Coat of arms
Stjórnarráð Íslands
  • Verkefni
    • Almannatryggingar og lífeyrir
    • Almannaöryggi
    • Atvinnuvegir
    • Auðlindir
    • Efnahagsmál
    • Félags- og fjölskyldumál
    • Fjarskipti
    • Húsnæðis- og mannvirkjamál
    • Líf og heilsa
    • Kosningar
    • Lög og réttur
    • Mannauðsmál ríkisins
    • Mannréttindi og jafnrétti
    • Menningarmál
    • Menntamál
    • Neytendamál
    • Opinber fjármál
    • Persónuréttur
    • Rekstur og eignir ríkisins
    • Samgöngur
    • Sjálfbært Ísland
    • Skipulagsmál
    • Stjórnskipan og þjóðartákn
    • Sveitarstjórnir og byggðamál
    • Trú og lífsskoðun
    • Umhverfi og náttúruvernd
    • Upplýsingatæknimál ríkisins
    • Utanríkismál
    • Útlendingar
    • Vinnumál
    • Vísindi, nýsköpun og rannsóknir
    • Öll verkefni
    • Efst á baugi
      • Fréttir
      • Nýjast
      • Fyrirspurnir frá Alþingi
      • Fyrir fjölmiðla
      • Eldri fréttir
    • Gögn
      • Rit og skýrslur
      • Úrskurðir og álit
      • Eyðublöð
      • Stefnur og áætlanir
      • Styrkir og sjóðir
      • Hugtakasafn
      • Lög og reglugerðir
      • Málaskrár ráðuneyta
      • Mælaborð
      • Hönnunarstaðall
    • Ráðuneyti
      • Forsætisráðuneytið
      • Atvinnuvegaráðuneytið
      • Dómsmálaráðuneytið
      • Félags- og húsnæðismálaráðuneytið
      • Fjármála- og efnahagsráðuneytið
      • Heilbrigðisráðuneytið
      • Innviðaráðuneytið
      • Menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðuneytið
      • Mennta- og barnamálaráðuneytið
      • Umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytið
      • Utanríkisráðuneytið
      • Sendiskrifstofur
      • Samstarfsráðherra Norðurlanda
      • Starfsfólk
      • Stofnanir
      • Nefndir
      • Símanúmer og staðsetning ráðuneyta
      • Umbra
    • Ríkisstjórn
      • Skipan ríkisstjórnar
      • Ríkisstjórnarfundir
      • Stjórnarsáttmáli
      • Ráðherranefndir
      • Reglur um starfshætti
      • Reglur um ferðakostnað og starfskjör ráðherra
      • Siðareglur, hagsmunir og hagsmunaverðir
      • Þingmálaskrá
      • Ríkisráð
      • Sögulegt efni
      • Fyrir fjölmiðla
    EN
    • Verkefni
      • Almannatryggingar og lífeyrir
      • Almannaöryggi
      • Atvinnuvegir
      • Auðlindir
      • Efnahagsmál
      • Félags- og fjölskyldumál
      • Fjarskipti
      • Húsnæðis- og mannvirkjamál
      • Líf og heilsa
      • Kosningar
      • Lög og réttur
      • Mannauðsmál ríkisins
      • Mannréttindi og jafnrétti
      • Menningarmál
      • Menntamál
      • Neytendamál
      • Opinber fjármál
      • Persónuréttur
      • Rekstur og eignir ríkisins
      • Samgöngur
      • Sjálfbært Ísland
      • Skipulagsmál
      • Stjórnskipan og þjóðartákn
      • Sveitarstjórnir og byggðamál
      • Trú og lífsskoðun
      • Umhverfi og náttúruvernd
      • Upplýsingatæknimál ríkisins
      • Utanríkismál
      • Útlendingar
      • Vinnumál
      • Vísindi, nýsköpun og rannsóknir
      • Öll verkefni
    • Efst á baugi
      • Fréttir
      • Nýjast
      • Fyrir fjölmiðla
      • Eldri fréttir
      • Fyrirspurnir frá Alþingi
    • Gögn
      • Rit og skýrslur
      • Úrskurðir og álit
      • Eyðublöð
      • Stefnur og áætlanir
      • Styrkir og sjóðir
      • Hugtakasafn
      • Lög og reglugerðir
      • Málaskrár ráðuneyta
      • Mælaborð
      • Hönnunarstaðall
    • Ráðuneyti
      • Forsætisráðuneytið
      • Atvinnuvegaráðuneytið
      • Dómsmálaráðuneytið
      • Félags- og húsnæðismálaráðuneytið
      • Fjármála- og efnahagsráðuneytið
      • Heilbrigðisráðuneytið
      • Innviðaráðuneytið
      • Menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðuneytið
      • Mennta- og barnamálaráðuneytið
      • Umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytið
      • Utanríkisráðuneytið
      • Sendiskrifstofur
      • Samstarfsráðherra Norðurlanda
      • Starfsfólk
      • Stofnanir
      • Nefndir
      • Símanúmer og staðsetning ráðuneyta
      • Umbra
    • Ríkisstjórn
      • Skipan ríkisstjórnar
      • Ríkisstjórnarfundir
      • Stjórnarsáttmáli
      • Ráðherranefndir
      • Reglur um starfshætti
      • Reglur um ferðakostnað og starfskjör ráðherra
      • Siðareglur, hagsmunir og hagsmunaverðir
      • Þingmálaskrá
      • Ríkisráð
      • Sögulegt efni
      • Fyrir fjölmiðla
    Close navigation
    Heilbrigðismál
    Efnisorð

