Coat of arms
Stjórnarráð Íslands
  • Verkefni
    • Almannatryggingar og lífeyrir
    • Almannaöryggi
    • Atvinnuvegir
    • Auðlindir
    • Efnahagsmál
    • Félags- og fjölskyldumál
    • Fjarskipti
    • Húsnæðis- og mannvirkjamál
    • Líf og heilsa
    • Kosningar
    • Lög og réttur
    • Mannauðsmál ríkisins
    • Mannréttindi og jafnrétti
    • Menningarmál
    • Menntamál
    • Neytendamál
    • Opinber fjármál
    • Persónuréttur
    • Rekstur og eignir ríkisins
    • Samgöngur
    • Sjálfbært Ísland
    • Skipulagsmál
    • Stjórnskipan og þjóðartákn
    • Sveitarstjórnir og byggðamál
    • Trú og lífsskoðun
    • Umhverfi og náttúruvernd
    • Upplýsingatæknimál ríkisins
    • Utanríkismál
    • Útlendingar
    • Vinnumál
    • Vísindi, nýsköpun og rannsóknir
    • Öll verkefni
    • Efst á baugi
      • Fréttir
      • Nýjast
      • Fyrirspurnir frá Alþingi
      • Fyrir fjölmiðla
      • Eldri fréttir
    • Gögn
      • Rit og skýrslur
      • Úrskurðir og álit
      • Eyðublöð
      • Stefnur og áætlanir
      • Styrkir og sjóðir
      • Hugtakasafn
      • Lög og reglugerðir
      • Málaskrár ráðuneyta
      • Mælaborð
      • Hönnunarstaðall
    • Ráðuneyti
      • Forsætisráðuneytið
      • Atvinnuvegaráðuneytið
      • Dómsmálaráðuneytið
      • Félags- og húsnæðismálaráðuneytið
      • Fjármála- og efnahagsráðuneytið
      • Heilbrigðisráðuneytið
      • Innviðaráðuneytið
      • Menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðuneytið
      • Mennta- og barnamálaráðuneytið
      • Umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytið
      • Utanríkisráðuneytið
      • Sendiskrifstofur
      • Samstarfsráðherra Norðurlanda
      • Starfsfólk
      • Stofnanir
      • Nefndir
      • Símanúmer og staðsetning ráðuneyta
      • Umbra
    • Ríkisstjórn
      • Skipan ríkisstjórnar
      • Ríkisstjórnarfundir
      • Stjórnarsáttmáli
      • Ráðherranefndir
      • Reglur um starfshætti
      • Reglur um ferðakostnað og starfskjör ráðherra
      • Siðareglur, hagsmunir og hagsmunaverðir
      • Þingmálaskrá
      • Ríkisráð
      • Sögulegt efni
      • Fyrir fjölmiðla
    EN
    • Verkefni
      • Almannatryggingar og lífeyrir
      • Almannaöryggi
      • Atvinnuvegir
      • Auðlindir
      • Efnahagsmál
      • Félags- og fjölskyldumál
      • Fjarskipti
      • Húsnæðis- og mannvirkjamál
      • Líf og heilsa
      • Kosningar
      • Lög og réttur
      • Mannauðsmál ríkisins
      • Mannréttindi og jafnrétti
      • Menningarmál
      • Menntamál
      • Neytendamál
      • Opinber fjármál
      • Persónuréttur
      • Rekstur og eignir ríkisins
      • Samgöngur
      • Sjálfbært Ísland
      • Skipulagsmál
      • Stjórnskipan og þjóðartákn
      • Sveitarstjórnir og byggðamál
      • Trú og lífsskoðun
      • Umhverfi og náttúruvernd
      • Upplýsingatæknimál ríkisins
      • Utanríkismál
      • Útlendingar
      • Vinnumál
      • Vísindi, nýsköpun og rannsóknir
      • Öll verkefni
    • Efst á baugi
      • Fréttir
      • Nýjast
      • Fyrir fjölmiðla
      • Eldri fréttir
      • Fyrirspurnir frá Alþingi
    • Gögn
      • Rit og skýrslur
      • Úrskurðir og álit
      • Eyðublöð
      • Stefnur og áætlanir
      • Styrkir og sjóðir
      • Hugtakasafn
      • Lög og reglugerðir
      • Málaskrár ráðuneyta
      • Mælaborð
      • Hönnunarstaðall
    • Ráðuneyti
      • Forsætisráðuneytið
      • Atvinnuvegaráðuneytið
      • Dómsmálaráðuneytið
      • Félags- og húsnæðismálaráðuneytið
      • Fjármála- og efnahagsráðuneytið
      • Heilbrigðisráðuneytið
      • Innviðaráðuneytið
      • Menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðuneytið
      • Mennta- og barnamálaráðuneytið
      • Umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytið
      • Utanríkisráðuneytið
      • Sendiskrifstofur
      • Samstarfsráðherra Norðurlanda
      • Starfsfólk
      • Stofnanir
      • Nefndir
      • Símanúmer og staðsetning ráðuneyta
      • Umbra
    • Ríkisstjórn
      • Skipan ríkisstjórnar
      • Ríkisstjórnarfundir
      • Stjórnarsáttmáli
      • Ráðherranefndir
      • Reglur um starfshætti
      • Reglur um ferðakostnað og starfskjör ráðherra
      • Siðareglur, hagsmunir og hagsmunaverðir
      • Þingmálaskrá
      • Ríkisráð
      • Sögulegt efni
      • Fyrir fjölmiðla
    Close navigation
    Atvinnuvegir
    Efnisorð

