Coat of arms
Stjórnarráð Íslands
  • Verkefni
    • Almannatryggingar og lífeyrir
    • Almannaöryggi
    • Atvinnuvegir
    • Auðlindir
    • Efnahagsmál
    • Félags- og fjölskyldumál
    • Fjarskipti
    • Húsnæðis- og mannvirkjamál
    • Líf og heilsa
    • Kosningar
    • Lög og réttur
    • Mannauðsmál ríkisins
    • Mannréttindi og jafnrétti
    • Menningarmál
    • Menntamál
    • Neytendamál
    • Opinber fjármál
    • Persónuréttur
    • Rekstur og eignir ríkisins
    • Samgöngur
    • Sjálfbært Ísland
    • Skipulagsmál
    • Stjórnskipan og þjóðartákn
    • Sveitarstjórnir og byggðamál
    • Trú og lífsskoðun
    • Umhverfi og náttúruvernd
    • Upplýsingatæknimál ríkisins
    • Utanríkismál
    • Útlendingar
    • Vinnumál
    • Vísindi, nýsköpun og rannsóknir
    • Öll verkefni
    • Efst á baugi
      • Fréttir
      • Nýjast
      • Fyrirspurnir frá Alþingi
      • Fyrir fjölmiðla
      • Eldri fréttir
    • Gögn
      • Rit og skýrslur
      • Úrskurðir og álit
      • Eyðublöð
      • Stefnur og áætlanir
      • Styrkir og sjóðir
      • Hugtakasafn
      • Lög og reglugerðir
      • Málaskrár ráðuneyta
      • Mælaborð
      • Hönnunarstaðall
    • Ráðuneyti
      • Forsætisráðuneytið
      • Atvinnuvegaráðuneytið
      • Dómsmálaráðuneytið
      • Félags- og húsnæðismálaráðuneytið
      • Fjármála- og efnahagsráðuneytið
      • Heilbrigðisráðuneytið
      • Innviðaráðuneytið
      • Menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðuneytið
      • Mennta- og barnamálaráðuneytið
      • Umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytið
      • Utanríkisráðuneytið
      • Sendiskrifstofur
      • Samstarfsráðherra Norðurlanda
      • Starfsfólk
      • Stofnanir
      • Nefndir
      • Símanúmer og staðsetning ráðuneyta
      • Umbra
    • Ríkisstjórn
      • Skipan ríkisstjórnar
      • Ríkisstjórnarfundir
      • Stjórnarsáttmáli
      • Ráðherranefndir
      • Reglur um starfshætti
      • Reglur um ferðakostnað og starfskjör ráðherra
      • Siðareglur, hagsmunir og hagsmunaverðir
      • Þingmálaskrá
      • Ríkisráð
      • Sögulegt efni
      • Fyrir fjölmiðla
    EN
    • Verkefni
      • Almannatryggingar og lífeyrir
      • Almannaöryggi
      • Atvinnuvegir
      • Auðlindir
      • Efnahagsmál
      • Félags- og fjölskyldumál
      • Fjarskipti
      • Húsnæðis- og mannvirkjamál
      • Líf og heilsa
      • Kosningar
      • Lög og réttur
      • Mannauðsmál ríkisins
      • Mannréttindi og jafnrétti
      • Menningarmál
      • Menntamál
      • Neytendamál
      • Opinber fjármál
      • Persónuréttur
      • Rekstur og eignir ríkisins
      • Samgöngur
      • Sjálfbært Ísland
      • Skipulagsmál
      • Stjórnskipan og þjóðartákn
      • Sveitarstjórnir og byggðamál
      • Trú og lífsskoðun
      • Umhverfi og náttúruvernd
      • Upplýsingatæknimál ríkisins
      • Utanríkismál
      • Útlendingar
      • Vinnumál
      • Vísindi, nýsköpun og rannsóknir
      • Öll verkefni
    • Efst á baugi
      • Fréttir
      • Nýjast
      • Fyrir fjölmiðla
      • Eldri fréttir
      • Fyrirspurnir frá Alþingi
    • Gögn
      • Rit og skýrslur
      • Úrskurðir og álit
      • Eyðublöð
      • Stefnur og áætlanir
      • Styrkir og sjóðir
      • Hugtakasafn
      • Lög og reglugerðir
      • Málaskrár ráðuneyta
      • Mælaborð
      • Hönnunarstaðall
    • Ráðuneyti
      • Forsætisráðuneytið
      • Atvinnuvegaráðuneytið
      • Dómsmálaráðuneytið
      • Félags- og húsnæðismálaráðuneytið
      • Fjármála- og efnahagsráðuneytið
      • Heilbrigðisráðuneytið
      • Innviðaráðuneytið
      • Menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðuneytið
      • Mennta- og barnamálaráðuneytið
      • Umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytið
      • Utanríkisráðuneytið
      • Sendiskrifstofur
      • Samstarfsráðherra Norðurlanda
      • Starfsfólk
      • Stofnanir
      • Nefndir
      • Símanúmer og staðsetning ráðuneyta
      • Umbra
    • Ríkisstjórn
      • Skipan ríkisstjórnar
      • Ríkisstjórnarfundir
      • Stjórnarsáttmáli
      • Ráðherranefndir
      • Reglur um starfshætti
      • Reglur um ferðakostnað og starfskjör ráðherra
      • Siðareglur, hagsmunir og hagsmunaverðir
      • Þingmálaskrá
      • Ríkisráð
      • Sögulegt efni
      • Fyrir fjölmiðla
    Close navigation
    Efnisorð
    Efnisorð

