Coat of arms
Stjórnarráð Íslands
  • Verkefni
    • Almannatryggingar og lífeyrir
    • Almannaöryggi
    • Atvinnuvegir
    • Auðlindir
    • Efnahagsmál
    • Félags- og fjölskyldumál
    • Fjarskipti
    • Húsnæðis- og mannvirkjamál
    • Líf og heilsa
    • Kosningar
    • Lög og réttur
    • Mannauðsmál ríkisins
    • Mannréttindi og jafnrétti
    • Menningarmál
    • Menntamál
    • Neytendamál
    • Opinber fjármál
    • Persónuréttur
    • Rekstur og eignir ríkisins
    • Samgöngur
    • Sjálfbært Ísland
    • Skipulagsmál
    • Stjórnskipan og þjóðartákn
    • Sveitarstjórnir og byggðamál
    • Trú og lífsskoðun
    • Umhverfi og náttúruvernd
    • Upplýsingatæknimál ríkisins
    • Utanríkismál
    • Útlendingar
    • Vinnumál
    • Vísindi, nýsköpun og rannsóknir
    • Öll verkefni
    • Efst á baugi
      • Fréttir
      • Nýjast
      • Fyrirspurnir frá Alþingi
      • Fyrir fjölmiðla
      • Eldri fréttir
    • Gögn
      • Rit og skýrslur
      • Úrskurðir og álit
      • Eyðublöð
      • Stefnur og áætlanir
      • Styrkir og sjóðir
      • Hugtakasafn
      • Lög og reglugerðir
      • Málaskrár ráðuneyta
      • Mælaborð
      • Hönnunarstaðall
    • Ráðuneyti
      • Forsætisráðuneytið
      • Atvinnuvegaráðuneytið
      • Dómsmálaráðuneytið
      • Félags- og húsnæðismálaráðuneytið
      • Fjármála- og efnahagsráðuneytið
      • Heilbrigðisráðuneytið
      • Innviðaráðuneytið
      • Menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðuneytið
      • Mennta- og barnamálaráðuneytið
      • Umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytið
      • Utanríkisráðuneytið
      • Sendiskrifstofur
      • Samstarfsráðherra Norðurlanda
      • Starfsfólk
      • Stofnanir
      • Nefndir
      • Símanúmer og staðsetning ráðuneyta
      • Umbra
    • Ríkisstjórn
      • Skipan ríkisstjórnar
      • Ríkisstjórnarfundir
      • Stjórnarsáttmáli
      • Ráðherranefndir
      • Reglur um starfshætti
      • Reglur um ferðakostnað og starfskjör ráðherra
      • Siðareglur, hagsmunir og hagsmunaverðir
      • Þingmálaskrá
      • Ríkisráð
      • Sögulegt efni
      • Fyrir fjölmiðla
    EN
    • Verkefni
      • Almannatryggingar og lífeyrir
      • Almannaöryggi
      • Atvinnuvegir
      • Auðlindir
      • Efnahagsmál
      • Félags- og fjölskyldumál
      • Fjarskipti
      • Húsnæðis- og mannvirkjamál
      • Líf og heilsa
      • Kosningar
      • Lög og réttur
      • Mannauðsmál ríkisins
      • Mannréttindi og jafnrétti
      • Menningarmál
      • Menntamál
      • Neytendamál
      • Opinber fjármál
      • Persónuréttur
      • Rekstur og eignir ríkisins
      • Samgöngur
      • Sjálfbært Ísland
      • Skipulagsmál
      • Stjórnskipan og þjóðartákn
      • Sveitarstjórnir og byggðamál
      • Trú og lífsskoðun
      • Umhverfi og náttúruvernd
      • Upplýsingatæknimál ríkisins
      • Utanríkismál
      • Útlendingar
      • Vinnumál
      • Vísindi, nýsköpun og rannsóknir
      • Öll verkefni
    • Efst á baugi
      • Fréttir
      • Nýjast
      • Fyrir fjölmiðla
      • Eldri fréttir
      • Fyrirspurnir frá Alþingi
    • Gögn
      • Rit og skýrslur
      • Úrskurðir og álit
      • Eyðublöð
      • Stefnur og áætlanir
      • Styrkir og sjóðir
      • Hugtakasafn
      • Lög og reglugerðir
      • Málaskrár ráðuneyta
      • Mælaborð
      • Hönnunarstaðall
    • Ráðuneyti
      • Forsætisráðuneytið
      • Atvinnuvegaráðuneytið
      • Dómsmálaráðuneytið
      • Félags- og húsnæðismálaráðuneytið
      • Fjármála- og efnahagsráðuneytið
      • Heilbrigðisráðuneytið
      • Innviðaráðuneytið
      • Menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðuneytið
      • Mennta- og barnamálaráðuneytið
      • Umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytið
      • Utanríkisráðuneytið
      • Sendiskrifstofur
      • Samstarfsráðherra Norðurlanda
      • Starfsfólk
      • Stofnanir
      • Nefndir
      • Símanúmer og staðsetning ráðuneyta
      • Umbra
    • Ríkisstjórn
      • Skipan ríkisstjórnar
      • Ríkisstjórnarfundir
      • Stjórnarsáttmáli
      • Ráðherranefndir
      • Reglur um starfshætti
      • Reglur um ferðakostnað og starfskjör ráðherra
      • Siðareglur, hagsmunir og hagsmunaverðir
      • Þingmálaskrá
      • Ríkisráð
      • Sögulegt efni
      • Fyrir fjölmiðla
    Close navigation
    Utanríkismál
    Efnisorð

