Coat of arms
Stjórnarráð Íslands
  • Verkefni
    • Almannatryggingar og lífeyrir
    • Almannaöryggi
    • Atvinnuvegir
    • Auðlindir
    • Efnahagsmál
    • Félags- og fjölskyldumál
    • Fjarskipti
    • Húsnæðis- og mannvirkjamál
    • Líf og heilsa
    • Kosningar
    • Lög og réttur
    • Mannauðsmál ríkisins
    • Mannréttindi og jafnrétti
    • Menningarmál
    • Menntamál
    • Neytendamál
    • Opinber fjármál
    • Persónuréttur
    • Rekstur og eignir ríkisins
    • Samgöngur
    • Sjálfbært Ísland
    • Skipulagsmál
    • Stjórnskipan og þjóðartákn
    • Sveitarstjórnir og byggðamál
    • Trú og lífsskoðun
    • Umhverfi og náttúruvernd
    • Upplýsingatæknimál ríkisins
    • Utanríkismál
    • Útlendingar
    • Vinnumál
    • Vísindi, nýsköpun og rannsóknir
    • Öll verkefni
    • Efst á baugi
      • Fréttir
      • Nýjast
      • Fyrirspurnir frá Alþingi
      • Fyrir fjölmiðla
      • Eldri fréttir
    • Gögn
      • Rit og skýrslur
      • Úrskurðir og álit
      • Eyðublöð
      • Stefnur og áætlanir
      • Styrkir og sjóðir
      • Hugtakasafn
      • Lög og reglugerðir
      • Málaskrár ráðuneyta
      • Mælaborð
      • Hönnunarstaðall
    • Ráðuneyti
      • Forsætisráðuneytið
      • Atvinnuvegaráðuneytið
      • Dómsmálaráðuneytið
      • Félags- og húsnæðismálaráðuneytið
      • Fjármála- og efnahagsráðuneytið
      • Heilbrigðisráðuneytið
      • Innviðaráðuneytið
      • Menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðuneytið
      • Mennta- og barnamálaráðuneytið
      • Umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytið
      • Utanríkisráðuneytið
      • Sendiskrifstofur
      • Samstarfsráðherra Norðurlanda
      • Starfsfólk
      • Stofnanir
      • Nefndir
      • Símanúmer og staðsetning ráðuneyta
      • Umbra
    • Ríkisstjórn
      • Skipan ríkisstjórnar
      • Ríkisstjórnarfundir
      • Stjórnarsáttmáli
      • Ráðherranefndir
      • Reglur um starfshætti
      • Reglur um ferðakostnað og starfskjör ráðherra
      • Siðareglur, hagsmunir og hagsmunaverðir
      • Þingmálaskrá
      • Ríkisráð
      • Sögulegt efni
      • Fyrir fjölmiðla
    EN
    • Verkefni
      • Almannatryggingar og lífeyrir
      • Almannaöryggi
      • Atvinnuvegir
      • Auðlindir
      • Efnahagsmál
      • Félags- og fjölskyldumál
      • Fjarskipti
      • Húsnæðis- og mannvirkjamál
      • Líf og heilsa
      • Kosningar
      • Lög og réttur
      • Mannauðsmál ríkisins
      • Mannréttindi og jafnrétti
      • Menningarmál
      • Menntamál
      • Neytendamál
      • Opinber fjármál
      • Persónuréttur
      • Rekstur og eignir ríkisins
      • Samgöngur
      • Sjálfbært Ísland
      • Skipulagsmál
      • Stjórnskipan og þjóðartákn
      • Sveitarstjórnir og byggðamál
      • Trú og lífsskoðun
      • Umhverfi og náttúruvernd
      • Upplýsingatæknimál ríkisins
      • Utanríkismál
      • Útlendingar
      • Vinnumál
      • Vísindi, nýsköpun og rannsóknir
      • Öll verkefni
    • Efst á baugi
      • Fréttir
      • Nýjast
      • Fyrir fjölmiðla
      • Eldri fréttir
      • Fyrirspurnir frá Alþingi
    • Gögn
      • Rit og skýrslur
      • Úrskurðir og álit
      • Eyðublöð
      • Stefnur og áætlanir
      • Styrkir og sjóðir
      • Hugtakasafn
      • Lög og reglugerðir
      • Málaskrár ráðuneyta
      • Mælaborð
      • Hönnunarstaðall
    • Ráðuneyti
      • Forsætisráðuneytið
      • Atvinnuvegaráðuneytið
      • Dómsmálaráðuneytið
      • Félags- og húsnæðismálaráðuneytið
      • Fjármála- og efnahagsráðuneytið
      • Heilbrigðisráðuneytið
      • Innviðaráðuneytið
      • Menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðuneytið
      • Mennta- og barnamálaráðuneytið
      • Umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytið
      • Utanríkisráðuneytið
      • Sendiskrifstofur
      • Samstarfsráðherra Norðurlanda
      • Starfsfólk
      • Stofnanir
      • Nefndir
      • Símanúmer og staðsetning ráðuneyta
      • Umbra
    • Ríkisstjórn
      • Skipan ríkisstjórnar
      • Ríkisstjórnarfundir
      • Stjórnarsáttmáli
      • Ráðherranefndir
      • Reglur um starfshætti
      • Reglur um ferðakostnað og starfskjör ráðherra
      • Siðareglur, hagsmunir og hagsmunaverðir
      • Þingmálaskrá
      • Ríkisráð
      • Sögulegt efni
      • Fyrir fjölmiðla
    Close navigation
    Efnisorð
    Efnisorð

