Coat of arms
Stjórnarráð Íslands
  • Verkefni
    • Almannatryggingar og lífeyrir
    • Almannaöryggi
    • Atvinnuvegir
    • Auðlindir
    • Efnahagsmál
    • Félags- og fjölskyldumál
    • Fjarskipti
    • Húsnæðis- og mannvirkjamál
    • Líf og heilsa
    • Kosningar
    • Lög og réttur
    • Mannauðsmál ríkisins
    • Mannréttindi og jafnrétti
    • Menningarmál
    • Menntamál
    • Neytendamál
    • Opinber fjármál
    • Persónuréttur
    • Rekstur og eignir ríkisins
    • Samgöngur
    • Sjálfbært Ísland
    • Skipulagsmál
    • Stjórnskipan og þjóðartákn
    • Sveitarstjórnir og byggðamál
    • Trú og lífsskoðun
    • Umhverfi og náttúruvernd
    • Upplýsingatæknimál ríkisins
    • Utanríkismál
    • Útlendingar
    • Vinnumál
    • Vísindi, nýsköpun og rannsóknir
    • Öll verkefni
    • Efst á baugi
      • Fréttir
      • Nýjast
      • Fyrirspurnir frá Alþingi
      • Fyrir fjölmiðla
      • Eldri fréttir
    • Gögn
      • Rit og skýrslur
      • Úrskurðir og álit
      • Eyðublöð
      • Stefnur og áætlanir
      • Styrkir og sjóðir
      • Hugtakasafn
      • Lög og reglugerðir
      • Málaskrár ráðuneyta
      • Mælaborð
      • Hönnunarstaðall
    • Ráðuneyti
      • Forsætisráðuneytið
      • Atvinnuvegaráðuneytið
      • Dómsmálaráðuneytið
      • Félags- og húsnæðismálaráðuneytið
      • Fjármála- og efnahagsráðuneytið
      • Heilbrigðisráðuneytið
      • Innviðaráðuneytið
      • Menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðuneytið
      • Mennta- og barnamálaráðuneytið
      • Umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytið
      • Utanríkisráðuneytið
      • Sendiskrifstofur
      • Samstarfsráðherra Norðurlanda
      • Starfsfólk
      • Stofnanir
      • Nefndir
      • Símanúmer og staðsetning ráðuneyta
      • Umbra
    • Ríkisstjórn
      • Skipan ríkisstjórnar
      • Ríkisstjórnarfundir
      • Stjórnarsáttmáli
      • Ráðherranefndir
      • Reglur um starfshætti
      • Reglur um ferðakostnað og starfskjör ráðherra
      • Siðareglur, hagsmunir og hagsmunaverðir
      • Þingmálaskrá
      • Ríkisráð
      • Sögulegt efni
      • Fyrir fjölmiðla
    EN
    • Verkefni
      • Almannatryggingar og lífeyrir
      • Almannaöryggi
      • Atvinnuvegir
      • Auðlindir
      • Efnahagsmál
      • Félags- og fjölskyldumál
      • Fjarskipti
      • Húsnæðis- og mannvirkjamál
      • Líf og heilsa
      • Kosningar
      • Lög og réttur
      • Mannauðsmál ríkisins
      • Mannréttindi og jafnrétti
      • Menningarmál
      • Menntamál
      • Neytendamál
      • Opinber fjármál
      • Persónuréttur
      • Rekstur og eignir ríkisins
      • Samgöngur
      • Sjálfbært Ísland
      • Skipulagsmál
      • Stjórnskipan og þjóðartákn
      • Sveitarstjórnir og byggðamál
      • Trú og lífsskoðun
      • Umhverfi og náttúruvernd
      • Upplýsingatæknimál ríkisins
      • Utanríkismál
      • Útlendingar
      • Vinnumál
      • Vísindi, nýsköpun og rannsóknir
      • Öll verkefni
    • Efst á baugi
      • Fréttir
      • Nýjast
      • Fyrir fjölmiðla
      • Eldri fréttir
      • Fyrirspurnir frá Alþingi
    • Gögn
      • Rit og skýrslur
      • Úrskurðir og álit
      • Eyðublöð
      • Stefnur og áætlanir
      • Styrkir og sjóðir
      • Hugtakasafn
      • Lög og reglugerðir
      • Málaskrár ráðuneyta
      • Mælaborð
      • Hönnunarstaðall
    • Ráðuneyti
      • Forsætisráðuneytið
      • Atvinnuvegaráðuneytið
      • Dómsmálaráðuneytið
      • Félags- og húsnæðismálaráðuneytið
      • Fjármála- og efnahagsráðuneytið
      • Heilbrigðisráðuneytið
      • Innviðaráðuneytið
      • Menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðuneytið
      • Mennta- og barnamálaráðuneytið
      • Umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytið
      • Utanríkisráðuneytið
      • Sendiskrifstofur
      • Samstarfsráðherra Norðurlanda
      • Starfsfólk
      • Stofnanir
      • Nefndir
      • Símanúmer og staðsetning ráðuneyta
      • Umbra
    • Ríkisstjórn
      • Skipan ríkisstjórnar
      • Ríkisstjórnarfundir
      • Stjórnarsáttmáli
      • Ráðherranefndir
      • Reglur um starfshætti
      • Reglur um ferðakostnað og starfskjör ráðherra
      • Siðareglur, hagsmunir og hagsmunaverðir
      • Þingmálaskrá
      • Ríkisráð
      • Sögulegt efni
      • Fyrir fjölmiðla
    Close navigation
    Efnisorð
    Efnisorð