    Ekkert fannst

    Tegund
    Tegund

    Leita eftir efnisorðum

    Sýnir 701–750 af 1862
    Raða eftir:
    23. jún. 2023Utanríkisráðuneytið, Utanríkismál, Orka, Úkraína, Umhverfis-٫ orku- og loftslagsráðuneytið

    Enduruppbygging í Úkraínu í brennidepli í London

    Guðlaugur Þór Þórðarson, umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra, sótti alþjóðlega ráðstefnu um enduruppbyggingu í Úkraínu sem fór fram í London dagana 21. og 22. júní. Forseti Úkraínu, Volodymyr Zelensky, og forsætisráðherra Bretlands, Rishi Sunak, opnuðu ráðstefnuna og þá flutti Ursula von der Leyen, forseti framkvæmdastjórnar ESB, einnig ávarp ásamt öðrum leiðtogum og ráðherrum þátttökuríkja og alþjóðastofnanna.

    22. jún. 2023Utanríkisráðuneytið, Alþjóðamál, Úkraína, Utanríkismál

    Hannes Heimisson afhendir forseta Úkraínu trúnaðarbréf

    Hannes Heimisson, sendiherra Íslands í Varsjá, afhenti í gær Volodymyr Zelensky, forseta Úkraínu, trúnaðarbréf sitt sem sendiherra Íslands gagnvart Úkraínu. Athöfnin fór fram við kirkju heilgrar Soffíu í Kænugarði. Að lokinni athöfn átti sendiherrann tvíhliða fund með forsetanum.

    21. jún. 2023Utanríkisráðuneytið, Alþjóðamál, Öryggis- og varnarmál, Úkraína, Utanríkismál

    Norrænt varnarsamstarf styrkist

    Varnarmálaráðherrar Norðurlandanna ræddu þróun öryggismála, árásarstríð Rússlands gegn Úkraínu, aukið samstarf ríkjanna í öryggis- og varnarmálum og málefni Atlantshafsbandalagsins á tveggja daga fundi sínum á Íslandi. Svíþjóð fer með formennsku í norræna varnarsamstarfinu (NORDEFCO) en Ísland hélt ráðherrafund samstarfsins í Reykjavík og á öryggissvæðinu í Keflavík.

    19. jún. 2023Utanríkisráðuneytið, Alþjóðamál, Afríka, Flóttafólk, UNHCR, Utanríkismál

    Aukin framlög til UNHCR vegna átakanna í Súdan

    Alvarleg staða mannúðarmála vegna átakanna í Súdan var meginefni framlagaráðstefnu á vegum Sameinuðu þjóðanna sem fram fór í Genf í dag. Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir utanríkisráðherra ávarpaði ráðstefnuna um fjarfundabúnað og tilkynnti um fimmtíu milljón króna viðbótarframlag Íslands til Flóttamannastofnunar Sameinuðu þjóðanna (UNHCR) sem leiðir viðbrögð Sameinuðu þjóðanna á svæðinu.