    Ekkert fannst

    Tegund
    Tegund

    Leita eftir efnisorðum

    Sýnir 1901–1950 af 3887
    Raða eftir:
    06. mar. 2020Forsætisráðuneytið, Lög og réttur

    Réttarstaða þriðja aðila bætt með breytingu á upplýsingalögum

    Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra lagði fram í ríkisstjórn í morgun frumvarp til laga um breytingu á upplýsingalögum nr. 140/2012.

    05. mar. 2020Forsætisráðuneytið

    Yfirlýsing ríkisstjórnar, SA og ASÍ um laun í sóttkví

    Ríkisstjórnin, Samtök atvinnulífsins og Alþýðusamband Íslands hafa komist að samkomulagi um hvernig staðið verði að launagreiðslum til fólks sem þarf að vera í sóttkví vegna COVID-19.

    05. mar. 2020Forsætisráðuneytið, Úrskurðarnefnd um upplýsingamál, Úrskurðir

    879/2020. Úrskurður frá 26. febrúar 2020

    Úrskurðarnefnd um upplýsingamál taldi sig ekki hafa forsendur til að rengja staðhæfingar Reykjavíkurborgar að öll fyrirliggjandi gögn er varða beiðni kæranda hefðu verið afhent. Því lá ekki fyrir ákvörðun um að synja kæranda um aðgang að gögnum í skilningi 20. gr. upplýsingalaga og var kærunni vísað frá nefndinni.

    05. mar. 2020Forsætisráðuneytið, Úrskurðarnefnd um upplýsingamál, Úrskurðir

    878/2020. Úrskurður frá 26. febrúar 2020

    Í málinu var deilt um rétt kæranda, blaðamanns, til aðgangs að upplýsingum um afdrif erindis frá starfsmanni embættis ríkislögreglustjóra sem hefði borist dómsmálaráðuneytinu árið 2019 þar sem kvartað hefði verið undan stjórnunarháttum ríkislögreglustjóra. Úrskurðarnefnd um upplýsingamál staðfesti ákvörðun ráðuneytisins um synjun beiðni kæranda um aðgang að gögnum sem kynnu að geyma slíkar upplýsingar með vísan til 1. mgr. 7. gr. upplýsingalaga en fyrir lá að ríkislögreglustjóri hafði ekki sætt viðurlögum í starfi síðustu fjögur árin áður en beiðni kæranda barst, sbr. 3. mgr. 7. gr. laganna.

    05. mar. 2020Forsætisráðuneytið, Úrskurðarnefnd um upplýsingamál, Úrskurðir

    877/2020. Úrskurður frá 26. febrúar 2020

    Úrskurðarnefnd um upplýsingamál staðfesti ákvörðun Herjólfs ohf. um að synja beiðni kæranda um aðgang að nöfnum umsækjenda um stöður kokka, matráða, þerna og þjónustufólks á nýjum Herjólfi með vísan til 1. og 4. mgr. 7. gr. upplýsingalaga.

    05. mar. 2020Forsætisráðuneytið, Úrskurðarnefnd um upplýsingamál, Úrskurðir

    876/2020. Úrskurður frá 26. febrúar 2020

    Kærandi óskaði eftir upplýsingum um heildargreiðslur til sauðfjárræktenda fyrir árin 2015 og 2016 á grundvelli 1. mgr. 5. gr. upplýsingalaga um upplýsingarétt almennings. Matvælastofnun taldi óheimilt að veita kæranda aðgang að yfirliti yfir staðfestar greiðslur til sauðfjárbænda á sömu árum með vísan til 9. gr. upplýsingalaga. Það var mat úrskurðarnefndarinnar að þrátt fyrir að upplýsingarnar varði greiðslur til lögbýla og þar með fjárhagsmálefni þeirra sem þiggja greiðslur vegna sauðfjárræktar gæfu upplýsingarnar ekki slíka innsýn í fjármál þeirra sem að rekstrinum stæði að rétt væri að takmarka aðgang að upplýsingum um þær og víkja þannig til hliðar upplýsingarétti almennings um ráðstöfun opinberra fjármuna. Var því Matvælastofnun gert að veita kæranda aðgang að yfirlitinu.