    Ekkert fannst

    Tegund
    Tegund

    Leita eftir efnisorðum

    Sýnir 701–750 af 1821
    Raða eftir:
    21. nóv. 2023Menningar-٫ nýsköpunar- og háskólaráðuneytið, Menningarmál

    Styrkir til menningarsamstarfs milli Noregs og Íslands

    Norsk stjórnvöld leggja árlega til framlag til norsks-íslensks menningarsamstarfs. Markmið framlagsins er að stuðla að fjölbreyttu menningarsamstarfi milli Noregs og Íslands. Nú er auglýst eftir umsóknum eftir styrkjum.

    21. nóv. 2023Menningar-٫ nýsköpunar- og háskólaráðuneytið, Menningarmál

    Íslenskan er aðalmálið: kynningarfundur 29. nóvember

    Kynningarfundur um áherslur ráðherranefndar um málefni íslenskrar tungu verður haldinn nk. miðvikudag, 29. nóvember kl. 11 í Hörpuhorni Hörpu.

    20. nóv. 2023Menningar-٫ nýsköpunar- og háskólaráðuneytið

    Neytendastofa í íslenskuátak: Hvetja almenning til að tilkynna auglýsingar sem eru ekki á íslensku

    Lilja Dögg Alfreðsdóttir, menningar- og viðskiptaráðherra, og Neytendastofa undirrituðu í dag viljayfirlýsingu um að ráðast í átaksverkefni sem miðar að því að auka vitund fyrirtækja og almennings um íslenskuákvæði laga um eftirlit með viðskiptaháttum og markaðssetningu. Almenningur er hvattur til að tilkynna allt auglýsingaefni sem ekki er á íslensku til Neytendastofu, sem mun setja þær tilkynningar í forgang.

    20. nóv. 2023Innviðaráðuneytið, Netöryggi, Fjarskipti, Menningar-٫ nýsköpunar- og háskólaráðuneytið

    Aukin áhersla á viðbrögð við netsvikum

    Ráðherra netöryggismála hefur hafið vinnu sem felur í sér samræmd viðbrögð stjórnvalda við gífurlegri aukningu netsvika. Aðgerð þess efnis verður bætt í aðgerðaáætlun í netöryggismálum og gerð að forgangsverkefni innan háskóla-, iðnaðar- og nýsköpunarráðuneytisins.

    17. nóv. 2023Menningar-٫ nýsköpunar- og háskólaráðuneytið

    Ábyrgir viðskiptahættir og leiðbeinandi reglur OECD fyrir fjölþjóðleg fyrirtæki - Stýrihópur skipaður

    Menningar- og viðskiptaráðherra hefur skipað stýrihóp um ábyrga viðskiptahætti og leiðbeinandi reglur OECD fyrir alþjóðleg fyrirtæki. Stýrihópnum er ætlað að vera stjórnvöldum til ráðgjafar og samtals varðandi beitingu og innleiðingu umræddra leiðbeininga OECD. Fyrsti formlegi fundur stýrihópsins fór fram í gær, 16. nóvember.