    Ekkert fannst

    Tegund
    Tegund

    Leita eftir efnisorðum

    Sýnir 101–150 af 547
    Raða eftir:
    17. nóv. 2020Heilbrigðisráðuneytið, Heilbrigðismál, Líf og heilsa, Landsráð

    Heilbrigðisþing um menntun, mönnun og nýsköpun 27. nóvember

    Mönnun, menntun og nýsköpun í heilbrigðisþjónustu er viðfangsefni heilbrigðisþings 2020. Þingið er liður í vinnu við gerð þingsályktunartillögu heilbrigðisráðherra um stofnun sérstaks ráðs á landsvísu um þessi mál. Þingið verður rafrænt og stendur frá kl. 8.30–12.00. Skráning þátttöku fer fram á vefnum heilbrigdisthing.is og þar eru jafnframt upplýsingar um fyrirlesara og aðgengilegar skýrslur sem varða efni þingsins.

    10. nóv. 2020Heilbrigðisráðuneytið, Heilbrigðismál, Líf og heilsa

    Skýrsla um aukna framleiðni og gæði heilbrigðisþjónustu

    Heilbrigðisráðuneytið kynnir nýja skýrslu sem fjallar um innleiðingu á nýju fjármögnunarkerfi heilbrigðisþjónustu og notkun leiðbeinandi viðmiða til að auka framleiðni og gæði. Byggt er á viðamikilli greiningu á mönnun og framleiðni heilbrigðisþjónustunnar hér á landi í erlendum samanburði sem fyrirtækið McKinsey gerði fyrir ráðuneytið og nær til stærstu heilbrigðisstofnananna í landinu. Heilbrigðisráðherra fundaði með forstjórum stofnananna um skýrsluna í dag þar sem rætt var um hvernig best megi nýta niðurstöðurnar og hrinda ákvörðun um breytta fjármögnun heilbrigðiskerfisins í framkvæmd.

    06. nóv. 2020Heilbrigðisráðuneytið, Heilbrigðismál, Líf og heilsa

    Líknarrýmum fjölgað á líknardeild Landspítala í Kópavogi

    Heilbrigðisráðherra hefur tryggt Landspítala aukið fjármagn til að fjölga líknarrýmum við líknardeildina í Kópavogi úr 12 í 16. Ákvörðunin er liður í aðgerðum til að létta álagi af bráðamóttöku Landspítala og bæta um leið aðbúnað og þjónustu við sjúklinga með sjúkdóma á lokastigi. Áætlaður kostnaður vegna þessa nemur rúmum 100 milljónum króna á ári.

    05. nóv. 2020Félags- og húsnæðismálaráðuneytið, Heilbrigðismál, Málefni eldra fólks, Líf og heilsa, Heilbrigðisráðuneytið

    Samið um rekstur sérhæfðrar COVID-19 hjúkrunardeildar

    Sjúkratryggingar Íslands hafa samið við Hlíðarskjól ehf. um opnun 10 rýma hjúkrunardeildar fyrir aldraða hjúkrunarsjúklinga sem smitast hafa af COVID-19. Heilbrigðisráðherra hefur staðfest samninginn. Deildin er ætluð íbúum hjúkrunarheimila sem veikst hafa af COVID-19 og þurfa tímabundið á sérhæfðri þjónustu að halda svo sem í framhaldi af sjúkrahúsmeðferð.

    05. nóv. 2020Heilbrigðisráðuneytið, Heilbrigðismál, Líf og heilsa

    Sérnámsstöðum í geðlækningum fjölgað

    Heilbrigðisráðherra hefur lagt Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins (HH) til 23 milljóna króna fjárveitingu til að fjölga sérnámsstöðum í geðlækningum. Þetta gerir kleift að fjármagna stöður tveggja sérnámslækna við geðheilsuteymi heilsugæslunnar. Undanfarin tvö ár hefur rík áhersla verið lögð á að efla annars stigs geðheilbrigðisþjónustu, meðal annars með stofnun geðheilsuteyma í öllum heilbrigðisumdæmum landsins, sérstöku geðheilsuteymi fanga og geðheilsuteymi í fjölskylduvernd sem starfar á landsvísu líkt og geðheilsuteymi fanga, undir stjórn HH.

    05. nóv. 2020Heilbrigðisráðuneytið, Mannréttindi og jafnrétti, Heilbrigðismál, Líf og heilsa

    Til umsagnar: Áform um lagasetningu – réttindi sjúklinga (þvinguð meðferð o.fl.)

    Áform heilbrigðisráðherra um breytingar á lögum um réttindi sjúklinga hafa verið birt til umsagnar í samráðsgátt. Markmið frumvarpsins er að tryggja fullnægjandi lagaheimildir til að taka ákvarðanir gagnvart frelsissviptum sjúklingum á heilbrigðisstofnunum og tryggja réttindi sjúklinga, m.a. með því að skýrt sé kveðið á um að þvingunum sé ekki beitt nema í algerum undantekningartilvikum, að meðalhófs verði gætt og ​að eftirlit verði með beitingu þeirra.