    05. mar. 2020Forsætisráðuneytið, Úrskurðarnefnd um upplýsingamál, Úrskurðir

    875/2020. Úrskurður frá 26. febrúar 2020

    Deilt var um synjun Isavia ohf. á beiðni blaðamanns um aðgang að yfirliti yfir stöðu fjárfestinga félagsins. Isavia ohf. hélt því fram að um vinnugögn væri að ræða, sbr. 8. gr. upplýsingalaga, og að upplýsingar í þeim væru þess eðlis að takmarka ætti aðgang að þeim vegna mikilvægra fjárhags- og viðskiptahagsmuna Isavia ohf. og annarra fyrirtækja, sbr. 9. gr. upplýsingalaga. Úrskurðarnefndin taldi Isavia ohf. ekki hafa tekið nægilega rökstudda afstöðu til gagnabeiðninnar til þess að nefndinni væri unnt að endurskoða ákvörðunina, var hún því felld úr gildi og lagt fyrir Isavia ohf. að taka málið til nýrrar meðferðar.

    05. mar. 2020Forsætisráðuneytið, Úrskurðarnefnd um upplýsingamál, Úrskurðir

    868/2020. Úrskurður frá 26. febrúar 2020

    Í málinu var deilt um rétt kæranda til aðgangs að gögnum tengdum fræðilegri ritröð sem fyrirhugað var að kæmi út á vegum Háskólaútgáfunnar og þeirri ákvörðun ritstjórnar ritraðarinnar að hafna bókatillögu kæranda. Að mati úrskurðarnefndar um upplýsingamál hafði Háskóli Íslands ekki lagt fullnægjandi grundvöll að þeirri ákvörðun sinni að synja kæranda um aðgang að gögnunum og var málinu því vísað heim til nýrrar og lögmætrar meðferðar og afgreiðslu.

    03. mar. 2020Forsætisráðuneytið, Innviðaráðuneytið, Fjármála- og efnahagsráðuneytið

    Fimmtán aðgerðir til að treysta búsetu og atvinnulíf á Flateyri

    Forsætisráðherra, fjármála- og efnahagsráðherra og samgöngu- og sveitarstjórnarráðherra skipuðu þann 24. janúar sl. starfshóp til að móta tillögur um aðgerðir til að treysta atvinnulíf og búsetu á Flateyri við Önundarfjörð í kjölfar snjóflóðanna þann 14. janúar sl.

    03. mar. 2020Forsætisráðuneytið, Covid-19

    Þjóðaröryggisráð fundar um viðbrögð og viðbúnað vegna COVID-19

    Í dag var haldinn upplýsinga- og stöðufundur í þjóðaröryggisráði um viðbrögð og viðbúnað hér á landi vegna COVID-19.

    28. feb. 2020Rit og skýrslur, Forsætisráðuneytið

    Skýrsla átakshóps og áætlun um 540 innviðaframkvæmdir fram til 2030

    Í aðgerðaáætluninni henni eru taldar til aðgerðir vegna uppbyggingar innviða fram til 2030 með nýjum verkefnum en einnig verkefnum sem liggja fyrir í samþykktum áætlunum ríkisins, sveitarstjórna og fyrirtækja. Áætlunin telur 540 aðgerðir, þar af eru 192 nýjar aðgerðir og 40 aðgerðir sem lagt er til að verði flýtt í framkvæmdaáætlunum Landsnets og dreifiveitna. Aðrar aðgerðir eru þegar innan núverandi framkvæmda- og fjármálaáætlana.