    Ekkert fannst

    Tegund
    Tegund

    Leita eftir efnisorðum

    Sýnir 1451–1500 af 1950
    Raða eftir:
    03. des. 2020Neytendamál, Atvinnuvegir, Atvinnuvegaráðuneytið

    Skýrsla ASÍ um verðþróun á dagvörumarkaði

    Framboð eða úrval á innlendum og innfluttum landbúnaðarvörum hefur aukist töluvert undanfarna mánuði, en verð á innfluttum landbúnaðarvörum hefur hækkað í flestum​tilfellum meira en á þeim innlendu.​Í sumum vöruflokkum hækkaði verð á innfluttum landbúnaðarvörum þó ekki mikið umfram verð á innlendum vörum og tiltölulega lítið sé horft til veikingar krónunnar á tímabilinu sem verðtakan fór fram. Þetta er niðurstaða verðkönnunar sem verðlagseftirlit ASÍ framkvæmdi fyrir atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytið undanfarna mánuði.​

    02. des. 2020Vísindi nýsköpun og rannsóknir, Nýsköpun, Atvinnuvegir, Menningar-٫ nýsköpunar- og háskólaráðuneytið

    Myndband um hvers vegna erlendir sérfræðingar í hátækni- og hugverkaiðnaði velja Ísland sem atvinnusvæði

    Myndbandið sem nefnist Work in Iceland var frumsýnt í dag í beinu streymi þar sem Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir, ferðamála-, iðnaðar- og nýsköpunarráðherra, flutti ávarp.

    02. des. 2020Vísindi nýsköpun og rannsóknir, Nýsköpun, Atvinnuvegir, Covid-19, Menningar-٫ nýsköpunar- og háskólaráðuneytið

    Miklar fjárfestingar í íslenskum nýsköpunar- og tæknifyrirtækjum á árinu 2020

    Á árinu 2020 jukust fjárfestingar í íslenskum nýsköpunar- og tæknifyrirtækjum talsvert og nema fjárfestingarnar alls 17 ma.kr. Þetta er hærri fjárhæð en fjárfest var fyrir allt árið 2019, þótt fjárfestingarnar séu færri.

    30. nóv. 2020Vísindi nýsköpun og rannsóknir, Nýsköpun, Atvinnuvegir, Menningar-٫ nýsköpunar- og háskólaráðuneytið

    Hvaða tækifæri felast í að fá erlenda sérfræðinga til Íslands?

    Samtök iðnaðarins og Íslandsstofa í samvinnu við atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytið standa fyrir opnum rafrænum fundi miðvikudaginn 2. desember kl. 12.00 um tækifærin sem felast í að fá fleiri erlenda sérfræðinga til landsins í hátæknistörf. Fundinum er streymt á Facebook.

    29. nóv. 2020Atvinnuvegaráðuneytið, Líf og heilsa, Landbúnaður, Atvinnuvegir

    Ráðherra undirritar samning um sálrænan stuðning við bændur í Skagafirði

    Kristján Þór Júlíusson, sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra, Gunnar Þorgeirsson, formaður Bændasamtaka Íslands, og fulltrúar sveitarfélaga í Skagafirði hafa undirritað samkomulag við Kristínu Lindu Jónsdóttur, sálfræðing, um að veita sauðfjárbændum sálrænan stuðning og ráðgjöf vegna riðuveiki sem greinst hefur í Skagafirði. Kristín Linda er klínískur sálfræðingur og rekur eigin sálfræðistofu, Huglind ehf.

    27. nóv. 2020Ferðaþjónusta, Nýsköpun, Atvinnuvegir, Atvinnuvegaráðuneytið

    Leggur til að gildistími ferðagjafar verði framlengdur

    Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir, ferðamála-, iðnaðar- og nýsköpunarráðherra, hefur kynnt ríkisstjórn frumvarp um framlengingu á lögum um ferðagjöf, nr. 54/2020. Með breytingunni verður gildistími þeirra ferðagjafa sem ekki hafa verið nýttar eða ekki nýttar til fulls framlengdur til 31. maí 2021, eða um fimm mánuði.