    04. nóv. 2020Heilbrigðisráðuneytið, Heilbrigðismál, Líf og heilsa

    Bætt aðgengi íbúa Austurlands að þjónustu sérgreinalækna

    Heilbrigðisráðherra hefur ákveðið að tryggja Heilbrigðisstofnun Austurlands varanlegt aukið fjármagn til að tryggja áframhaldandi þjónustu sérgreinalækna við íbúa heilbrigðisumdæmisins með samningum við Sjúkrahúsið á Akureyri og Landspítala. Verkefnið hófst sem tilraunaverkefni í fyrra með samningum um þjónustu bæklunarlækna og þvagfæraskurðlækna. Á 12 mánaða tímabili sinntu læknarnir um 850 komum hjá einstaklingum sem annars hefðu þurft að sækja þjónustuna til Akureyrar eða Reykjavíkur.

    20. okt. 2020Líf og heilsa, Vísindi nýsköpun og rannsóknir, Heilbrigðismál, Landbúnaður, Nýsköpun, Heilbrigðisráðuneytið, Atvinnuvegir, Menningar-٫ nýsköpunar- og háskólaráðuneytið

    Þróa próf sem styttir greiningu á sýklalyfjaónæmum bakteríum niður í klukkustund

    Sýklalyfjaónæmis og súnusjóður úthlutar í fyrsta sinn. Tvö verkefni tengd grunnrannsóknum í sýklalyfjaónæmi fá hæstu styrkina úr Sýklalyfjaónæmis- og súnusjóði sem nú úthlutar í fyrsta sinn. Tilgangur sjóðsins er að fjármagna verkefni undir formerkjum „Einnar heilsu“ (e. One Health) í baráttunni gegn sýklalyfjaónæmi. Verkefnin snúa annars vegar að framlínuforvörnum í heilsu manna og dýra með DNA hraðgreiningar á sýklalyfjaónæmum bakteríum og hins vegar að upprunateikningu á sýklalyfjaónæmum E.coli stofnum með raðgreiningum á erfðamengi þeirra. Sjóðnum bárust 14 umsóknir og alls hljóta níu verkefni og rannsóknir styrki fyrir alls 32.1 milljónir króna í þessari fyrstu úthlutun sjóðsins.

    13. okt. 2020Innviðaráðuneytið, Utanríkismál, Heilbrigðismál, Norrænt samstarf, Sveitarstjórnir og byggðamál

    Kynningarfundur um stöðu Norðurlanda á sviði heilsu og velferðar

    Skýrsla um stöðu Norðurlanda á sviði heilsu og velferðar verður kynnt á fjarkynningarfundi miðvikudaginn 21. október.

    07. okt. 2020Heilbrigðisráðuneytið, Heilbrigðismál, Líf og heilsa

    Fjárlagafrumvarpið: Innviðauppbygging, lækkun greiðsluþátttöku og efling heimahjúkrunar

    Framlög til heilbrigðismála verða aukin um ríflega 15 ma.kr. á næsta ári, að frátöldum launa- og verðlagsbótum. Þetta er tæplega 6% raunaukning frá fjárlögum þessa árs. Af þessu renna tæpir 7. ma. kr. til uppbyggingar Landspítala. Mikil áhersla er á framkvæmdir sem efla innviði heilbrigðiskerfisins, s.s. uppbyggingu og endurbætur á húsnæði heilbrigðisstofnana og byggingu hjúkrunarheimila. Lækkun greiðsluþátttöku sjúklinga og efling heilsugæslu og heimahjúkrunar verða áfram forgangsmál. Þetta eru megináherslurnar í heilbrigðismálum eins og þær birtast í fjárlagafrumvarpi næsta árs. Samtals verða framlög til málaflokka sem heyra undir heilbrigðisráðherra um 283,5 ma.kr. króna á næsta ári sem nemur um fjórðungi af heildarútgjöldum ríkissjóðs.…

    29. sep. 2020Heilbrigðismál, Lýðheilsa og forvarnir, Neytendamál, Atvinnuvegaráðuneytið

    Frumvarp um almennt eftirlit með hollustuháttum og mengunarvörnum og um menntun og hæfni

    Umhverfis- og auðlindaráðuneytið óskar eftir umsögnum um drög að frumvarpi til breytinga á lögum um hollustuhætti og mengunarvarnir, sem sett hafa verið til kynningar í samráðsgátt stjórnvalda.

    22. sep. 2020Heilbrigðisráðuneytið, Covid-19, Heilbrigðismál, Líf og heilsa

    COVID-19: Heilbrigðisráðherra veitir 200 milljónir króna í aukna endurhæfingu

    Svandís Svavarsdóttir heilbrigðisráðherra hefur falið Sjúkratryggingum Íslands að semja um aukna endurhæfingu, meðal annars fyrir fólk sem glímir við eftirköst í kjölfar veikinda af völdum COVID-19 en einnig fyrir þá sem eru á biðlista eftir endurhæfingu af öðrum ástæðum. Allt að 200 milljónum króna verður varið til verkefnisins.

    22. sep. 2020Heilbrigðisráðuneytið, Heilbrigðismál, Líf og heilsa

    Ráðherra styrkir Rótina um 10 milljónir króna til nýsköpunarverkefnisins Ástuhúss

    Svandís Svavarsdóttir heilbrigðisráðherra hefur veitt Rótinni; félagi áhugakvenna um konur, áföll og vímugjafa, 10 milljóna króna styrk til uppbyggingar nýsköpunarverkefnisins Ástuhúss. Ástuhús er hugsað sem meðferðarúrræði þar sem konur geta nálgast þjónustuna á annan hátt en hefð er fyrir í núverandi fíkniefnameðferðarkerfi, meðal annars með ríkri áherslu á göngudeildarmeðferð.