    16. jún. 2023Utanríkisráðuneytið, Öryggis- og varnarmál, Úkraína, Utanríkismál

    Varnarmálaráðherrar ræddu aukinn varnarviðbúnað Atlantshafsbandalagsins

    Varnarmálaráðherrar Atlantshafsbandalagsins luku í dag tveggja daga fundi í Brussel þar sem árásarstríð Rússlands gegn Úkraínu, efling varnar- og fælingargetu svo og kjarnorkuvarnir bandalagsins voru efst á baugi.

    15. jún. 2023Utanríkisráðuneytið, Mið-Austurlönd, UN Women, UNHCR, WFP, Utanríkismál

    Framlög aukin til mannúðarmála í Sýrlandi og grannríkjum

    Framlög Íslands til mannúðarmála í Sýrlandi og grannríkjum munu nema samtals 840 milljónum króna næstu þrjú árin. Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir utanríkisráðherra tilkynnti þetta á framlagaráðstefnu í Brussel í dag.

    14. jún. 2023Utanríkisráðuneytið, Fastanefnd Íslands hjá S.þ., Utanríkismál

    Tómas H. Heiðar endurkjörinn dómari við Alþjóðlega hafréttardóminn

    Tómas H. Heiðar var í dag endurkjörinn dómari við Alþjóðlega hafréttardóminn á fundi aðildarríkja hafréttarsamnings Sameinuðu þjóðanna í New York. Tómas hefur gegnt embætti dómara við dóminn frá árinu 2014 og verið varaforseti hans frá 2020.

    13. jún. 2023Utanríkisráðuneytið, Öryggis- og varnarmál, Utanríkismál

    Varnarmálaráðherrafundur JEF fór fram í Hollandi

    Varnamálaráðherrar sameiginlegu viðbragðssveitarinnar (Joint Expeditionary Force, JEF) funduðu í Amsterdam í dag, þriðjudaginn 13. júní. Ráðherrarnir ræddu stuðning ríkjanna við Úkraínu, viðbrögð við fjölþáttaógnum og næstu verkefni samstarfsins sem hverfast meðal annars um að viðhalda öryggi og stöðugleika í Norður-Evrópu, á norðurslóðum, í Norður-Atlantshafi og á Eystrasaltssvæðinu.

    13. jún. 2023Utanríkisráðuneytið, Norrænt samstarf, Úkraína, Utanríkismál

    Utanríkisráðherrar Norðurlanda funduðu á Ísafirði

    Stuðningur við Úkraínu og alþjóðasamfélagið, samskiptin við Rússland og staða mannúðarmála í Afganistan voru ofarlega á baugi á utanríkisráðherrafundi Norðurlanda sem fram fór á Ísafirði í dag. Ísland er í formennsku norrænnar samvinnu í ár, þar á meðal í utanríkispólitísku samstarfi Norðurlanda, og því fer árlegur sumarfundur í samstarfinu fram hér á landi.

    12. jún. 2023Utanríkisráðuneytið, Norrænt samstarf, Utanríkismál

    Utanríkisráðherrar Norðurlanda á Ísafirði

    Utanríkisráðherrar Norðurlanda koma saman til reglubundins sumarfundar á Ísafirði í vikunni. Ísland er í formennsku norrænnar samvinnu í ár, þar á meðal í utanríkispólitísku samstarfi Norðurlanda, og því fer fundurinn fram hér á landi.

    09. jún. 2023Utanríkisráðuneytið, Utanríkismál

    Starfsemi sendiráðs Íslands í Moskvu lögð niður

    Utanríkisráðherra hefur ákveðið að leggja niður starfsemi sendiráðs Íslands í Moskvu frá 1. ágúst næstkomandi. Sendiherra Rússlands var í dag kallaður í utanríkisráðuneytið og honum tilkynnt um þessa ákvörðun.

    07. jún. 2023Utanríkisráðuneytið, Norðurslóðir, Öryggis- og varnarmál, Utanríkismál

    Öryggismál á norðurslóðum í brennidepli

    Breyttar öryggishorfur á norðurslóðum, mikilvægi alþjóðalaga, bætt eftirlitsgeta og aukin varnarsamvinna lýðræðisríkjanna á norðurslóðum voru meðal þess sem Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir utanríkisráðherra lagði áherslu á í opnunarávarpi sínu á málþingi um öryggismál á norðurslóðum í dag.