    27. nóv. 2020Ferðaþjónusta, Nýsköpun, Opinber innkaup, Atvinnuvegir, Atvinnuvegaráðuneytið

    Brandenburg valið úr hópi umsækjenda í hönnun og þróun einkennis Fyrirmyndaráfangastaða

    „Undanfarin ár hefur uppbygging innviða á áfangastöðum ferðamanna um land allt verið í fyrirrúmi, með áherslu á náttúruvernd og öryggismál. Með þessu verkefni höldum við áfram á þeirri braut en með nýrri nálgun á áfangastaðastjórnun, sem tekur aukið tillit til upplifunar gesta og sérkenna hvers staðar. Það er okkar von að Fyrirmyndaráfangastaðir efli jákvæða ímynd Íslands sem lands sjálfbærrar þróunar, í takt við framtíðarsýn og leiðarljós ferðaþjónustunnar til 2030.”

    27. nóv. 2020Atvinnuvegaráðuneytið, Landbúnaður, Atvinnuvegir

    Bjargráðasjóði tryggðar 500 milljónir vegna óvenju mikilla kal- og girðingatjóna

    Kristján Þór Júlíusson, sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra, hefur tryggt aukið fjármagn til Bjargráðasjóðs vegna óvenju mikilla kal- og girðingatjóna síðasta vetur. Veitt verður 500 milljónum aukalega í sjóðinn á árinu 2020.

    26. nóv. 2020Atvinnuvegaráðuneytið, Fiskeldi, Landbúnaður, Sjávarútvegur, Atvinnuvegir

    Minnihlutavernd í veiðifélögum verði styrkt

    Kristján Þór Júlíusson, sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra, hefur lagt fram á Alþingi frumvarp til breytingar á lögum um lax- og silungsveiði, nr. 61/2006, sem miðar einkum að því að styrkja minnihlutavernd í veiðifélagi með sérstökum reglum um atkvæðavægi á fundum. Á síðasta löggjafarþingi var lagt fram frumvarp sem stefndi að sömu markmiðum, en það varð ekki að lögum. Unnið hefur verið með þær athugasemdir og tillögur sem fram komu við meðferð málsins á Alþingi og er frumvarpið afrakstur þeirrar vinnu.

    26. nóv. 2020Atvinnuvegaráðuneytið, Atvinnuvegir, Líf og heilsa, Vísindi nýsköpun og rannsóknir, Landbúnaður, Lýðheilsa og forvarnir, Heilbrigðisráðuneytið

    Sýklalyfjaónæmis- og súnusjóður auglýsir eftir umsóknum

    Auglýst er eftir umsóknum um styrki úr Sýklalyfjaónæmis- og súnusjóði.

    25. nóv. 2020Ferðaþjónusta, Atvinnuvegir, Atvinnuvegaráðuneytið

    Bætt aðstaða við Sólheimajökul í þágu öryggis og stýringar

    Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir, ferðamála-, iðnaðar- og nýsköpunarráðherra, opnaði í dag nýjan stíg við Sólheimajökul sem leiðir gesti að útsýnissvæði þar sem hægt er að horfa til jökuls og lóns. Sólheimajökull er einn af vinsælli viðkomustöðum ferðamanna á Íslandi en aðstöðu fyrir gesti hefur verið ábótavant.

    25. nóv. 2020Menntamál, Neytendamál, Skipulagsmál, Ferðaþjónusta, Atvinnuvegir, Atvinnuvegaráðuneytið

    Upplýsingasíða um lögverndun starfsgreina og starfsheita

    Nýverið kom út skýrsla OECD um samkeppnismat á regluverki byggingariðnaðar og ferðaþjónustu. Ferðamála-, iðnaðar- og nýsköpunarráðherra hafði forgöngu um gerð skýrslunnar í þeirri viðleitni að bæta skilyrði fyrir virkri samkeppni og draga úr óþarfa reglubyrði í þessum tveimur mikilvægum atvinnugreinum. Verkefnið var unnið af sérfræðingum OECD undir stjórn verkefnisstjóra frá samkeppnisdeild OECD og með þátttöku atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytisins, Samkeppniseftirlitsins auk annarra ráðuneyta og stofnana sem hafa tengsl við stjórnsýslu málaflokkanna.

    25. nóv. 2020Ferðaþjónusta, Atvinnuvegir, Atvinnuvegaráðuneytið

    Endurnýjun þjónustusamnings við Hæfnisetur ferðaþjónustunnar

    Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir ferðamála-, iðnaðar- og nýsköpunarráðherra hefur endurnýjað samning við Fræðslumiðstöð atvinnulífsins um verkefnið Hæfnisetur ferðaþjónustunnar sem er samstarfsverkefni stjórnvalda og aðila vinnumarkaðarins um að auka hæfni í ferðaþjónustu á Íslandi.

    25. nóv. 2020Vísindi nýsköpun og rannsóknir, Nýsköpun, Atvinnuvegir, Menningar-٫ nýsköpunar- og háskólaráðuneytið

    Streymisfundur í dag: Nýsköpunarvistkerfi atvinnulífsins – Klasastefna í mótun

    Í dag, miðvikudaginn 25. nóvember kl. 9:00 verður haldinn opinn fjarfundur þar sem farið verður yfir stöðu vinnunnar og kallað eftir umræðu og athugasemdum.

