Coat of arms
Stjórnarráð Íslands
  • Verkefni
    • Almannatryggingar og lífeyrir
    • Almannaöryggi
    • Atvinnuvegir
    • Auðlindir
    • Efnahagsmál
    • Félags- og fjölskyldumál
    • Fjarskipti
    • Húsnæðis- og mannvirkjamál
    • Líf og heilsa
    • Kosningar
    • Lög og réttur
    • Mannauðsmál ríkisins
    • Mannréttindi og jafnrétti
    • Menningarmál
    • Menntamál
    • Neytendamál
    • Opinber fjármál
    • Persónuréttur
    • Rekstur og eignir ríkisins
    • Samgöngur
    • Sjálfbært Ísland
    • Skipulagsmál
    • Stjórnskipan og þjóðartákn
    • Sveitarstjórnir og byggðamál
    • Trú og lífsskoðun
    • Umhverfi og náttúruvernd
    • Upplýsingatæknimál ríkisins
    • Utanríkismál
    • Útlendingar
    • Vinnumál
    • Vísindi, nýsköpun og rannsóknir
    • Öll verkefni
    • Efst á baugi
      • Fréttir
      • Nýjast
      • Fyrirspurnir frá Alþingi
      • Fyrir fjölmiðla
      • Eldri fréttir
    • Gögn
      • Rit og skýrslur
      • Úrskurðir og álit
      • Eyðublöð
      • Stefnur og áætlanir
      • Styrkir og sjóðir
      • Hugtakasafn
      • Lög og reglugerðir
      • Málaskrár ráðuneyta
      • Mælaborð
      • Hönnunarstaðall
    • Ráðuneyti
      • Forsætisráðuneytið
      • Atvinnuvegaráðuneytið
      • Dómsmálaráðuneytið
      • Félags- og húsnæðismálaráðuneytið
      • Fjármála- og efnahagsráðuneytið
      • Heilbrigðisráðuneytið
      • Innviðaráðuneytið
      • Menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðuneytið
      • Mennta- og barnamálaráðuneytið
      • Umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytið
      • Utanríkisráðuneytið
      • Sendiskrifstofur
      • Samstarfsráðherra Norðurlanda
      • Starfsfólk
      • Stofnanir
      • Nefndir
      • Símanúmer og staðsetning ráðuneyta
      • Umbra
    • Ríkisstjórn
      • Skipan ríkisstjórnar
      • Ríkisstjórnarfundir
      • Stjórnarsáttmáli
      • Ráðherranefndir
      • Reglur um starfshætti
      • Reglur um ferðakostnað og starfskjör ráðherra
      • Siðareglur, hagsmunir og hagsmunaverðir
      • Þingmálaskrá
      • Ríkisráð
      • Sögulegt efni
      • Fyrir fjölmiðla
    EN
    • Verkefni
      • Almannatryggingar og lífeyrir
      • Almannaöryggi
      • Atvinnuvegir
      • Auðlindir
      • Efnahagsmál
      • Félags- og fjölskyldumál
      • Fjarskipti
      • Húsnæðis- og mannvirkjamál
      • Líf og heilsa
      • Kosningar
      • Lög og réttur
      • Mannauðsmál ríkisins
      • Mannréttindi og jafnrétti
      • Menningarmál
      • Menntamál
      • Neytendamál
      • Opinber fjármál
      • Persónuréttur
      • Rekstur og eignir ríkisins
      • Samgöngur
      • Sjálfbært Ísland
      • Skipulagsmál
      • Stjórnskipan og þjóðartákn
      • Sveitarstjórnir og byggðamál
      • Trú og lífsskoðun
      • Umhverfi og náttúruvernd
      • Upplýsingatæknimál ríkisins
      • Utanríkismál
      • Útlendingar
      • Vinnumál
      • Vísindi, nýsköpun og rannsóknir
      • Öll verkefni
    • Efst á baugi
      • Fréttir
      • Nýjast
      • Fyrir fjölmiðla
      • Eldri fréttir
      • Fyrirspurnir frá Alþingi
    • Gögn
      • Rit og skýrslur
      • Úrskurðir og álit
      • Eyðublöð
      • Stefnur og áætlanir
      • Styrkir og sjóðir
      • Hugtakasafn
      • Lög og reglugerðir
      • Málaskrár ráðuneyta
      • Mælaborð
      • Hönnunarstaðall
    • Ráðuneyti
      • Forsætisráðuneytið
      • Atvinnuvegaráðuneytið
      • Dómsmálaráðuneytið
      • Félags- og húsnæðismálaráðuneytið
      • Fjármála- og efnahagsráðuneytið
      • Heilbrigðisráðuneytið
      • Innviðaráðuneytið
      • Menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðuneytið
      • Mennta- og barnamálaráðuneytið
      • Umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytið
      • Utanríkisráðuneytið
      • Sendiskrifstofur
      • Samstarfsráðherra Norðurlanda
      • Starfsfólk
      • Stofnanir
      • Nefndir
      • Símanúmer og staðsetning ráðuneyta
      • Umbra
    • Ríkisstjórn
      • Skipan ríkisstjórnar
      • Ríkisstjórnarfundir
      • Stjórnarsáttmáli
      • Ráðherranefndir
      • Reglur um starfshætti
      • Reglur um ferðakostnað og starfskjör ráðherra
      • Siðareglur, hagsmunir og hagsmunaverðir
      • Þingmálaskrá
      • Ríkisráð
      • Sögulegt efni
      • Fyrir fjölmiðla
    Close navigation
    Utanríkismál
    Efnisorð