    06. jún. 2023Utanríkisráðuneytið, Alþjóðamál, Þróunarsamvinna, DAC, OECD, Utanríkismál

    Niðurstöður úr jafningjarýni á þróunarsamvinnu Íslands kynntar

    Jafningjarýni Þróunarsamvinnunefndar OECD (DAC) á alþjóðlegri þróunarsamvinnu Íslands hefur verið birt. Carsten Staur, formaður nefndarinnar kynnti helstu niðurstöður skýrslunnar og fór yfir styrkleika og áskoranir í alþjóðlegri þróunarsamvinnu Íslands á kynningarfundi á mánudag. Hann benti á að niðurstöður rýninnar væru jákvæðar og að Ísland hafi sýnt í verki hvernig lítið framlagsríki getur náð umtalsverðum árangri með skýrri og einbeittri nálgun.

    01. jún. 2023Utanríkisráðuneytið, Öryggis- og varnarmál, Úkraína, Utanríkismál

    Utanríkisráðherrafundi Atlantshafsbandalagsins lokið

    Undirbúningur fyrir leiðtogafund Atlantshafsbandalagsins í Vilníus í júlí og áframhaldandi stuðningur við Úkraínu voru helstu umfjöllunarefnin á óformlegum utanríkisráðherrafundi Atlantshafsbandalagsins í Ósló.

    01. jún. 2023Utanríkisráðuneytið, Utanríkismál, Brexit, Utanríkisviðskipti, Fjarskipti

    Samkomulag við Bretland um reikigjöld á fjarskiptaþjónustu

    Samkomulag Íslands og Bretlands um hámarks heildsöluverð alþjóðlegrar reikiþjónustu tekur gildi í dag, 1. júní.

    01. jún. 2023Utanríkisráðuneytið, Öryggis- og varnarmál, Utanríkismál

    Herstjórnarmiðstöð JEF á Íslandi

    Sameiginlega viðbragðssveitin (Joint Expeditionary Force, JEF) sem Bretar leiða ásamt Norðurlöndunum, Eystrasaltsríkjunum og Hollandi setur í æfingaskyni upp færanlega herstjórnarmiðstöð á öryggissvæðinu í Keflavík í júní.

    31. maí 2023Utanríkisráðuneytið, Úkraína, Utanríkismál

    Þjálfun úkraínskra hermanna í bráðameðferð á stríðssvæðum

    Ísland hefur hafið þátttöku í þjálfunarverkefni fyrir úkraínska hermenn sem Bretland leiðir.

    31. maí 2023Utanríkisráðuneytið, Utanríkisviðskipti, Utanríkismál

    Utanríkisráðherra skipar í útflutnings- og markaðsráð

    Utanríkisráðherra hefur skipað fulltrúa til setu í útflutnings- og markaðsráð. Samkvæmt lögum um Íslandsstofu skipar utanríkisráðherra 31 fulltrúa í ráðið til fjögurra ára í senn.

    26. maí 2023Utanríkisráðuneytið, Úkraína, Utanríkismál

    Utanríkisráðherra í heimsókn í Vilníus

    Staðan í Rússlandi á tímum innrásarstríðs í Úkraínu var umfjöllunarefni ráðstefnu í Vilníus sem Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir utanríkisráðherra tók þátt í. Hún átti jafnframt fund með utanríkisráðherra Litáens í dag þar sem horfur í alþjóðamálum og tvíhliða samskipti ríkjanna voru efst á baugi.

    24. maí 2023Utanríkisráðuneytið, Evrópusamvinna, Úkraína, Utanríkismál

    Úkraína og losunarheimildir til umfjöllunar á EES-ráðsfundi

    EES-ráðið, sem skipað er utanríkisráðherrum EFTA-ríkjanna í EES – Íslands, Liechtenstein og Noregs – og fulltrúum Evrópusambandsins, kom saman til reglulegs fundar í Brussel í dag. Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir utanríkisráðherra ræddi þar meðal annars viðskiptakerfi um losunarheimildir í flugi og lét í ljós ánægju með að fyrir lægju útlínur að lausn um hvernig það yrði útfært gagnvart Íslandi.