    24. nóv. 2020Atvinnuvegaráðuneytið, Sjávarútvegur, Atvinnuvegir

    Skýrsla um útflutning á óunnum fiski

    Sjávarútvegsmiðstöð Háskólans á Akureyri hefur skilað atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytinu skýrslu um álitaefni sem varða útflutning óunnins fisks og áhrifa á íslenskt atvinnulíf og samfélag. Sjávarútvegsmiðstöðinni var falið að vinna hana eftir fyrirspurn frá atvinnuveganefnd Alþingis.

    24. nóv. 2020Atvinnuvegaráðuneytið, Landbúnaður, Atvinnuvegir

    Annar innlausnarmarkaður ársins fyrir greiðslumark í sauðfé

    Kristján Þór Júlíusson, sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra hefur ákveðið að haldinn verður auka innlausnarmarkaður með greiðslumark í sauðfé í desember 2020. Markaðurinn er haldinn að tillögu Landssamtaka sauðfjárbænda um að auka greiðslumark á markaði fyrir sauðfjárbændur. Aðgerðin miðar að því að jafna stöðu bænda innan kerfisins þar sem greiðslumarki er beint til hópa sem framleiða með minnstum opinberum stuðningi.

    20. nóv. 2020Vísindi nýsköpun og rannsóknir, Covid-19, Nýsköpun, Atvinnuvegir, Menningar-٫ nýsköpunar- og háskólaráðuneytið

    Kría í Samráðsgátt stjórnvalda

    Reglugerð um Kríu – sprota- og nýsköpunarsjóð er nú í Samráðsgátt stjórnvalda, en hlutverk Kríu er að fjárfesta í sérhæfðum fjárfestingarsjóðum, svokölluðum vísisjóðum (e. venture capital funds) sem sjálfir fjárfesta í nýskapandi sprotafyrirtækjum. Tilgangur með stofnun Kríu er að efla fjárfestingarumhverfi sprota- og nýsköpunarfyrirtækja á Íslandi og er liður í stefnumótun stjórnvalda í málefnum nýsköpunar og í samræmi við Nýsköpunarstefnu.

    20. nóv. 2020Vísindi nýsköpun og rannsóknir, Nýsköpun, Atvinnuvegir, Menningar-٫ nýsköpunar- og háskólaráðuneytið

    Nýsköpunarvistkerfi atvinnulífsins – Klasastefna í mótun

    Miðvikudaginn 25. nóvember kl. 9:00 verður haldinn opinn fjarfundur þar sem að farið verður yfir stöðu vinnunnar og kallað eftir umræðu og athugasemdum.

    19. nóv. 2020Atvinnuvegaráðuneytið, Covid-19, Landbúnaður, Atvinnuvegir

    Kórónaveira fannst ekki í minkum

    Í rannsóknum sýnataka úr minkum á íslenskum minkabúum greindist enginn með SARS-CoV-2 veiruna sem veldur COVID-19 sjúkdómnum. Skimunum Matvælastofnunar á öllum minkabúum er nú lokið.

    18. nóv. 2020Vísindi nýsköpun og rannsóknir, Nýsköpun, Atvinnuvegir, Menningar-٫ nýsköpunar- og háskólaráðuneytið

    Controlant hlýtur Nýsköpunarverðlaun Íslands 2020

    Íslenska fyrirtækið Controlant hlaut í dag Nýsköpunarverðlaun Íslands árið 2020 sem veitt voru við hátíðlega athöfn í Hörpu. Þórdís Kolbrún R. Gylfadóttir, ferðamála-, iðnaðar- og nýsköpunarráðherra afhenti verðlaunin sem veitt hafa verið framsæknum nýsköpunarfyrirtækjum frá 1994.

    18. nóv. 2020Efnahagsmál og opinber fjármál, Vísindi nýsköpun og rannsóknir, Norrænt samstarf, Nýsköpun, Opinber innkaup, Rafræn viðskipti, Ríkisreikningar, Atvinnuvegir, Menningar-٫ nýsköpunar- og háskólaráðuneytið

    Nordic Smart Government: Verðmætasköpun með stafrænum lausnum

    Fjárfesting í stafrænni þróun og nýsköpun er brýn á tímum fjórðu iðnbyltingarinnar, faraldurs og samdráttar. Hvar liggja tækifærin?

    18. nóv. 2020Atvinnuvegaráðuneytið, Landbúnaður, Atvinnuvegir

    Kaup og sala greiðslumarks í sauðfé

    Innlausnarmarkaður greiðslumarks í sauðfé og endurúthlutun þess til umsækjenda fór fram nú í nóvember. Framkvæmdin er í samræmi við breytingar sem gerðar voru á sauðfjársamningi við endurskoðun hans sl. vetur og nýjar úthlutunarreglur sem tóku gildi með reglugerð 1253/2019. Í þeim felst m.a. að umsækjendum er skipt í þrjá hópa með tilliti til forgangs og að úthlutun tekur mið af því að hver framleiðandi getur ekki óskað eftir ærgildum umfram þau sem tryggja honum óskertar beingreiðslur í samræmi við fjárfjölda og ásetningshlutfall.

