Coat of arms
Stjórnarráð Íslands
  • Verkefni
    • Almannatryggingar og lífeyrir
    • Almannaöryggi
    • Atvinnuvegir
    • Auðlindir
    • Efnahagsmál
    • Félags- og fjölskyldumál
    • Fjarskipti
    • Húsnæðis- og mannvirkjamál
    • Líf og heilsa
    • Kosningar
    • Lög og réttur
    • Mannauðsmál ríkisins
    • Mannréttindi og jafnrétti
    • Menningarmál
    • Menntamál
    • Neytendamál
    • Opinber fjármál
    • Persónuréttur
    • Rekstur og eignir ríkisins
    • Samgöngur
    • Sjálfbært Ísland
    • Skipulagsmál
    • Stjórnskipan og þjóðartákn
    • Sveitarstjórnir og byggðamál
    • Trú og lífsskoðun
    • Umhverfi og náttúruvernd
    • Upplýsingatæknimál ríkisins
    • Utanríkismál
    • Útlendingar
    • Vinnumál
    • Vísindi, nýsköpun og rannsóknir
    • Öll verkefni
    • Efst á baugi
      • Fréttir
      • Nýjast
      • Fyrirspurnir frá Alþingi
      • Fyrir fjölmiðla
      • Eldri fréttir
    • Gögn
      • Rit og skýrslur
      • Úrskurðir og álit
      • Eyðublöð
      • Stefnur og áætlanir
      • Styrkir og sjóðir
      • Hugtakasafn
      • Lög og reglugerðir
      • Málaskrár ráðuneyta
      • Mælaborð
      • Hönnunarstaðall
    • Ráðuneyti
      • Forsætisráðuneytið
      • Atvinnuvegaráðuneytið
      • Dómsmálaráðuneytið
      • Félags- og húsnæðismálaráðuneytið
      • Fjármála- og efnahagsráðuneytið
      • Heilbrigðisráðuneytið
      • Innviðaráðuneytið
      • Menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðuneytið
      • Mennta- og barnamálaráðuneytið
      • Umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytið
      • Utanríkisráðuneytið
      • Sendiskrifstofur
      • Samstarfsráðherra Norðurlanda
      • Starfsfólk
      • Stofnanir
      • Nefndir
      • Símanúmer og staðsetning ráðuneyta
      • Umbra
    • Ríkisstjórn
      • Skipan ríkisstjórnar
      • Ríkisstjórnarfundir
      • Stjórnarsáttmáli
      • Ráðherranefndir
      • Reglur um starfshætti
      • Reglur um ferðakostnað og starfskjör ráðherra
      • Siðareglur, hagsmunir og hagsmunaverðir
      • Þingmálaskrá
      • Ríkisráð
      • Sögulegt efni
      • Fyrir fjölmiðla
    EN
    • Verkefni
      • Almannatryggingar og lífeyrir
      • Almannaöryggi
      • Atvinnuvegir
      • Auðlindir
      • Efnahagsmál
      • Félags- og fjölskyldumál
      • Fjarskipti
      • Húsnæðis- og mannvirkjamál
      • Líf og heilsa
      • Kosningar
      • Lög og réttur
      • Mannauðsmál ríkisins
      • Mannréttindi og jafnrétti
      • Menningarmál
      • Menntamál
      • Neytendamál
      • Opinber fjármál
      • Persónuréttur
      • Rekstur og eignir ríkisins
      • Samgöngur
      • Sjálfbært Ísland
      • Skipulagsmál
      • Stjórnskipan og þjóðartákn
      • Sveitarstjórnir og byggðamál
      • Trú og lífsskoðun
      • Umhverfi og náttúruvernd
      • Upplýsingatæknimál ríkisins
      • Utanríkismál
      • Útlendingar
      • Vinnumál
      • Vísindi, nýsköpun og rannsóknir
      • Öll verkefni
    • Efst á baugi
      • Fréttir
      • Nýjast
      • Fyrir fjölmiðla
      • Eldri fréttir
      • Fyrirspurnir frá Alþingi
    • Gögn
      • Rit og skýrslur
      • Úrskurðir og álit
      • Eyðublöð
      • Stefnur og áætlanir
      • Styrkir og sjóðir
      • Hugtakasafn
      • Lög og reglugerðir
      • Málaskrár ráðuneyta
      • Mælaborð
      • Hönnunarstaðall
    • Ráðuneyti
      • Forsætisráðuneytið
      • Atvinnuvegaráðuneytið
      • Dómsmálaráðuneytið
      • Félags- og húsnæðismálaráðuneytið
      • Fjármála- og efnahagsráðuneytið
      • Heilbrigðisráðuneytið
      • Innviðaráðuneytið
      • Menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðuneytið
      • Mennta- og barnamálaráðuneytið
      • Umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytið
      • Utanríkisráðuneytið
      • Sendiskrifstofur
      • Samstarfsráðherra Norðurlanda
      • Starfsfólk
      • Stofnanir
      • Nefndir
      • Símanúmer og staðsetning ráðuneyta
      • Umbra
    • Ríkisstjórn
      • Skipan ríkisstjórnar
      • Ríkisstjórnarfundir
      • Stjórnarsáttmáli
      • Ráðherranefndir
      • Reglur um starfshætti
      • Reglur um ferðakostnað og starfskjör ráðherra
      • Siðareglur, hagsmunir og hagsmunaverðir
      • Þingmálaskrá
      • Ríkisráð
      • Sögulegt efni
      • Fyrir fjölmiðla
    Close navigation
    Efnisorð
    Efnisorð

    Ekkert fannst

    Tegund
    Tegund

    Leita eftir efnisorðum

    Sýnir 801–850 af 3013
    Raða eftir:
    03. maí 2023Heilbrigðisráðuneytið, Líf og heilsa, Umhverfis-٫ orku- og loftslagsráðuneytið

    Hvatningarátakið Hjólað í vinnuna hófst í dag

    Átakið Hjólað í vinnuna var sett í morgun í blíðskaparveðri í Fjölskyldu- og húsdýragarðinum. Þetta er í 21. sinn sem efnt er til þessa átaks sem miðar að því að hvetja sem flesta til að nýta sér þennan umhverfisvæna, hagkvæma og heilsusamlega ferðamáta.