    18. sep. 2020Heilbrigðisráðuneytið, Heilbrigðismál, Líf og heilsa

    Fjármagn fyrir legudeildarbyggingu við Sjúkrahúsið á Akureyri í fjármálaáætlun

    Gert er ráð fyrir 6,5 milljörðum króna í framkvæmdir við nýbyggingu fyrir nýja legudeild við Sjúkrahúsið á Akureyri á tíma fjármálaáætlunar árin 2021–2025. Svandís Svavarsdóttir heilbrigðisráðherra greindi frá þessu þegar hún ávarpaði ársfund Sjúkrahússins á Akureyri í gær.

    04. sep. 2020Heilbrigðisráðuneytið, Heilbrigðismál, Líf og heilsa

    Yfirlýsing frá heilbrigðisráðherra vegna krabbameinsskimana

    Svandís Svavarsdóttir heilbrigðisráðherra segir mikilvægt að konur treysti áfram á þjónustu Krabbameinsfélags Íslands (KÍ) og sinni boðum um reglubundnar skimanir. Hún segir að allt verði gert til að rannsaka til hlítar hvað olli afdrifaríkum mistökum við leghálsskimanir hjá Leitarstöð KÍ og fyrirbyggja að slíkt geti endurtekið sig. Breytingar verða á fyrirkomulagi krabbameinsskimana um næstu áramót, þegar ábyrgð á leghálsskimunum færist frá Krabbameinsfélagi Íslands til heilsugæslunnar og brjóstaskimanir til Landspítala. Þessar breytingar tengjast ekki þeim mistökum sem nú eru til rannsóknar hjá embætti landlæknis. Þetta kemur fram í eftirfarandi yfirlýsingu heilbrigðisráðherra.

    01. sep. 2020Heilbrigðisráðuneytið, Heilbrigðismál, Líf og heilsa

    Greining á kynbundnum mun á heilsu og heilbrigðisþjónustu

    Svandís Svavarsdóttir heilbrigðisráðherra hefur ákveðið að láta kortleggja heilsufar landsmanna út frá kynja- og jafnréttissjónarmiðum og gera mat á því hvort heilbrigðisþjónustan taki mið af ólíkum þörfum kynjanna. Byggt verður á fyrirliggjandi gögnum úr heilbrigðiskerfinu og almannatryggingakerfinu og niðurstöðum ýmissa kannana sem tengjast lífsháttum og lýðheilsu. Fyrirmynd að verkefninu er sótt í niðurstöður nefndar heilbrigðisráðherra um heilsufar kvenna frá árinu 2000.

    31. ágú. 2020Heilbrigðisráðuneytið, Heilbrigðismál, Líf og heilsa

    Endurnýjun myndgreiningarbúnaðar við Sjúkrahúsið á Akureyri

    Heilbrigðisráðherra hefur ákveðið að veita Sjúkrahúsinu á Akureyri 71 milljón króna til endurnýjunar á myndgreiningarbúnaði sínum á þessu ári. Spítalinn fær enn fremur heimild til að taka þátt í útboði með Landspítala innan tveggja til þriggja ára til kaupa á nýju segulómtæki. Markmiðið með þátttöku í slíku útboði er að ná betri kjörum en ella.

    28. ágú. 2020Heilbrigðisráðuneytið, Covid-19, Heilbrigðismál, Líf og heilsa

    Kaup á bóluefni vegna COVID-19 rædd í ríkisstjórn

    Ákveðið hefur verið að kaup bóluefna gegn COVID-19 hér á landi fari fram á grundvelli samninga Evrópusambandsins við lyfjaframleiðendur. Framkvæmdastjórn Evrópusambandsins (ESB) hefur þegar gert samning við sænsk-breska fyrirtækið AstraZeneca um kaup á bóluefni og samningaviðræður ESB við fleiri framleiðendur bóluefna standa yfir. Svandís Svavarsdóttir heilbrigðisráðherra kynnti málið á fundi ríkisstjórnarinnar í dag. Ísland mun njóta góðs af Evrópusamstarfinu fyrir milligöngu Svíþjóðar sem hefur heimild til að framselja ríkjum EES, þar á meðal Íslandi og Noregi, bóluefni á grundvelli samninga ESB og hefur lýst sig reiðubúið til þess. Norsk stjórnvöld hafa einnig ákveðið að fara þessa leið til að tryggja aðgengi að bóluefni fyrir sína landsmenn.…

    28. ágú. 2020Innviðaráðuneytið, Byggðamál, Heilbrigðismál, Sveitarstjórnir og byggðamál, Heilbrigðisráðuneytið

    Samið við Ljósið um þjónustu við fólk á landsbyggðinni

    Samgöngu- og sveitarstjórnarráðuneytið hefur styrkt Ljósið um 34 milljónir kr. til að veita fólki með krabbamein, sem búsett er á landsbyggðinni, og aðstandendum þeirra þjónustu.

    28. ágú. 2020Heilbrigðisráðuneytið, Heilbrigðismál, Líf og heilsa

    Stýrihópur skipaður um skipulag framkvæmda við Landspítala

    Heilbrigðisráðherra hefur skipað stýrihóp til að annast umsjón og samþættingu allra þátta skipulags við framkvæmdir vegna uppbyggingar Landspítala við Hringbraut. Formaður hópsins er Unnur Brá Konráðsdóttir.