    Ekkert fannst

    Tegund
    Tegund

    Leita eftir efnisorðum

    Sýnir 1901–1950 af 3010
    Raða eftir:
    17. apr. 2018Innviðaráðuneytið, Sveitarstjórnir og byggðamál

    Ráðherra mælti fyrir stefnumótandi byggðaáætlun 2018-2024

    Sigurður Ingi Jóhannsson samgöngu- og sveitarstjórnarráðherra mælti á Alþingi í gær fyrir tillögu til þingsályktunar um stefnumótandi byggðaáætlun fyrir árin 2018 til 2024. Áætlunin er unnin í samræmi við lög um byggðaáætlun og sóknaráætlanir nr. 69/2015 þar sem kveðið er á um að áætlunin lýsi stefnu ríkisins í byggðamálum hverju sinni og samhæfingu við aðra stefnumótun og áætlanagerð hins opinbera.

    16. apr. 2018Innviðaráðuneytið, Samgönguáætlun, Siglingar, Samgöngur og fjarskipti

    Styrkir til verkefna sem ætlað er að auka öryggi sjófarenda

    Árlega eru veittir styrkir til hugvitsmanna til rannsókna og þróunar verkefna sem geta stuðlað að auknu öryggi sjófarenda. Styrkir eru nú lausir til umsóknar og er frestur til að skila inn umsóknum til 15. maí nk. Frekari upplýsingar er að finna á vef Samgöngustofu.

    16. apr. 2018Innviðaráðuneytið, Samgöngur og fjarskipti, Almannaöryggi

    Drög að breytingu á reglugerð um framkvæmd siglingaverndar í umsagnarferli

    Samgöngu- og sveitarstjórnarráðuneytið hefur nú birt til umsagnar í Samráðsgáttinni drög að breytingu á reglugerð um framkvæmd siglingaverndar. Með drögunum eru lagðar til breytingar sem fela í sér að Samgöngustofa skuli tilnefna stjórnvald hafnaverndar fyrir hverja höfn og það stjórnvald skuli vera ábyrgt fyrir gerð og framkvæmd verndaráætlana. Opið er fyrir innsendingu umsagna til og með 30. apríl nk.