    17. nóv. 2023Menningar-٫ nýsköpunar- og háskólaráðuneytið

    60 milljóna króna styrkur frá A.P. Møller sjóðnum til rannsóknarsamstarfs og sýningarhalds í Nesstofu

    Danski sjóðurinn A.P. Møller og Hustru Chastine Mc-Kinney Møllers Fond til almene Formaal hefur ákveðið að styrkja nýtt rannsóknarverkefni og sýningu í Nesstofu sem tengist Ferðabók Eggerts Ólafssonar og Bjarna Pálssonar um ríflega 60 milljónir króna. Mótframlag íslenska ríkisins er 45 milljónir króna sem menningar- og viðskiptaráðuneytið og háskóla-, iðnaðar- og nýsköpunarráðuneytið munu fjármagna í sameiningu.

    17. nóv. 2023Menningar-٫ nýsköpunar- og háskólaráðuneytið, Háskólar, Menntamál

    Háskólaráðuneytið veitir 150 m.kr. til húsnæðis fyrir Háskólann á Hólum

    Háskóla-, iðnaðar- og nýsköpunarráðherra og rektor Háskólans á Hólum hafa undirritað viljayfirlýsingu þess efnis að bæta aðstöðu skólans og treysta starfsemi hans. Lausnir á húsnæðismálum Háskólans á Hólum er forsenda sameiningar við Háskóla Íslands, en skólarnir eiga nú í viðræðum um aukið samstarf og mögulega sameiningu.

    16. nóv. 2023Menningar-٫ nýsköpunar- og háskólaráðuneytið, Menningarmál

    Hefja uppbyggingu á fæðingarstað Jónasar Hallgrímssonar

    Fyrirhuguð er uppbygging að Hrauni í Öxnadal sem hefur það markmið að heiðra minningu þjóðskáldsins, í samræmi við ályktun Alþingis frá árinu 2017. Frá 1996 hefur fæðingardagur Jónasar, 16. nóvember, verið tileinkaður íslenskri tungu og minningu hans verið haldið á lofti með ýmsum hætti.

    16. nóv. 2023Menningar-٫ nýsköpunar- og háskólaráðuneytið, Menningarmál

    Áslaug Agnarsdóttir hlýtur Verðlaun Jónasar Hallgrímssonar

    Verðlaun Jónasar Hallgrímssonar eru veitt árlega á degi íslenskrar tungu. Að þessu sinni hlýtur þau Áslaug Agnarsdóttir þýðandi.

    16. nóv. 2023Menningar-٫ nýsköpunar- og háskólaráðuneytið, Menningarmál

    Bein útsending frá hátíðardagskrá á degi íslenskrar tungu

    Í Eddu, húsi íslenskunnar, fer fram sérstök hátíðardagskrá klukkan 16 í dag. Þar taka meðal annars til máls Lilja Dögg Alfreðsdóttir, menningar- og viðskiptaráðherra, og Guðrún Nordal , forstöðumaður Stofnunar Árna Magnússonar í íslenskum fræðum.

    16. nóv. 2023Menningarmál, Menningar-٫ nýsköpunar- og háskólaráðuneytið

    Dagur íslenskrar tungu 2023: Er þetta málið?

    Í dag er haldið upp á dag íslenskrar tungu í 28 sinn. Venju samkvæmt verða Verðlaun Jónasar Hallgrímssonar afhent ásamt viðurkenningu dags íslenskrar tungu. Sýnt verður beint frá hátíðardagskránni hér á vef Stjórnarráðsins.

    16. nóv. 2023Menningar-٫ nýsköpunar- og háskólaráðuneytið

    Tækifæri og hagnýting skoðuð í aðgerðaáætlun

    Þróun og notkun gervigreindar er ör og gríðarleg tækifæri hafa opnast á síðustu árum með aukinni hagnýtingu hennar. Á sama tíma blasa við áskoranir sem opinberir aðilar verða að bregðast við, og hefur háskóla-, iðnaðar- og nýsköpunarráðuneytið, sem fer með málefni gervigreindar, hafið vinnu við aðgerðaáætlun á sviði gervigreindar.

    15. nóv. 2023Menningar-٫ nýsköpunar- og háskólaráðuneytið

    Fundaði í Alþjóðagjaldeyrissjóðnum

    Staða og horfur efnahagsmála á heimsbúskapnum voru umræðuefni á fundi Lilju Daggar Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra og Julie Kozack framkvæmdarstjóra hjá Alþjóðagjaldeyrissjóðnum, í framhaldi af ársfundi sjóðsins sem nýlega fór fram.