    27. ágú. 2020Heilbrigðisráðuneytið, Heilbrigðismál, Líf og heilsa

    Heilbrigðisstofnun Suðurlands gert kleift að opna 4 rými fyrir líknandi meðferð

    Svandís Svavarsdóttir heilbrigðisráðherra hefur ákveðið að tryggja Heilbrigðisstofnun Suðurlands aukið fjármagn til að koma á fót 4 rýmum þar sem unnt verður að veita líknar- og lífslokameðferð. Ákvörðunin er í samræmi við tillögur starfshóps um framtíðarskipan líknarþjónustu á Íslandi, þar sem lagt er til að heilbrigðisstofnanir á landsbyggðinni setji á fót líknarrými til að veita almenna líknarmeðferð fyrir íbúa umdæmisins sem þess þurfa með. Þetta er jafnframt liður í aðgerðum til að draga úr vanda bráðamóttöku Landspítala, samanber tillögur átakshóps þess efnis fyrr á árinu, og bæta um leið aðbúnað sjúklinga sem þurfa á líknar- og lífslokameðferð að halda við lok lífs og aðstandenda þeirra.

    25. ágú. 2020Heilbrigðisráðuneytið, Heilbrigðismál, Líf og heilsa

    Aðgerðaáætlun heilbrigðisstefnu kynnt í ríkisstjórn

    Svandís Svavarsdóttir heilbrigðisráðherra kynnti á fundi ríkisstjórnar í dag aðgerðaáætlun heilbrigðisstefnu til næstu fimm ára. Þar eru sett fram þau meginmarkmið að kaup á heilbrigðisþjónustu tryggi að fjármunum sé varið til þeirrar þjónustu sem mest er þörf fyrir á hverjum tíma, að nýtt þjónustutengt fjármögnunarkerfi verði tekið í notkun fyrir opinber sjúkrahús og sambærilega einkarekna þjónustu, að nauðsynlegar kröfur séu gerðar um aðgengi, gæði og öryggi sjúklinga og að notendur heilbrigðisþjónustu hafi gott aðgengi að upplýsingum til að taka upplýstar ákvarðanir um val á heilbrigðisþjónustu.

    25. ágú. 2020Heilbrigðisráðuneytið, Heilbrigðismál, Líf og heilsa

    Reglugerð um heimild hjúkrunarfræðinga og ljósmæðra til að ávísa getnaðarvörnum

    Heilbrigðisráðherra hefur sett reglugerð um heimild hjúkrunarfræðinga og ljósmæðra til að ávísa hormónatengdum getnaðarvörnum. Markmiðið er að auka aðgengi að getnaðarvörnum og stuðla með því að auknu kynheilbrigði fólks. Í reglugerðinni er einnig kveðið á um skilyrði fyrir heimild til að ávísa þessum lyfjum og um námskröfur.

    17. ágú. 2020Rit og skýrslur, Heilbrigðismál, Líf og heilsa, Heilbrigðisráðuneytið

    Mönnun hjúkrunarfræðinga

    ágúst 2020 / Heilbrigðisráðuneytið Mönnun hjúkrunarfræðinga Mönnun hjúkrunarfræðinga (skýrsla með tillögum starfshóps) Glærukynning með helstu niðurstöðum

    17. ágú. 2020Rit og skýrslur, Heilbrigðismál, Líf og heilsa, Heilbrigðisráðuneytið

    Mönnun hjúkrunarfræðinga - skýrsla með tillögum starfshóps

    ágúst 2020 / Heilbrigðisráðuneytið Mönnun hjúkrunarfræðinga - skýrsla með tillögum starfshóps Mönnun hjúkrunarfræðinga - skýrsla með tillögum starfshóps

    17. ágú. 2020Heilbrigðisráðuneytið, Heilbrigðismál, Líf og heilsa

    Mönnun hjúkrunarfræðinga – tillögur starfshóps

    Starfshópur sem heilbrigðisráðherra fól að leggja mat á raunhæfar aðgerðir til að bæta mönnun hjúkrunarfræðinga og annarra heilbrigðisstétta í heilbrigðiskerfinu hefur skilað ráðherra skýrslu með niðurstöðum sínum og tillögum. Byggt var á niðurstöðum könnunar meðal níu stærstu heilbrigðisstofnana á landinu, skýrslu Ríkisendurskoðunar og ýmsum fleiri upplýsingum sem tengjast þessu efni. Í vinnu sinni tók starfshópurinn einnig mið af markmiðum heilbrigðisstefnu til ársins 2030.

    14. ágú. 2020Heilbrigðisráðuneytið, Heilbrigðismál, Líf og heilsa

    Endurnýjun sjúkrabílaflotans raungerist – 25 nýir bílar

    Formleg afhending nýrra sjúkrabíla Rauða krossins á Íslandi fór fram í dag. Þar með raungerist endurnýjun sjúkrabílaflotans í samræmi við samkomulag Sjúkratrygginga Íslands og Rauða krossins á Íslandi frá 11. júlí á liðnu ári. „Þetta er stór dagur sem markar tímamót í þjónustu við landsmenn á sviði sjúkraflutninga og skiptir jafnframt miklu máli fyrir þá sem sinna þessu mikilvæga verkefni“ segir Svandís Svavarsdóttir heilbrigðisráðherra.

    28. júl. 2020Heilbrigðisráðuneytið, Covid-19, Heilbrigðismál, Líf og heilsa

    Óbreyttar reglur um takmarkanir á samkomum vegna COVID-19 til 18. ágúst

    Heilbrigðisráðherra hefur ákveðið, að tillögu sóttvarnalæknis, að framlengja núgildandi auglýsingu um takmörkun á samkomum til 18. ágúst.