    28. apr. 2023Heilbrigðisráðuneytið, Líf og heilsa

    Tillögur um aðgerðir til að sporna við skaða af völdum ópíóíða kynntar í ríkisstjórn

    Willum Þór Þórsson heilbrigðisráðherra kynnti á fundi ríkisstjórnar í dag tillögur að aðgerðum til að sporna við skaða af völdum ópíóðafíknar. Tillögurnar verða ræddar í næstu viku í ráðherranefnd um samræmingu mála ásamt fleiri aðgerðum á þessu sviði. Ríkisstjórnin mun síðan fjalla um niðurstöður ráðherranefndarinnar.

    28. apr. 2023Heilbrigðisráðuneytið, Líf og heilsa, Norrænt samstarf

    Norrænn samvinna um lyfjamál styrkt með nýrri stefnu

    mráðsvettvangur Norðurlandaþjóða á sviði lyfjamála (Nordisk Lægemiddel Forum) hefur sett sér stefnu um samstarfið til ársins 2025. Megináherslur stefnunnar lúta að skapandi lausnum í samstarfi þjóðanna við útboð og kaup á lyfjum, öruggt framboð lyfja og sterka norræna rödd á evrópskum vettvangi.

    26. apr. 2023Heilbrigðisráðuneytið, Líf og heilsa

    Samræmd heilbrigðisþjónusta við börn sem þolendur kynferðisofbeldis

    Willum Þór Þórsson heilbrigðisráðherra hefur skipað starfshóp sem á að kortleggja og samræma fyrirkomulag varðandi aðkomu heilbrigðisstarfsfólks þegar upp kemur grunur um kynferðisofbeldi í garð barna. Markmiðið er tryggja rétt viðbrögð heilbrigðisþjónustunnar með hag barnanna að leiðarljósi. Hópnum er m.a. ætlað að skýra boðleiðir milli lögreglu, barnaverndar og heilbrigðiskerfisins að veita yfirsýn yfir núverandi stöðu mála.

    26. apr. 2023Rit og skýrslur, Líf og heilsa, Heilbrigðisráðuneytið

    Vegvísun og fjarráðgjöf í heilbrigðiskerfinu - skýrsla starfshóps

    apríl 2023 / Heilbrigðisráðuneytið Vegvísun og fjarráðgjöf í heilbrigðiskerfinu - skýrsla starfshóps Vegvísun og fjarráðgjöf í heilbrigðiskerfinu - skýrsla starfshóps

    26. apr. 2023Heilbrigðisráðuneytið, Líf og heilsa

    Tillögur starfshóps um vegvísun og fjarráðgjöf í heilbrigðiskerfinu

    Starfshópur á vegum Willums Þórs Þórssonar heilbrigðisráðherra, um vegvísun og fjarráðgjöf í heilbrigðiskerfinu hefur skilað tillögum sínum um framtíðarfyrirkomulag þjónustunnar. Markmiðið er að tryggja almenningi greiðar og samræmdar upplýsingar um heilbrigðisþjónustu og vísa fólki rétta leið í heilbrigðiskerfinu í samræmi við aðstæður og þörf hlutaðeigandi fyrir þjónustu hverju sinni. Horft er til þess að bæta þjónustu við sjúklinga, jafnframt því að draga úr og dreifa álagi á heilbrigðiskerfið.

    21. apr. 2023Úrskurðir heilbrigðisráðuneytis, Úrskurðir, Heilbrigðisráðuneytið

    Úrskurður nr. 9/2023

    Kærandi í málinu hafði óskað eftir gögnum frá embætti landlæknis á grundvelli upplýsingalaga sem embættið hafði hafnað að afhenda. Eftir úrskurð úrskurðarnefndar um upplýsingamál var embættinu gert að taka málið til meðferðar á ný. Þar sem kærandi hafði ekki fengið gögnin afhent kærði hann málsmeðferð embættisins til ráðuneytisins. Ráðuneytið taldi málið vera framhald af beiðni kæranda um beiðni um upplýsingar á grundvelli upplýsingalaga, en ákvarðanir á grundvelli þeirra laga væru aðeins kæranlegar til úrskurðarnefndar um upplýsingamál en ekki ráðuneytisins. Var kærunni því vísað frá ráðuneytinu.

    20. apr. 2023Heilbrigðisráðuneytið, Líf og heilsa

    Íslensku lýðheilsuverðlaunin afhent í fyrsta sinn

    Forseti Íslands afhenti íslensku lýðheilsuverðlaunin í fyrsta sinn við hátíðlega athöfn á Bessastöðum síðasta vetrardag. Verðlaun voru veitt í tveimur flokkum fyrir mikilsvert framlag til eflingar lýðheilsu á Íslandi. Íslensku lýðheilsuverðlaunin eru samvinnuverkefni embættis forseta Íslands, heilbrigðisráðuneytisins, embættis landlæknis, Geðhjálpar og Íþrótta- og Ólympíusamband Íslands.

