Coat of arms
Stjórnarráð Íslands
  • Verkefni
    • Almannatryggingar og lífeyrir
    • Almannaöryggi
    • Atvinnuvegir
    • Auðlindir
    • Efnahagsmál
    • Félags- og fjölskyldumál
    • Fjarskipti
    • Húsnæðis- og mannvirkjamál
    • Líf og heilsa
    • Kosningar
    • Lög og réttur
    • Mannauðsmál ríkisins
    • Mannréttindi og jafnrétti
    • Menningarmál
    • Menntamál
    • Neytendamál
    • Opinber fjármál
    • Persónuréttur
    • Rekstur og eignir ríkisins
    • Samgöngur
    • Sjálfbært Ísland
    • Skipulagsmál
    • Stjórnskipan og þjóðartákn
    • Sveitarstjórnir og byggðamál
    • Trú og lífsskoðun
    • Umhverfi og náttúruvernd
    • Upplýsingatæknimál ríkisins
    • Utanríkismál
    • Útlendingar
    • Vinnumál
    • Vísindi, nýsköpun og rannsóknir
    • Öll verkefni
    • Efst á baugi
      • Fréttir
      • Nýjast
      • Fyrirspurnir frá Alþingi
      • Fyrir fjölmiðla
      • Eldri fréttir
    • Gögn
      • Rit og skýrslur
      • Úrskurðir og álit
      • Eyðublöð
      • Stefnur og áætlanir
      • Styrkir og sjóðir
      • Hugtakasafn
      • Lög og reglugerðir
      • Málaskrár ráðuneyta
      • Mælaborð
      • Hönnunarstaðall
    • Ráðuneyti
      • Forsætisráðuneytið
      • Atvinnuvegaráðuneytið
      • Dómsmálaráðuneytið
      • Félags- og húsnæðismálaráðuneytið
      • Fjármála- og efnahagsráðuneytið
      • Heilbrigðisráðuneytið
      • Innviðaráðuneytið
      • Menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðuneytið
      • Mennta- og barnamálaráðuneytið
      • Umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytið
      • Utanríkisráðuneytið
      • Sendiskrifstofur
      • Samstarfsráðherra Norðurlanda
      • Starfsfólk
      • Stofnanir
      • Nefndir
      • Símanúmer og staðsetning ráðuneyta
      • Umbra
    • Ríkisstjórn
      • Skipan ríkisstjórnar
      • Ríkisstjórnarfundir
      • Stjórnarsáttmáli
      • Ráðherranefndir
      • Reglur um starfshætti
      • Reglur um ferðakostnað og starfskjör ráðherra
      • Siðareglur, hagsmunir og hagsmunaverðir
      • Þingmálaskrá
      • Ríkisráð
      • Sögulegt efni
      • Fyrir fjölmiðla
    EN
    • Verkefni
      • Almannatryggingar og lífeyrir
      • Almannaöryggi
      • Atvinnuvegir
      • Auðlindir
      • Efnahagsmál
      • Félags- og fjölskyldumál
      • Fjarskipti
      • Húsnæðis- og mannvirkjamál
      • Líf og heilsa
      • Kosningar
      • Lög og réttur
      • Mannauðsmál ríkisins
      • Mannréttindi og jafnrétti
      • Menningarmál
      • Menntamál
      • Neytendamál
      • Opinber fjármál
      • Persónuréttur
      • Rekstur og eignir ríkisins
      • Samgöngur
      • Sjálfbært Ísland
      • Skipulagsmál
      • Stjórnskipan og þjóðartákn
      • Sveitarstjórnir og byggðamál
      • Trú og lífsskoðun
      • Umhverfi og náttúruvernd
      • Upplýsingatæknimál ríkisins
      • Utanríkismál
      • Útlendingar
      • Vinnumál
      • Vísindi, nýsköpun og rannsóknir
      • Öll verkefni
    • Efst á baugi
      • Fréttir
      • Nýjast
      • Fyrir fjölmiðla
      • Eldri fréttir
      • Fyrirspurnir frá Alþingi
    • Gögn
      • Rit og skýrslur
      • Úrskurðir og álit
      • Eyðublöð
      • Stefnur og áætlanir
      • Styrkir og sjóðir
      • Hugtakasafn
      • Lög og reglugerðir
      • Málaskrár ráðuneyta
      • Mælaborð
      • Hönnunarstaðall
    • Ráðuneyti
      • Forsætisráðuneytið
      • Atvinnuvegaráðuneytið
      • Dómsmálaráðuneytið
      • Félags- og húsnæðismálaráðuneytið
      • Fjármála- og efnahagsráðuneytið
      • Heilbrigðisráðuneytið
      • Innviðaráðuneytið
      • Menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðuneytið
      • Mennta- og barnamálaráðuneytið
      • Umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytið
      • Utanríkisráðuneytið
      • Sendiskrifstofur
      • Samstarfsráðherra Norðurlanda
      • Starfsfólk
      • Stofnanir
      • Nefndir
      • Símanúmer og staðsetning ráðuneyta
      • Umbra
    • Ríkisstjórn
      • Skipan ríkisstjórnar
      • Ríkisstjórnarfundir
      • Stjórnarsáttmáli
      • Ráðherranefndir
      • Reglur um starfshætti
      • Reglur um ferðakostnað og starfskjör ráðherra
      • Siðareglur, hagsmunir og hagsmunaverðir
      • Þingmálaskrá
      • Ríkisráð
      • Sögulegt efni
      • Fyrir fjölmiðla
    Close navigation
    Líf og heilsa
    Efnisorð