    16. jún. 2020Atvinnuvegir, Líf og heilsa, Umhverfi og náttúruvernd, Vísindi nýsköpun og rannsóknir, Fiskeldi, Heilbrigðismál, Landbúnaður, Lýðheilsa og forvarnir, Nýsköpun, Sjávarútvegur, Heilbrigðisráðuneytið, Menningar-٫ nýsköpunar- og háskólaráðuneytið

    Sýklalyfjaónæmis- og súnusjóður auglýsir eftir umsóknum

    Auglýst er eftir umsóknum um styrki úr Sýklalyfjaónæmis- og súnusjóði.

    12. jún. 2020Heilbrigðisráðuneytið, Heilbrigðismál, Líf og heilsa

    Lagarammi rýndur til að bæta þjónustu við börn með neyslu- og fíknivanda

    Heilbrigðisráðherra hefur skipað starfshóp til að rýna þá löggjöf sem snýr að börnum með neyslu- og fíknivanda og gera tillögur um úrbætur til að laga hann betur að þörfum þeirra og þjónustuveitenda.

    12. jún. 2020Heilbrigðisráðuneytið, Heilbrigðismál, Líf og heilsa

    Tímamót í framkvæmdum við nýjan Landspítala

    Sprengivinnu vegna framkvæmda við grunn nýs Landspítala er að ljúka og er stefnt að því að hefja uppsteypu meðferðarkjarnans von bráðar. Meðferðarkjarninn verður stærsta byggingin og þungamiðjan í starfsemi nýs Landspítala. Svandís Svavarsdóttir heilbrigðisráðherra heimsótti framkvæmdasvæðið í gær og hleypti af einni sprengingu, sem er þar með ein af þeim síðustu í þessari risavöxnu framkvæmd.

    09. jún. 2020Heilbrigðisráðuneytið, Heilbrigðismál, Líf og heilsa

    Þingsályktunartillaga um siðferðileg gildi og forgangsröðun samþykkt á Alþingi

    Alþingi samþykkti síðdegis í dag þingsályktunartillögu Svandísar Svavarsdóttur um siðferðileg gildi og forgangsröðun í heilbrigðisþjónustu. Ályktunin var samþykkt einróma og mótatkvæðalaust. „Þetta er gleðidagur og enn einn mikilvægur áfangi sem tengist heilbrigðisstefnu til ársins 2030 sem einnig var samþykkt einróma á Alþingi fyrir 3. júní í fyrra“ segir Svandís Svavarsdóttir heilbrigðisráðherra.

    09. jún. 2020Heilbrigðisráðuneytið, Covid-19, Heilbrigðismál, Líf og heilsa

    Gjörbreytt þjónusta heilsugæslustöðva í COVID-19 faraldri

    Komur á heilsugæslustöðvar á höfuðborgarsvæðinu voru rúmlega 30% færri í mars en í janúar síðastliðnum. Á sama tíma fjölgaði símtölum til mikilla muna og notkun á Heilsuveru jókst um 77% á tímabilinu. Þessar upplýsingar koma fram í nýrri samantekt á vef Sjúkratrygginga Íslands. Þar má hvernig fjöldi koma þróaðist hjá einstökum heilsugæslustöðvum á höfuðborgarsvæðinu, ásamt þróun bókana, fyrirspurna og beiðna um endurnýjun á lyfjum í gegnum www.heilsuvera.is.

    04. jún. 2020Heilbrigðisráðuneytið, Heilbrigðismál, Líf og heilsa

    Opnun afeitrunardeildar fyrir ólögráða ungmenni mikilvægt framfaraskref

    Afeitrunardeild fyrir ólögráða ungmenni var opnuð á Landspítala í vikunni. Deildin heyrir undir fíknigeðdeild sjúkrahússins og verður áhersla lögð á fjölskyldumiðaða þjónustu. Svandís Svavarsdóttir heilbrigðisráðherra segir tilkomu deildarinnar langþráða og um mikilvægt framfaraskref að ræða í þjónustu við afar viðkvæman hóp.

    27. maí 2020Heilbrigðisráðuneytið, Atvinnuvegir, Líf og heilsa, Vísindi nýsköpun og rannsóknir, Covid-19, Heilbrigðismál, Lýðheilsa og forvarnir, Nýsköpun, Opinber innkaup, Fjármála- og efnahagsráðuneytið, Menningar-٫ nýsköpunar- og háskólaráðuneytið

    Stafrænt heilbrigðismót: Stefnumót heilbrigðisþjónustu og frumkvöðla

    Stafrænt heilbrigðismót er hafið og stendur til 15.júlí 2020. Þar geta aðilar sem veita heilbrigðisþjónustu sett fram raunverulegar áskoranir um lausnir í heilbrigðisþjónustu og komið á samstarfi við fyrirtæki og frumkvöðla sem bjóða fram hugmyndir að lausnum.

    05. maí 2020Heilbrigðisráðuneytið, Covid-19, Heilbrigðismál, Líf og heilsa

    Heilbrigði í okkar höndum

    Í dag er alþjóðlegi handþvottadagurinn sem Alþjóðaheilbrigðismálastofnunin hefur staði fyrir ár hvert frá árinu 2009 undir yfirskriftinni „Björgum mannslífum: Þvoum okkur um hendur.“ Að þessu sinni er sjónum beint að heilbrigðisstarfsfólki og þeirra þætti í að tryggja öryggi sjúklinga og fyrirbyggja smit með reglubundnum og góðum handþvotti. COVID-19 faraldurinn er skýrt dæmi um hvað veirusmit geta breiðst hratt út og afgerandi áminning um mikilvægi handþvottar. Því er óhætt að segja að heilbrigði sé í okkar allra höndum þar sem við getum haft mikil áhrif með reglulegum handþvotti.