    28. feb. 2020Forsætisráðuneytið, Líf og heilsa, Almannaöryggi, Covid-19

    Sérstakur stýrihópur um samfélagsleg og hagræn viðbrögð við Covid-19 veirunni

    Ríkisstjórnin ákvað á fundi sínum í morgun að setja á fót sérstakan stýrihóp ráðuneytisstjóra allra ráðuneyta um samfélagsleg og hagræn viðbrögð við Covid-19 veirunni. ​

    28. feb. 2020Forsætisráðuneytið, Fjármála- og efnahagsráðuneytið, Dómsmálaráðuneytið, Atvinnuvegaráðuneytið, Samgöngur og fjarskipti, Fjarskipti, Vegasamgöngur, Almannaöryggi, Innviðaráðuneytið

    Innviðaframkvæmdum flýtt – átakshópur skilar skýrslu og áætlun um 540 aðgerðir á vefsíðunni innvidir2020.is

    Tillögur átakshóps um úrbætur í innviðum fela m.a. í sér að:

    25. feb. 2020Forsætisráðuneytið, Úrskurðarnefnd um upplýsingamál, Úrskurðir

    874/2020. Úrskurður frá 14. febrúar 2020

    Kærð var synjun fjármála- og efnahagsráðuneytisins á beiðni blaðamanns um aðgang að annars vegar minnisblaði ríkisskattstjóra og hins vegar minnisblaði skattrannsóknarstjóra ríkisins sem send voru ráðuneytinu. Úrskurðarnefnd um upplýsingamál féllst ekki á það með ráðuneytinu að gögnin væru undanþegin upplýsingarétti á grundvelli þess að um væri að ræða upplýsingar um rannsókn sakamáls, sbr. 1. mgr. 4. gr. upplýsingalaga. Hins vegar taldi úrskurðarnefndin ráðuneytinu hafa verið heimilt að takmarka aðgang að hluta þeirra upplýsinga sem fram kæmu í minnisblöðunum sem lytu að fyrirhuguðum ráðstöfunum vegna rannsókna á meintum brotum. Var ráðuneytinu gert að veita kæranda aðgang að öðrum hlutum minnisblaðanna.

    25. feb. 2020Forsætisráðuneytið, Úrskurðarnefnd um upplýsingamál, Úrskurðir

    873/2020. Úrskurður frá 14. febrúar 2020

    Í málinu var leyst úr rétti kæranda, blaðamanns, til aðgangs að upplýsingum frá Ríkisútvarpinu ohf. um greiðslur félagsins til sjálfstæðra framleiðanda vegna kaupa á dagskrárefni árið 2018. Ákvörðun Ríkisútvarpsins ohf. um að synja beiðni kæranda var reist á 9. gr. upplýsingalaga þar sem í gögnunum kæmu fram upplýsingar um mikilvæga fjárhags- og viðskiptahagsmuni viðsemjenda félagsins. Úrskurðarnefnd um upplýsingamál vísaði til þess að samningsgerðin væri hluti af lögbundnu hlutverki RÚV sem fjármagnað væri af opinberu fé. Ekki var talið að upplýsingarnar veittu slíka innsýn í fjárhagsmálefni einstaklinga að rétt væri að takmarka aðgang að upplýsingunum og víkja þannig til hliðar upplýsingarétti almennings um ráðstöfun opinberra fjármuna. Var Ríkisútvarpinu ohf.…

    25. feb. 2020Forsætisráðuneytið, Úrskurðarnefnd um upplýsingamál, Úrskurðir

    872/2020. Úrskurður frá 14. febrúar 2020

    Deilt var um rétt kæranda, blaðamanns, til aðgangs að upplýsingum frá embætti ríkislögreglustjóra um hvort tiltekið mál hafi verið til meðferðar hjá embættinu. Úrskurðarnefnd um upplýsingamál taldi ljóst, með vísan til athugasemda við 7. gr. í frumvarpi til upplýsingalaga nr. 140/2012, að upplýsingar um hvort slíkt mál hafi verið til meðferðar yrðu felldar undir undanþáguákvæði 1. mgr. 7. gr. upplýsingalaga. Var því fallist á það með embætti ríkislögreglustjóra að kærandi ætti ekki rétt á upplýsingum um það hvort embættið hafi haft slíkt mál til meðferðar.

    25. feb. 2020Forsætisráðuneytið, Heilbrigðisráðuneytið

    Ríkisstjórnin styrkir gerð heimildarmyndar um geðhvörf

    Ríkisstjórnin samþykkti á fundi sínum í morgun að veita eina milljóna króna af sameiginlegu ráðstöfunarfé sínu til gerðar heimildarmyndar um geðhvörf.