    Ekkert fannst

    Tegund
    Tegund

    Leita eftir efnisorðum

    Sýnir 801–850 af 2063
    Raða eftir:
    31. maí 2021Heilbrigðisráðuneytið, Líf og heilsa

    Til umsagnar: Afhending lyfja og umboð fyrir þriðja aðila - reglugerðarbreyting

    Heilbrigðisráðuneytið birti í dag til umsagnar drög að reglugerð sem kveður m.a. á um skýrari reglur um umboð vegna afhendingar lyfja til þriðja aðila fyrir hönd annarra. Sérstaklega er kveðið á um úrbætur hvað þetta varðar vegna þeirra sem hvorki geta nálgast lyfin sín né veitt sjálfir umboð til að innleysa þau, eins og átt getur við um langveika og fatlaða einstaklinga.

    28. maí 2021Heilbrigðisráðuneytið, Líf og heilsa

    Aðgengi allra að bólusetningu er mikilvægt

    Svandís Svavarsdóttir heilbrigðisráðherra lagði áherslu á aðgengi allra að bóluefni í ávarpi sínu á 74. Alþjóðaheilbrigðisþinginu sem nú stendur yfir í Genf í Sviss.

    28. maí 2021Heilbrigðisráðuneytið, Líf og heilsa

    Styrkir veittir til hjálpartækjakaupa fyrir börn sem eiga tvö heimili

    Heimili barna sem búa á tveimur heimilum verða jafnsett við kaup á tilteknum hjálpartækjum sem styrkt eru af Sjúkratryggingum Íslands. Svandís Svavarsdóttir heilbrigðisráðherra hefur staðfest reglugerð þessa efnis sem heimilar stofnuninni að veita styrki til beggja heimila barns vegna kaupa á sjúkrarúmum, dýnum, stuðningsbúnaði og hjálpartækjum tengdum salernisferðum.

    28. maí 2021Heilbrigðisráðuneytið, Líf og heilsa, Landsráð

    Landsráð skipað um mönnun og menntun í heilbrigðisþjónustu

    Svandís Svavarsdóttir heilbrigðisráðherra hefur skipað landsráð sem hefur það hlutverk að vera ráðgefandi fyrir undirbúning ákvarðana á sviði mönnunar og menntunar í heilbrigðisþjónustu, auk þess að vera samráðsvettvangur á þessu sviði með virku samráði, t.d. við sjúklinga, sjúklingasamtök, fagfélög og aðra hagsmunaaðila og menntastofnanir sem koma að menntun heilbrigðisstarfsfólks. Stofnun landsráðsins tengist einnig markmiðum heilbrigðisstefnu á þessu sviði. Fyrirhugað er að ráðið skili ráðherra ár hvert tillögum að aðgerðaráætlun um aðgerðir í þágu mönnunar og menntunar í heilbrigðisþjónustu.

    28. maí 2021Heilbrigðisráðuneytið, Líf og heilsa

    Verklag heilbrigðisstofnana vegna þjónustu við þolendur heimilisofbeldis verður samræmt

    Svandís Svavarsdóttir heilbrigðisráðherra hefur ákveðið að láta móta og innleiða samræmt verklag fyrir heilbrigðisstofnanir vegna þjónustu við þolendur heimilisofbeldis. Drífa Jónasdóttir, afbrotafræðingur hefur verið ráðin til verksins. Ákvörðun um að móta samræmt verklag hvað þetta varðar byggist á niðurstöðum skýrslu sem unnin var fyrir heilbrigðisráðuneytið og felur í sér mat á því hvernig heilbrigðisþjónustan mætir ólíkum þörfum kynjanna og tillögur að úrbótum.

    27. maí 2021Heilbrigðisráðuneytið, Líf og heilsa

    Ráðstefna 1. júní: Heilbrigðisþjónusta nýrra tíma

    Heilbrigðisráðuneytið og Landspítali efna til ráðstefnu undir yfirskriftinni „Heilbrigðisþjónusta nýrra tíma" um þróun heilbrigðisþjónustu á tímum breytinga 1. júní kl. 14–16. Ráðstefnan er liður í nýsköpunarviku sem nú stendur yfir. Hægt verður að fylgjast með ráðstefnunni í beinni útsendingu.

    26. maí 2021Heilbrigðisráðuneytið, Covid-19, Líf og heilsa

    COVID-19: Breyttar reglur um dvöl í sóttvarnahúsi sem taka gildi 31. maí

    Frá og með 31. maí fellur brott regla sem skyldar fólk frá skilgreindum hááhættusvæðum til að dvelja í sóttvarnahúsi meðan á sóttkví stendur. Frá þeim tíma verður þeim einum skylt að dvelja í sóttvarnahúsi sem ekki hafa aðstöðu til að vera í heimasóttkví. Þeir sem koma frá skilgreindum hááhættusvæðum dagana 29. og 30. maí geta sótt um heimild til að dvelja allan þann tíma sem sóttkví er áskilin í heimahúsi. Þeir sem koma til landsins fyrir 29. maí og er skylt að fara í sóttvarnahús skulu ljúka sóttkví þar. Öllum sem koma til landsins og þurfa að sæta sóttkví ber sem fyrr að forskrá dvalarstað. Heilbrigðisráðherra hefur gefið út reglugerð þessa efnis sem tekur gildi 31. maí.