    17. nóv. 2020Neytendamál, Húsnæðis- og mannvirkjamál, Byggðamál, Atvinnuvegir, Atvinnuvegaráðuneytið

    Frumvarp um einföldun regluverks í Samráðsgátt stjórnvalda

    Frumvarp til laga um breytingar á ýmsum lögum vegna einföldunar regluverks er að finna í Samráðsgátt stjórnvalda. Frumvarpið er annar liður í aðgerðaráætlun atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytisins um einföldun regluverks á málefnasviði ferðamála-, iðnaðar- og nýsköpunarráðherra. Í frumvarpinu er m.a. horft til nýlegrar skýrslu OECD um samkeppnismat á byggingariðnaðar og ferðaþjónustu.

    17. nóv. 2020Atvinnuvegaráðuneytið, Auðlindir, Vísindi nýsköpun og rannsóknir, Sjávarútvegur, Atvinnuvegir

    Ársfundur Norðaustur-Atlantshafsfiskveiðiráðsins

    Ársfundur Norðaustur-Atlantshafsfiskveiðiráðsins (NEAFC), sá 39. í röðinni, var haldinn í gegnum fjarfundabúnað dagana 10.-13. nóvember. Ráðið fer með stjórn fiskveiða utan lögsagna ríkja á Norðaustur-Atlantshafi. Bretar gerðust nýlega aðilar að ráðinu eftir útgöngu sína úr Evrópusambandinu, en auk þeirra eru aðilar NEAFC Danmörk (varðandi Færeyjar og Grænland), Evrópusambandið, Ísland, Noregur og Rússland. Stefán Ásmundsson, skrifstofustjóri í atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytinu (ANR) fór fyrir íslensku sendinefndinni á fundinum. Í sendinefndinni voru, auk fulltrúa ANR, fulltrúar utanríkisráðuneytisins, Fiskistofu, Hafrannsóknastofnunar, og Samtaka fyrirtækja í sjávarútvegi.

    17. nóv. 2020Vísindi nýsköpun og rannsóknir, Landbúnaður, Nýsköpun, Sjávarútvegur, Atvinnuvegir, Menningar-٫ nýsköpunar- og háskólaráðuneytið

    Ráðherra undirritaði nýjan þjónustusamning við Matís

    Kristján Þór Júlíusson, sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra og Matís hafa undirritað tvo nýja samninga, þjónustusamning til að tryggja öryggisþjónustu á sviði matvælarannsókna í þágu landsmanna og samning um eflingu starfsemi Matís á landsbyggðinni.

    15. nóv. 2020Atvinnuvegaráðuneytið, Auðlindir, Umhverfi og náttúruvernd, Vísindi nýsköpun og rannsóknir, Náttúruvernd, Sjávarútvegur, Atvinnuvegir

    Unnið að hvítbók um vistkerfisbreytingar í hafinu við Ísland

    Hafrannsóknastofnun vinnur nú að hvítbók um umhverfis og vistkerfisbreytingar í hafinu við Ísland og mögulegar sviðsmyndir eða afleiðingar áhrifa loftslagsbreytinga. Vinnan er unnin að frumkvæði Kristjáns Þórs Júlíussonar, sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra, en ráðherra gerði grein fyrir vinnunni í ávarpi á ársfundi Hafrannsóknastofnunar á föstudag. Áformað er að skýrslan liggi fyrir í apríl á næsta ári.

    13. nóv. 2020Atvinnuvegaráðuneytið, Húsnæðis- og mannvirkjamál, Vísindi nýsköpun og rannsóknir, Atvinnuvegir

    Árétting vegna umfjöllunar um rannsóknir á rakaskemmdum

    Í tilefni af umfjöllun um rannsóknir á rakaskemmdum í mannvirkjum áréttar atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytið að áhersla er lögð á að efla rannsóknir í byggingariðnaði og tryggja samfellu í samfélagslega mikilvægum rannsóknum á borð við þær sem snúa að rakaskemmdum og myglu í mannvirkjum.

    13. nóv. 2020Auðlindir, Orka, Atvinnuvegir, Umhverfis-٫ orku- og loftslagsráðuneytið

    Greining á regluverki og fyrirkomulagi er varðar flutning og dreifingu raforku

    Að undanförnu hefur verið umræða um flutnings- og dreifikostnað raforku á Íslandi og rekstrarumhverfi sérleyfisfyrirtækja sem sjá um flutning og dreifingu raforku samkvæmt raforkulögum. Flutningsfyrirtækið Landsnet og dreifiveitur starfa innan ramma tekjumarka sem Orkustofnun setur þeim samkvæmt ákveðnum viðmiðum og forsendum sem koma fram í raforkulögum og reglugerðum. Eru þau ákvæði raforkulaga í grunninn frá árinu 2003 en var talsvert breytt 2011. Ákvarða tekjumörkin gjaldskrár sérleyfisfyrirtækjanna fyrir flutning og dreifingu raforku.