    19. apr. 2023Forsætisráðuneytið, Heilbrigðisráðuneytið, Fjármála- og efnahagsráðuneytið

    Áætlun um fjárfestingu í heilbrigði þjóðarinnar

    Heildstæð áætlun um uppbyggingu innviða heilbrigðiskerfisins til ársins 2030 var kynnt af forsætisráðherra, fjármála- og efnahagsráðherra og heilbrigðisráðherra í dag. Farið var yfir stöðu Landspítalaverkefnisins og metnaðarfulla áætlun um áframhaldandi fjárfestingu í innviðum heilbrigðiskerfisins.

    13. apr. 2023Heilbrigðisráðuneytið, Líf og heilsa

    Kynningarfundur um heilbrigðistæknimat á lyfjum og lækningatækjum 11. maí

    Framkvæmdastjórn Evrópusambandsins ásamt Norðurlandaþjóðunum boða til kynningarfundar 11. maí næstkomandi um heilbrigðistæknimat á lyfjum og lækningatækjum. Markmið fundarins er að kynna fyrir haghöfum nýlega reglugerð ESB um heilbrigðistæknimat, innleiðingu hennar og hvað hún felur í sér.

    13. apr. 2023Úrskurðir heilbrigðisráðuneytis, Úrskurðir, Heilbrigðisráðuneytið

    Úrskurður nr. 8/2023

    Fagfélag heilbrigðisstéttar sótti um að stéttin yrði löggilt heilbrigðisstétt samkvæmt lögum um heilbrigðisstarfsmenn. Ráðuneytið dró ekki í efa að starf stéttarinnar gæti haft jákvæð áhrif á skjólstæðinga hennar. Á hinn bóginn bæru gögn málsins ekki með sér að starfið væri þess eðlis að sjúklingar ættu á hættu að verða fyrir skaða eða miska væri ekki staðið rétt að starfi þeirra. Þegar gögn málsins voru virt í heild varð ekki séð að starfið krefðist löggildingar með tilliti til öryggis og hagsmuna sjúklinga, eins og vísað væri til í 3. gr. laga um heilbrigðisstarfsmenn. Var umsókninni því synjað.

    12. apr. 2023Heilbrigðisráðuneytið

    Til umsagnar: Meðferð umsókna þriðjaríkisborgara um leyfi til að starfa sem heilbrigðisstarfsmenn á Íslandi

    Birt hafa verið til umsagnar drög að reglugerð um meðferð umsókna ríkisborgara utan Evrópska efnahagssvæðisins og Sviss (þriðjaríkisborgara) sem vilja starfa hér á landi sem heilbrigðisstarfsmenn. Markmiðið er að einfalda og skýra kröfur til slíkra umsókna og stuðla að aukinni skilvirkni við meðferð þeirra. Umsagnarfrestur er til 16. apríl.

    12. apr. 2023Heilbrigðisráðuneytið, Líf og heilsa

    Til umsagnar: Reglugerð um menntun lækna, lækningaleyfi og sérfræðileyfi

    Birt hafa verið til umsagnar drög að nýrri reglugerð um menntun, réttindi og skyldur lækna og skilyrði til að hljóta almennt lækningaleyfi og sérfræðileyfi. Með reglugerðinni er m.a. kveðið ýtarlega á um um faglega umgjörð sérnáms í læknisfræði sem fer fram hér á landi, til samræmis við öra þróun námsins og aukið umfang þess frá því að núgildandi reglugerð nr. 467/2015 var sett árið 2015.

    31. mar. 2023Úrskurðir heilbrigðisráðuneytis, Úrskurðir, Heilbrigðisráðuneytið

    Úrskurður nr. 7/2023

    Kærandi, sem er læknir, kærði ákvörðun embættis landlæknis um að svipta hann, án undangenginnar áminningar, rétti til að ávísa tilteknum lyfjum. Var ákvörðunin byggð á því að kærandi hefði ávísað miklu magni af ópíóðalyfjum til sjúklings með fíknivanda. Í úrskurðinum var komist að þeirri niðurstöðu að ávísanirnar hefðu verið óhæfilegar í skilningi 1. mgr. 19. gr. laga um landlækni og lýðheilsu, bæði að því er varðaði magn í heild sem og daglegri skammtastærð. Að því virtu og með vísan til fyrri athugasemda embættis landlæknis við ávísanir kæranda á slíkum lyfjum til umrædds sjúklings taldi ráðuneytið að embættinu hefði verið heimilt að svipta kæranda rétti til að ávísa tilteknum ópíóðalyfjum án þess að veita honum áminningu. Var ákvörðun embættis landlæknis því staðfest.

    31. mar. 2023Heilbrigðisráðuneytið

    Ríkara ákvörðunarvald einstaklinga yfir kynfrumum og fósturvísum sínum með nýju frumvarpi

    Willum Þór Þórsson heilbrigðisráðherra hefur lagt fram á Alþingi frumvarp um breytingu á lögum um tæknifrjóvgun nr. 55/1999. Með frumvarpinu verður virtur vilji einstaklinga eða pars, sem hefur geymt kynfrumur eða fósturvísa í tæknifrjóvgunarferli, til að nýta þau þótt áður hafi komið til sambúðarslita eða annar aðilinn látist. Afnumið verður ákvæði gildandi laga um að kynfrumum eða fósturvísum skuli skilyrðislaust eytt við þessar aðstæður.