    25. feb. 2020Forsætisráðuneytið, Úrskurðarnefnd um upplýsingamál, Úrskurðir

    871/2020. Úrskurður frá 14. febrúar 2020

    Kærð var afgreiðsla Grindavíkurbæjar á beiðni um aðgang að sundurliðuðum rekstrareikningi sem tilgreini tekjur og gjöld vegna reksturs byggingarfulltrúa árin 2017 og 2018 og sundurliðuðum rekstrareikningi vegna geymslusvæðis Grindavíkurbæjar í Moldarlág sömu ár. Grindavíkurbær afhenti kæranda sundurliðunarbækur fyrir árin 2017 og 2018 en svaraði kæranda því að þær upplýsingar sem hann óskaði eftir væru að öðru leyti ekki fyrirliggjandi hjá sveitarfélaginu. Úrskurðarnefndin taldi sig ekki hafa forsendur til að draga staðhæfingu Grindavíkurbæjar í efa. Þar sem umbeðin gögn voru ekki fyrirliggjandi var málinu vísað frá nefndinni.

    25. feb. 2020Forsætisráðuneytið, Úrskurðarnefnd um upplýsingamál, Úrskurðir

    870/2020. Úrskurður frá 14. febrúar 2020

    Deilt var um rétt kæranda til aðgangs að umsögn sem þáverandi forstjóri hjúkrunarheimilis ritaði embætti ríkislögmanns í tengslum við dómsmál. Úrskurðarnefnd um upplýsingamál féllst á það með embætti ríkislögmanns að umsögnin væri undanþegin upplýsingarétti með vísan til 3. tölul. 6. gr. upplýsingalaga. Var því synjun embættisins staðfest.

    25. feb. 2020Forsætisráðuneytið, Úrskurðarnefnd um upplýsingamál, Úrskurðir

    869/2020. Úrskurður frá 14. febrúar 2020

    Í málinu var leyst úr rétti kæranda til aðgangs að skýrslu yfirfélagsráðgjafa Vestmannaeyja til Barnaverndarstofu en kæranda var synjað um aðgang að skýrslunni annars vegar með vísan til þess að um væri að ræða vinnugögn, sbr. 5. tölul. 6. gr. upplýsingalaga, og hins vegar þess að í skýrslunni kæmu fram viðkvæmar persónuupplýsingar sem óheimilt væri að veita aðgang að, sbr. 9. gr. laganna. Úrskurðarnefndin taldi skýrsluna ekki uppfylla skilyrði 1. málsl. 1. mgr. 8. gr. upplýsingalaga til þess að teljast undirbúningsgagn í reynd. Var því ekki fallist á að skýrslan væri undanþegin upplýsingarétti á þeim grundvelli að um væri að ræða vinnugagn. Nefndin féllst hins vegar á að Vestmannaeyjabæ væri óheimilt að veita aðgang að hluta upplýsinganna vegna 9. gr.…

    21. feb. 2020Dómsmálaráðuneytið, Jafnrétti, Mannréttindi og jafnrétti, Forsætisráðuneytið

    Fjölmennt jafnréttisþing um samspil jafnréttismála og umhverfismála

    Fjölmennt jafnréttisþing var haldið í Hörpu fimmtudaginn 20. febrúar.

    21. feb. 2020Forsætisráðuneytið, Almannaöryggi

    Ráðstefna þjóðaröryggisráðs um fjölþáttaógnir

    Þjóðaröryggisráð stendur fyrir ráðstefnu um fjölþáttaógnir fimmtudaginn 27. febrúar.

    21. feb. 2020Dómsmálaráðuneytið, Jafnrétti, Mannréttindi og jafnrétti, Forsætisráðuneytið

    Íslensk stjórnvöld óska eftir að leiða átaksverkefni UN Women

    Ríkisstjórnin ákvað á fundi sínum í morgun að íslensk stjórnvöld óski formlega eftir að vera meðal forysturíkja átaksverkefnis Stofnunar Sameinuðu þjóðanna um kynjajafnrétti og valdeflingu kvenna (UN Women) til næstu fimm ára.

    19. feb. 2020Forsætisráðuneytið

    Forsætisráðherra heimsótti fangelsið Hólmsheiði

    Katrín Jakobsdóttir, forsætisráðherra, heimsótti fangelsið Hólmsheiði í dag og kynnti sér starfsemina og húsakynnin.

    19. feb. 2020Dómsmálaráðuneytið, Jafnrétti, Mannréttindi og jafnrétti, Forsætisráðuneytið

    Skýrsla forsætisráðherra um stöðu og þróun jafnréttismála 2018 – 2019 birt í aðdraganda jafnréttisþings

    Skýrsla forsætisráðherra um stöðu og þróun jafnréttismála 2018 – 2019 hefur verið birt á vef Stjórnarráðsins.

    19. feb. 2020Forsætisráðuneytið

    Forsætisráðherra tekur við formennsku í Heimsráði kvenleiðtoga

    Katrín Jakobsdóttir, forsætisráðherra, tekur í dag við formennsku í Heimsráði kvenleiðtoga.