    05. maí 2020Félags- og húsnæðismálaráðuneytið, Heilbrigðismál, Málefni eldra fólks, Líf og heilsa, Heilbrigðisráðuneytið

    Málefni fólks með heilabilun: Ný aðgerðaáætlun vekur athygli

    Heilbrigðisráðherra kynnti nýverið í ríkisstjórn aðgerðaáætlun í málefnum einstaklinga með heilabilun. Áætlunin var unnin í samræmi við ályktun Alþingis frá árinu 2017 þar sem heilbrigðisráðherra var falið að móta stefnu í málefnum þessa hóps sem fer ört stækkandi. Til þessa hefur engin formleg stefna verið til hér á landi í þessum efnum og því um merk tímamót að ræða. Stefnumótunarvinnan hefur vakið athygli Evrópsku Alzheimersamtakanna (Alzheimer Europe) en aðild að þeim eiga félög alzheimersjúklinga og aðstandenda þeirra frá 39 Evrópuríkjum.

    29. apr. 2020Heilbrigðisráðuneytið, Atvinnuvegir, Líf og heilsa, Upplýsingatæknimál ríkisins, Vísindi nýsköpun og rannsóknir, Covid-19, Heilbrigðismál, Nýsköpun, Fjármála- og efnahagsráðuneytið, Menningar-٫ nýsköpunar- og háskólaráðuneytið

    Hakkaþon um nýsköpun í heilbrigðisþjónustu

    Almenningur og frumkvöðlar taka höndum saman um að finna nýjar lausnir á sviði heilbrigðisþjónustu til gera heilbrigðiskerfinu betur kleift að fást við nýjar áskoranir vegna COVID-19. Dagana 22.-24. maí verður haldin nýsköpunarkeppni þar sem einstaklingum og frumkvöðlum gefst kostur á aðkeppa um bestu lausnirnar. Vefsíða keppninnar var formlega opnuð í dag hakkathon.island.is.

    22. apr. 2020Heilbrigðisráðuneytið, Heilbrigðismál, Covid-19

    Valkvæðar skurðaðgerðir heimilaðar á ný 4. maí

    Valkvæðar skurðaðgerðir og ífarandi rannsóknir verða heimilaðar frá 4. maí næstkomandi og ýmsum öðrum takmörkunum á heilbrigðisþjónustu aflétt. Heilbrigðisráðherra hefur tekið ákvörðun um þetta í samræmi við tillögu landlæknis.

    22. apr. 2020Heilbrigðisráðuneytið, Heilbrigðismál, Dómsmálaráðuneytið, Líf og heilsa, Covid-19

    Breyttar reglur um sóttkví og upptaka landamæraeftirlits á innri landamærum

    Heilbrigðisráðherra hefur í samræmi við tillögu sóttvarnalæknis breytt gildandi reglum um sóttkví. Með nýjum reglum verður öllum sem koma til landsins skylt að fara í sóttkví í 14 daga frá komu. Samhliða verður tekið upp tímabundið landamæraeftirlit á innri landamærum. Reglurnar koma til framkvæmda föstudaginn 24. apríl og falla að óbreyttu úr gildi 15. maí.

    21. apr. 2020Heilbrigðisráðuneytið, Covid-19, Heilbrigðismál, Líf og heilsa

    Álagsgreiðslur til heilbrigðisstarfsfólks og efling geðheilbrigðisþjónustu

    Svandís Svavarsdóttir heilbrigðisráðherra hefur ákveðið að verja um 1,0 milljarði króna í sérstakar álagsgreiðslur til starfsfólks sjúkrahúsa og heilbrigðisstofnana sem starfar undir miklu álagi vegna Covid-19 heimsfaraldursins. Enn fremur verða framlög til geðheilbrigðisþjónustu aukin um 540 milljónir króna til að efla geðheilbrigðisþjónustu um allt land. Þessar aðgerðir eru liður margþættum aðgerðum stjórnvalda vegna áhrifa Covid-19 hér á landi sem kynntar voru í dag.

    21. apr. 2020Heilbrigðisráðuneytið, Heilbrigðismál, Líf og heilsa, Lyfjamál

    Til umsagnar: Reglugerð um heimildir til að ávísa getnaðarvarnalyfjum

    Birt hafa verið til umsagnar drög að reglugerð heilbrigðisráðherra sem fjalla um heimildir hjúkrunarfræðinga og ljósmæðra til að ávísa hormónatengdum getnaðarvarnalyfjum, um námskröfur og veitingu leyfa. Tilgangurinn með reglugerðinni er að útfæra heimild þessa efnis sem veitt var með lögum nr. 153/2018. Umsagnarfrestur er til 19. maí næstkomandi.

    20. apr. 2020Heilbrigðisráðuneytið, Heilbrigðismál, Líf og heilsa

    Tillögur að endurhæfingarstefnu kynntar og birtar í samráðsgátt

    Sérfræðingar í endurhæfingarmálum sem Svandís Svavarsdóttir heilbrigðisráðherra fól að móta tillögur að endurhæfingarstefnu hafa skilað ráðherra skýrslu með niðurstöðum sínum. Ráðherra segir skýra stefnu fyrir þennan mikilvæga og vaxandi þátt heilbrigðisþjónustunnar bráðnauðsynlega og því mikið fagnaðarefni að fá skýrsluna í hendur. Skýrslan hefur nú verið birt til umsagnar í samráðsgátt stjórnvalda og er umsagnarfrestur til 20. maí.