    31. mar. 2023Heilbrigðisráðuneytið, Ræður og greinar

    Lið fyrir lið

    31 mars 2023 / Heilbrigðisráðuneytið Lið fyrir lið Stjórnarráðið Willum Þór Þórsson heilbrigðisráðherra Í gær var skrifað undir samninga milli Sjúkratrygginga Íslands, Klíníkarinnar í Ármúla og Handlæknastöðvarinnar í Glæsibæ um framkvæmd 700 liðskiptaaðgerða á þessu ári. Á Íslandi eru tæplega 2000 manns á biðlista eftir liðskiptiaðgerð. Allt of margir á þeim lista hafa beðið of lengi eftir aðgerð þannig að sjúkdómsástandið er farið að skerða lífsgæði og draga verulega úr virkni

    30. mar. 2023Heilbrigðisráðuneytið

    Samningar um 700 liðskiptaaðgerðir undirritaðir

    Samningar milli Sjúkratrygginga Íslands, Klíníkurinnar í Ármúla og Handlæknastöðvarinnar í Glæsibæ um framkvæmd 700 liðskiptaaðgerða á þessu ári voru undirritaðir í dag og staðfestir af heilbrigðisráðherra. Með þessu nýtist betur afkastageta heilbrigðiskerfisins sem leiðir til styttri biðtíma sjúklinga eftir þessari mikilvægu þjónustu. Sjúklingum sem fá þjónustu á grundvelli samninganna er tryggð greiðsluþátttaka í samræmi við reglugerð um greiðsluþátttöku sjúkratryggðra í kostnaði vegna heilbrigðisþjónustu.

    30. mar. 2023Heilbrigðisráðuneytið, Líf og heilsa

    Frumvarp um birgðastöðu lyfja og lækningatækja lagt fram á Alþingi

    Komið verður á fót upplýsingakerfi sem sýnir rauntímabirgðastöðu lyfja og lækningatækja hjá öllum aðilum sem halda þessar birgðir, samkvæmt frumvarpi Willum Þórs Þórssonar heilbrigðisráðherra sem lagt var fram á Alþingi í dag. Frumvarpið felur í sér innleiðingu á reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) 2022/123 frá 25. janúar 2022 um að styrkja hlutverk Lyfjastofnunar Evrópu vegna viðbúnaðar við krísu og krísustjórnun. Frumvarpið er einnig fyrsta viðbragð heilbrigðisráðherra við skýrslu starfshóps forsætisráðuneytisins um neyðarbirgðir sem kom út í ágúst 2022.

    29. mar. 2023Heilbrigðisráðuneytið, Líf og heilsa

    Mælti fyrir þingsályktunartillögu um aðgerðaáætlun í geðheilbrigðismálum

    Willum Þór Þórsson heilbrigðisráðherra mælti fyrir tillögu til þingsályktunar um aðgerðaáætlun í geðheilbrigðismálum á Alþingi í gær. Í áætluninni er megináhersla lögð á forvarnir og snemmtæk úrræði, heildræna, samþætta og notendamiðaða þjónustu, notendasamráð og nýsköpun með bætt aðgengi að geðheilbrigðisþjónustu um allt land að leiðarljósi.

    29. mar. 2023Heilbrigðisráðuneytið

    Mælti fyrir frumvarpi um tilkynningar heimilisofbeldis til lögreglu (lög um heilbrigðisstarfsmenn)

    Willum Þór Þórsson heilbrigðisráðherra mælti í gær fyrir frumvarpi til breytinga á lögum um heilbrigðisstarfsmenn. Markmið breytinganna er að skýra heimildir heilbrigðisstarfsfólks til að tilkynna lögreglu um heimilisofbeldi ef þolandi þess leitar á heilbrigðisstofnun. Áskilið er að slík tilkynning sé gerð í samráði við þolanda.

    28. mar. 2023Félags- og húsnæðismálaráðuneytið, Menningar-٫ nýsköpunar- og háskólaráðuneytið, Heilbrigðisráðuneytið, Fatlað fólk, Fjármála- og efnahagsráðuneytið

    Viljayfirlýsing undirrituð um þróun á lausnum á rafrænu aðgengi fyrir fatlað fólk

    ​Fjórir ráðherrar undirrituðu í dag viljayfirlýsingu um þróun á lausnum að rafrænu aðgengi fyrir fatlað fólk. Átaksverkefni verður hleypt af stokkunum og skal stöðumat með formlegum tillögum liggja fyrir í byrjun júní nk. Undir yfirlýsinguna rituðu Guðmundur Ingi Guðbrandsson, félags- og vinnumarkaðsráðherra, Willum Þór Þórsson, heilbrigðisráðherra, Bjarni Benediktsson, fjármála- og efnahagsráðherra, og Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir, háskóla-, iðnaðar- og nýsköpunarráðherra.

    27. mar. 2023Heilbrigðisráðuneytið

    Heilbrigðisráðherrar Íslands og Grænlands ræddu samstarf á sviði heilbrigðismála

    Willum Þór Þórsson heilbrigðisráðherra og Mimi Karlsen, heilbrigðisráðherra Grænlands, ræddu samstarf þjóðanna á sviði heilbrigðismála á fundi í liðinni viku. Þau eru sammála um mikilvægi samstarfsins og vilja styrkja það enn frekar.