    14. nóv. 2023Menningar-٫ nýsköpunar- og háskólaráðuneytið, Vísindi nýsköpun og rannsóknir, Norrænt samstarf, Menntamál

    Háskóla-, iðnaðar- og nýsköpunarráðherra leggur fram greinargerð um norræna rannsóknarsamstarfið

    Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir sótti nýafstaðið þing Norðurlandaráðs sem formaður norrænu ráðherranefndarinnar um menntamál og rannsóknir. Þar lagði hún fram greinargerð um norrænt vísindasamstarf, sem unnin var af ráðherranefndinni að beiðni þingsins.

    13. nóv. 2023Menningar-٫ nýsköpunar- og háskólaráðuneytið, Menningarmál

    Flutti stefnuræðu Íslands á aðalráðstefnu UNESCO

    „Það er sannarlega sorglegt að verða vitni að ólýsanlegum mannlegum þjáningum og eyðileggingu af völdum átaka og styrjalda á svo mörgum stöðum í heiminum. Rússar halda áfram grimmilegu árásarstríði sínu gegn Úkraínu og í Ísrael og Palestínu eru saklausir borgarar helstu fórnarlömb stríðsins. Á þessum myrku tímum er mikilvægt að virðing fyrir alþjóðalögum, mannréttindum og mannúðarlögum sé virt. Mannkynið verður að sigra,“ sagði Lilja Dögg Alfreðsdóttir menningar- og viðskiptaráðherra meðal annars í ræðu sinni á aðalráðstefnu Menningarmálastofnunar Sameinuðu þjóðanna (UNESCO) í París í síðustu viku.

    13. nóv. 2023Menningar-٫ nýsköpunar- og háskólaráðuneytið, Vísindi nýsköpun og rannsóknir, Heilbrigðismál, Nýsköpun, Líf og heilsa

    Fléttan: Ljósmæður, hjúkrunarheimili og Ljósið bæta þjónustu með nýsköpun

    Úthlutanir styrkja úr Fléttunni - styrkja til innleiðingar nýsköpunar í heilbrigðisþjónustu voru kynntar á dögunum. Að þessu sinni hefur tólf íslenskum nýsköpunarfyrirtækjum verið boðið að ganga til samninga en alls verður um 104 milljónum króna dreift til innleiðingar nýrrar tækni og lausna í heilbrigðiskerfinu.

    10. nóv. 2023Menningar-٫ nýsköpunar- og háskólaráðuneytið, Menningarmál

    Edda, hús íslenskunnar, hlaut Hönnunarverðlaun Íslands

    Hönnunarverðlaun Íslands voru veitt við hátíðlega athöfn í Grósku 9. nóvember er þetta er tíunda árið í röð sem verðlaunin eru veitt. Lilja Dögg Alfreðsdóttir, menningar- og viðskiptaráðherra, afhenti heiðursverðlaunin í ár.

    10. nóv. 2023Menningar-٫ nýsköpunar- og háskólaráðuneytið, Vísindi nýsköpun og rannsóknir, Háskólar, Menntamál

    Mikil aðsókn í styrki til aukins samstarfs háskóla

    Auglýst var eftir styrkjum til samstarfsverkefna háskólanna í annað sinn í sumar og rann umsóknarfrestur út í lok október. Alls bárust 55 umsóknir um tæplega fjóra milljarða króna. Stefnt er að því að úthluta að minnsta kosti einum milljarði króna til fjölbreyttra samstarfsverkefna háskólanna á næstu mánuðum.

    08. nóv. 2023Menningar-٫ nýsköpunar- og háskólaráðuneytið, Vísindi nýsköpun og rannsóknir, Heilbrigðismál, Nýsköpun, Líf og heilsa

    Fléttan: Betri svefn og bætt sálfræðiþjónusta innleidd með nýsköpun

    Þrjú af tólf verkefnum sem styrkt eru af Fléttunni í ár hafa sett á fót samstarf með heilsugæslustöðvum. Verkefnin eru fjölbreytt en eiga það sameiginlegt að felast í nýjum meðferðarlausnum sem stuðla að bættri þjónustu við skjólstæðinga og aukinni skilvirkni.

    08. nóv. 2023Menningar-٫ nýsköpunar- og háskólaráðuneytið, Nýsköpun, Vísindi nýsköpun og rannsóknir

    Sameining Nýsköpunarsjóðs atvinnulífsins og Kríu, sprota- og nýsköpunarsjóðs, í Samráðsgátt

    Háskóla-, iðnaðar- og nýsköpunarráðuneytið kynnir til samráðs áform um lagasetningu vegna sameiningar Nýsköpunarsjóðs atvinnulífsins og Kríu, sprota- og nýsköpunarsjóðs.