    23. maí 2023Utanríkisráðuneytið, Öryggis- og varnarmál, Úkraína, Utanríkismál

    Stuðningur við eldsneytisflutninga úkraínska hersins

    Til að styðja við varnarbaráttu Úkraínu gegn innrásarliði Rússlands hafa íslensk stjórnvöld fest kaup á tíu olíuflutningabílum fyrir úkraínska herinn. Tveir bílar voru afhentir í nýliðinni viku. ​

    22. maí 2023Utanríkisráðuneytið, Utanríkismál

    Utanríkisráðherra í opinberri vinnuheimsókn í Sviss

    Tvíhliða samstarf Íslands og Sviss á, m.a. á sviði mannréttinda, efnahagsmála og grænna lausna voru meðal umræðuefna á fundi Þórdísar Kolbrúnar Reykfjörð Gylfadóttur utanríkisráðherra og Ignaccio Cassis utanríkisráðherra Sviss í Zürich dag. Utanríkisráðherra er þar stödd í opinberri vinnuheimsókn.

    22. maí 2023Utanríkisráðuneytið, Öryggis- og varnarmál, Utanríkismál

    Norðurhópurinn ræðir þróun öryggismála í Norður-Evrópu

    Í dag, 22. maí, funduðu varnarmálaráðherrar Norðurhópsins í Legionowo í nágrenni Varsjá undir formennsku Póllands. Rætt var um ógnir og áskoranir í Norðaustur-Evrópu í kjölfar árásarstríðs Rússlands gegn Úkraínu sem hefur umbreytt stöðu öryggismála.

    22. maí 2023Utanríkisráðuneytið, Alþjóðamál, Evrópuráðið, Utanríkismál

    Formennsku Íslands í Evrópuráðinu lokið

    Leiðtogafundur Evrópuráðsins í Reykjavík markaði lok hálfs árs formennsku Íslands í ráðinu. Lettland hefur nú tekið við formennskukeflinu.

    19. maí 2023Utanríkisráðuneytið, Netöryggi, Öryggis- og varnarmál, Utanríkismál

    Ísland aðili að netvarnarsetri Atlantshafsbandalagsins

    Ísland varð fyrr í þessari viku formlegur aðili að netöryggissetri Atlantshafsbandalagsins (NATO Cooperative Cyber Defence Centre of Excellence) í Tallin í Eistlandi. Fáni Íslands var dreginn að húni við hátíðlega athöfn 16. maí þar sem Harald Aspelund, sendiherra Íslands gagnvart Eistlandi, flutti ávarp.

    14. maí 2023Utanríkisráðuneytið, Evrópuráðið, Öryggis- og varnarmál, Utanríkismál

    Bretar sinna loftrýmisgæslu við Ísland

    Í tengslum við leiðtogafund Evrópuráðsins sem haldinn verður í Reykjavík dagana 16.-17. maí sinnir flugsveit breska flughersins loftrýmisgæslu við Ísland.

    13. maí 2023Utanríkisráðuneytið, Utanríkismál, Evrópuráðið, Mannréttindi, Mannréttindi og jafnrétti

    Vel heppnaðri ráðstefnu IDAHOT+ Forum lokið

    Árlegri ráðstefnu IDAHOT+ Forum lauk í Hörpu í gær en um er að ræða einn mikilvægasta vettvang hinsegin málefna í Evrópu. Ráðstefnan var liður í formennsku Íslands Evrópuráðinu sem lýkur á leiðtogafundinum í næstu viku. Utanríkisráðherra brýndi í ávarpi sínu komandi formennskuríki til að láta sig málefni hinsegin fólks sérstaklega varða.

    12. maí 2023Utanríkisráðuneytið, Evrópuráðið, Utanríkismál

    Gjöf Íslands til Evrópuráðsins vegna leiðtogafundarins

    Í tilefni af leiðtogafundi Evrópuráðsins gefur Ísland ráðherranefnd ráðsins útskorinn fundarhamar eftir listakonuna Sigríði Kristjánsdóttur. Fyrirmynd hamarsins er frægur fundarhamar Ásmundar Sveinssonar myndhöggvara.

