13. maí 2026Mennta- og barnamálaráðuneytið, Innviðaráðuneytið
Sveitarfélögin á höfuðborgarsvæðinu og ríkið hefja samstarf um uppbyggingu sérskólaúrræða
Viljayfirlýsing um samstarf um uppbyggingu sérskólaúrræða á höfuðborgarsvæðinu var undirrituð í dag. Að viljayfirlýsingunni standa Reykjavíkurborg, Kópavogsbær, Hafnarfjarðarkaupstaður, Garðabær, Mosfellsbær og Seltjarnarneskaupstaður ásamt mennta- og barnamálaráðuneytinu og innviðaráðuneytinu.