18. ágú. 2020Heilbrigðisráðuneytið, Covid-19, Líf og heilsa, Ræður og greinar
Samtal um leiðarljós
Svandís Svavarsdóttir heilbrigðisráðherra skrifar: Á fimmtudaginn næstkomandi, 20. ágúst, boða ég til samráðsfundar í formi vinnustofu, í samstarfi við forsætis-, dóms- og menntamálaráðuneyti, með lykilaðilum af hinum ýmsu sviðum samfélagsins. Markmið fundarins er að ræða áframhaldandi stefnu og aðgerðir vegna Covid-19 til lengri tíma litið. Efnt er til samráðsins í samræmi við tillögu sóttvarnalæknis. Markmiðið er að að stilla saman strengi og móta áherslur sem geti nýst í áframhaldandi vinnu við mótun aðgerða vegna Covid-19 á næstu misserum. Vegna sóttvarnarsjónarmiða verður fjöldi þátttakenda takmarkaður en þeim mun meiri áhersla verður lögð á það að öll sem vilja og hafa áhuga geti tekið þátt í fundinum á netinu.