    26. maí 2021Félags- og húsnæðismálaráðuneytið, Málefni eldra fólks, Líf og heilsa, Heilbrigðisráðuneytið

    Rúmum 380 milljónum króna úthlutað úr Framkvæmdasjóði aldraðra

    Svandís Svavarsdóttir heilbrigðisráðherra hefur úthlutað framlögum úr Framkvæmdasjóði aldraðra til endurbóta og viðhaldsverkefna á hjúkrunarheimilum víðsvegar um landið. Stærsta úthlutunin, rúmar 117 milljónir króna, fer til endurbóta á dvalarheimilinu Höfða á Akranesi sem miða að því að bæta aðbúnað og breyta fjölbýlum í einbýli.

    25. maí 2021Heilbrigðisráðuneytið, Covid-19, Líf og heilsa

    COVID-19: Spurt og svarað um grímunotkun

    Ný reglugerð heilbrigðisráðherra um takmarkanir á samkomum sem felur í sér verulegar tilslakanir á sóttvarnaráðstöfunum tók gildi í dag. Með reglugerðinni hefur til að mynda verið slakað til muna á kröfum um grímuskyldu sem hefur m.a. verið felld niður í verslunum og á vinnustöðum. Þó er skylt að bera grímu við tilteknar aðstæður. Til leiðbeiningar hefur heilbrigðisráðuneytið tekið saman spurningar og svör um grímunotkun, hvenær þurfi að bera grímu og hvenær ekki, sem fólk er hvatt til að kynna sér.

    25. maí 2021Heilbrigðisráðuneytið, Líf og heilsa

    Samið um byggingu hjúkrunarheimilis í Reykjavík fyrir allt að 144 íbúa

    Svandís Svavarsdóttir heilbrigðisráðherra og Dagur B. Eggertsson borgarstjóri undirrituðu í dag samning um byggingu hjúkrunarheimilis við Mosaveg í Reykjavík fyrir allt að 144 íbúa. Áætlaður heildarkostnaður við framkvæmdina nemur tæpum 7,7 milljörðum króna og fjármagnar ríkið 85% kostnaðarins á móti 15% borgarinnar. Stefnt er að því að hefja undirbúning að framkvæmdum um mitt þetta ár og að heimilið verði tilbúið til notkunar seinni hluta árs 2026.

    19. maí 2021Heilbrigðisráðuneytið, Líf og heilsa

    Unnið að bættum þjónustuferlum í þágu fólks með geðrænan vanda

    Svandís Svavarsdóttir heilbrigðisráðherra hefur falið Landspítala að efna til vinnustofu um þjónustuferla með það að markmiði að bæta þjónustu við fólk með geðrænan vanda, auka skilvirkni hennar og draga úr biðlistum. Til vinnustofunnar verða boðaðir fulltrúar allra veitenda geðheilbrigðisþjónustu á fyrsta, öðru og þriðja stigi heilbrigðisþjónustu sem og fulltrúar notenda. Megináhersla verður lögð á að finna leiðir til að tryggja samvinnu milli þjónustustiga og þjónustuveitenda, auk þess sem hlutverk einstakra þjónustueininga verða skilgreind. Miðað er við að afrakstur vinnustofunnar verði tillögur til úrbóta á þessu sviði sem skilað verði til ráðherra um miðjan ágúst.…

    14. maí 2021Heilbrigðisráðuneytið, Covid-19, Líf og heilsa

    COVID-19, landamæri: Ný auglýsing um svæði og lönd sem talin eru hááhættusvæði

    Þann 18. maí nk. tekur gildi ný auglýsing um svæði og lönd sem talin eru hááhættusvæði vegna COVID-19. Skilgreining hááhættusvæða hefur áhrif á hverjir þurfa að sæta sóttkví í sóttvarnahúsi eða ekki við komuna til Íslands í samræmi við reglugerð nr. 435/2021 um sóttkví og einangrun og sýnatöku við landamæri Íslands vegna COVID-19. Rétt er að árétta að viðmiðin eru áfram þau sömu, eingöngu er um að ræða breytingu á þeim löndum og svæðum sem teljast til hááhættusvæða vegna COVID-19.

    12. maí 2021Heilbrigðisráðuneytið, Líf og heilsa

    Árlegur alþjóðadagur hjúkrunarfræðinga

    Í dag, 12 maí, er árlegur alþjóðadagur hjúkrunarfræðinga. Dagsetning alþjóðadags hjúkrunarfræðinga er valin til að fagna fæðingardegi Florence Nightingale, brautryðjanda á sviði nútíma hjúkrunar. Árlega er haldið upp á þennan dag til þess að varpa ljósi á það mikilvæga framlag sem hjúkrunarfræðingar leggja til samfélagsins. Þetta mikilvæga hlutverk hefur verið sýnilegra í samfélaginu öllu á síðasta ári, eða allt frá því að heimsfaraldur Covid-19 braust út.

    11. maí 2021Heilbrigðisráðuneytið, Líf og heilsa

    Greining á legutíma sjúklinga eftir kyni og sjúkdómum

    Heilbrigðisráðherra hefur ákveðið að ráðast í greiningu á mun á legutíma eftir kyni vegna tiltekinna sjúkdóma. Þetta er í samræmi við framkvæmdaáætlun um leiðir til að vinna að úrbótum innan heilbrigðisþjónustunnar með hliðsjón af ólíkri stöðu kynjanna. Áætlunin byggist á nýlegri skýrslu Finnborgar Salome Steinþórsdóttur þar sem heilsufar kynjanna var kortlagt út frá kynja- og jafnréttissjónarmiðum til að leggja mat á hvort heilbrigðisþjónustan mæti ólíkum þörfum kynjanna.