    07. nóv. 2023Menningar-٫ nýsköpunar- og háskólaráðuneytið, Nýsköpun, Vísindi nýsköpun og rannsóknir

    Stafræn nýsköpunargátt fyrir nýsköpunarumhverfi og frumkvöðla

    Samið hefur verið við upplýsingavefinn skapa.is um að halda úti stafrænni nýsköpunargátt. Vefurinn hefur þegar fest sig í sessi í frumkvöðlasamfélaginu en fær nú aukið hlutverk sem stafræn nýsköpunargátt sem er í senn efnisveita og upplýsingamiðlun fyrir frumkvöðla og aðra aðila sem eru að stíga sín fyrstu skref í íslensku nýsköpunarumhverfi.

    07. nóv. 2023Menningar-٫ nýsköpunar- og háskólaráðuneytið, Alþjóðasamningar, Vísindi nýsköpun og rannsóknir

    Ráðherra geimvísinda skrifar undir samning við NASA

    Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir, háskóla-, iðnaðar- og nýsköpunarráðherra, hefur undirritað samning um Artemis samkomulagið við Geimferðastofnun Bandaríkjanna (NASA). Þátttaka Íslands í samkomulaginu hefur í för með sér mikil tækifæri fyrir rannsóknir og nýsköpun auk tækifæra til að móta alþjóðlega umgjörð um umgengni í geimnum.

    06. nóv. 2023Atvinnuvegaráðuneytið, Háskólar, Iðnaður, Nýsköpun, Vísindi nýsköpun og rannsóknir, Menningar-٫ nýsköpunar- og háskólaráðuneytið

    Farið yfir umsóknir úr Glókolli á tveggja mánaða fresti

    Fyrirkomulagi úthlutana úr Glókolli - styrkja til viðburða og verkefna á málefnasviðum háskóla-, iðnaðar- og nýsköpunarráðuneytis hefur verið breytt með nýjum reglum um úthlutun styrkja. Er þetta gert með aukna skilvirkni og betri upplýsingagjöf til umsækjenda að markmiði.

    04. nóv. 2023Menningar-٫ nýsköpunar- og háskólaráðuneytið

    Niðurstöður úthlutunarnefndar um rekstrarstuðning til einkarekinna fjölmiðla 2023

    Úthlutunarnefnd um úthlutun rekstrarstuðnings til einkarekinna fjölmiðla hefur lokið störfum í ár. Niðurstöður úthlutunarnefndar hafa verið birtar á vef Fjölmiðlanefndar.

    03. nóv. 2023Menningar-٫ nýsköpunar- og háskólaráðuneytið

    Finnur Bjarnason hefur verið ráðinn verkefnisstjóri vegna stofnunar þjóðaróperu

    Menningar- og viðskiptaráðuneytið hefur ráðið Finn Bjarnason sem verkefnisstjóra vegna stofnunar þjóðaróperu.

    03. nóv. 2023Menningar-٫ nýsköpunar- og háskólaráðuneytið, Vísindi nýsköpun og rannsóknir, Heilbrigðismál, Nýsköpun, Líf og heilsa

    Fléttan: Þrjú nýsköpunarfyrirtæki fá áframhaldandi styrk til innleiðingar nýrra heilbrigðislausna

    Tólf íslenskum nýsköpunarfyrirtækjum hefur verið boðið að ganga til samninga um styrki til innleiðingar nýrrar tækni og lausna í heilbrigðiskerfinu. Þrír styrkhafar fengu einnig styrki í fyrra og fá því áframhaldandi stuðning til innleiðingar nýrra lausna.

    02. nóv. 2023Menningar-٫ nýsköpunar- og háskólaráðuneytið, Norrænt samstarf, Menningarmál

    Stýrði fundi norrænna menningarmálaráðherra

    Lilja Dögg Alfreðsdóttir menningar- og viðskiptaráðherra stýrði fundi norrænna menningarráðherra en fundurinn er hluti af 75. þingi Norðurlandaráðs sem fer fram í Ósló. Ísland fer með formennsku í Norðurlandasamstarfinu.