    16. apr. 2018Innviðaráðuneytið, Vegasamgöngur, Samgöngur og fjarskipti

    Ný reglugerð um hækkun sekta fyrir umferðarlagabrot tekur gildi 1. maí

    Sigurður Ingi Jóhannsson samgöngu- og sveitarstjórnarráðherra hefur skrifað undir nýja reglugerð um sektir og önnur viðurlög fyrir umferðarlagabrot. Tekur hún gildi 1. maí næstkomandi. Sektir við umferðarlagabrotum hafa ekki hækkað í rúman áratug og er talin ástæða til að sektarupphæðir fylgi þróun verðlags. Nauðsynlegt er að fjárhæð sekta endurspegli alvarleika umferðarlagabrota og þá hættu sem þau skapa. Sektir við umferðarlagabrotum eru til þess fallnar að veita ökumönnum aukið aðhald og stuðla þannig að auknu umferðaröryggi.

    13. apr. 2018Innviðaráðuneytið, Samgöngur og fjarskipti

    Áfangaskýrsla vegna flutninga á hergögnum með íslenskum loftförum 2008-2017

    Samgöngu- og sveitarstjórnarráðherra kynnti fyrir ríkisstjórn í dag áfangaskýrslu vegna könnunar á flutningi á hergögnum með borgaralegum loftförum en sú vinna var gerð að beiðni forsætisráðherra.

    13. apr. 2018Rit og skýrslur, Vegasamgöngur, Innviðaráðuneytið, Samgöngur

    Lokaskýrsla starfshóps um heildarendurskoðun á leigubifreiðakerfinu

    apríl 2018 / Innviðaráðuneytið Lokaskýrsla starfshóps um heildarendurskoðun á leigubifreiðakerfinu Lokaskýrsla starfshóps um heildarendurskoðun á leigubifreiðakerfinu

    13. apr. 2018Innviðaráðuneytið, Samgöngur og fjarskipti

    Ráðgert að hefja vinnu við ný lög um leigubifreiðar með hliðsjón af tillögum starfshóps

    Starfshópur sem skipaður var á vegum samgöngu- og sveitarstjórnarráðuneytisins í október á síðasta ári til að endurskoða í heild regluverk um leigubifreiðaakstur á Íslandi hefur skilað skýrslu með tillögum sínum. Starfshópurinn telur m.a. rétt að afnema fjöldatakmarkanir á útgefnum atvinnuleyfum til leigubifreiðaaksturs og að fallið verði frá lögbundinni stöðvarskyldu. Samgöngu- og sveitarstjórnarráðherra hefur með hliðsjón af tillögum starfshópsins tekið ákvörðun um að í ráðuneytinu skuli hefja undirbúning að frumvarpi til nýrra laga um leigubifreiðar með það að markmiði að leggja það fram á haustþingi 2019.

    11. apr. 2018Sveitarstjórnir og byggðamál, Fjarskiptasjóður, Fjarskipti, Netöryggi, Samgöngur og fjarskipti, Upplýsingatæknimál ríkisins, Innviðaráðuneytið

    Ísland í 1. sæti meðal þjóða heims í upplýsingatækni og fjarskiptum

    „Ríkisstjórnin hefur metnað til að Ísland haldi stöðu sinni sem eitt af forysturíkjum heims í fjarskiptainnviðum og nýtingu þeirra í þágu samfélagsins,“ sagði Sigurður Ingi Jóhannsson samgöngu- og sveitarstjórnarráðherra eftir að hafa veitt viðtöku viðurkenningu frá Alþjóðafjarskiptasambandinu (ITU) þar sem Ísland náði þeim árangri að verða í 1. sæti á heimsvísu á einkunnalista sambandsins árið 2017 í upplýsingatækni og fjarskiptum. Houlin Zhao, aðalritari ITU kom hingað til lands til að afhenda viðurkenninguna.

    11. apr. 2018Innviðaráðuneytið, Sveitarstjórnir og byggðamál, Samgöngur og fjarskipti, Byggðamál

    Aukin áhersla á samgöngu- og byggðamál

    Gert er ráð fyrir töluverðri aukningu til málefnasviðs samgöngu- og fjarskiptamála og málefnasviðs sveitarstjórna og byggðamála í tillögu að fjármálaáætlun 2019-2023 ef miðað er við fjármálaáætlun 2018-2022. Aukningin til málefnasviðs samgöngu- og fjarskiptamála nemur alls 13,6 ma.kr. yfir tímabil áætlunarinnar og aukningin á heildarframlagi til málefnasviðs sveitarfélaga og byggðamála alls 791 m.kr.