    10. maí 2021Heilbrigðisráðuneytið, Líf og heilsa

    Haraldur Briem vinnur skýrslu um leghálsskimanir til Alþingis

    Haraldur Briem fyrrverandi sóttvarnalæknir hefur fallist á beiðni heilbrigðisráðherra um að vinna skýrslu til Alþingis um breytingar á skipulagi og framkvæmd skimunar fyrir krabbameini í leghálsi. Gerð skýrslunnar er í samræmi við beiðni Alþingis þessa efnis. Skýrslubeiðendur óskuðu eftir því að skýrslan yrði unnin af óháðum aðila og varð niðurstaða ráðherra sú að leita til Haraldar um verkefnið. Óskað hefur verið eftir framlengdum tímafresti á skilum skýrslunnar til þingsins. Gert er ráð fyrir að hún verði tilbúin til afhendingar í lok fyrstu viku júnímánaðar.

    10. maí 2021Heilbrigðisráðuneytið, Covid-19, Líf og heilsa

    Svæðisbundnar samkomutakmarkanir vegna hópsmits í Skagafirði

    Heilbrigðisráðherra hefur sett reglugerð sem kveður á um svæðisbundnar takmarkanir á samkomum í sveitarfélaginu Skagafirði og Akrahreppi. Í stuttu máli felur reglugerðin í sér að þær afléttingar á landsvísu sem tóku gildi í dag eiga ekki við á þessu svæði. Þar gilda áfram sömu takmarkanir og verið hafa undanfarnar vikur, tímabundið til og með 16. maí næstkomandi.

    08. maí 2021Utanríkisráðuneytið, Utanríkismál, Covid-19, Heilbrigðisráðuneytið, Líf og heilsa

    Ísland gefur öndunarvélar til Indlands

    Í ljósi alvarlegrar stöðu kórónuveirufaraldursins á Indlandi hafa þarlend stjórnvöld þegið boð íslenskra stjórnvalda um að senda 17 öndunarvélar til Indlands. Öndunarvélarnar eru gjöf frá Landspítala og verða þær fluttar, með milligöngu heilbrigðisráðuneytisins og utanríkisráðuneytisins, á vegum almannavarna Evrópusambandsins sem Ísland tekur þátt í á grundvelli EES-samstarfsins.

    07. maí 2021Líf og heilsa, Covid-19, Heilbrigðisráðuneytið

    COVID-19: Um 48% hafa fengið a.m.k. einn skammt af bóluefni

    Nú eru um 51.000 einstaklingar fullbólusettir gegn COVID-19 og um 140.000 hafa fengið a.m.k. einn skammt af bóluefni sem er um 48% þeirra sem áætlað er að bólusetja. Bólusetningu forgangshópa miðar vel. Gert er ráð fyrir að allir einstaklingar í þeim níu forgangshópum sem eru skilgreindir eru í reglugerð verði búnir að fá a.m.k. einn bólusetningarskammt um miðjan júní og allir sem eftir standa eigi síðar en um miðjan júlí næstkomandi. Ekki er gert ráð fyrir að börnum fæddum 2006 og síðar verði boðin bólusetning gegn COVID-19.

    07. maí 2021Heilbrigðisráðuneytið, Covid-19, Líf og heilsa

    COVID-19: Fjöldatakmarkanir fara í 50 manns og fleiri tilslakanir frá 10. maí

    Fjöldatakmarkanir fara úr 20 í 50 manns, sund- baðstaðir og líkamsræktarstöðva mega taka á móti 75% af leyfilegum hámarksfjölda gesta, hámarksfjöldi þátttakenda í íþróttum og sviðslistum verður 75 í hverju hólfi eða á sviði og hámarksfjöldi gesta á sitjandi viðburðum fer úr 100 í 150 manns. Þá verður opnunartími veitingastaða lengdur um klukkustund. Einnig verða ýmsar tilslakanir gerðar á skólastarfi. Svandís Svavarsdóttir heilbrigðisráðherra hefur ákveðið þessar breytingar í samræmi við tillögur sóttvarnalæknis. Þær taka gildi frá og með mánudeginum 10. maí og eiga að gilda í rúmar tvær vikur.

    06. maí 2021Heilbrigðisráðuneytið, Covid-19, Líf og heilsa

    Bólusetning í Höllinni: „Stórkostlegt skipulag og gaman að taka þátt“

    Nokkrir heilbrigðismenntaðir starfsmenn heilbrigðisráðuneytisins lögðu Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins lið við bólusetningu gegn COVID-19 í Laugardagshöll í dag. Þetta er stærsta bólusetningarvikan til þessa þar sem í heildina verða bólusettir um 40.000 manns á landsvísu. Bólusetningin krefst mikils skipulags, felur í sér mörg handtök og krefst mikillar nákvæmni við hvern einasta verkþátt svo allt gangi snurðulaust fyrir sig og hver og einn fái sína sprautu hratt, vel og af fyllsta öryggi.