    05. maí 2023Utanríkisráðuneytið, Evrópusamvinna, Utanríkismál

    Góður árangur Íslands í frammistöðumati ESA

    ​Innleiðingarhalli Íslands hefur minnkað um helming á undanförnum misserum,​úr tveimur prósentum í eitt prósent. Þetta kemur fram í nýbirtu frammistöðumati frá Eftirlitsstofnun EFTA (ESA). Til samanburðar var árangur Noregs 1,5 prósent og Liechtenstein 0,4 prósent.

    05. maí 2023Utanríkisráðuneytið, Öryggis- og varnarmál, Utanríkismál

    Fastafloti Atlantshafsbandalagsins með viðkomu á Íslandi

    Fimm skip úr fastaflota Atlantshafsbandalagsins hafa nú skamma viðdvöl í Reykjavíkuhöfn. Skipin tóku þátt í kafbátaleitaræfingunni Dynamic Mongoose sem lýkur formlega í dag.

    03. maí 2023Utanríkisráðuneytið, Öryggis- og varnarmál, Utanríkismál

    Sameiginlegt lið Íslands og Svíþjóðar sigurvegari netvarnaæfingar Atlantshafsbandalagsins

    Sameiginlegt lið Íslands og Svíþjóðar bar sigur úr býtum á netvarnaræfingunni Skjaldborg (Locked Shields) sem fram fór á dögunum. Æfingin var skipulögð og haldin af netöryggissetri Atlantshafsbandalagsins í Tallinn í Eistlandi og er þetta í fyrsta sinn sem Ísland tekur þátt.

    28. apr. 2023Utanríkisráðuneytið, Úkraína, Utanríkismál

    Utanríkisráðherrar NB8-ríkjanna í Odesa í Úkraínu

    Utanríkisráðherrar Norðurlanda og Eystrasaltsríkja heimsóttu í dag úkraínsku hafnarborgina Odesa til að árétta stuðning sinn við stjórnvöld í landinu og undirstrika mikilvægi þess að kornútflutningur frá borginni gangi hindranalaust fyrir sig.

    26. apr. 2023Utanríkisráðuneytið, Öryggis- og varnarmál, Utanríkismál

    Bandarískur kafbátur í þjónustuheimsókn

    Fyrsta þjónustuheimsókn kafbáts á vegum bandaríska sjóhersins í íslenska landhelgi fór fram fyrr í dag. Vel gekk að flytja kost um borð í bátinn.

    25. apr. 2023Utanríkisráðuneytið, Utanríkismál

    Umsækjendur um stöðu fjölmiðlafulltrúa utanríkisráðuneytisins

    Alls barst 21 umsókn um stöðu fjölmiðlafulltrúa utanríkisráðuneytisins sem auglýst var þann 22 mars 2023 en umsóknarfrestur rann út 12. apríl sl. Einn umsækjandi dró umsóknina til baka.

    24. apr. 2023Utanríkisráðuneytið, Evrópuráðið, Úkraína, Utanríkismál

    Leiðtogafundurinn og formennska Íslands til umræðu á fundi utanríkisráðherra ESB

    Undirbúningur fyrir leiðtogafund Evrópuráðsins í Reykjavík dagana 16. og 17. maí var aðalumfjöllunarefni fundar Þórdísar Kolbrúnar Reykfjörð Gylfadóttur utanríkisráðherra og utanríkisráðsherra Evrópusambandsins sem haldinn var í Lúxemborg í dag.

    24. apr. 2023Utanríkisráðuneytið, Öryggis- og varnarmál, Utanríkismál

    Kafbátaleitaræfingin Dynamic Mongoose 2023 hafin

    Kafbátaeftirlitsæfingin Dynamic Mongoose 2023 fer fram dagana 24. apríl til 5. maí á hafsvæðinu milli Íslands og Noregs. Æfingin er á vegum Atlantshafsbandalagsins en Ísland er að þessu sinni gestgjafaríki hennar.

    24. apr. 2023Utanríkisráðuneytið, Öryggis- og varnarmál, Utanríkismál

    Rætt um þróun öryggismála og vaxandi varnarsamstarf Íslands og Bandaríkjanna

    Árlegt samráð Íslands og Bandaríkjanna um öryggis- og varnarmál fór fram í Washington föstudaginn 21. apríl. Öryggishorfur í kjölfar árásarstríðs Rússlands gegn Úkraínu, ásamt auknum varnarviðbúnaði Atlanthafsbandalagsins og varnarsamvinna ríkjanna voru meðal helstu umræðuefna fundarins.