    18. feb. 2020Forsætisráðuneytið

    Forsætisráðherra undirritar þjónustusamning við Samtökin '78

    Forsætisráðuneytið og Samtökin '78, hagsmuna- og baráttusamtök hinsegin fólks á Íslandi, hafa ákveðið að endurnýja samning um að samtökin sinni sértækri fræðslu, þjónustu og ráðgjöf er varða málefni hinsegin fólks.

    18. feb. 2020Forsætisráðuneytið

    Forsætisráðherra undirritar samning við Kvenréttindafélag Íslands

    Forsætisráðuneytið og Kvenréttindafélag Íslands (KRFÍ) hafa ákveðið að endurnýja samning um að félagið sinni ráðgjöf, fræðslu, námskeiðahaldi og upplýsingagjöf um jafnrétti kynjanna á innlendum og erlendum vettvangi.

    18. feb. 2020Forsætisráðuneytið, Fjármála- og efnahagsráðuneytið, Dómsmálaráðuneytið

    Hvernig metum við áhrif laga? Aðferðafræði, verkaskipting og áskoranir

    Forsætisráðuneytið, fjármála- og efnahagsráðuneytið og atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytið stóðu fyrir málþinginu Hvernig metum við áhrif laga? Aðferðafræði, verkaskipting og áskoranir 18. febrúar 2020.

    18. feb. 2020Forsætisráðuneytið

    Forsætisráðherra flutti ávarp á 100 ára afmæli Hæstaréttar Íslands

    Katrín Jakobsdóttir, forsætisráðherra, fjallaði um þátt Hæstaréttar í sögu síðustu aldar í ávarpi sínu í tilefni 100 ára afmælis réttarins.

    13. feb. 2020Forsætisráðuneytið

    Frumvarp til laga um eignarráð og nýtingu fasteigna í samráðsgátt

    Frumvarp forsætisráðherra um breytingu á ýmsum lögum er varða eignarráð og nýtingu fasteigna hefur verið birt í samráðsgátt stjórnvalda.

    11. feb. 2020Forsætisráðuneytið

    Siðfræðistofnun skilar framvinduskýrslu um tillögur starfshóps um eflingu trausts á stjórnmálum og stjórnsýslu

    Siðfræðistofnun Háskóla Íslands hefur skilað Katrínu Jakobsdóttur, forsætisráðherra, framvinduskýrslu um innleiðingu tillagna starfshóps um eflingu trausts á stjórnmálum og stjórnsýslu.

    11. feb. 2020Forsætisráðuneytið, Fjármála- og efnahagsráðuneytið, Atvinnuvegaráðuneytið

    Málþing um mat á áhrifum lagasetningar

    Forsætisráðuneytið, fjármála- og efnahagsráðuneytið og atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytið standa, þriðjudaginn 18. febrúar 2020, fyrir málþinginu Hvernig metum við áhrif laga? Aðferðafræði, verkaskipting og áskoranir.

    10. feb. 2020Forsætisráðuneytið, Félags- og húsnæðismálaráðuneytið, Dómsmálaráðuneytið

    Kynferðisleg friðhelgi til umfjöllunar á ríkisstjórnarfundi

    Tillögur forsætisráðherra um vernd kynferðislegrar friðhelgi voru til umfjöllunar á ríkisstjórnarfundi á föstudag.

    07. feb. 2020Forsætisráðuneytið, Úrskurðarnefnd um upplýsingamál, Úrskurðir

    867/2020. Úrskurður frá 29. janúar 2020

    Kærð var synjun fjármála- og efnahagsráðuneytisins á beiðni blaðamanns um aðgang að fundargerðum stjórnar Lindarhvols ehf. fyrir árin 2016-2018. Ráðuneytið synjaði beiðninni á þeim grundvelli að afgreiðsla hennar tæki of langan tíma, sbr. 1. tölul. 4. mgr. 15. gr. upplýsingalaga, m.a. vegna þess að afmá þyrfti hluta upplýsinganna úr fundargerðunum með hliðsjón af 9. og 10. gr. upplýsingalaga. Úrskurðarnefndin féllst ekki á að yfirferð fundargerðanna gæti tekið svo langan tíma að undantekningarákvæði 4. mgr. 15. gr. ætti við. Ákvörðun fjármála- og efnahagsráðuneytisins var því felld úr gildi og lagt fyrir ráðuneytið að taka málið til nýrrar meðferðar og afgreiðslu.