    11. apr. 2018Innviðaráðuneytið, Úrskurðir á málefnasviði innviðaráðuneytisins, Úrskurðir

    Úrskurður í máli nr. SRN17090038

    Þjóðskrá Íslands: Staðfest ákvörðun um lögheimilisskráningu

    06. apr. 2018Samgöngur og fjarskipti, Innviðaráðuneytið

    Embætti forstjóra Vegagerðarinnar auglýst laust til umsóknar

    Samgöngu- og sveitarstjórnarráðherra auglýsir embætti forstjóra Vegagerðarinnar laust til umsóknar. Umsóknarfrestur er til 23. apríl næstkomandi.

    05. apr. 2018Samgöngur og fjarskipti, Flug og flugvellir, Innviðaráðuneytið

    Samgöngu- og sveitarstjórnarráðherra ávarpaði aðalfund Isavia

    Sigurður Ingi Jóhannsson, samgöngu- og sveitarstjórnarráðherra, flutti í dag ávarp við upphaf aðalfundar Isavia sem haldinn var í Reykjavík. Fram kom meðal annars í máli hans að samkvæmt fjármálaáætlun næstu ár verður auknu fé varið til viðhalds flugvalla en á liðnum árum. Einnig sagði ráðherra að nú væri að hefjast mótun fyrstu flugstefnu á Íslandi sem muni taka á öllum þáttum í flugstarfsemi.

    03. apr. 2018Sveitarstjórnir og byggðamál, Jöfnunarsjóður, Innviðaráðuneytið

    Ný reglugerð um framlög Jöfnunarsjóðs vegna þjónustu við fatlað fólk

    Samgöngu- og sveitarstjórnarráðherra hefur gefið út nýja reglugerð um framlög Jöfnunarsjóðs sveitarfélaga vegna þjónustu við fatlað fólk á árinu 2018. Reglugerðin er sett á grundvelli laga um tekjustofna sveitarfélaga.

    28. mar. 2018Innviðaráðuneytið, Úrskurðir á málefnasviði innviðaráðuneytisins, Úrskurðir

    Úrskurður í máli nr. SRN17100038

    Samgöngustofa: Staðfest ákvörðun um að synja umsókn um forskráningu bifreiðar

    27. mar. 2018Sveitarstjórnir og byggðamál, Innviðaráðuneytið

    Sveitarfélögum fækkar um tvö

    Sveitarfélögum landsins fækkar um tvö eftir næstu sveitarstjórnarkosningar og verða þá alls 72. Íbúar Breiðdalshrepps og Fjarðabyggðar samþykktu sameiningu sveitarfélaganna laugardaginn 24. mars og 11. nóvember síðastliðinn hafði verið samþykkt sameining sveitarfélaganna Garðs og Sandgerðis.

    23. mar. 2018Innviðaráðuneytið, Norrænt samstarf

    Ávarpaði fund um norræna byggðaþróun á degi Norðurlandanna

    Í dag, 23. mars, er dagur Norðurlandanna og stóð Norræna húsið fyrir fundi um efni skýrslu Norrænu ráðherranefndarinnar um stöðu Norðurlandanna. Sigurður Ingi Jóhannsson, sem er samstarfsráðherra Norðurlanda, setti fundinn með ávarpi og síðan voru flutt erindi og efnið að lokum rætt í pallborði.

    23. mar. 2018Innviðaráðuneytið, Úrskurðir á málefnasviði innviðaráðuneytisins, Úrskurðir

    Úrskurður í máli nr. SRN17100028

    Þjóðskrá Íslands: Staðfest ákvörðun um að synja beiðni um afskráningu úr Þjóðskrá

    22. mar. 2018Samgöngur og fjarskipti, Sveitarstjórnir og byggðamál, Fjarskiptasjóður, Fjarskipti, Innviðaráðuneytið

    Skrifað undir samninga um ljósleiðarastyrki verkefnisins Ísland ljóstengt

    Fulltrúar fjarskiptasjóðs og sveitarfélaga skrifuðu í dag undir 24 samninga um styrki fjarskiptasjóðs vegna ljósleiðaravæðingar sveitarfélaga í tengslum við landsátakið Ísland ljóstengt. Sigurður Ingi Jóhannsson, samgöngu- og sveitarstjórnarráðherra, staðfesti samningana með undirskrift sinni og fór athöfnin fram í ráðuneytinu.

