sep. 2017Samgöngur og fjarskipti, Siglingar, Innviðaráðuneytið

    Ræddu möguleika uppbyggingar í Finnafirði

    Samráðshópur um svokallað Finnafjarðarverkefni átti nýverið fund með fulltrúum COSCO Shipping Specialized Carriers Co. Ltd. í samgöngu- og sveitarstjórnarráðuneytinu. Verkefnið snýst um að kanna hvort unnt verður að koma upp hér á landi aðstöðu fyrir siglingar á norðurslóðum.

    06. sep. 2017Samgöngur og fjarskipti, Flug og flugvellir, Siglingar, Innviðaráðuneytið

    Jón Gunnarsson tók þátt í ráðstefnu um ný tækifæri á Grænlandi

    Jón Gunnarsson samgöngu- og sveitarstjórnarráðherra tók í gær þátt í ráðstefnu á Grænlandi þar um ný tækifæri í samskiptum ríkjanna. Ræddi hann við starfsbróður sinn um mál tengd samgöngum og var viðstaddur vígslu nýrrar hafnar í Nuuk.

    06. sep. 2017Samgöngur og fjarskipti, Innviðaráðuneytið

    Skilgreining á tjónaökutæki gerð ítarlegri í reglugerð

    Reglugerð um gerð og búnað ökutækja hefur verið breytt á þann veg að tjónaökutæki eru nú skilgreind með ítarlegri hætti en áður. Reglugerðin tók gildi 1. september síðastliðinn.

    05. sep. 2017Samgöngur og fjarskipti, Fjarskiptasjóður, Fjarskipti, Innviðaráðuneytið

    Undirbúningur hafinn að landsátakinu Ísland ljóstengt vegna 2018

    Hafinn er undirbúningur fyrir næsta áfanga landsátaksins Ísland ljóstengt. Snýr hann bæði að fjármagni til einstakra byggða sem verður úthlutað í annað sinn og svonefndum samkeppnispotti sem verður úthlutað úr í þriðja sinn.

    02. sep. 2017Samgöngur og fjarskipti, Vegasamgöngur, Innviðaráðuneytið

    Tók fyrstu skóflustungu að hjólastíg í Eyjafjarðarsveit

    Sveitarstjórn Eyjafjarðarsveitar hélt í morgun 500. fund sinn og með því að hefja framkvæmdir við hjólastíg sem tengir sveitarfélagið við Akureyri. Jón Gunnarsson samgöngu- og sveitarstjórnarráðherra tók fyrstu skóflustunguna.

    01. sep. 2017Atvinnuvegaráðuneytið, Innviðaráðuneytið, Samgöngur og fjarskipti, Atvinnuvegir

    Starfshópur skipaður um starfsumhverfi gagnavera

    Ferðamála-, iðnaðar- og nýsköpunarráðherra skipaði í dag, í samráði við samgöngu- og sveitarstjórnarráðherra, starfshóp til að greina og meta starfsumhverfi gagnavera.

    30. ágú. 2017Samgöngur og fjarskipti, Innviðaráðuneytið

    Breyting á reglugerð um ökuskírteini til umsagnar

    Drög að breytingu á reglugerð um ökuskírteini er nú til umsagnar hjá ráðuneytinu. Frestur til að senda umsagnir um drögin er til 11. september og skulu þær sendar á netfangið postur@srn.is.

    29. ágú. 2017Samgöngur og fjarskipti, Flug og flugvellir, Samgönguáætlun, Siglingar, Vegasamgöngur, Innviðaráðuneytið

    Samgönguþing verður haldið 28. september

    Samgöngu- og sveitarstjórnarráðuneytið og samgönguráð boða til samgönguþings fimmtudaginn 28. september á Hótel Örk í Hveragerði. Þar verða kynntar áherslur í samgönguáætlun næstu ára og fjallað um ýmis mál í málstofum.

    28. ágú. 2017Samgöngur og fjarskipti, Flug og flugvellir, Innviðaráðuneytið

    Starfshópur endurskoðar rekstur flugvalla innanlands

    Samgöngu- og sveitarstjórnarráðherra hefur skipað starfshóp til að fara yfir rekstur innanlandsflugvalla landsins. Markmiðið er að ná fram hagkvæmari rekstri á innanlandsflugi og skilvirkari rekstri flugvalla sem leiði til lægri flugfargjalda.

    23. ágú. 2017Samgöngur og fjarskipti, Vegasamgöngur, Innviðaráðuneytið

    Húsfyllir á fundi samgönguráðherra um samgöngumál á Austurlandi

    Húsfyllir var á opnum fundi Jóns Gunnarssonar samgöngu- og sveitarstjórnarráðherra á Reyðarfirði á mánudagskvöld en þar voru samgöngumál fjórðungsins í forgrunni. Hátt í eitt hundrað manns sóttu fundinn sem haldinn var í safnaðarheimili kirkjunnar.

    21. ágú. 2017Samgöngur og fjarskipti, Fjarskipti, Flug og flugvellir, Vegasamgöngur, Innviðaráðuneytið

    Samgöngu- og sveitarstjórnarráðherra á ferð um Austurland

    Jón Gunnarsson, samgöngu- og sveitarstjórnarráðherra, er nú á ferð um Austurland þar sem hann á fundi með sveitarstjórnarfólki í landsfjórðungnum. Einnig hefur ráðherra kynnt sér samgönguframkvæmdir og heimsótt starfsstöðvar Vegagerðarinnar.