    Ekkert fannst

    Tegund
    Tegund

    Leita eftir efnisorðum

    Sýnir 751–800 af 1862
    Raða eftir:
    29. mar. 2023Utanríkisráðuneytið, Alþjóðamál, Þróunarsamvinna, Fjölþjóðastofnanir, Sameinuðu þjóðirnar, Utanríkismál

    Ísland eykur stuðning við friðaruppbyggingu og sáttamiðlun á vegum Sameinuðu þjóðanna

    Íslensk stjórnvöld hafa gert nýjan fjögurra ára samstarfssamning við skrifstofu alþjóðastjórnmála og friðaruppbyggingar hjá Sameinuðu þjóðunum, Department of Political and Peacebuilding Affairs, DPPA. Framlag Íslands verður tvöfalt hærra en fyrri samningur og framlagið nemur 20 milljónum króna á ári í takt við langtímaáætlun DPPA, sem gildir næstu fjögur árin, 2023-2026.

    28. mar. 2023Utanríkisráðuneytið, Utanríkisviðskipti, Utanríkismál

    EFTA og Moldóva ná samkomulagi um fríverslunarsamning

    EFTA-ríkin og Moldóva hafa komist að samkomulagi um fríverslunarsamning sem undirritaður verður á næsta ráðherrafundi EFTA í Liechtenstein í júní næstkomandi. Viðræðurnar tóku alls tvö ár og fóru lengst af fram í skugga innrásar Rússlands í Úkraínu. Einar Gunnarsson, sendiherra Íslands í Genf, leiddi viðræðurnar fyrir hönd EFTA-ríkjanna.

    28. mar. 2023Mennta- og barnamálaráðuneytið, Evrópuráðið, Utanríkismál

    Streymi: Fjárfesting í börnum – lykillinn að farsæld

    Ásmundur Einar Daðason, mennta- og barnamálaráðherra, og Evrópuráðið standa fyrir eins dags ráðstefnu fimmtudaginn 30. mars um kosti þess að fjárfesta í börnum. Viðburðinn er skipulagður sem hluti af formennsku Íslands í ráðherranefnd Evrópuráðsins.

    28. mar. 2023Utanríkisráðuneytið, Alþjóðamál, Norrænt samstarf, Utanríkismál

    Einarður stuðningur Norðurlandanna við Úkraínu

    Staða mála á alþjóðavettvangi var rædd á fjarfundi utanríkisráðherra Norðurlandanna í gær. Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir utanríkisráðherra stýrði fundinum þar sem Ísland gegnir formennsku í samstarfi utanríkisráðherranna á þessu ári. Einarður stuðningur ríkjanna við Úkraínu og samskipti stórveldanna voru ofarlega á baugi ásamt formennsku Íslands í Evrópuráðinu og málefnum Balkanskaga og Miðausturlanda.

    28. mar. 2023Barnaréttur, Mennta- og barnamálaráðuneytið, Evrópuráðið, Utanríkismál

    Stýrinefnd Evrópuráðsins um réttindi barna fundar á Íslandi

    Ísland heldur fyrsta fund nefndarinnar utan Strassborgar.