    13. nóv. 2020Neytendamál, Orka, Atvinnuvegir, Atvinnuvegaráðuneytið

    Úttekt á samkeppnishæfni stóriðju á Íslandi með tilliti til raforkukostnaðar

    Þýska fyrirtækið Fraunhofer hefur að beiðni atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytisins gert úttekt á samkeppnishæfni stóriðju á Íslandi með tilliti til raforkukostnaðar. Meginniðurstaðan er að raforkukostnaður stórnotenda á Íslandi skerði almennt ekki samkeppnishæfni þeirra gagnvart samanburðarlöndunum, sem eru Noregur, Kanada (Quebec) og Þýskaland.

    11. nóv. 2020Atvinnuvegaráðuneytið, Landbúnaður, Atvinnuvegir

    Endurskoðun hafin á reglum um riðu o.fl.

    Kristján Þór Júlíusson, sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra, hefur sett af stað vinnu í atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytinu við að meta og endurskoða reglur og stjórnsýslu hvað varðar málefni riðu, varnarlínu búfjár, bótafyrirkomulags vegna búfjársjúkdóma og regluverk dýraheilbrigðis. Er nú unnið að nánari skilgreiningu og afmörkun verkefnanna í verkþætti.

    11. nóv. 2020Auðlindir, Neytendamál, Vísindi nýsköpun og rannsóknir, Ferðaþjónusta, Fiskeldi, Landbúnaður, Nýsköpun, Sjávarútvegur, Orka, Atvinnuvegir, Atvinnuvegaráðuneytið

    Styrkveitingar haustið 2020

    Atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytið auglýsir eftir umsóknum um styrki til verkefna og viðburða á málefnasviðum ferðamála-, iðnaðar- og nýsköpunarráðherra og sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra.

    11. nóv. 2020Auðlindir, Alþjóðamál, Sjávarútvegur, Vísindi nýsköpun og rannsóknir, Nýsköpun, Atvinnuvegir, Menningar-٫ nýsköpunar- og háskólaráðuneytið

    Samkomulag við Breta um framtíðarsamstarf í sjávarútvegsmálum undirritað

    Sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherrar Íslands og Bretlands, Kristján Þór Júlíusson og Victoria Prentis, undirrituðu í dag samkomulag um framtíðarsamstarf ríkjanna í sjávarútvegsmálum.

    10. nóv. 2020Atvinnuvegaráðuneytið, Landbúnaður, Atvinnuvegir

    Skýrslu um þróun tollverndar skilað til ráðherra

    Starfshópur, sem falið var að greina þróun tollverndar og stöðu íslensks landbúnaðar gagnvart breytingum í alþjóðlegu viðskiptaumhverfi, hefur skilað skýrslu til sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra og gerði ráðherra grein fyrir skýrslunni á fundi ríkisstjórnarinnar í morgun. Í skýrslunni er fjallað um markaðsaðgang og tollaívilnanir í gegnum fríverslunar- og viðskiptasamninga sem Ísland hefur gert, ítarlega er farið yfir þróun á innflutningi landbúnaðarafurða og innlendrar framleiðslu síðasta áratuginn og fjallað er um þróun tollverndar og stuðning við landbúnað í alþjóðlegu samhengi.

    10. nóv. 2020Efnahagsmál og opinber fjármál, Neytendamál, Skipulagsmál, Vinnumál, Byggðamál, Ferðaþjónusta, Nýsköpun, Atvinnuvegir, Atvinnuvegaráðuneytið

    Opinn streymisfundur: Kynning á samkeppnismati OECD um ferðaþjónustu og byggingariðnað á Íslandi

    Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir, ferðamála-, iðnaðar- og nýsköpunarráðherra býður til opins streymisfundar um niðurstöður samkeppnismats OECD á íslenskri ferðaþjónustu og byggingariðnaði

    09. nóv. 2020Atvinnuvegir, Umhverfi og náttúruvernd, Ferðaþjónusta, Hönnun, Náttúruvernd, Atvinnuvegaráðuneytið

    Leitað að hönnuðum til að þróa einkenni fyrir nýtt kerfi áfangastaðastjórnunar

    Atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytið og umhverfis- og auðlindaráðuneytið í samstarfi við Miðstöð hönnunar og arkitektúrs leita að hönnuði eða hönnunarteymi til að vinna að hönnun og þróun einkennis og kynningarefnis fyrir nýtt kerfi áfangastaðastjórnunar, sem ber vinnuheitið Fyrirmyndaráfangastaðir í ferðaþjónustu

    06. nóv. 2020Atvinnuvegaráðuneytið, Atvinnuvegir, Umhverfi og náttúruvernd, Landbúnaður, Umhverfis-٫ orku- og loftslagsráðuneytið

    Aðgerðir hafnar vegna riðuveiki í Skagafirði

    ​Riðuveiki er staðfest á fjórum sauðfjárbúum í Skagafirði, þ.e. Stóru-Ökrum 1, Syðri-Hofdölum, Grænumýri og Hofi í Hjaltadal. Á grundvelli laga um dýrasjúkdóma og varnir gegn þeim hefur atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytið, að undangengnum tillögum Matvælastofnunar, fyrirskipað niðurskurð alls fjár á búunum eða á um 2.500 gripum og hefur niðurskurður þegar verið framkvæmdur á búunum Hofi og Stóru-Ökrum.