    25. mar. 2023Rit og skýrslur, Heilbrigðisráðuneytið

    Framtíðarsýn húsnæðis geðþjónustu Landspítala - skýrsla starfshóps

    mars 2023 / Heilbrigðisráðuneytið Framtíðarsýn húsnæðis geðþjónustu Landspítala - skýrsla starfshóps Framtíðarsýn húsnæðis geðþjónustu Landspítala - skýrsla starfshóps

    24. mar. 2023Úrskurðir heilbrigðisráðuneytis, Úrskurðir, Heilbrigðisráðuneytið

    Úrskurður nr. 6/2023

    Í málinu var kærð ákvörðun embættis landlæknis um að áminna lækni vegna brots á starfsskyldum sínum við útgáfu læknisvottorðs. Var það mat ráðuneytisins að vægara úrræði, líkt og tilmæli, hefði ekki náð settu markmiði og því hafi ákvörðunin ekki brotið gegn meðalhófsreglu stjórnsýslulaga. Var ákvörðun embættis landlæknis því staðfest.

    22. mar. 2023Félags- og húsnæðismálaráðuneytið, Fatlað fólk, Heilbrigðisráðuneytið, Norrænt samstarf

    Fatlað fólk fái greiðari aðgang að stafrænum lausnum

    Lykilatriði er að allir hafi aðgang að stafrænum lausnum eigi Norðurlöndin að ná þeirri framtíðarsýn að vera sjálfbærasta og samþættasta svæði heims árið 2030. Sérstaklega þarf að tryggja að fatlað fólk geti nýtt sér stafrænar lausnir. Þetta er efni yfirlýsingar sem félags- og heilbrigðisráðherrar Norðurlandanna samþykktu í dag í tengslum við fund sinn. Yfirlýsingin var undirrituð í Reykjavík en Ísland gegnir nú formennsku í Norrænu ráðherranefndinni.

    22. mar. 2023Heilbrigðisráðuneytið, Líf og heilsa

    Beint streymi frá norrænni ráðstefnu um geðheilbrigðismál fimmtudaginn 23. mars

    Heilbrigðisráðherrar Norðurlandaþjóðanna ræða um áskoranir á sviði geðheilbrigðismála og leiðir til að takast á við þær á árangursríkan hátt á norrænni ráðstefnu um geðheilbrigðismál í Hörpu fimmtudaginn 23. mars. Þar koma einnig fram þekktir fyrirlesarar, íslenskir og erlendir og taka þátt í vinnu- og málstofum um áskoranir, strauma og stefnur sem snúa að geðheilbrigði og geðheilbrigðisþjónustu. Hægt verður að fylgjast með ráðstefnunni í beinu streymi sem hefst kl. 8.30.

    20. mar. 2023Heilbrigðisráðuneytið, Líf og heilsa

    Nám í heyrnartækni í boði í fyrsta sinn hér á landi

    Boðið verður upp á tækifæri til náms í heyrnartækni í fyrsta sinn hér á landi næsta haust, í samvinnu Heilbrigðisskóla Fjölbrautarskólans við Ármúla og SydDansk Erhvervsskole í Óðinsvéum. Mikil og vaxandi þörf er fyrir heyrnarfræðinga og sérhæft starfsfólk í heyrnartækni. Heilbrigðisráðuneytið fól því Landsráði um mönnun og menntun í heilbrigðisþjónustu að skoða leiðir til að skapa námstækifæri á þessu sviði. Ráðuneytið mun veita tveimur til fjórum nemendum styrki til náms í heyrnartækni þegar það hefst næsta haust. Nám í heyrnartækni var kynnt á íslandsmóti iðn- og verkgreina í Laugardalshöllinni dagana 16.-18. mars sl. þar sem grunnskólanemar gátu jafnframt kynnt sér fjölbreytt námstækifæri.

    17. mar. 2023Heilbrigðisráðuneytið, Líf og heilsa

    Endurgreiðslur vegna sjúkraþjálfunar sjálfstætt starfandi sjúkraþjálfara

    Willum Þór Þórsson heilbrigðisráðherra hefur framlengt rétt þeirra sem nýta sér þjónustu sjálfstætt starfandi sjúkraþjálfara til endurgreiðslu kostnaðar frá sjúkratryggingum, til 15. maí.

    16. mar. 2023Heilbrigðisráðuneytið, Líf og heilsa

    Fyrsta áætlunin um framkvæmd lýðheilsustefnu birt til umsagnar

    Birt hafa verið til umsagnar drög að aðgerðaáætlun heilbrigðisráðherra um framkvæmd lýðheilsustefnu til fimm ára. Áætlunin verður lögð fyrir Alþingi til umræðu. Í henni er forgangsraðað til næstu fimm ára stefnumarkmiðum þingsályktunar um lýðheilsustefnu sem samþykkt var á Alþingi 2021. Umsagnarfrestur er til 28. mars næstkomandi.

    10. mar. 2023Úrskurðir heilbrigðisráðuneytis, Úrskurðir, Heilbrigðisráðuneytið

    Úrskurður nr. 5/2023

    Í málinu var kærð ákvörðun embættis landlæknis um að svipta sálfræðing starfsleyfi. Byggði ákvörðunin á því að kærandi hefði brotið alvarlega gegn starfsskyldum sínum sem heilbrigðisstarfsmaður með því að afhenda að minnsta kosti einum sjúklingi sínum eftirritunarskylt lyf, gera ADHD greiningar sem sjúklingar fengu hvergi viðurkenndar, þagnarskyldubrots við sjúkling, vanrækslu við færslu sjúkraskrár og reksturs starfsstofu sem honum hafi verið óheimil. Kærandi krafðist þess aðallega að hin kærða ákvörðun yrði felld úr gildi en til vara að henni yrði breytt úr starfsleyfissviptingu í áminningu. Var það mat ráðuneytisins að kærandi hefði brotið ítrekað og alvarlega gegn starfsskyldum sínum sem sálfræðingur svo ekki hafi verið efni til að áminna hann áður en til starfsleyfissviptingar kom.…