    01. nóv. 2023Menningar-٫ nýsköpunar- og háskólaráðuneytið, Vísindi nýsköpun og rannsóknir, Heilbrigðismál, Nýsköpun, Líf og heilsa

    Fléttan: Landspítalinn í samstarf við fimm nýsköpunarfyrirtæki

    Úthlutanir styrkja úr Fléttunni - styrkja til innleiðingar nýsköpunar í heilbrigðisþjónustu voru kynntar á dögunum. Landspítalinn er, líkt og fyrra ár, samstarfsaðili fjölmargra styrktra verkefna en í ár hefur LSH skuldbundið sig til að vinna með fimm fjölbreyttum nýsköpunarfyrirtækjum að innleiðingu nýrrar tækni eða lausna.

    31. okt. 2023Menningar-٫ nýsköpunar- og háskólaráðuneytið, Norrænt samstarf, Menningarmál

    Tilnefningar Íslands til verðlauna Norðurlandaráðs 2023

    Verðlaun Norðurlandaráðs verða afhent í Ósló í kvöld. Alls eru 54 verk, verkefni og listamenn tilnefnd að þessu sinni. Verðlaunin eru veitt í tengslum við 75.þing Norðurlandaráðs í Noregi þar sem ráðherrar og þingmenn frá öllum Norðurlöndunum koma saman.

    30. okt. 2023Menningar-٫ nýsköpunar- og háskólaráðuneytið, Innviðaráðuneytið, Forsætisráðuneytið

    Sinfóníuhljómsveit Norðurlands hlýtur styrk í tilefni af 30 ára afmæli

    Sinfóníuhljómsveit Norðurlands á 30 ára afmæli um þessar mundir. Að því tilefni var undirritaður sérstakur styrktarsamningur við starfsemi Sinfóníuhljómsveitar Norðurlands.

    27. okt. 2023Menningar-٫ nýsköpunar- og háskólaráðuneytið, Nýsköpun, Vísindi nýsköpun og rannsóknir

    PayAnalytics handhafi Nýsköpunarverðlauna Íslands 2023

    Nýsköpunarverðlaun Íslands 2023 voru veitt við hátíðlega athöfn á Nýsköpunarþingi sem fram fór í Grósku í gær. Hugbúnaðarfyrirtækið PayAnalytics hlýtur verðlaunin í ár en fyrirtækið hefur þróað jafnlaunahugbúnað sem gerir laungreiðendum kleift að mæla launabil, loka launabilum og halda launabilum lokuðum.

    26. okt. 2023Innviðaráðuneytið, Netöryggi, Fjarskipti, Menningar-٫ nýsköpunar- og háskólaráðuneytið

    Gögn í gíslingu - mikilvægi netöryggis fyrir samfelldan rekstur

    Í tilefni alþjóðlegs netöryggismánaðar í október efna CERT-IS og háskóla-, iðnaðar- og nýsköpunarráðuneytið til ráðstefnu um gagnagíslatökur, þróun þeirra og áhrif á rekstur fyrirtækja og stofnana.

    23. okt. 2023Menningar-٫ nýsköpunar- og háskólaráðuneytið, Nýsköpun, Vísindi nýsköpun og rannsóknir

    Ísland stendur vel í fjölda einkaleyfisumsókna á sviði lífvísinda

    Ísland er á meðal þeirra landa sem á flestar umsóknir um einkaleyfi á sviði lífvísinda miðað við mannfjölda þrátt fyrir að einkaleyfisumsóknum íslenskra lífvísindafyrirtækja hafi farið fækkandi undanfarin ár.

    21. okt. 2023Menningar-٫ nýsköpunar- og háskólaráðuneytið, Norrænt samstarf, Menningarmál

    Menningar- og viðskiptaráðherra fundaði með framkvæmdastjóra Norrænu ráðherranefndarinnar

    Lilja Dögg Alfreðsdóttir menningar- og viðskiptaráðherra fundaði í gær með Karen Ellemann framkvæmdastjóra Norrænu ráðherranefndarinnar.

    20. okt. 2023Menningar-٫ nýsköpunar- og háskólaráðuneytið

    Rúststeinar og fatahönnunarsamstarf hlutu hæstu styrki Hönnunarsjóðs

    Í tilefni af tíu ára afmæli stóð Hönnunarsjóður fyrir viðburði og samtali í Grósku. Þar fór fram síðari styrkjaúthlutun Hönnunarsjóðs árið 2023.