    22. mar. 2018Sveitarstjórnir og byggðamál, Jöfnunarsjóður, Innviðaráðuneytið

    Ráðherra ræddi við ráðgjafarnefnd Jöfnunarsjóðs sveitarfélaga

    Sigurður Ingi Jóhannsson samgöngu- og sveitarstjórnarráðherra ræddi nýverið við ráðgjafarnefnd Jöfnunarsjóðs sveitarfélaga sem heldur fundi sína í ráðuneytinu að jafnaði mánaðarlega. Á fundinum ræddu nefndarmenn og ráðherra um helstu verkefni sjóðsins og áherslur.

    21. mar. 2018Sveitarstjórnir og byggðamál, Innviðaráðuneytið

    Ársskýrsla eftirlitsnefndar með fjármálum sveitarfélaga komin út

    Komin er út ársskýrsla eftirlitsnefndar með fjármálum sveitarfélaga fyrir starfstímabilið október 2016 til september 2017. Fram kemur í inngangi skýrslunnar að rekstrarniðurstaða sveitarfélaga árið 2016 sé betri en árin á undan, nettó skuldir hafi lækkað og á heildina litið virðist fjárhagsstaða þeirra ágæt.

    21. mar. 2018Rit og skýrslur, Innviðaráðuneytið, Sveitarstjórnir og byggðamál

    Ársskýrsla eftirlitsnefndar með fjármálum sveitarfélaga 2016-2017

    mars 2018 / Innviðaráðuneytið Ársskýrsla eftirlitsnefndar með fjármálum sveitarfélaga 2016-2017 Ársskýrsla eftirlitsnefndar með fjármálum sveitarfélaga fyrir starfstímabilið október 2016 til september 2017

    20. mar. 2018Samgöngur og fjarskipti, Vegasamgöngur, Innviðaráðuneytið

    Opnaði vef um öryggismat íslenska vegakerfisins

    Sigurður Ingi Jóhannsson, samgöngu- og sveitarstjórnarráðherra, opnaði í dag aðgang að vef evrópska vegamatskerfisins EuroRAP á morgunfundi Félags íslenskra bifreiðaeigenda. Félagið hefur frá árinu 2004 unnið reglulega að öryggisúttekt á þjóðvegum á Íslandi og hefur ráðuneytið ásamt öðrum opinberum aðilum og einkaaðilum stutt verkefnið með fjárframlögum.

    19. mar. 2018Sveitarstjórnir og byggðamál, Innviðaráðuneytið

    Meðferð reikningsskila vegna leigusamninga ríkis og sveitarfélaga um hjúkrunarheimili

    Reikningsskilaráð hefur svarað erindi reikningsskila- og upplýsinganefndar sveitarfélaga um áhrif leigusamninga ríkis og sveitarfélaga um hjúkrunarheimili á reikningsskil sveitarfélaga. Er það niðurstaða reikningsskilaráðs að eðlilegast sé að færa slíka samninga sem langtímakröfu á íslenska ríkið.

    16. mar. 2018Samgöngur og fjarskipti, Samgönguáætlun, Vegasamgöngur, Innviðaráðuneytið

    Afhentu ráðherra undirskriftarlista frá Borgfirðingum eystra

    Þrír íbúar og fulltrúar sveitarfélagsins Borgafjarðar eystri afhentu Sigurði Inga Jóhannssyni, samgöngu- og sveitarstjórnarráðherra, lista með 2.461 nafni þess efnis að ráðherra setti Borgarfjarðarveg nr. 84 á samgönguáætlun.

    15. mar. 2018Samgöngur og fjarskipti, Siglingar, Innviðaráðuneytið

    Ræddi við bæjarstjórn Vestmannaeyjabæjar um rekstur nýrrar Vestmannaeyjaferju

    Sigurður Ingi Jóhannsson, samgöngu- og sveitarstjórnarráðherra fundaði í dag með bæjarstjórn Vestmannaeyjabæjar um mögulegt rekstrarfyrirkomulag nýrrar Vestmannaeyjaferju.

