07. júl. 2026Utanríkisráðuneytið, Utanríkismál, Öryggis- og varnarmál, Forsætisráðuneytið
Forsætisráðherra og utanríkisráðherra sækja leiðtogafund Atlantshafsbandalagsins í Ankara
Leiðtogafundur Atlantshafsbandalagsins hefst í Ankara í Tyrklandi í dag, þar sem gert er ráð fyrir að aukin framlög bandalagsríkja til varnarmála, jafnari skipting byrða og áframhaldandi stuðningur við Úkraínu verði í forgrunni. Kristrún Frostadóttir, forsætisráðherra, og Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir, utanríkisráðherra, sækja fundinn fyrir hönd Íslands.