    19. okt. 2023Innviðaráðuneytið, Fjarskipti, Menningar-٫ nýsköpunar- og háskólaráðuneytið

    Lagningu upplýsingahraðbrauta í Árneshreppi að ljúka

    Árneshreppur var síðasta sveitarfélagið sem hlaut styrk frá fjarskiptasjóði á grundvelli átaksverkefnisins Ísland ljóstengt en senn lýkur þar lagningu ljósleiðara. Í tillögu til þingsályktunar um stefnumótandi aðgerðir til eflingar þekkingarsamfélagi á Íslandi til ársins 2025 kemur m.a. fram að meginmarkmið í fjarskiptum verði að tengja byggðir landsins og að innviðir og þjónusta mæti þörfum almennings og atvinnulífs m.a. með almennu aðgengi að ljósleiðara- og háhraðafarneti.

    19. okt. 2023Menningar-٫ nýsköpunar- og háskólaráðuneytið, Hönnun, Menningarmál

    Íslensk hönnun í sviðsljósinu

    Íslensk hönnun er einstaklega áberandi þessa dagana. Í vikunni voru afhentir styrkir úr Hönnunarsjóði og einnig er verið að kynna tilnefningar til Hönnunarverðlauna Íslands þessa dagana. Verðlaunin verða afhent í tíunda skipti þann 9. nóvember næstkomandi.

    18. okt. 2023Menningar-٫ nýsköpunar- og háskólaráðuneytið, Norrænt samstarf, Nýsköpun, Atvinnuvegir

    Nýr veruleiki kallar á nánara Norrænt samstarf

    Norðurlöndin þurfa að efla samstarf atvinnulífsins þegar kemur að grænum umskiptum, gervigreind og stafrænum umskiptum. Þetta var niðurstaða nýafstaðins norræns ráðherrafundar atvinnumála þar sem ráðherrarnir ræddu nýjan pólitískan veruleika og forgangsröðun í atvinnulífinu til ársins 2030.

    16. okt. 2023Menningar-٫ nýsköpunar- og háskólaráðuneytið, Háskólar, Menntamál

    Árangurstengd fjármögnun háskóla birt í Samráðsgátt

    Drög að nýjum reglum um fjárframlög til háskóla hafa verið birt í Samráðsgátt. Reglurnar lýsa forsendum og samsetningu fjárframlaga úr ríkissjóði til háskóla en um er að ræða gagngera kerfisbreytingu á fjármögnun háskólanna frá reglunum sem settar voru árið 1999. Umsagnarfrestur er til 31. október 2023.

    16. okt. 2023Innviðaráðuneytið, Fjarskipti, Menningar-٫ nýsköpunar- og háskólaráðuneytið

    Myndrænn árangur í fjarskiptum

    Drög að reglugerð um birtingu upplýsinga í gagnagrunni almennra fjarskiptaneta (GAF) hafa verið birt í Samráðsgátt.

    11. okt. 2023Menningar-٫ nýsköpunar- og háskólaráðuneytið, Vísindi nýsköpun og rannsóknir

    Frumvarp um hagnýtingu opinna gagna í Samráðsgátt

    Drög að frumvarpi um opin gögn hafa verið birt í Samráðsgátt. Frumvarpið fjallar um lágmarksreglur til að auka hagnýtingu gagna sem safnað er hjá opinberum aðilum í þeim tilgangi að örva nýsköpun og til hagsbóta fyrir samfélagið í heild.

    09. okt. 2023Menningar-٫ nýsköpunar- og háskólaráðuneytið, Vísindi nýsköpun og rannsóknir, Heilbrigðismál, Nýsköpun, Atvinnuvegir

    Tólf styrkjum úthlutað til nýsköpunar í heilbrigðisþjónustu

    Tólf íslenskum nýsköpunarfyrirtækjum hefur verið boðið að ganga til samninga um styrki úr Fléttunni - styrki til innleiðingar nýsköpunar í heilbrigðisþjónustu. Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir, háskóla-, iðnaðar- og nýsköpunarráðherra, kynnti úthlutun styrkjanna í dag en alls verður um 104 m.kr. dreift til innleiðingar nýrrar tækni og lausna í heilbrigðiskerfinu.

    05. okt. 2023Menningar-٫ nýsköpunar- og háskólaráðuneytið

    Viðsnúningur á háskólastigi forsenda öflugri nýsköpunar

    ,,Ef samfélagið opnar ekki augun fyrir því að við erum að dragast aftur úr þegar kemur að undirstöðu nýsköpunar og verðmætasköpunar - menntakerfinu- þá missum við af lestinni í samkeppni þjóða,” sagði ráðherra í ávarpi sínu á Sjávarútvegsdeginum í gær.