    19. apr. 2023Utanríkisráðuneytið, Utanríkismál, Alþjóðamál, Evrópuráðið, Forsætisráðuneytið

    Upplýsingar um götulokanir vegna leiðtogafundar

    Leiðtogafundur Evrópuráðsins verður haldinn í Hörpu dagana 16. og 17. maí næstkomandi. Um 40 leiðtogar hafa boðað komu sína og ljóst að umfang á öryggisráðstöfunum verður mikið. Svæðið í kringum Hörpu og í Kvosinni verður lokað fyrir umferð almennra ökutækja, nema viðbragðsaðila, frá kl. 23 mánudaginn 15. maí til kl. 18 miðvikudaginn 17. maí. Mynd af lokunarsvæðinu má finna hér neðar í fréttinni.

    18. apr. 2023Utanríkisráðuneytið, Öryggis- og varnarmál, Utanríkismál

    Bandarískir kafbátar í þjónustuheimsókn

    Utanríkisráðherra hefur tilkynnt stjórnvöldum í Bandaríkjunum að kjarnorkuknúnum kafbátum bandaríska sjóhersins verði heimilt að hafa stutta viðkomu við Ísland til að taka á móti kosti og skipta út áhafnarmeðlimum. Þessi ákvörðun utanríkisráðherra er liður í stefnu íslenskra stjórnvalda að styðja við aukið eftirlit og viðbragðsgetu bandalagsríkja á Norður-Atlantshafi.

    17. apr. 2023Utanríkisráðuneytið, Alþjóðamál, Þróunarsamvinna, Sameinuðu þjóðirnar, UN Women, UNICEF, Utanríkismál

    Nýir rammasamningar við landsnefndir UN Women og UNICEF og Félag Sameinuðu þjóðanna

    Utanríkisráðherra hefur undirritað rammasamninga við landsnefndir UN Women og UNICEF á Íslandi auk Félags Sameinuðu þjóðanna á Íslandi. Samningarnir ná til kynningar- og fræðslumála á sviði alþjóðlegar þróunarsamvinnu og mannúðaraðstoðar.

    14. apr. 2023Utanríkisráðuneytið, Evrópuráðið, Mannréttindi, Utanríkismál

    Leiðtogar Evrópuráðsins lýsa yfir áhyggjum af heilsu Navalní

    Þungum áhyggjum af hrakandi heilsu rússneska stjórnarandstæðingsins Alexei Navalní og illri meðferð rússneskra stjórnvalda á honum eru látnar í ljós í yfirlýsingu sem Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir, utanríkisráðherra og forseti ráðherranefndar Evrópuráðsins, Tiny Kox forseti Evrópuráðsþingsins og Marija Pejčinović Burić, aðalframkvæmdastjóri Evrópuráðsins hafa sent frá sér. ​

    14. apr. 2023Utanríkisráðuneytið, Alþjóðamál, Úkraína, Utanríkismál

    Ísland styrkir sjóði Alþjóðabankans um enduruppbyggingu í Úkraínu

    Ísland hefur ákveðið að leggja Úkraínu til 700 milljónir króna í gegnum sjóði Alþjóðabankans og var greint frá þeirri ákvörðun á fundi um málefni Úkraínu sem haldinn var í tengslum við vorfundi Alþjóðabankans og Alþjóðagjaldeyrissjóðsins í Washington D.C. á miðvikudag.

    13. apr. 2023Utanríkisráðuneytið, Úkraína, Utanríkismál

    Ísland styrkir innviðaverkefni UNDP í Úkraínu

    Íslensk stjórnvöld ætla að veita 72 milljónum króna til innviðaverkefnis Þróunaráætlunar Sameinuðu þjóðanna í Úkraínu. Markmiðið er að styrkja grunnorkuinnviði í landinu sem eru víða í lamasessi vegna árása Rússlands.