    07. mar. 2023Heilbrigðisráðuneytið, Líf og heilsa

    Heilbrigðisráðherra úthlutar félagasamtökum um 80 milljónum í styrki á sviði heilbrigðismála

    Willum Þór Þórsson heilbrigðisráðherra hefur úthlutað 79,8 milljónum króna í styrki til félagasamtaka sem vinna að margvíslegum verkefnum á sviði heilbrigðismála í þágu tiltekinna hópa. Alls voru veittir styrkir til 40 verkefna og námu styrkfjárhæðir á bilinu 200.000 til 5.000.000 kr. Hæstu styrkina hlutu Alzheimersamtökin, ADHD samtökin, Bergið headspace, Gigtarfélag Íslands, Hjartaheill, Rótin félag um velferð og lífsgæði kvenna og SÍBS.

    06. mar. 2023Heilbrigðisráðuneytið, Líf og heilsa

    Nýtt hjúkrunarheimili á Akureyri - samið um stærri framkvæmd

    Willum Þór Þórsson heilbrigðisráðherra og Ásthildur Sturludóttir bæjarstjóri Akureyrarbæjar hafa undirritað samning sem kveður á um að nýtt hjúkrunarheimili sem byggt verður á Akureyri verði fyrir 80 íbúa í stað 60 samkvæmt eldri samningi. Gert er ráð fyrir að framkvæmdir hefjist á næsta ári og að heimilið verði tilbúið til notkunar árið 2026.

    03. mar. 2023Heilbrigðisráðuneytið, Líf og heilsa

    Uppbygging heilsugæslu á Akureyri

    Útboðsferli vegna hönnunar og byggingar á nýrri 1700 fermetra heilsugæslustöð við Þingvallastræti á Akureyri er hafið. Stefnt er að opnun hennar í lok árs 2025. Enn fremur er unnið að framkvæmdum við nýtt húsnæði undir heilsugæslu við verslunarmiðstöðina í Sunnuhlíð sem tekið verður í notkun í lok þessa árs. Með tveimur nýjum heilsugæslustöðvum sem leysa af hólmi gömlu stöðina í miðbænum mun heilsugæsluþjónusta við bæjarbúa gjörbreytast með greiðu aðgengi og aðstöðu í samræmi við nútímakröfur.

    02. mar. 2023Heilbrigðisráðuneytið, Líf og heilsa, Norrænt samstarf

    Mikill áhugi á norrænni ráðstefnu um geðheilbrigðismál 23. mars

    Þekktir fyrirlesarar, íslenskir og erlendir, á sviði geðheilbrigðismála flytja erindi og taka þátt í vinnu- og málstofum um helstu áskoranir, strauma og stefnur sem snúa að geðheilbrigði og geðheilbrigðisþjónustu á norrænni ráðstefnu í Hörpu 23. mars næstkomandi. Þar koma einnig saman heilbrigðisráðherrar Norðurlandaþjóðanna til að ræða um þær áskoranir sem þeir telja stærstar og hvaða leiðir þeir telja færar til að takast á við þær á árangursríkan hátt.

    02. mar. 2023Heilbrigðisráðuneytið, Líf og heilsa

    Ráðherra úthlutaði styrkjum úr Lýðheilsusjóði

    Willum Þór Þórsson heilbrigðisráðherra úthlutaði nýverið rúmum 86 milljónum króna í styrki úr Lýðheilsusjóði til 150 verkefna og rannsókna. Að þessu sinni var áhersla lögð á verkefni sem miða að því að efla geðheilsu barna og fullorðinna, efla félagsfærni og draga úr einmanaleika. Einnig voru veittir styrkir til verkefna á sviði áfengis-, vímu- og tóbaksvana og verkefni tengd næringu, hreyfingu og kynheilbrigði. Við mat á umsóknum var litið sérstaklega til verkefna sem styðja við minnihlutahópa, stuðla að jöfnuði til heilsu og tengjast nýsköpun á sviði forvarna og heilsueflingar.

    02. mar. 2023Heilbrigðisráðuneytið, Líf og heilsa

    Ný heilsugæslustöð í Reykjanesbæ tekur til starfa næsta haust

    Willum Þór Þórsson, heilbrigðisráðherra, hefur staðfest nýgerðan samning Sjúkratrygginga Íslands og Heilsugæslunnar Höfða ehf. um rekstur nýrrar heilsugæslustöðvar við Aðalgötu 60 í Reykjanesbæ. Þetta verður fyrsta sjálfstætt starfandi heilsugæslustöðin utan höfuðborgarsvæðisins. Áætlað er að hún taki til starfa 1. september næstkomandi.