    24. mar. 2023Utanríkisráðuneytið, Úkraína, Sendiráð Íslands í Kaupmannahöfn, Utanríkismál

    Úkraínustríðið efst á baugi utanríkisráðherrafundar Íslands og Danmerkur

    Stríðið í Úkraínu og formennska Íslands í Evrópuráðinu auk tvíhliða samskipta voru aðalumræðuefnin á fundi Þórdísar Kolbrúnar Reykfjörð Gylfadóttur utanríkisráðherra og Lars Løkke Rasmussen utanríkisráðherra Danmerkur í Kaupmannahöfn í dag.

    23. mar. 2023Innviðaráðuneytið, Utanríkismál, Byggðamál, Evrópuráðið, Evrópusamvinna, Sveitarfélög, Sveitarstjórnir og byggðamál, Utanríkisráðuneytið

    Innviðaráðherra á fundum Evrópuráðsins

    Sigurður Ingi Jóhannsson, innviðaráðherra, flutti ávarp á ráðstefnu sveitar- og héraðsstjórna í Evrópuráðinu í Strassborg í gær.

    22. mar. 2023Utanríkisráðuneytið, Utanríkisviðskipti, Utanríkismál

    Gildi í alþjóðaviðskiptum í brennidepli á ársfundi Íslandsstofu

    Þróun alþjóðamála á síðustu misserum gefur tilefni til að endurmeta þá hugmynd að samtvinnaðir viðskiptahagsmunir ríkja dugi til þess að tryggja friðsæld og framfarir. Þetta kom fram í ávarpi Þórdísar Kolbrúnar Reykfjörð Gylfadóttur utanríkisráðherra á ársfundi Íslandsstofu sem haldinn var í Grósku í dag undir yfirskriftinni "Skipta gildi máli í alþjóðaviðskiptum?".

    22. mar. 2023Utanríkisráðuneytið, Alþjóðamál, Öryggis- og varnarmál, Úkraína, Utanríkismál

    Utanríkisráðherra ávarpaði ráðstefnu um þjóðaröryggi og alþjóðasamstarf

    Í krafti smæðarinnar getur Ísland lagt meira af mörkum en margir telja í alþjóðasamstarfi á sviði öryggis- og varnarmála. Þetta er á meðal þess sem kom fram í opnunarerindi Þórdísar Kolbrúnar Reykfjörð Gylfadóttur utanríkisráðherra á málstofu um alþjóðasamvinnu og áskoranir samtímans á ráðstefnu þjóðaröryggisráðs og Alþjóðamálastofnunar Háskóla Íslands í Hörpu í dag.

    21. mar. 2023Utanríkisráðuneytið, Öryggis- og varnarmál, Úkraína, Utanríkismál

    Þjálfun úkraínskra hermanna í sprengjuleit og sprengjueyðingu hafin

    Þjálfun úkraínskra hermanna á sviði sprengjuleitar og sprengjueyðingar hófst í Litáen í vikunni. Um er að ræða samstarfsverkefni Norðurlandanna og Litáen og annast litáískir, norskir, sænskir og íslenskir sprengjusérfræðingar framkvæmdina.

    17. mar. 2023Utanríkisráðuneytið, A-Afríka, Malaví, WFP, Sendiráð Íslands í Lilongwe, Utanríkismál, Sendiskrifstofa

    Neyðarframlag vegna náttúruhamfara í Malaví

    Íslensk stjórnvöld hafa ákveðið að verja 500.000 Bandaríkjadölum (jafnvirði 71 milljóna króna) til Matvælaáætlunar Sameinuðu þjóðanna, WFP, vegna neyðarástands sem skapast hefur í Malaví af völdum hitabeltisstormsins Freddy. Framlagið nýtist stjórnvöldum í Malaví til björgunaraðgerða, við flutning á neyðargögnum og til þess að kaupa mat fyrir þær þúsundir sem reiða sig á matvælastuðning eftir hamfarirnar.

    16. mar. 2023Utanríkisráðuneytið, Evrópuráðið, Úkraína, Utanríkismál

    Yfirlýsing utanríkisráðherra ári eftir brottvísun Rússlands úr Evrópuráðinu

    Í dag er ár er liðið frá því að ráðherranefnd Evrópuráðsins samþykkti að vísa Rússlandi úr ráðinu. Af því tilefni sendi Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir, utanríkisráðherra og forseti ráðherranefndarinnar yfirlýsingu.