    05. okt. 2023Áfrýjunarnefnd í kærumálum háskólanema, Úrskurðir, Menningar-٫ nýsköpunar- og háskólaráðuneytið

    4/2022 A gegn Háskóla Íslands

    október 2023 / Áfrýjunarnefnd í kærumálum háskólanema 4/2022 A gegn Háskóla Íslands Ár 2023, 5. október, lauk áfrýjunarnefnd í kærumálum háskólanema, þau Elvar Jónsson lögmaður og formaður nefndarinnar, Eva Halldórsdóttir lögmaður og Pétur Marteinn Urbancic Tómasson lögfræðingur málinu nr

    05. okt. 2023Menningar-٫ nýsköpunar- og háskólaráðuneytið, Húsnæðis- og mannvirkjamál, Vísindi nýsköpun og rannsóknir, Félags- og húsnæðismálaráðuneytið

    Opið fyrir umsóknir í Ask mannvirkjarannsóknasjóð

    Húsnæðis- og mannvirkjastofnun auglýsir eftir umsóknum um styrki úr Aski – mannvirkjarannsóknarsjóði fyrir árið 2023.

    04. okt. 2023Menningar-٫ nýsköpunar- og háskólaráðuneytið, Háskólar, Menntamál

    Lengdur umsóknarfrestur í Samstarf háskóla

    Umsóknarfrestur í Samstarf háskóla hefur verið framlengdur til 31. október. Háskólar og samstarfsaðilar þeirra skila umsóknum til háskóla-, iðnaðar- og nýsköpunarráðuneytisins en áætlað er að úthluta allt að einum milljarði króna til verkefna sem snúa að auknu samstarfi háskóla á yfirstandandi ári. Opnað var fyrir umsóknir í júní sl.

    03. okt. 2023Menningar-٫ nýsköpunar- og háskólaráðuneytið, Háskólar, Menntamál

    Viljayfirlýsing um aukið samstarf og mögulega sameiningu Háskólans á Akureyri og Háskólans á Bifröst undirrituð

    Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir, háskóla-, iðnaðar- og nýsköpunarráðherra, hefur undirritað viljayfirlýsingu starfandi rektor Háskólans á Akureyri og rektor Háskólans á Bifröst um að hefja formlegar viðræður um samstarf og mögulega sameiningu háskólanna.

    03. okt. 2023Menningar-٫ nýsköpunar- og háskólaráðuneytið

    Ræddi íslensku bankana, verðbólgu og samkeppni á málþingi um bankaskýrsluna

    „Þegar verðbólga er í hæstu hæðum, þá gerir maður kröfu á að allir taki þátt í þessari vegferð að ná henni niður og minnka þennan herkostnað sem verðbólgan er,“ sagði Lilja Dögg Alfreðsdóttir menningar- og viðskiptaráðherra á málþingi um nýútkomna bankaskýrslu á Hilton fyrr í dag.

    02. okt. 2023Menningar-٫ nýsköpunar- og háskólaráðuneytið

    María Rut Reynisdóttir ráðin framkvæmdastjóri Tónlistarmiðstöðvar

    Stjórn Tónlistarmiðstöðvar Íslands hefur ráðið Maríu Rut Reynisdóttur, skrifstofustjóra menningarmála hjá Reykjavíkurborg sem framkvæmdastjóra nýrrar Tónlistarmiðstöðvar. Tónlistarmiðstöð er stofnuð með það að markmiði að verða einn af hornsteinum íslensks tónlistarlífs og -iðnaðar og með henni er stigið stórt skref í áttina að því að veita listgreininni aukið vægi og til að greiða leið íslensks tónlistarfólks, innan lands sem utan. Tónlistarmiðstöðin var formlega stofnuð þann 15. ágúst sl.

    02. okt. 2023Menningar-٫ nýsköpunar- og háskólaráðuneytið, Nýsköpun, Vísindi nýsköpun og rannsóknir

    Ísland áfram meðal 20 mest nýskapandi ríkja heims

    Íslandi situr í 20. sæti á lista Alþjóðahugverkastofunnar yfir mest nýskapandi ríki heims. Öll Norðurlöndin eru á topp-20 listanum.

    • First
    • Prev
    • 13
    • 14
    • 15
    • 16
    • 17
    • Next
    • Last
    Logo
    • Um vefinn
    • Áskrift
    • Veftré
    • Fyrirvari
    +354 545 8000
    Staðsetning ráðuneyta, opnunartími og netföng
    Hafa samband

    Hafa samband