    15. mar. 2018Innviðaráðuneytið, Úrskurðir á málefnasviði innviðaráðuneytisins, Úrskurðir

    Úrskurður í máli nr. SRN17060080

    Reykjavíkurborg: Staðfest ákvörðun um að synja beiðni um afslátt af leikskólagjöldum afturvirkt

    13. mar. 2018Samgöngur og fjarskipti, Innviðaráðuneytið

    Sama fargjald með Herjólfi í Landeyjahöfn og Þorlákshöfn

    Sigurður Ingi Jóhannsson samgöngu- og sveitarstjórnarráðherra hefur ákveðið breytingar á gjaldskrá Herjólfs að sama fargjald verði fyrir ferðir milli lands og Eyja hvort heldur siglt er til Landeyjahafnar eða Þorlákshafnar. Sama gjald verður fyrir einstaklinga og fólksbíla burtséð frá því í hvaða höfn verður siglt.

    13. mar. 2018Innviðaráðuneytið, Úrskurðir á málefnasviði innviðaráðuneytisins, Úrskurðir

    Úrskurður í máli nr. SRN17040958

    Vegagerðin: Staðfest synjun um frekari rannsóknarstyrk úr sjóði til orkuskipta í skipum

    12. mar. 2018Sveitarstjórnir og byggðamál, Innviðaráðuneytið, Byggðamál

    Tillaga til þingsályktunar um stefnumótandi áætlun í byggðamálum 2018-2024 kynnt í samráðsgátt

    Samgöngu- og sveitarstjórnarráðuneytið kynnir drög að tillögu til þingsályktunar um stefnumótandi byggðaáætlun fyrir árin 2018 til 2024 á samráðsgátt um opið samráð stjórnvalda. Frestur til að skila umsögnum til rennur út kl. 16 miðvikudaginn 21. mars 2018.

    06. mar. 2018Rit og skýrslur, Póstþjónusta, Innviðaráðuneytið

    Skýrsla verkefnisnefndar um alþjónustu í pósti

    Í skýrslu verkefnisnefndar um alþjónustu í pósti er að finna umfjöllun um tiltekin álitamál tengd alþjónustu í pósti. Skýrslan var unnin í tengslum við heildarendurskoðun á póstlögum og fyrirhugað afnám einkaréttar í pósti þar sem huga þarf sérstaklega að afmörkun, skilgreiningum, fjármögnun og leiðum til að tryggja hagkvæma alþjónustu í pósti.

    06. mar. 2018Rit og skýrslur, Póstþjónusta, Innviðaráðuneytið

    Skýrsla Hagfræðistofnunar Háskóla Íslands um kostnað vegna alþjónustu í pósti

    Í skýrslu Hagfræðistofnunar Háskóla Íslands er að finna umfjöllun um alþjónustu í pósti auk mats á kostnaði við að veita þjónustuna miðað við þrjár mismunandi sviðsmyndir.

    02. mar. 2018Innviðaráðuneytið

    Flutningur hergagna – reglugerð í endurskoðun

    Að gefnu tilefni með vísan til umfjöllunar í fjölmiðlum undanfarna daga vill samgöngu- og sveitarstjórnarráðuneytið taka eftirfarandi fram:

    02. mar. 2018Innviðaráðuneytið, Norrænt samstarf

    Tók þátt í málþingi á Grænlandi um norrænt samstarf

    Sigurður Ingi Jóhannsson, samstarfsráðherra Norðurlanda, tók þátt í málþingi um norrænt samstarf sem skipulagt var af grænlenskum stjórnvöldum og fram fór í Nuuk síðastliðinn miðvikudag. Þá átti ráðherra einnig fundi með grænlenskum ráðherrum og borgarstjóra Nuuk.