    20. ágú. 2017Samgöngur og fjarskipti, Flug og flugvellir, Innviðaráðuneytið

    Norðfjarðarflugvöllur í gagnið á ný með bundnu slitlagi

    Norðfjarðarflugvöllur var í dag tekinn formlega í notkun á ný með bundnu slitlagi sem lagt var á völlinn. Ríki og sveitarfélagið lögðu saman fjármagn til verksins sem alls kostaði 158 milljónir króna.

    15. ágú. 2017Samgöngur og fjarskipti, Fjarskipti, Innviðaráðuneytið

    Til umsagnar drög að breytingu á lögum um fjarskipti er varða alþjónustu

    Samgöngu- og sveitarstjórnarráðuneytið kynnir til umsagnar drög að breytingu á lögum um fjarskipti, nr. 81/2003, að því er varðar alþjónustu á sviði fjarskipta. Unnt er að senda umsagnir um drögin til og með 28. ágúst á netfangið postur@srn.is.

    15. ágú. 2017Samgöngur og fjarskipti, Innviðaráðuneytið

    Samráð framkvæmdastjórnar ESB um samevrópska flutninganetið

    Framkvæmdastjórn Evrópusambandsins hóf þann 1. ágúst síðastliðinn almennt samráð um framkvæmd og útfærslu samevrópska flutninganetsins (Trans-European Transport Network (TEN-T). Samráðið stendur til 9. nóvember 2017.

    09. ágú. 2017Samgöngur og fjarskipti, Innviðaráðuneytið

    Drög að breytingum á reglugerð um öryggis- og verndarbúnað í ökutækjum til umsagnar

    Samgöngu- og sveitarstjórnarráðuneytið birtir til umsagnar drög að breytingu á reglugerð um notkun öryggis- og verndarbúnaðar í ökutækjum. Umsagnir má senda á netfangið postur@srn.is fyrir 22. ágúst næstkomandi.

    08. ágú. 2017Samgöngur og fjarskipti, Vegasamgöngur, Innviðaráðuneytið

    Samráð um tilskipun um öryggi ökutækja og gangandi vegfarenda

    Framkvæmdastjórn Evrópusambandsins stendur nú fyrir opnu samráði um endurskoðun á tilskipunum um öryggi ökutækja og öryggi gangandi vegfarenda. Samráðið stendur til 22. október 2017.

    03. ágú. 2017Samgöngur og fjarskipti, Fjarskipti, Innviðaráðuneytið

    Samráð ESB um rafrænar upplýsingar varðandi heilsugæslu

    Framkvæmdastjórn Evrópusambandsins hóf nýverið almennt samráð um orðsendingu sína um breytingar á heilsugæslu og umönnun sem snerta rafræn samskipti og aðgang að rafrænum heilsufarsskrám. Samráðið stendur til 16. ágúst næstkomandi.

    02. ágú. 2017Samgöngur og fjarskipti, Siglingar, Innviðaráðuneytið

    Samgöngu- og sveitarstjórnarráðuneytið heimilar undanþágu fyrir ferjuna Akranes

    Samgöngu- og sveitarstjórnarráðuneytið hefur fellt úr gildi þá ákvörðun Samgöngustofu að veita ekki undanþágu fyrir siglingar ferjunnar Akraness á milli Vestmannaeyja og Landeyjahafnar. Lagt er fyrir Samgöngustofu að fallast á umsókn Eimskips um að nota ferjuna til þessara siglinga dagana 4. og 7. ágúst næstkomandi.

    21. júl. 2017Samgöngur og fjarskipti, Siglingar, Innviðaráðuneytið

    Drög að reglugerð um réttindi áhafna á vinnuskipum fyrir sjókvíaeldi til umsagnar

    Drög að reglugerð um áhafnir vinnuskipa sjókvíaeldisstöðva eru nú til umsagnar hjá ráðuneytinu. Unnt er að senda umsagnir um reglugerðardrögin til og með 4. ágúst og skulu þær sendar á netfangið postur@srn.is.

    18. júl. 2017Skipulagsmál, Umhverfi og náttúruvernd, Loftslagsmál, Samgöngur og fjarskipti, Félags- og húsnæðismálaráðuneytið

    Óskað eftir umsögnum um breytingu á byggingarreglugerð vegna hleðslu rafbíla

    Umhverfis- og auðlindaráðuneytið óskar eftir umsögnum um drög að breytingu á byggingarreglugerð. Breytingin kveður á um að í nýbyggingum og við endurbyggingu skuli gera ráð fyrir tengibúnaði vegna hleðslu rafbíla.

    18. júl. 2017Samgöngur og fjarskipti, Siglingar, Innviðaráðuneytið

    Drög að breytingum á lögum á sviði siglinga til umsagnar

    Tvenn drög að lagafrumvörpum á sviði siglinga eru nú til umsagnar hjá samgöngu- og sveitarstjórnarráðuneytinu: Annars vegar breytingar á lögum um Samgöngustofu og hins vegar breytingar á lögum um eftirlit með skipum.

    12. júl. 2017Samgöngur og fjarskipti, Vegasamgöngur, Innviðaráðuneytið

    Tillögur ríkissaksóknara um sektir við umferðarlagabrotum - drög að reglugerð til umsagnar

    Að beiðni samgöngu- og sveitarstjórnarráðuneytisins hefur ríkissaksóknari gert tillögu að breyttri reglugerð um sektir við umferðarlagabrotum. Lagt er til að fjárhæðir sekta verði uppfærðar með hliðsjón af þróun verðlags en núgildandi reglugerð var sett árið 2006.

    • First
    • Prev
    • 10
    • 11
    • 12
    • 13
    • 14
    • Next
    • Last
    Logo
    • Um vefinn
    • Áskrift
    • Veftré
    • Fyrirvari
    +354 545 8000
    Staðsetning ráðuneyta, opnunartími og netföng
    Hafa samband

    Hafa samband