    07. feb. 2020Forsætisráðuneytið, Úrskurðarnefnd um upplýsingamál, Úrskurðir

    866/2020. Úrskurður frá 29. janúar 2020

    Kærð var synjun Fiskistofu á beiðni um aðgang að tilkynningum til stofnunarinnar um veiddar langreyðar og skoðunarskýrslum stofnunarinnar vegna eftirlitsferða við langreyðaveiðar. Synjunin byggðist á því að stór hluti þess sem fram kæmi í gögnunum fæli í sér mikilvæga fjárhags- eða viðskiptahagsmuni þriðja aðila, sem sanngjarnt og eðlilegt væri að færu leynt, skv. 9. gr. upplýsingalaga. Úrskurðarnefndin taldi upplýsingarnar hins vegar ekki verða felldar undir undanþáguákvæði 9. gr. upplýsingalaga og var Fiskistofu því gert að veita kæranda aðgang að umbeðnum gögnum.

    07. feb. 2020Forsætisráðuneytið, Úrskurðarnefnd um upplýsingamál, Úrskurðir

    865/2020. Úrskurður frá 29. janúar 2020

    Kærð var synjun Herjólfs ohf. á beiðni um aðgang að farmskrá ferjunnar og upplýsingum um nöfn umsækjenda um störf hjá félaginu. Að því er varðaði farmskrána vísaði Herjólfur til þess að um væri að ræða upplýsingar um mikilvæga fjárhags- og viðskiptahagsmuni félagsins. Væri því óheimilt að veita aðgang að henni, sbr. 9. gr. upplýsingalaga. Einnig var vísað til samkeppnishagsmuna Herjólfs ohf. Að mati úrskurðarnefndarinnar fól farmskráin ekki í sér slíkar upplýsingar og var félaginu gert að afhenda skrána. Hvað varðar umsækjendur um störf er ekki skylt að veita aðgang að slíkum upplýsingum hjá lögaðilum sem falla undir upplýsingalög, öfugt við það sem gildir um umsækjendur um störf hjá stjórnvöldum. Úrskurðarnefndin staðfesti því þann hluta ákvörðunar Herjólfs ohf.

    07. feb. 2020Forsætisráðuneytið, Úrskurðarnefnd um upplýsingamál, Úrskurðir

    864/2020. Úrskurður frá 29. janúar 2020

    Kærð var synjun Isavia ohf. á beiðni blaðamanns um aðgang að tveimur minnisblöðum sem unnin voru fyrir Isavia ohf. Synjunin var aðallega byggð á 3. tölul. 6. gr. upplýsingalaga, þ.e. að minnisblöðin fælu í sér lögfræðilega álitsgerð sem hefði verið tekin saman í tengslum við dómsmál. Að mati úrskurðarnefndarinnar báru minnisblöðin með sér að þeirra hefði verið aflað í tengslum við aðgerðir Isavia ohf. gegn WOW Air. Var synjunin því staðfest.

    07. feb. 2020Forsætisráðuneytið, Úrskurðarnefnd um upplýsingamál, Úrskurðir

    863/2020. Úrskurður frá 29. janúar 2020

    Kærð var synjun þjónustumiðstöðvar Laugardals og Háaleitis á beiðni um gögn varðandi tiltekinn einstakling. Fram kom að gögnin hefðu verið flutt á Borgarskjalasafn og væru því ekki fyrirliggjandi hjá þjónustumiðstöðinni. Málinu var vísað frá úrskurðarnefndinni.

    07. feb. 2020Forsætisráðuneytið, Úrskurðarnefnd um upplýsingamál, Úrskurðir

    862/2020. Úrskurður frá 29. janúar 2020

    Kærð var synjun RARIK ohf. á beiðni um gögn er varða jarðhitaboranir í Hornafirði. Synjunin byggði á því að um væri að ræða upplýsingar um fjárhagsmálefni einstaklinga og fyrirtækja sem óheimilt væri að afhenda, sbr. 9. gr. upplýsingalaga. RARIK ohf. var gert að afhenda samning við landeigendur um jarðhitaréttindi, þar sem samningurinn innihélt ákvæði um þinglýsingu, einnig skýrslu Íslenskra orkurannsókna, þar sem stofnunin samþykkti afhendingu skýrslunnar. Að öðru leyti var synjun RARIK ohf. staðfest á grundvelli 9. gr. upplýsingalaga.

    05. feb. 2020Forsætisráðuneytið

    Tillaga til þingsályktunar um forvarnir gegn kynferðislegu og kynbundnu ofbeldi og áreitni í samráðsgátt

    Drög að tillögu forsætisráðherra til þingsályktunar um forvarnir gegn kynferðislegu og kynbundnu ofbeldi og áreitni, ásamt áætlun fyrir árin 2021 – 2025 hafa verið birt í samráðsgátt stjórnvalda þar sem almenningi og hagsmunaaðilum gefst kostur á að senda inn umsögn við efni tillögunnar.