    15. mar. 2023Utanríkisráðuneytið, Evrópuráðið, Úkraína, Utanríkismál

    Sameiginleg yfirlýsing utanríkisráðherra Íslands og Úkraínu

    Í tilefni af heimsókn Katrínar Jakobsdóttur forsætisráðherra og Þórdísar Kolbrúnar Reykfjörð Gylfadóttur utanríkisráðherra til Úkraínu í gær gáfu þau Þórdís Kolbrún og Dmytro Kuleba, utanríkisráðherra Úkraínu, út sameiginlega yfirlýsingu. Yfirlýsinguna gefur Þórdís Kolbrún einnig sem forseti ráðherranefndar Evrópuráðsins.

    08. mar. 2023Utanríkisráðuneytið, Alþjóðamál, Þróunarsamvinna, Utanríkismál

    Ísland eykur stuðning sinn við UN Women, UNICEF og UNFPA

    Íslensk stjórnvöld hafa ákveðið að hækka kjarnaframlög til UN Women, UNICEF og UNFPA sem eru þrjár áherslustofnanir Íslands í þróunarsamvinnu innan Sameinuðu þjóðanna. Hækkun framlaganna er umtalsverð og er hluti af aukinni áherslu íslenskra stjórnvalda á þróunarsamvinnu.

    03. mar. 2023Utanríkisráðuneytið, Evrópuráðið, Úkraína, Utanríkismál

    Ráðuneytisstjóri tók þátt í fundi stjórnarnefndar Evrópuráðsþingsins

    Framtíð fjölþjóðahyggju í Evrópu í ljósi innrásar Rússlands í Úkraínu var helsta umræðuefni fundar stjórnarnefndar Evrópuráðsþingsins sem fram fór í Haag í dag. Martin Eyjólfsson ráðuneytisstjóri utanríkisráðuneytisins sótti fundinn fyrir hönd utanríkisráðherra.

    02. mar. 2023Utanríkisráðuneytið, Fjármála- og efnahagsráðuneytið, Lög og réttur, Utanríkismál, Úkraína, Dómsmálaráðuneytið

    Rússlandi vikið úr fjármálaaðgerðahópnum FATF

    Alþjóðlegur fjármálaaðgerðahópur ríkja um aðgerðir gegn peningaþvætti og fjármögnun hryðjuverka (FATF) hefur ákveðið að víkja Rússlandi úr hópnum vegna innrásarinnar í Úkraínu. Ákvörðunin var tekin á allsherjarfundi FATF sem lauk þann 24. febrúar sl. þegar ár var liðið frá upphafi innrásarinnar.

    28. feb. 2023Utanríkisráðuneytið, Alþjóðamál, Utanríkisviðskipti, Utanríkismál

    Tvísköttunarsamningur Íslands og Andorra

    Tvísköttunarsamningur Íslands og Andorra var undirritaður í Genf í dag. Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir utanríkisráðherra og Maria Ubach Font utanríkisráðherra Andorra skrifuðu undir samninginn.

    27. feb. 2023Utanríkisráðuneytið, Utanríkismál, Mannréttindi, Úkraína, Mannréttindi og jafnrétti

    Utanríkisráðherra ávarpaði mannréttindaráð Sameinuðu þjóðanna

    Mikilvægi varðstöðu um lýðræði, frelsi og mannréttindi bar hæst í ávarpi utanríkisráðherra við upphaf 52. lotu mannréttindaráðs Sameinuðu þjóðanna í Genf í dag. Ráðherra tók auk þess þátt í mannúðarráðstefnu um Jemen og flutti ræðu fyrir hönd Norðurlanda á viðburði til stuðnings Úkraínu.

    24. feb. 2023Utanríkisráðuneytið, Alþjóðamál, Úkraína, Utanríkismál

    Rússar verði dregnir til ábyrgðar

    Í dag, 24. febrúar, er ár liðið frá því að rússnesk stjórnvöld hófu innrásarstríð sitt í Úkraínu. Alþjóðasamfélagið hefur komið saman á þessum tímamótum til að sýna úkraínsku þjóðinni stuðning í baráttu sinni.

    24. feb. 2023Utanríkisráðuneytið, Alþjóðamál, Utanríkismál

    Ísland sendir neyðarbirgðir til Tyrklands

    Fraktflugvél á vegum íslenskra stjórnvalda flaug í nótt með 100 tonn af neyðarbirgðum til jarðskjálftasvæðanna í Tyrklandi þar sem milljónir manna eru húsnæðislausar. Þá hefur utanríkisráðherra ákveðið að veita 50 milljón króna neyðarframlagi til Sýrlands vegna ástandsins sem skapaðist þar í kjölfar skjálftanna fyrr í mánuðinum.