    06. nóv. 2020Atvinnuvegaráðuneytið, Auðlindir, Sjávarútvegur, Atvinnuvegir

    Endurnýjaður samningur við Færeyjar um fiskveiðimál

    Kristján Þór Júlíusson, sjávarútvegs- og landbúnaðaráðherra og Jacob Vestergaard sjávarútvegsráðherra Færeyja náðu fyrr í vikunni samkomulagi um fiskveiðiheimildir Færeyinga innan íslenskrar lögsögu fyrir næsta ár og um gagnkvæman aðgang að veiðum í lögsögu landanna fyrir norsk-íslenska síld og kolmunna.

    05. nóv. 2020Atvinnuvegaráðuneytið, Landbúnaður, Atvinnuvegir

    Niðurstöður tilboðsmarkaðar fyrir greiðslumark mjólkur

    Atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytinu bárust 209 gild tilboð um kaup og sölu á tilboðsmarkaði fyrir greiðslumark mjólkur þann 2. nóvember 2020. Þetta er síðasti markaðurinn á yfirstandandi ári og aðilaskipti greiðslumarks á markaðnum taka gildi frá 1. janúar 2021.

    04. nóv. 2020Atvinnuvegaráðuneytið, Landbúnaður, Atvinnuvegir

    Opnað fyrir skil á haustskýrslum

    Atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytið hefur opnað fyrir skráningar á haustskýrslum fyrir árið 2020 í Bústofni. Í samræmi við 10. gr. laga um búfjárhald nr. 38/2013, er öllum umráðamönnum búfjár skylt að skila árlega rafrænni haustskýrslu í Bústofni, eigi síðar en 20. nóvember.

    30. okt. 2020Atvinnuvegaráðuneytið, Landbúnaður, Atvinnuvegir

    Ráðherra fór yfir stöðu varðandi riðu í Skagafirði

    Kristján Þór Júlíusson, sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra, gerði á fundi ríkisstjórnarinnar í morgun grein fyrir stöðunni vegna staðfestrar riðuveiki í Skagafirði. Rannsóknir hafa leitt í ljós að riðuveiki er staðfest á fjórum sauðfjárbúum í Skagafirði, þ.e. Stóru-Ökrum 1, Syðri-Hofdölum, Grænumýri og Hofi í Hjaltadal. ​

    28. okt. 2020Atvinnuvegir, Ferðaþjónusta, Covid-19, Atvinnuvegaráðuneytið

    Sviðsmyndagreining um ferðaþjónustu

    Ferðamálastofa, KPMG og Stjórnstöð ferðamála kynntu í morgun sviðsmyndagreiningu um mögulega þróun ferðaþjónustunnar á næstu misserum.

    28. okt. 2020Covid-19, Ferðaþjónusta, Atvinnuvegir, Atvinnuvegaráðuneytið

    Tekjufallsstyrkir til ferðaþjónustunnar áætlaðir allt að 3,5 milljarðar króna

    Samkvæmt frumvarpi fjármála- og efnahagsráðherra um tekjufallsstyrki munu minni ferðaþjónustuaðilar, leiðsögumenn o.fl. geta sótt um styrk vegna tekjufalls sem varð vegna COVID-19 heimsfaraldursins.

    27. okt. 2020Fjármála- og efnahagsráðuneytið, Atvinnuvegir, Efnahagsmál og opinber fjármál, Vísindi nýsköpun og rannsóknir, Covid-19, Nýsköpun, Dómsmálaráðuneytið, Menningar-٫ nýsköpunar- og háskólaráðuneytið

    Erlendir sérfræðingar geti unnið í fjarvinnu á Íslandi

    Ferðamála-, iðnaðar, og nýsköpunarráðherra, dómsmálaráðherra og fjármála- og efnahagsráðherra hafa lagt fram minnisblað fyrir ríkisstjórn um aðgerðir til þess að gera erlendum ríkisborgurum sem eru utan EES kleift að dvelja á Íslandi í allt að sex mánuði og stunda vinnu sína hjá erlendum fyrirtækjum í fjarvinnu. Með breytingunni verður þeim ríkisborgurum, sem eru undanþegnir áritunarskyldu, heimilt að sækja um langtímavegabréfsáritun á Íslandi fyrir starfsmenn í fjarvinnu og fjölskyldur þeirra án þess að þurfa að flytja lögheimili til landsins eða fá kennitölur.

    27. okt. 2020Atvinnuvegaráðuneytið, Landbúnaður, Atvinnuvegir

    Riðuveiki í Skagafirði rædd í ríkisstjórn

    Kristján Þór Júlíusson, sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra, gerði á fundi ríkisstjórnarinnar í morgun grein fyrir stöðunni sem komin er upp í Skagafirði vegna staðfestrar riðuveiki í Tröllaskagahólfi. Hinn 22. október sl. greindist riðuveiki á bænum Stóru- Ökrum 1 og Matvælastofnun hefur undanfarna daga kortlagt frekari útbreiðslu veikinnar.