    05. maí 2021Heilbrigðisráðuneytið, Líf og heilsa

    Til umsagnar: Aðgerðaáætlun fyrir bráðaþjónustu og sjúkraflutninga

    Heilbrigðisráðuneytið hefur birt til umsagnar drög að aðgerðaáætlun fyrir bráðaþjónustu og sjúkraflutninga til ársins 2030. Aðgerðaáætlunin er byggð á tillögum starfshóps sem heilbrigðisráðherra fólk að móta stefnu á þessu sviði ásamt drögum að þjónustuviðmiðum. Umsagnarfrestur er til 21. maí næstkomandi.

    05. maí 2021Heilbrigðisráðuneytið, Covid-19, Líf og heilsa

    COVID-19, landamæri: Endurskoðuð viðmið fyrir skilgreiningu hááhættusvæða

    Skilgreining viðmiða sem ákvarða hvort lönd eða svæði teljast til hááhættusvæða hafa verið endurskoðuð. Til viðbótar viðmiðum um nýgengi smita verður bætt við skilyrði um hlutfall jákvæðra sýna sem hefur áhrif á hvort svæði eða land telst hááhættusvæði eða ekki. Skilgreining hááhættusvæða hefur áhrif á hverjir þurfa að sæta sóttkví í sóttvarnahúsi eða ekki við komuna til Íslands. Ný auglýsing sem birtir lista yfir þau lönd sem teljast til hááhættusvæða er meðfylgjandi og tekur gildi 7. maí næstkomandi, samhliða reglugerðarbreytingu um breytt viðmið við skilgreiningu hááhættusvæða.

    05. maí 2021Heilbrigðisráðuneytið, Líf og heilsa

    Samtökunum ´78 veittur styrkur til fræðslustarfs

    Svandís Svavarsdóttir heilbrigðisráðherra hefur ákveðið að veita Samtökunum ´78 styrk að fjárhæð 4,0 milljónir króna sem varið verður til ráðgjafar og fræðslu um málefni hinseginfólks. Miðað er við að féð verði m.a. nýtt til sértækrar ráðgjafar til transfólks og Barna- og unglingageðdeildar Landspítala, fræðslu fyrir lækna og hjúkrunarfræðinga, upplýsingagjöf á sviði kynheilbrigðis og verkefna sem ætlað er að sporna gegn félagslegri einangrun og andlegri vanlíðan hinsegin fólks.

    04. maí 2021Heilbrigðisráðuneytið, Covid-19, Líf og heilsa

    COVID 19: Gildandi sóttvarnaráðstafanir framlengdar um viku

    Heilbrigðisráðherra hefur ákveðið að framlengja gildistíma reglugerða um takmarkanir á samkomum og skólastarfi um eina viku, en að óbreyttu áttu þær að gilda til 5. maí. Þetta er í samræmi við tillögu sóttvarnalæknis þessa efnis. Í minnisblaði til ráðherra segir hann allar líkur á því að forsendur verði fyrir því að ráðast í afléttingar á sóttvarnaráðstöfunum á næstu vikum.

    30. apr. 2021Heilbrigðisráðuneytið, Líf og heilsa

    Reglugerð um endurgreiðslur fyrir þjónustu sjálfstætt starfandi sérgreinalækna framlengd um mánuð

    Heilbrigðisráðherra hefur ákveðið að framlengja um einn mánuð reglugerð 1255/2018 um endurgreiðslu kostnaðar vegna þjónustu sjálfstætt starfandi sérgreinalækna sem starfa án samnings við Sjúkratryggingar Íslands.

    27. apr. 2021Heilbrigðisráðuneytið, Covid-19, Líf og heilsa

    COVID-19: Tillaga stjórnvalda um afléttingu innanlandstakmarkana í áföngum

    Heilbrigðisráðuneytið kynnir áætlun um afléttingu innanlandstakmarkana vegna COVID-19 í áföngum með hliðsjón af framgangi bólusetningar. Áætlað er að aflétta megi öllum innanlandstakmörkunum síðari hlutann í júní þegar um 75% þjóðarinnar hafi fengið a.m.k. einn bóluefnaskammt. Áætlunin verður birt til umsagnar í samráðsgátt stjórnvalda og lýkur umsagnarfresti 4. maí nk.

    26. apr. 2021Heilbrigðisráðuneytið, Covid-19, Líf og heilsa

    COVID-19: Spurt og svarað um sóttvarnaráðstafanir á landamærum frá og með 27. apríl

    Frá og með 27. apríl 2021 gildir ný reglugerð nr. 435/2021 um sóttkví og einangrun og sýnatöku við landamæri Íslands vegna COVID-19. Ráðuneytið hefur uppfært spurningar og svör varðandi reglur um þessi efni í samræmi við reglugerðina og framkvæmd hennar:

    23. apr. 2021Heilbrigðisráðuneytið, Líf og heilsa

    Ný skýrsla: Greining á rekstrarkostnaði hjúkrunarheimila

    Verkefnastjórn sem heilbrigðisráðherra skipaði til að greina rekstrarkostnað hjúkrunarheimila hefur skilað ráðherra skýrslu sinni. Greiningin byggist einkum á svörum rekstraraðila um reksturinn, kostnaðar- og tekjuliði, þjónustuna sem veitt er, notendur þjónustunnar, auk ýmissa fleiri breyta sem áhrif hafa á reksturinn.

    23. apr. 2021Heilbrigðisráðuneytið, Covid-19, Líf og heilsa

    COVID-19: Stærsta bólusetningarvikan hingað til framundan

    Í næstu viku, frá 26.-30. apríl munu tæplega 23.000 einstaklingar fá fyrri bólusetningu við COVID-19 með bóluefni Pfizer, AstraZeneca og Janssen. Í heildina verða gefnir um 25.000 skammtar. Þetta verður stærsta vikan í bólusetningum á Íslandi vegna COVID-19 frá upphafi.