    12. apr. 2023Utanríkisráðuneytið, Öryggis- og varnarmál, Úkraína, Utanríkismál

    Rætt um þróun öryggismála í Norður-Evrópu

    Yfirmenn herafla þátttökuríkja í sameiginlegu viðbragðssveitarinni (Joint Expeditionary Force, JEF) ræddu þróun öryggismála og samstarf um viðbúnað og viðbragð á Norður-Atlantshafi, norðurslóðum og Eystrasalti á fundi í Helsinki í dag.

    11. apr. 2023Utanríkisráðuneytið, Alþjóðamál, Þróunarsamvinna, Utanríkismál

    Jákvæð niðurstaða í jafningjarýni á þróunarsamvinnu Íslands

    Jafningjarýni Þróunarsamvinnunefndar OECD (DAC) á alþjóðlegri þróunarsamvinnu Íslands var tekin fyrir á fundi nefndarinnar í París fyrir helgi. Niðurstöðurnar eru afar jákvæðar fyrir Ísland en þar kemur meðal annars fram að með skýrri og einbeittri nálgun á tiltekin málefnasvið, stofnanir og samstarfslönd, hafi Ísland nýtt styrkleika sína í þróunarsamvinnu og hámarkað framlag sitt til málaflokksins þrátt fyrir smæð.

    04. apr. 2023Utanríkisráðuneytið, Mannréttindi, Utanríkismál

    Ályktun um stöðu mannréttinda í Íran samþykkt

    Mannréttindaráð Sameinuðu þjóðanna samþykkti í dag árlega ályktun um ástand mannréttinda í Íran sem ríkjahópur undir forystu Íslands lagði fram. Ályktunin tryggir áframhaldandi umboð sérstaks skýrslugjafa til að fylgjast með og gefa mannréttindaráðinu reglubundna skýrslu um ástand mannréttindamála í Íran.

    31. mar. 2023Utanríkisráðuneytið, Úkraína, Evrópuráðið, Utanríkismál

    Ár liðið frá voðaverkunum í Bucha

    Fórnarlamba voðaverka rússneska hersins í úkraínska bænum Bucha var minnst á ráðstefnu sem haldin var í Kænugarði í dag. Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir ávarpaði ráðstefnuna.

    30. mar. 2023Utanríkismál, Evrópuráðið, Mennta- og barnamálaráðuneytið

    Vel heppnuð ráðstefna um fjárfestingu í börnum

    Ásmundur Einar Daðason, mennta- og barnamálaráðherra, og Evrópuráðið stóðu í dag fyrir ráðstefnu á Hótel Reykjavík Natura um kosti þess að fjárfesta í börnum. Viðburðinn var hluti af formennsku Íslands í ráðherranefnd Evrópuráðsins.

    30. mar. 2023Utanríkisráðuneytið, Úkraína, Utanríkismál

    Ráðuneytisstjórar NB8-ríkjanna ræddu stöðuna vegna Úkraínu

    Stuðningur við Úkraínu vegna innrásar Rússlands og staða alþjóðakerfisins voru helstu umfjöllunarefnin á fundi ráðuneytisstjóra utanríkisráðuneyta Norðurlanda og Eystrasaltsríkja (NB8) sem fram fór í Ríga í Lettlandi í gær. Martin Eyjólfsson ráðuneytisstjóri utanríkisráðuneytisins tók þátt í fundinum fyrir Íslands hönd.

    30. mar. 2023Utanríkisráðuneytið, Utanríkismál, Sendiráð Íslands í Washington DC, Sendiskrifstofa

    Íslandsvinahópur bandarískra þingmanna stofnaður

    Stofnfundur sérstaks Íslandsvinahóps meðal þingmanna fulltrúadeildar Bandaríkjaþings, svokallaðs Iceland Caucus, fór fram í dag. Í forsvari fyrir hópnum eru þau Chellie Pingree, þingkona Demókrataflokksins frá Maine, og Greg Murphy en hann er þingmaður Repúblikanaflokksins frá Norður Karólínu.

    • First
    • Prev
    • 13
    • 14
    • 15
    • 16
    • 17
    • Next
    • Last
    Logo
    • Um vefinn
    • Áskrift
    • Veftré
    • Fyrirvari
    +354 545 8000
    Staðsetning ráðuneyta, opnunartími og netföng
    Hafa samband

    Hafa samband