    23. okt. 2020Covid-19, Nýsköpun, Orka, Efnahagsmál og opinber fjármál, Neytendamál, Evrópusamvinna, Atvinnuvegir, Atvinnuvegaráðuneytið

    Ráðherra á fundi viðskiptaráðherra innan EES: „Samkeppni er hvati nýsköpunar“

    „Nýsköpun þarf að vera kjarni nýrrar efnahagsstefnu því hún er lykillinn að sjálfbærum hagvexti til lengri tíma. Samkeppni og nýsköpun eru samofin. Án virkrar samkeppni er takmarkaður hvati til nýsköpunar,“ sagði Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir, ferðamála-, iðnaðar, og nýsköpunarráðherra

    20. okt. 2020Líf og heilsa, Vísindi nýsköpun og rannsóknir, Heilbrigðismál, Landbúnaður, Nýsköpun, Heilbrigðisráðuneytið, Atvinnuvegir, Menningar-٫ nýsköpunar- og háskólaráðuneytið

    Þróa próf sem styttir greiningu á sýklalyfjaónæmum bakteríum niður í klukkustund

    Sýklalyfjaónæmis og súnusjóður úthlutar í fyrsta sinn. Tvö verkefni tengd grunnrannsóknum í sýklalyfjaónæmi fá hæstu styrkina úr Sýklalyfjaónæmis- og súnusjóði sem nú úthlutar í fyrsta sinn. Tilgangur sjóðsins er að fjármagna verkefni undir formerkjum „Einnar heilsu“ (e. One Health) í baráttunni gegn sýklalyfjaónæmi. Verkefnin snúa annars vegar að framlínuforvörnum í heilsu manna og dýra með DNA hraðgreiningar á sýklalyfjaónæmum bakteríum og hins vegar að upprunateikningu á sýklalyfjaónæmum E.coli stofnum með raðgreiningum á erfðamengi þeirra. Sjóðnum bárust 14 umsóknir og alls hljóta níu verkefni og rannsóknir styrki fyrir alls 32.1 milljónir króna í þessari fyrstu úthlutun sjóðsins.

    20. okt. 2020Atvinnuvegaráðuneytið, Landbúnaður, Atvinnuvegir

    Efla viðbrögð við plöntusjúkdómum

    Kristján Þór Júlíusson, sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra, hefur ákveðið að endurskoða reglugerð (nr. 189/1990) sem snýr að innflutningi og útflutningi á plöntum og gera nauðsynlegar breytingar á reglugerðinni með það að markmiði að efla varnir gegn plöntusjúkdómum og styrkja regluverkið. Við endurskoðunina verður m.a. hugað að því að efla viðbrögð við plöntusjúkdómum innanlands, styrkja utanumhald við innflutning og auka öryggi gagnvart nýgengi plöntusjúkdóma við innflutning.​

    16. okt. 2020Atvinnuvegaráðuneytið, Auðlindir, Fiskeldi, Landbúnaður, Sjávarútvegur, Atvinnuvegir

    Ráðherra skipar í embætti þriggja skrifstofustjóra í atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytinu

    Nýtt skipurit atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytisins tók gildi í þessum mánuði en með breytingunum urðu til þrjár nýjar fagskrifstofur í stað tveggja áður. Um er að ræða skrifstofu landbúnaðarmála, skrifstofu matvælaöryggis og fiskeldis og skrifstofu sjávarútvegsmála.

    16. okt. 2020Covid-19, Hönnun, Nýsköpun, Atvinnuvegir, Menningar-٫ nýsköpunar- og háskólaráðuneytið

    Íslenskt gler, snjallhringur og stafrænt strokhljóðfæri meðal styrkþega úr Hönnunarsjóði

    Hönnunarsjóður úthlutaði í gær , 15. október, 18 styrkjum til ólíkra verkefna á vegum hönnunar og arkitektúrs. Að þessu sinni voru 17 milljónum úthlutað en alls bárust 122 umsóknir um 230 milljónir.

    15. okt. 2020Atvinnuvegaráðuneytið, Landbúnaður, Atvinnuvegir

    Auglýst eftir umsóknum um jarðræktarstyrki í garðyrkju

    Opnað hefur verið fyrir rafrænar umsóknir um jarðræktarstyrki í garðyrkju vegna útiræktaðs grænmetis á yfirstandandi ári á Afurð Greiðslukerfi landbúnaðarins afurd.is.

    • First
    • Prev
    • 28
    • 29
    • 30
    • 31
    • 32
    • Next
    • Last
    Logo
    • Um vefinn
    • Áskrift
    • Veftré
    • Fyrirvari
    +354 545 8000
    Staðsetning ráðuneyta, opnunartími og netföng
    Hafa samband

    Hafa samband