    28. feb. 2023Heilbrigðisráðuneytið, Líf og heilsa

    Íslensku lýðheilsuverðlaunin verða veitt í fyrsta sinn í vor

    Forseti Íslands hefur tilkynnt um ný verðlaun, Íslensku lýðheilsuverðlaunin, sem efnt er til í samvinnu við heilbrigðisráðuneytið, embætti landlæknis, Geðhjálp og Íþrótta- og Ólympíusamband Íslands. Ráðgert er að veita lýðheilsuverðlaunin í fyrsta sinn í vor og er óskað tillagna frá almenningi um hver ættu að hljóta þessa viðurkenningu fyrir framlag til eflingar lýðheilsu á Íslandi. Markmiðið er að vekja athygli á á mikilsverðu framlagi á sviði lýðheilsu og auka með þeim hætti áhuga á bættri heilsu og líðan almennings

    23. feb. 2023Heilbrigðisráðuneytið, Líf og heilsa

    Upplýsingar um kynjahlutfall í nefndum, ráðum og stjórnum ráðuneytisins

    Heilbrigðisráðuneytið birtir hér með upplýsingar um hlutföll kynjanna í nefndum, ráðum og stjórnum sem undir það heyra, í samræmi við jafnréttislög. Samkvæmt lögunum á kynjahlutfall að vera sem jafnast og hlutur hvors kyns ekki undir 40%. Kynjahlutföll í nefndum ráðuneytisins eru í samræmi við ákvæði laganna.

    22. feb. 2023Heilbrigðisráðuneytið, Líf og heilsa

    Til umsagnar: Refsiábyrgð vegna alvarlegra atvika í heilbrigðisþjónustu

    Birt hafa verið til umsagnar drög að frumvarpi Willums Þórs Þórssonar heilbrigðisráðherra, að lagabreytingum sem snúa að refsiábyrgð vegna alvarlegra atvika í heilbrigðisþjónustu. Með frumvarpinu er lögð til sú breyting að það megi gera heilbrigðisstofnanir ábyrgar (cumulative og hlutlæg refsiábyrgð), þegar að alvarleg atvik leiða til dauðsfalls eða stórfellds líkamstjóns, að því gefnu að rekja megi atvikið til margra samverkandi þátta í starfsemi hlutaðeigandi stofnunar.

    21. feb. 2023Úrskurðir heilbrigðisráðuneytis, Úrskurðir, Heilbrigðisráðuneytið

    Úrskurður nr. 4/2023

    Í málinu var kærð ákvörðun Sjúkratrygginga um að krefja tannréttingasérfræðing um endurgreiðslu á tiltekinni fjárhæð. Byggði ákvörðunin á því að kærandi hefði gert Sjúkratryggingum reikninga umfram heimildir. Vísaði stofnunin í því sambandi til endurgreiðslureglna aðgerðaskrár sem fylgdi með samningi milli Sjúkratrygginga og Tannlæknafélags Íslands um rafræn samskipti og aðgerðaskrá. Málsástæður kæranda lutu m.a. að vilja samningsaðila við gerð samningsins og túlkun á samningnum frá gildistöku hans. Vísaði ráðuneytið í þessu sambandi til þess að samkvæmt 1. mgr. 49. gr. laga um sjúkratryggingar sæti ágreiningur um framkvæmd samnings ekki endurskoðun ráðherra og væri fremur á færi dómstóla að afla gagna sem nauðsynleg væru til að leggja mat á þau atriði sem kærandi hefði byggt á í málinu.…

    21. feb. 2023Úrskurðir heilbrigðisráðuneytis, Úrskurðir, Heilbrigðisráðuneytið

    Úrskurður nr. 3/2023

    Í málinu var kærð ákvörðun Sjúkratrygginga um að krefja tannréttingasérfræðing um endurgreiðslu á tiltekinni fjárhæð. Byggði ákvörðunin á því að kærandi hefði gert Sjúkratryggingum reikninga umfram heimildir. Vísaði stofnunin í því sambandi til endurgreiðslureglna í aðgerðaskrár sem fylgdi með samningi milli Sjúkratrygginga og Tannlæknafélags Íslands um rafræn samskipti og aðgerðaskrá. Málsástæður kæranda lutu m.a. að vilja samningsaðila við gerð samningsins og túlkun á samningnum frá gildistöku hans. Vísaði ráðuneytið í þessu sambandi til þess að samkvæmt 1. mgr. 49. gr. laga um sjúkratryggingar sæti ágreiningur um framkvæmd samnings ekki endurskoðun ráðherra og væri fremur á færi dómstóla að afla gagna sem nauðsynleg væru til að leggja mat á þau atriði sem kærandi hefði byggt á í málinu.…

    16. feb. 2023Heilbrigðisráðuneytið, Líf og heilsa

    Bylting í lyfjavísindum: gena- og frumumeðferðir – Er íslenska heilbrigðiskerfið tilbúið?

    Frumtök, Landspítali og heilbrigðisráðuneytið standa saman að ráðstefnu 13. mars næstkomandi um tækifæri og áskoranir sem felast í gena- og frumumeðferðum. Fjallað verður um málefnið á breiðum grunni og um þá hröðu þróun sem á sér stað á þessu sviði.

    10. feb. 2023Heilbrigðisráðuneytið, Líf og heilsa

    Vill efla sjúkrahúsþjónustu í dreifbýli

    Willum Þór Þórsson heilbrigðisráðherra hefur sett á fót verkefni sem miðar að því að tryggja nauðsynlega mönnun sérhæfðs starfsfólks sjúkrahúsanna í heilbrigðisumdæmum Vestfjarða og Austurlands. Meðal annars er stefnt að því að koma á samstarfi með formlegum samningum milli heilbrigðisstofnana í þessum umdæmum og Landspítala og Sjúkrahússins á Akureyri.

    09. feb. 2023Heilbrigðisráðuneytið, Líf og heilsa

    Heilbrigðisráðherra mælir fyrir frumvarpi til nýrra sóttvarnalaga

    Willum Þór Þórsson heilbrigðisráðherra mælti í dag fyrir frumvarpi til nýrra sóttvarnalaga. Breytingarnar sem lagðar eru til í frumvarpinu varða einkum stjórnsýslu sóttvarna og opinberar sóttvarnaráðstafanir í ljósi fenginnar reynslu af heimsfaraldri Covid-19.