    23. feb. 2023Utanríkisráðuneytið, Úkraína, Fastanefnd Íslands hjá S.þ., Utanríkismál, Sendiskrifstofa

    Ályktun um frið í Úkraínu hlaut afgerandi stuðning

    Yfirgnæfandi meirihluti aðildarríkja Sameinuðu þjóðanna samþykkti í kvöld ályktun um réttlátan og viðvarandi frið í Úkraínu. Tveggja daga neyðarfundi um Úkraínu í allsherjarþingi Sameinuðu þjóðanna lauk nú fyrir stundu.​

    23. feb. 2023Utanríkismál, Úkraína, Forsætisráðuneytið

    Yfirlýsing forsætisráðherra á Alþingi um stríðið í Úkraínu

    Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra flutti í dag á Alþingi sérstaka yfirlýsingu af því tilefni að á morgun, 24. febrúar, verður ár liðið frá innrás Rússlands í Úkraínu.

    22. feb. 2023Utanríkisráðuneytið, Evrópusamvinna, Utanríkisviðskipti, Utanríkismál

    EES-skýrslan rædd á Alþingi

    Framkvæmd EES-samningsins var tekin til sérstakrar umræðu á Alþingi í gær þar sem Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir utanríkisráðherra mælti fyrir árlegri skýrslu um málefnið.

    21. feb. 2023Utanríkisráðuneytið, Orka, Úkraína, Utanríkismál

    Raforkubúnaður af ýmsu tagi til Úkraínu

    Íslensk dreifi- og veitufyrirtæki hafa sent nauðsynlegan raforkubúnað af ýmsu tagi til Úkraínu. Með sendingunni er brugðist við þörf landsins fyrir ýmsan búnað sem mun nýtast til uppbyggingar á raforkukerfinu eftir árásir rússneska hersins.

    20. feb. 2023Utanríkisráðuneytið, Alþjóðamál, Úkraína, Utanríkismál

    Málefni Úkraínu efst á baugi á öryggisráðstefnunni í München

    Utanríkisráðherra tók þátt í árlegri ráðstefnu um öryggismál sem fór fram í München í Þýskalandi um helgina. Á ráðstefnunni koma saman ríflega eitt þúsund þátttakendur, þar á meðal fjölmargir þjóðarleiðtogar, utanríkisráðherrar og varnarmálaráðherrar ásamt fræðafólki og öðrum skoðanamótandi aðilum á sviði öryggis- og varnarmála.

    18. feb. 2023Utanríkisráðuneytið, Alþjóðamál, Jafnrétti, Mannréttindi, Utanríkismál

    Standa með konum í Afganistan og Íran

    Frelsisskerðing kvenna og stúlkna í Afganistan var til umræðu á morgunverðarfundi kvenkyns utanríkisráðherra í dag. Fundurinn var haldinn í tengslum við Öryggisráðstefnuna í München sem fer fram um helgina og Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir utanríkisráðherra sækir.

    16. feb. 2023Utanríkisráðuneytið, Utanríkisviðskipti, Utanríkismál

    Viðræður um rafræn viðskipti við Singapúr

    Singapúr og aðildarríki EFTA hafa sammælst um að hefja viðræður að samkomulagi um rafræn viðskipti. Þetta var ákveðið á fjarfundi fulltrúa EFTA-ríkjanna og Singapúr í morgun.

    15. feb. 2023Utanríkisráðuneytið, Úkraína, Fastanefnd Íslands hjá NATO, Utanríkismál, Öryggis- og varnarmál

    Efling fælingar og varna og aukinn stuðningur við Úkraínu

    Tveggja daga fundi varnarmálaráðherra Atlantshafsbandalagsins lauk í Brussel í dag 15. febrúar. Meginefni fundarins voru stuðningur við varnarbaráttu Úkraínu og efling sameiginlegs viðbúnaðar og varna bandalagins.

    14. feb. 2023Umhverfis-٫ orku- og loftslagsráðuneytið, Loftslagsmál, Umhverfi og náttúruvernd, Sendiráð Íslands í París, Fjármála- og efnahagsráðuneytið, Utanríkisráðuneytið, Utanríkismál, Sendiskrifstofa

    Nýtt alþjóðlegt verkefni um kortlagningu aðgerða til samdráttar í losun gróðurhúsalofttegunda á vettvangi OECD

    OECD hefur hleypt af stokkunum nýju alþjóðlegu verkefni um kortlagningu aðgerða til samdráttar í losun gróðurhúsalofttegunda (IFCMA). Ísland, sem aðildarríki OECD, tekur þátt í IFCMA í gegnum fjármála- og efnahagsráðuneytið, umhverfis-, orku- og loftlagsráðuneytið og fastanefnd Íslands gagnvart OECD í París.