    04. feb. 2020Forsætisráðuneytið, Mennta- og barnamálaráðuneytið

    Ríkisstjórnin styrkir útgáfu íslenskra einsöngslaga

    Ríkisstjórnin samþykkti á fundi sínum í morgun að veita eina milljón króna af sameiginlegu ráðstöfunarfé sínu til tónverkamiðstöðvarinnar Ísalaga sem stendur að útgáfu íslenskra einsöngslaga. ​

    03. feb. 2020Forsætisráðuneytið

    Forsætisráðherra á leiðtogafundi EFTA-ríkjanna í EES í Osló

    Katrín Jakobsdóttir, forsætisráðherra, fundaði með Ernu Solberg, forsætisráðherra Noregs, og Adrian Hasler, forsætisráðherra Liechtenstein, á leiðtogafundi EFTA-ríkjanna í EES, sem haldinn var í Osló í morgun.

    31. jan. 2020Forsætisráðuneytið

    Upplýsingafundur þjóðaröryggisráðs

    Í dag var haldinn upplýsingafundur í þjóðaröryggisráði í tilefni af yfirlýsingu Alþjóðaheilbrigðismálastofnunarinnar um að kórónaveirufaraldurinn sem nú geisar sé alþjóðleg heilbrigðisógn.

    30. jan. 2020Forsætisráðuneytið

    Forsætisráðherra mælti fyrir frumvarpi til laga um varnir gegn hagsmunaárekstrum

    Katrín Jakobsdóttir, forsætisráðherra, mælti á Alþingi í gær fyrir frumvarpi til laga um varnir gegn hagsmunaárekstrum hjá æðstu handhöfum framkvæmdarvalds í Stjórnarráði Íslands.

    24. jan. 2020Forsætisráðuneytið

    Forsætisráðherra styrkir Slysavarnarfélagið Landsbjörg vegna flutnings björgunarskips til Flateyrar

    Forsætisráðherra hefur ákveðið að verða við ósk Slysavarnarfélagsins Landsbjargar og styrkja félagið um hálfa milljón króna til að standsetja björgunarskip sem staðsett er á Rifi á Snæfellsnesi og sigla því til Flateyrar þar sem það mun vera við höfn í vetur.

    24. jan. 2020Forsætisráðuneytið

    Starfshópur um aðgerðir til að treysta atvinnulíf og búsetu á Flateyri við Önundarfjörð

    Forsætisráðherra, fjármála- og efnahagsráðherra og samgöngu- og sveitarstjórnarráðherra hafa ákveðið að skipa starfshóp til að móta tillögur um aðgerðir til að treysta atvinnulíf og búsetu á Flateyri við Önundarfjörð í kjölfar snjóflóðsins þann 14. janúar sl. Verkefni starfshópsins er að kanna leiðir til að byggja upp traust íbúa Flateyrar á samfélagslegum innviðum og gera tillögur um aðgerðir sem treyst geta stoðir byggðarinnar.

    23. jan. 2020Forsætisráðuneytið

    Fanney Rós Þorsteinsdóttir sett tímabundið í embætti ríkislögmanns

    Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra hefur ákveðið að setja Fanneyju Rós Þorsteinsdóttur í embætti ríkislögmanns, tímabundið til þriggja mánaða. Fanney Rós gegnir embættinu í fjarveru Einars Karls Hallvarðssonar ríkislögmanns.

    22. jan. 2020Dómsmálaráðuneytið, Jafnrétti, Loftslagsmál, Forsætisráðuneytið

    Jafnréttisþing haldið í Hörpu 20.02.2020

    Jafnréttisþing verður haldið í Hörpu fimmtudaginn 20. febrúar 2020 undir yfirskriftinni Jafnrétti í breyttum heimi: Kyn, loftslag og framtíðin.

    21. jan. 2020Forsætisráðuneytið

    Tekjusagan – uppfærður gagnagrunnur um þróun lífskjara

    Fyrir um ári síðan, eða þann 18. janúar 2019, opnuðu forsætisráðherra, fjármála- og efnahagsráðherra og samgöngu- og sveitarstjórnarráðherra vefinn tekjusagan.is.

    • First
    • Prev
    • 37
    • 38
    • 39
    • 40
    • 41
    • Next
    • Last
    Logo
    • Um vefinn
    • Áskrift
    • Veftré
    • Fyrirvari
    +354 545 8000
    Staðsetning ráðuneyta, opnunartími og netföng
    Hafa samband

    Hafa samband