28. feb. 2024Mannréttindi og jafnrétti, Utanríkismál, Alþjóðamál, Átök fyrir botni Miðjarðarhafs, Mannréttindi, Úkraína, Utanríkisráðuneytið, Mannréttindaráð SÞ
Utanríkisráðherra ávarpaði mannréttindaráð Sameinuðu þjóðanna
Ráðherravika 55. lotu mannréttindaráðs Sameinuðu þjóðanna stendur nú sem hæst í Genf. Aðalframkvæmdastjóri og mannréttindafulltrúi Sameinuðu þjóðanna ávörpuðu ráðið við upphaf lotunnar í vikunni, en Bjarni Benediktsson utanríkisráðherra flutti ræðu Íslands í gegnum fjarfundarbúnað í gær.