    08. feb. 2023Utanríkisráðuneytið, Alþjóðamál, Þróunarsamvinna, Síerra Leóne, UNICEF, Utanríkismál

    Ísland styður við vatns- og hreinlætisverkefni í Síerra Leóne

    ​Nýju samstarfsverkefni Íslands, stjórnvalda í Síerra Leóne og Barnahjálpar Sameinuðu þjóðanna (UNICEF) um uppbyggingu vatns- og hreinlætisaðstöðu í sjávarbyggðum landsins var formlega hleypt af stokkunum við hátíðlega athöfn í fiskiþorpinu Goderich í dag.

    07. feb. 2023Utanríkisráðuneytið, Utanríkismál

    Sveitin leggur af stað til Tyrklands í kvöld

    Hópur íslenskra sérfræðinga á sviði aðgerðastjórnunar í rústabjörgun á hamfarasvæðum leggur af stað til jarðskjálftasvæðanna í Tyrklandi í kvöld.

    07. feb. 2023Utanríkisráðuneytið, Utanríkismál

    Íslenskir sérfræðingar á leið til hamfarasvæðanna í Tyrklandi

    Hópur íslenskra sérfræðinga á sviði aðgerðastjórnunar í rústabjörgun á hamfarasvæðum heldur brátt til jarðskjálftasvæðanna í Tyrklandi. Stefnt er að því að sveitin, sem starfar innan vébanda Slysavarnafélagsins Landsbjargar, fljúgi á vettvang með flugvél Landhelgisgæslunnar TF-SIF.

    03. feb. 2023Utanríkisráðuneytið, Utanríkismál, Evrópuráðið, Forsætisráðuneytið

    Forseti Kósovó í heimsókn á Íslandi

    Formennska Íslands í Evrópuráðinu, tvíhliðasamskipti og staða friðarviðræðna milli Serbíu og Kósovó voru efst á baugi á fundum Katrínar Jakobsdóttur forsætisráðherra og Þórdísar Kolbrúnar Reykfjörð Gylfadóttur utanríkisráðherra með Vjosa Osmani, forseta Kósovó, sem fram fóru hér á landi í gær.

    01. feb. 2023Utanríkisráðuneytið, Brexit, Utanríkisviðskipti, Utanríkismál

    Fríverslunarsamningur við Bretland gengur formlega í gildi

    Fríverslunarsamningur Íslands og Bretlands gengur formlega í gildi í dag, 1. febrúar. Sem kunnugt er var hafist handa við gerð hans á árinu 2020 vegna útgöngu Bretlands úr ESB og þar með EES-samningnum.

    31. jan. 2023Utanríkisráðuneytið, Loftslagsmál, Norðurslóðir, Norrænt samstarf, Úkraína, Utanríkismál

    Utanríkisráðherra á Arctic Frontiers-ráðstefnunni

    Innrás Rússlands í Úkraínu og afleiðingar hennar fyrir norðurslóðasamstarf voru efst á baugi í umræðum utanríkisráðherra Íslands, Noregs og Svíþjóðar og ráðuneytisstjóra finnska utanríkisráðuneytisins á ráðstefnunni Arctic Frontiers í Tromsø í dag. Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir utanríkisráðherra undirstrikaði hve skaðleg áhrif innrásin hefði haft á norðurslóðasamvinnu og ekki væri hægt að halda áfram eins og ekkert hefði í skorist.

    27. jan. 2023Utanríkisráðuneytið, Mannréttindi, Dómsmálaráðuneytið, Utanríkismál, Mennta- og barnamálaráðuneytið, Forsætisráðuneytið

    27. janúar helgaður minningu fórnarlamba helfararinnar

    Ákveðið hefur verið að 27. janúar ár hvert verði á Íslandi helgaður minningu fórnarlamba helfararinnar​ og þá verði vakin sérstök athygli á aðdraganda hennar og þeim hryllingi sem í henni fólst. Forsætisráðherra, utanríkisráðherra og mennta- og barnamálaráðherra hafa sammælst um að hefja vinnu til þess að móta þær leiðir sem farnar verða í þessu augnamiði hér á landi.