    23. apr. 2021Heilbrigðisráðuneytið, Covid-19, Líf og heilsa

    COVID 19: Hertar kröfur um sóttkví komufarþega með hliðsjón af stöðu faraldursins í einstökum löndum

    Ný reglugerð heilbrigðisráðherra um sóttkví og einangrun og sýnatöku við landamæri Íslands vegna COVID-19 tekur gildi þriðjudaginn 27. apríl næstkomandi. Með reglugerðinni er innleidd skylda komufarþega til að dvelja í sóttvarnahúsi komi þeir frá löndum þar sem nýgengi COVID-smita er yfir tilteknum mörkum sem skilgreind eru í reglugerðinni. Birt verður auglýsing í Stjórnartíðindum með lista yfir þau lönd sem um er að ræða á hverjum tíma en stjórnvöld munu endurmeta listann eftir því sem efni standa til.

    23. apr. 2021Heilbrigðisráðuneytið, Líf og heilsa

    COVID-19: Bóluefnaskammtar frá Noregi komnir til landsins

    Síðdegis í dag bárust til landsins 16.000 skammtar af bóluefni AstraZeneca sem Norðmenn hafa veitt Íslendingum að láni. Byrjað verður að bólusetja með efninu strax í næstu viku í samræmi við fyrirmæli sóttvarnalæknis um notkun þess.

    23. apr. 2021Rit og skýrslur, Heilbrigðisráðuneytið, Líf og heilsa

    Greining á rekstrarkostnaði hjúkrunarheimila

    apríl 2021 / Heilbrigðisráðuneytið Greining á rekstrarkostnaði hjúkrunarheimila Greining á rekstrarkostnaði hjúkrunarheimila - skýrsla verkefnastjórnar

    21. apr. 2021Heilbrigðisráðuneytið, Covid-19, Líf og heilsa

    COVID-19: Norðmenn lána Íslendingum bóluefnaskammta

    Samkvæmt samkomulagi Íslands og Noregs munu Íslendingar fá að láni 16.000 skammta af AstraZeneca bóluefni frá Noregi. Gert er ráð fyrir að bóluefnið mun berast til landsins um helgina og fari í dreifingu í næstu viku.

    21. apr. 2021Heilbrigðisráðuneytið, Covid-19, Líf og heilsa

    COVID-19: Vottorð á landamærum hafa reynst áreiðanleg

    Vottorð sem komufarþegar hafa framvísað á landamærum Íslands um bólusetningu, fyrra smit eða mótefni, virðast áreiðanleg. Frá 1. apríl hefur komufarþegum með slík vottorð verið gert að fara í eina sýnatöku til að kanna hvort þeir kunni að bera COVID-19 smit. Á tímabilinu 1. – 15. apríl voru 1.106 farþegar sem framvísuðu vottorðum. Af þeim greindust 5 jákvæðir við sýnatöku en við nánari skoðun hjá COVID-göngudeild Landspítala kom í ljós að enginn þeirra var með virkt smit.

    19. apr. 2021Heilbrigðisráðuneytið, Líf og heilsa

    Heilsuvernd hjúkrunarheimili ehf. tekur við rekstri Öldrunarheimila Akureyrar

    Heilbrigðisráðherra hefur staðfest samning Sjúkratrygginga Íslands og Heilsuverndar Hjúkrunarheimila ehf. um að félagið taki við rekstri Öldrunarheimila Akureyrar frá 1. mars næstkomandi. Samningurinn tekur til þjónustu í 173 hjúkrunarrýmum, 8 dvalarrýmum og 36 dagdvalarrýmum, þar af 16 sérhæfðum dagdvalarrýmum fyrir einstaklinga með heilabilun.

    16. apr. 2021Heilbrigðisráðuneytið, Covid-19, Líf og heilsa

    Staðfest: 244.000 bóluefnaskammtar frá Pfizer í maí, júní og júlí

    Afhending bóluefna gegn COVID-19 frá bóluefnaframleiðandanum Pfizer eykst jafnt og þétt. Von er á samtals 244.000 bóluefnaskömmtum Pfizer til Íslands í maí, júní og júlí. Í dag fékkst staðfest að tvöfalt fleiri bóluefnaskammtar verða afhentir í júlí en áður var vænst.

    15. apr. 2021Heilbrigðisráðuneytið, Líf og heilsa

    Öll þingmál heilbrigðisráðherra komin til nefndar

    Svandís Svavarsdóttir heilbrigðisráðherra hefur nú mælt fyrir þeim sex þingmálum sem liggja fyrir Alþingi af hennar hálfu á vorþinginu og eru þau komin til umfjöllunar í velferðarnefnd. Einnig er komin til velferðarnefndar tillaga heilbrigðisráðherra til þingsályktunar um lýðheilsustefnu til ársins 2030. Tvö frumvörp ráðherra eru þegar orðin að lögum frá Alþingi á vorþinginu, þ.e. breyting á sóttvarnalögum í febrúar síðastliðnum og breyting á lögum um sjúklingatryggingu sem Alþingi samþykkti í mars.