    09. feb. 2023Heilbrigðisráðuneytið, Líf og heilsa

    Syklalyfið Staklox innkallað hjá einstaklingum í varúðarskyni

    Einstaklingar sem eru í sýklalyfjameðferð með sýklalyfinu Staklox eru beðnir um að skila því í næsta apótek sem fyrst. Þeim verður afhent annað lyf í staðinn að kostnaðarlausu svo þeir geti haldið sýklalyfjameðferð áfram og lokið henni. Þeir sem eiga afgangs birgðir af Staklox eru einnig beðnir um að skila þeim í apótek. Innköllun lyfsins er gerð í varúðarskyni líkt og nánar er fjallað um í tilkynningu frá Lyfjastofnun.

    08. feb. 2023Heilbrigðisráðuneytið, Líf og heilsa

    Til umsagnar: Reglugerðarbreyting varðandi lyfjatiltekt og lyfjagjöf á heilbrigðisstofnunum

    Birt hafa verið til umsagnar drög að breytingu á reglugerð um val, geymslu og meðferð lyfja á sjúkrahúsum og öðrum heilbrigðisstofnunum. Með breytingunni er lagt til að auk lækna, hjúkrunarfræðinga og ljósmæðra, verði öðrum heilbrigðisstarfsmönnum einnig heimilt að taka lyf úr lyfjageymslu, sinna lyfjatiltekt og skammta sjúklingum lyf, að því gefnu að þeir uppfylli náms- og þjálfunarkröfur sem embætti landlæknis setur.

    08. feb. 2023Úrskurðir heilbrigðisráðuneytis, Úrskurðir, Heilbrigðisráðuneytið

    Úrskurður nr. 2/2023

    Umsókn kæranda, sem er ríkisborgari utan EES, um starfsleyfi sem lyfjafræðingur var vísað frá embætti landlæknis á þeim grundvelli að hann hefði ekki lagt fram undirritaðan ráðningarsamning. Fram kom í úrskurði ráðuneytisins að ákvæði 2. mgr. 12. gr. reglugerðar nr. 1090/2012, sem embætti landlæknis byggði á til stuðnings frávísun, veiti heimild fyrir því að vísa frá umsókn hafi umsækjandi ekki lagt fram umsókn um atvinnu- og dvalarleyfi ásamt undirrituðum ráðningarsamningi. Í málinu lá hins vegar fyrir að kærandi væri með gilt dvalarleyfi hér á landi og rétt til atvinnuþátttöku. Taldi ráðuneytið að ákvæðið yrði ekki túlkað með þeim hætti að kröfu um undirritaðan ráðningarsamning yrði sem sjálfstæðu skilyrði í málinu, óháð kröfu um framlagningu umsóknar um atvinnu- og dvalarleyfi.…

    03. feb. 2023Heilbrigðisráðuneytið, Líf og heilsa

    Til umsagnar: Frumvarp um geymslu og nýtingu fósturvísa og kynfrumna

    Birt hafa verið til umsagnar drög að frumvarpi Willum Þórs Þórssonar heilbrigðisráðherra sem lýtur að breytingu á lögum nr. 55/1999. Frumvarpið miðar að því að virða vilja pars sem hefur í tengslum við tæknifrjóvgunarferli geymt kynfrumur eða fósturvísa. Með áformaðri breytingu verður einstaklingum heimilt að samþykkja notkun fyrrverandi eða eftir atvikum eftirlifandi maka á kynfrumum eða fósturvísum. Þannig verður afnumið ákvæði um að kynfrumum eða fósturvísum verði skilyrðislaust eytt ef annar aðilinn andast eða við hjúskapar- eða sambúðarslit.

    03. feb. 2023Heilbrigðisráðuneytið, Líf og heilsa

    Auglýst eftir umsóknum um framlög úr Framkvæmdasjóði aldraðra

    Stjórn Framkvæmdasjóðs aldraðra auglýsir eftir umsóknum um framlög úr Framkvæmdasjóði aldraðra fyrir árið 2023. Hlutverk sjóðsins er að stuðla að uppbyggingu og efla öldrunarþjónustu um allt land.

    31. jan. 2023Heilbrigðisráðuneytið, Líf og heilsa

    Frumvarp til umsagnar: Tilkynning heimilisofbeldis til lögreglu að beiðni sjúklings

    Birt hafa verið til umsagnar drög að frumvarpi Willums Þórs Þórssonar heilbrigðisráðherra um breytingu á lögum um heilbrigðisstarfsmenn nr. 34/2012. Með breytingunni verður skýrt kveðið á um heimild heilbrigðisstarfsfólks til að tilkynna lögreglu um heimilisofbeldi eða ofbeldi í nánu sambandi sem ógnað getur lífi eða heilsu sjúklings, óski sjúklingurinn eftir því. Markmiðið er að fyrirbyggja stigmögnun ofbeldis af þessu tagi, vernda þolendur þess og taka af tvímæli um heimild heilbrigðisstarfsfólks til að miðla upplýsingum í málum sem þessum.

    • First
    • Prev
    • 15
    • 16
    • 17
    • 18
    • 19
    • Next
    • Last
    Logo
    • Um vefinn
    • Áskrift
    • Veftré
    • Fyrirvari
    +354 545 8000
    Staðsetning ráðuneyta, opnunartími og netföng
    Hafa samband

    Hafa samband