    25. jan. 2023Utanríkisráðuneytið, Norrænt samstarf, Úkraína, Utanríkismál

    Fyrsti fundur utanríkisráðherra Norðurlandanna undir formennsku Íslands

    Stuðningur við Úkraínu, norrænt samstarf og ástand og horfur á Vestur-Balkanskaga og í Afganistan voru helstu umræðuefnin á fjarfundi utanríkisráðherra Norðurlanda í dag. Fundur ráðherranna var sá fyrsti í yfirstandandi formennsku Íslands í norrænni samvinnu.

    24. jan. 2023Utanríkisráðuneytið, Alþjóðamál, Utanríkisviðskipti, Utanríkismál

    Efnahagssamráð Íslands og Bandaríkjanna

    Efnahagssamráð Íslands og Bandaríkjanna fór fram í utanríkisráðuneytinu í dag. Þetta er í fjórða skipti sem árlegt samráð ríkjanna á sviði efnahagsmála er haldið en það var formlega sett á fót árið 2019. Samráðið hefur reynst mikilvægur vettvangur til að taka upp mál sem varða hagsmuni Íslands og vekja athygli á hindrunum í vegi fyrirtækja og fjárfesta ásamt því að vera góður vettvangur til að skiptast á upplýsingum, skilgreina sameiginlega hagsmuni og efla enn frekar tvíhliða samskipti Íslands og Bandaríkjanna á sviði viðskipta- og efnahagsmála.

    20. jan. 2023Utanríkisráðuneytið, Öryggis- og varnarmál, Úkraína, Utanríkismál

    Ísland eykur stuðning sinn við Úkraínu

    Ísland mun veita tveimur milljónum punda, eða rúmlega 360 milljónum króna, í sérstakan stuðningssjóð fyrir Úkraínu (International Fund for Ukraine) sem bresk stjórnvöld settu á laggirnar á síðasta ári.Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir utanríkisráðherra tilkynnti um þetta á fundi ríkjahóps sem styður varnarbaráttu Úkraínu (Ukraine Defence Contact Group) sem haldinn var í Ramstein í Þýskalandi í dag.

    19. jan. 2023Utanríkisráðuneytið, Alþjóðamál, Utanríkismál

    Ráðherra kynnti áherslur Íslands í Evrópuráðinu fyrir fastafulltrúum ÖSE

    Staða Evrópu í kjölfar innrásarstríðs Rússlands í Úkraínu og mikilvægi þess að Evrópuráðið og ÖSE standi vörð um lýðræðislegar stofnanir, alþjóðalög og mannréttindi voru í brennidepli í ávarpi Þórdísar Kolbrúnar Reykfjörð Gylfadóttur utanríkisráðherra á fundi fastafulltrúa Öryggis- og samvinnustofnunar Evrópu (ÖSE) í Vín í dag.

    13. jan. 2023Utanríkisráðuneytið, Alþjóðamál, Utanríkismál

    Ísland veitir viðbótarframlag til mannúðaraðstoðar

    Í ljósi bágs mannúðarástands víða um heim ákvað Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir utanríkisráðherra að veita 250 milljón króna viðbótarframlag til alþjóðlegrar mannúðaraðstoðar um áramótin.

    12. jan. 2023Utanríkisráðuneytið, Forsætisráðuneytið, Félags- og húsnæðismálaráðuneytið, Norrænt samstarf, Utanríkismál

    Friður eitt helsta áhersluefnið í formennsku Íslands

    Formennsku Íslands í Norrænu ráðherranefndinni 2023 var ýtt úr vör á upphafsviðburði í Norræna húsinu í dag en hún hófst formlega á nýju ári. Yfirskrift formennskunnar er „Norðurlönd - afl til friðar“ og vísar til þeirrar áherslu sem lögð er á frið sem undirstöðu þeirra sameiginlegu gilda sem Norðurlönd byggja samvinnu sína á: mannréttindi, lýðræði og velferð.

    29. des. 2022Utanríkisráðuneytið, Utanríkismál, Alþjóðasamningar, Lög og réttur

    Gildistaka samninga um afmörkun landgrunnsins í Síldarsmugunni

    Tveir samningar um afmörkun landgrunnsins í Síldarsmugunni svonefndu öðluðust gildi fyrr í þessum mánuði. Samningarnir eru annars vegar við Noreg og við Danmörku fyrir hönd Færeyja hins vegar og taka til landgrunnsins handan 200 mílna lögsögumarkanna milli Færeyja, Íslands, meginlands Noregs og Jan Mayen.