    15. apr. 2021Heilbrigðisráðuneytið, Covid-19, Líf og heilsa

    COVID-19: Ísland grænt á ný, eitt Evrópuríkja

    Ísland er aftur orðið grænt á korti sóttvarnastofnunar Evrópu, eitt Evrópuríkja. Stofnunin uppfærir á hverjum fimmtudegi kort sem sýnir nýgengi COVID-19 smita í Evrópu. Græni liturinn er til marks um að 14 daga nýgengi smita sé minna en 25 smit á hverja 100.000 íbúa. „Þetta er ánægjulegur vitnisburður um að sóttvarnaaðgerðir hér á landi duga vel, við erum á réttri leið og síðast en ekki síst fjölgar nú jafnt og þétt í hópi bólusettra hér á landi“ segir Svandís Svavarsdóttir heilbrigðisráðherra.

    15. apr. 2021Líf og heilsa, Heilbrigðisráðuneytið

    Lækningaleyfi verður veitt ári fyrr – starfsnám verður hluti af sérnámi lækna

    Svandís Svavarsdóttir heilbrigðisráðherra hefur staðfest reglugerðarbreytingu um að almennt og ótakmarkað lækningaleyfi verði veitt að loknu 6 ára læknanámi við Háskóla Íslands. Starfsnám sem hingað til hefur farið fram á kandídatsári og verið hluti af grunnnámi lækna verður nú hluti af sérnámi þeirra. Þetta er gert til samræmis við sambærilegar breytingar á námi lækna víða erlendis með það að markmiði að greiða aðgengi lækna að sérnámi. Reglugerðin öðlast þegar gildi.

    14. apr. 2021Heilbrigðisráðuneytið, Covid-19, Líf og heilsa

    Pfizer flýtir afhendingu bóluefna – um 39.000 fleiri skammtar á öðrum ársfjórðungi

    Framkvæmdastjóri Evrópusambandins tilkynnti í morgun að bóluefnaframleiðandinn Pfizer muni afhenda um 50 milljónum fleiri bóluefnaskammta til Evrópuþjóða en áður hafði verið reiknað með á öðrum ársfjórðungi. Þetta þýðir að Ísland mun fá samtals rúmlega 192 þúsund bóluefnaskammta frá Pfizer fyrir lok júní sem dugir til að bólusetja um 96 þúsund einstaklinga.

    13. apr. 2021Heilbrigðisráðuneytið, Líf og heilsa

    Kynjahlutföll í nefndum, ráðum og stjórnum á vegum heilbrigðisráðuneytis

    Heilbrigðisráðuneytið birtir hér með upplýsingar um hlutföll kynjanna í nefndum, ráðum og stjórnum sem undir það heyra, í samræmi við jafnréttislög. Samkvæmt lögunum á kynjahlutfall að vera sem jafnast og hlutur hvors kyns ekki undir 40%. Kynjahlutföll í nefndum ráðuneytisins eru í samræmi við ákvæði laganna.

    13. apr. 2021Heilbrigðisráðuneytið, Covid-19, Líf og heilsa

    COVID-19: Tilslakanir á samkomutakmörkunum og í skólastarfi frá 15. apríl

    Almennar fjöldatakmarkanir fara úr 10 í 20 manns, hægt verður að hefja íþróttastarf, sund og heilsurækt með takmörkunum, sviðslistir einnig og skíðasvæðin geta opnað á ný. Í skólum breytast nálægðarmörk á öllum skólastigum úr 2 metrum í 1 og leik- og grunnskólabörnum verður heimilt að stunda skipulagt íþrótta-, æskulýðs- og tómstundastarf á ný. Þetta er megininntak tilslakana á sóttvarnareglum sem heilbrigðisráðherra kynnti á fundi ríkisstjórnarinnar í dag og eru í samræmi við tillögur sóttvarnalæknis. Reglugerðir um breytingarnar eru í vinnslu og verða birtar síðar í dag. Gert er ráð fyrir að þær gildi í 3 vikur.

    12. apr. 2021Heilbrigðisráðuneytið, Líf og heilsa

    Nýr samningur við HL-stöðina um endurhæfingu hjarta- og lungnasjúklinga

    Heilbrigðisráðherra hefur staðfest samning milli Sjúkratrygginga Íslands og HL-stöðvarinnar í Reykjavík um endurhæfingu hjarta- og lungnasjúklinga. Samningurinn er gerður í framhaldi af eldri samningi frá árinu 2017 og gildir til 31. mars 2022. Áætlaður árlegur kostnaður við samninginn er um 60 milljónir króna. Samningurinn kveður á um sérhæfða endurhæfingu og felst í þjálfun sjúklinga undir eftirliti, auk fræðslu og ráðgjöf sjúkraþjálfara og lækna.

    09. apr. 2021Heilbrigðisráðuneytið, Covid-19, Líf og heilsa

    COVID 19: Um 2,4% fullorðinna bólusett á einum degi

    Í gær 8. apríl voru rúmlega 6.630 einstaklingar bólusettir við COVID-19, þar af 2.330 með bóluefni Pfizer/BioNTech og 4301 með bóluefni Oxford/AstraZeneca. Þetta er stærsti bólusetningardagur á Íslandi vegna COVID-19 frá upphafi. Þessi fjöldi nemur tæplega 2,4% þeirra 280 þúsund einstaklinga sem til stendur að bólusetja við COVID-19.