    17. apr. 2020Heilbrigðisráðuneytið, Heilbrigðismál, Líf og heilsa

    Tillögur til fjölgunar útskrifaðra hjúkrunarfræðinga

    Starfshópur sem Svandís Svavarsdóttir heilbrigðisráðherra fól að fjalla um menntun hjúkrunarfræðinga og leggja til leiðir sem eru til þess fallnar að fjölga þeim sem ljúka námi í faginu hefur skilað ráðherra tillögum sínum. Tillögur hópsins lúta að menntun, fjölgun námsplássa, útvíkkun á starfssviði hjúkrunarfræðinga, fjölbreyttum starfstækifærum og ímynd hjúkrunar, m.a. með áherslu á sýnileika stéttarinnar.

    15. apr. 2020Heilbrigðisráðuneytið, Covid-19, Heilbrigðismál, Líf og heilsa

    Hugað að geðheilsunni á tímum C0VID-19

    Ljóst er orðið að COVID-19 faraldurinn mun hafa gríðarleg áhrif á almannaheill og efnahag fólks um heim allan. Alþjóðaheilbrigðismálastofnunin varar við neikvæðum áhrifum faraldursins og þeirri efnahagslegu kreppu sem honum mun fylgja á geðheilsu almennings og hvetur til aðgerða. Heilbrigðisráðuneytið hefur tekið saman yfirlit um það helsta af upplýsingum, leiðbeiningum og úrræðum sem almenningi stendur til boða, eins og nánar er greint frá hér. Heilbrigðisráðherra gerði grein fyrir þessu efni á fundi ríkisstjórnar í gær.

    14. apr. 2020Heilbrigðisráðuneytið, Covid-19, Heilbrigðismál, Forsætisráðuneytið, Líf og heilsa

    Líðan þjóðarinnar á tímum COVID-19 verður rannsökuð

    Ríkisstjórnin samþykkti á fundi sínum í dag að veita 1,5 milljónir króna af sameiginlegu ráðstöfunarfé sínu til rannsóknar á líðan þjóðarinnar á tímum COVID-19. Miðstöð í lýðheilsuvísindum við Háskóla Íslands stendur að rannsókninni í samvinnu við Embætti landlæknis og sóttvarnarlækni, en hún er einnig unnin í samvinnu við aðra háskólastofnanir á Norðurlöndunum.

    14. apr. 2020Rit og skýrslur, Líf og heilsa, Heilbrigðismál, Málefni eldra fólks, Félags- og húsnæðismálaráðuneytið

    Aðgerðaáætlun um þjónustu við einstaklinga með heilabilun

    apríl 2020 / Félags- og húsnæðismálaráðuneytið Aðgerðaáætlun um þjónustu við einstaklinga með heilabilun Aðgerðaáætlun um þjónustu við einstaklinga með heilabilun Skýrsla Jóns Snædal öldrunarlæknis sem aðgerðaáætlunin byggir á

    08. apr. 2020Félags- og húsnæðismálaráðuneytið, Heilbrigðismál, Málefni eldra fólks, Líf og heilsa, Heilbrigðisráðuneytið

    Tímamót: Fyrsta formlega aðgerðaáætlunin í þjónustu við fólk með heilabilun

    Heilbrigðisráðuneytið birtir hér með aðgerðaáætlun í þjónustu við fólk með heilabilun til ársins 2025. „Þetta er í fyrsta sinn sem sett er fram opinber stefna í þessum mikilvæga málaflokki hér á landi og löngu tímabært" segir Svandís Svavarsdóttir heilbrigðisráðherra.

    07. apr. 2020Utanríkisráðuneytið, Heilbrigðismál, Líf og heilsa, Covid-19, Heilbrigðisráðuneytið

    Sækja lækningavörur frá Kína

    Íslensk heilbrigðisyfirvöld hafa samið við Icelandair um að sækja pöntun af hlífðarbúnaði fyrir heilbrigðisstarfsmenn til Kína.

    07. apr. 2020Heilbrigðisráðuneytið, Heilbrigðismál, Líf og heilsa, Covid-19

    WHO: Skýrsla um stöðu hjúkrunar um víða veröld

    Alþjóðaheilbrigðismálastofnunin WHO birti í dag viðamikla skýrslu um stöðu hjúkrunar á heimsvísu. Útgáfa skýrslunnar ber upp á alþjóðaheilbrigðisdaginn, 7. apríl, sem stofnunin tileinkar hjúkrunarfræðingum og ljósmæðrum. Samkvæmt ákvörðun WHO er raunar allt þetta ár helgað þessum mikilvægu heilbrigðisstéttum. Markmið Alþjóðaheilbrigðisstofnunarinnar er að vekja athygli á störfum hjúkrunarfræðinga og ljósmæðra og stuðla að því að störf þeirra séu metin að verðleikum.

    • First
    • Prev
    • 1
    • 2
    • 3
    • 4
    • 5
    • Next
    • Last
    Logo
    • Um vefinn
    • Áskrift
    • Veftré
    • Fyrirvari
    +354 545 8000
    Staðsetning ráðuneyta, opnunartími og netföng
    Hafa samband

    Hafa samband