    21. des. 2022Utanríkisráðuneytið, Lög og réttur, Utanríkismál, Menningar-٫ nýsköpunar- og háskólaráðuneytið

    Áfrýjunarnefnd EUIPO fellst á allar kröfur Íslands

    Áfrýjunarnefnd Hugverkastofu Evrópusambandsins hefur hafnað öllum kröfum bresku verslanakeðjunnar Iceland Foods Ltd. varðandi notkun á orðmerkinu Iceland. Fyrirtækið getur ekki lengur hindrað að íslensk fyrirtæki auðkenni sig með upprunalandinu við markaðssetningu á EES-svæðinu á vörum sínum og þjónustu.

    13. des. 2022Utanríkisráðuneytið, Norrænt samstarf, Utanríkismál

    Utanríkisráðherrar Norðurlanda og Kanada funduðu

    Innrás Rússlands í Úkraínu og áframhaldandi stuðningur Norðurlandanna og Kanada við Úkraínu, samstarf á norðurslóðum og málefni Atlantshafsbandalagsins voru efst á baugi á fjarfundi ríkjanna í dag. Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir utanríkisráðherra tók þátt í fundinum.

    13. des. 2022Utanríkisráðuneytið, Úkraína, Utanríkismál

    Viðbótarframlag til Úkraínu vegna vetrarkulda

    Ísland leggur þrjár milljónir bandaríkjadala í alþjóðlega sjóði sem hafa það að markmiði að styðja Úkraínu við að takast á við yfirvofandi vetrarhörkur. Tilkynnt var um framlagið á ráðstefnu í París í dag.

    12. des. 2022Utanríkisráðuneytið, Öryggis- og varnarmál, Úkraína, Utanríkismál

    Níu tonn af hlýju frá Íslandi til Úkraínu

    Níu tonn af hlýju frá Íslandi voru um borð í kanadískri herflutningavél sem flaug frá Keflavíkurflugvelli áleiðis til Úkraínu í dag. Um að ræða vetrarútbúnað fyrir varnarsveitir Úkraínu og almenning sem er annars vegar afrakstur sjálfboðavinnu þúsunda Íslendinga og hins vegar kaup utanríkisráðuneytisins á margvíslegum vetrarbúnaði.

    10. des. 2022Utanríkisráðuneytið, Evrópuráðið, Mannréttindi, Úkraína, Fastanefnd Íslands hjá Evrópuráðinu, Utanríkismál

    Áhersla á aðgerðir gegn refsileysi fyrir brot Rússa í Úkraínu

    Í tilefni alþjóðlega mannréttindadagsins í dag 10. desember vekur utanríkisráðherra, í hlutverki sínu sem forseti ráðherranefndar Evrópuráðsins, sérstaka athygli á mikilvægi aðgerða gegn refsileysi fyrir þau mannréttindabrot og aðra glæpi sem Rússar hafa framið í Úkraínu. Fastafulltrúi Úkraínu hjá Evrópuráðinu ræddi stöðuna í Úkraínu og ábyrgðarskyldu vegna glæpa í tengslum við innrásina á opnum fundi í Reykjavík í gær.

    09. des. 2022Utanríkisráðuneytið, Alþjóðamál, Þróunarsamvinna, Afríka, Malaví, WFP, Utanríkismál

    Áratugur frá upphafi samstarfs um heimaræktaðar skólamáltíðir

    Ísland var fyrst framlagsríkja til að taka höndum saman við Matvælaáætlun Sameinuðu þjóðanna, WFP, um næringaríkar heimaræktaðar skólamáltíðir fyrir grunnskólanemendur í Malaví. Fyrir réttum tíu árum var samstarfið innsiglað með hátíð í Kankhande skólanum í Mangochi héraði. Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir utanríkisráðherra heimsótti einmitt þann skóla í dag í vinnuferð sinni í Malaví til að kynna sér verkefnið.

    09. des. 2022Dómsmálaráðuneytið, Utanríkismál, Alþjóðamál, Evrópusamvinna, Flóttafólk, Landamæraeftirlit, Schengen-samstarfið, Almannaöryggi

    Dómsmálaráðherra á Schengen fundi

    Ráðherrar fóru yfir innra öryggi Schengen og stöðuna á ytri landamærum á fundi Schengen-ráðsins

    • First
    • Prev
    • 14
    • 15
    • 16
    • 17
    • 18
    • Next
    • Last
    Logo
    • Um vefinn
    • Áskrift
    • Veftré
    • Fyrirvari
    +354 545 8000
    Staðsetning ráðuneyta, opnunartími og netföng
    Hafa samband

    Hafa samband