    09. apr. 2021Heilbrigðisráðuneytið, Covid-19, Líf og heilsa

    COVID 19: Ísland þátttakandi í innleiðingu samræmdra vottorða á Evrópska efnahagssvæðinu

    Hafin er vinna sem miðar að því að taka inn í samninginn um Evrópska efnahagssvæðið tillögu að reglugerð framkvæmdastjórnar Evrópusambandsins um samræmt vottorðakerfi vegna COVID-19, svokölluð græn vottorð. Markmiðið er að greiða fyrir frjálsri för og tryggja um leið örugg ferðalög milli landa. Stefnt er að því að reglugerð um græn vottorð geti tekið gildi seinni hlutann í júní næstkomandi. Fjallað var um málið á fundi ríkisstjórnar í dag.

    09. apr. 2021Heilbrigðisráðuneytið, Líf og heilsa

    Til umsagnar: Drög að reglugerð um breytingu á reglugerð um endurgreiðslu kostnaðar vegna þjónustu sjálfstætt starfandi sérgreinalækna sem starfa án samnings við Sjúkratryggingar Íslands

    Birt hafa verið til umsagnar í samráðsgátt drög að breytingu á reglugerð um endurgreiðslu kostnaðar vegna þjónustu sjálfstætt starfandi sérgreinalækna sem starfa án samnings við Sjúkratryggingar Íslands. Samningur Læknafélags Reykjavíkur, fyrir hönd sjálfstætt starfandi sérgreinalækna, sem gerður var í lok árs 2013 rann út í lok árs 2018. Síðan þá hafa samningar ekki náðst milli aðila. Í lögum um sjúkratryggingar er skýrt kveðið á um þá meginreglu að til þess að ríkið greiði hlutdeild í kostnaði við heilbrigðisþjónustu þurfi að liggja fyrir samningur milli aðila um veitingu þjónustunnar. Lögin heimila þó ráðherra að setja reglugerð um tímabundna endurgreiðslu til sjúkratryggðra á kostnaði vegna heilbrigðisþjónustu á grundvelli gjaldskrár sem sjúkratryggingastofnunin gefur út.…

    08. apr. 2021Heilbrigðisráðuneytið, Covid-19, Líf og heilsa

    COVID-19: Aðgerðir á landamærum - breytt skilyrði um dvöl í sóttkví

    Skýrari kröfur verða gerðar um skilyrði fyrir heimasóttkví varðandi húsnæði og umgengnisreglur. Þeir sem ekki geta verið í heimasóttkví sem uppfyllir sett skilyrði þurfa að fara í sóttvarnahús en ekkert gjald verður tekið fyrir dvölina. Þetta er meðal efnis reglugerðar heilbrigðisráðherra sem tekur gildi 9. apríl og byggist á tillögum sóttvarnalæknis. Meginmarkmiðið er að lágmarka eins og kostur er líkur á því að smit berist inn í landið, með þeim aðgerðum sem sóttvarnalög heimila. Með reglugerðinni er felld úr gildi reglugerð nr. 355/2021 sem tók gildi 1. apríl og þar með ákvæði um skyldu einstaklinga af hááhættusvæðum til að dvelja í sóttkví í sóttvarnahúsi sem héraðsdómur úrskurðaði að ekki væri fullnægjandi lagastoð fyrir.

    07. apr. 2021Heilbrigðisráðuneytið, Covid-19, Líf og heilsa

    Sóttvarnalæknir ítrekar ráðleggingar gegn nauðsynjalausum ferðalögum

    Heilbrigðisráðuneytið vekur athygli á tilkynningu sóttvarnalæknis þar sem hann ítrekar ráðleggingar gegn nauðsynjalausum ferðalögum íbúa Íslands til áhættusvæða vegna COVID-19. Tilkynningin er eftirfarandi:

    07. apr. 2021Heilbrigðisráðuneytið, Líf og heilsa

    Stefna um heilbrigðisþjónustu við aldraða í mótun – verður umfjöllunarefni heilbrigðisþings 2021

    Svandís Svavarsdóttir heilbrigðisráðherra hefur falið Halldóri S. Guðmundssyni, framkvæmdastjóra Öldrunarheimila Akureyrar, að vinna drög að stefnu um heilbrigðisþjónustu við aldraða til ársins 2030. Stefnumótun á þessu sviði verður umfjöllunarefni heilbrigðisþings ársins 2021 sem heilbrigðisráðherra efnir til þann 20. ágúst næstkomandi.

    06. apr. 2021Heilbrigðisráðuneytið, Covid-19, Líf og heilsa

    COVID-19: Staðfestar áætlanir um afhendingu bóluefna í apríl

    Heilbrigðisráðuneytið hefur tekið saman yfirlit þar sem birtar eru staðfestar áætlanir framleiðenda um vikulega afhendingu bóluefna gegn COVID-19 í apríl, auk upplýsinga um fjölda bóluefnaskammta sem þegar hafa verið afhentir. Í apríl er von á tæplega 65.300 bóluefnaskömmtum frá þeim fjórum framleiðendum sem eru með markaðsleyfi hér á landi. Pfizer er eini framleiðandinn sem hefur staðfest afhendingaráætlun til lengri tíma og samkvæmt henni er von á 117.000 bóluefnaskömmtum samtals í maí – júní.

    • First
    • Prev
    • 15
    • 16
    • 17
    • 18
    • 19
    • Next
    • Last
    Logo
    • Um vefinn
    • Áskrift
    • Veftré
    • Fyrirvari
    +354 545 8000
    Staðsetning ráðuneyta, opnunartími og netföng
    Hafa samband

    Hafa samband