    27. feb. 2018Samgöngur og fjarskipti, Samgönguáætlun, Vegasamgöngur, Innviðaráðuneytið

    Staða vegamála og mat á útgjaldaþörf

    Sigurður Ingi Jóhannsson samgöngu- og sveitarstjórnarráðherra kynnti stöðu vegamála og mat á útgjaldaþörf á ríkisstjórnarfundi 23. febrúar. Fór hann þar yfir þörfina fyrir nýjar framkvæmdir, viðhald og þjónustu og benti á að fjárframlög til vegaframkvæmda hefðu ekki hækkað í hlutfalli við aukna umferð og auknar kröfur um þjónustu.

    27. feb. 2018Sveitarstjórnir og byggðamál, Innviðaráðuneytið

    Fjárhagsáætlanir sveitarfélaga 2018 birtar

    Samkvæmt reglugerð um bókhald, fjárhagsáætlanir og ársreikninga sveitarfélaga skulu sveitarfélög fyrir lok hvers árs skila fjárhagsáætlunum næsta árs með rafrænum hætti til upplýsingaveitu sveitarfélaga. Hún er vistuð er hjá Hagstofu Íslands sem vinnur þjóðhagsreikninga úr þessum upplýsingum.

    27. feb. 2018Samgöngur og fjarskipti, Innviðaráðuneytið, Vegasamgöngur

    Drög að lagafrumvarpi til nýrra umferðarlaga birt í samráðsgátt

    Drög að frumvarpi til nýrra umferðarlaga hefur verið birt á samráðsgátt stjórnvalda við almenning og er unnt að senda þar umsagnir um frumvarpið til 16. mars næstkomandi. Unnið hefur verið að endurskoðuninni undanfarin ár og hefur frumvarp verið lagt fram fjórum sinnum en ekki hlotið afgreiðslu.

    21. feb. 2018Sveitarstjórnir og byggðamál, Jöfnunarsjóður, Innviðaráðuneytið

    Önnur áætlun almennra framlaga vegna málefna fatlaðs fólks 2018

    Samgöngu- og sveitarstjórnarráðherra hefur samþykkt eftirfarandi tillögu ráðgjafarnefndar Jöfnunarsjóðs sveitarfélaga um endurskoðaða áætlun um úthlutanir framlaga vegna málefna fatlaðs fólks á árinu 2018.

    16. feb. 2018Samgöngur og fjarskipti, Siglingar, Innviðaráðuneytið

    Til umsagnar drög að frumvarpi um breytingu á ýmsum lögum vegna samþykktar um vinnuskilyrði farmanna

    Drög að frumvarpi um breytingu á ýmsum lögum vegna samþykktar Alþjóðavinnumálastofnunarinnar um vinnuskilyrði farmanna hafa verið sett fram til umsagnar á samráðsgátt um opið samráð stjórnvalda við almenning. Umsagnarfrestur er til 2. mars.

    16. feb. 2018Samgöngur og fjarskipti, Netöryggi, Innviðaráðuneytið

    Fyrirlestur um netöryggisrannsóknir

    Dr. Katrin Franke, prófessor í tölvuvísindum og netöryggismálum, heldur fyrirlestur um netöryggisrannsóknir við Tækniháskóla Noregs (NTNU) í Gjøvik og samstarf opinberra aðila og einkaaðila við uppbyggingu þessara rannsókna. Eitt slíkra verkefna sem kynnt verður er uppbygging á nýju æfingasvæði þar sem unnt verður að rannsaka og æfa viðbrögð við samverkandi áhrifum víðtækra netárása.

    15. feb. 2018Samgöngur og fjarskipti, Sveitarstjórnir og byggðamál, Fjarskipti, Samgönguáætlun, Innviðaráðuneytið

    Drög að lagafrumvarpi til að samræma áætlanir á sviði samgöngu- og sveitarstjórnarráðuneytis til umsagnar

    Til umsagnar eru nú hjá samgöngu- og sveitarstjórnarráðuneytinu drög að frumvarpi til laga um breytingar á ýmsum lögum til samræmingar á áætlunum ráðuneytisins: Samgönguáætlun, fjarskiptaáætlun og byggðaáætlun, sem og ný áætlun um stefnu ríkisins á málefnum sveitarfélaga. Unnt er að skoða drögin á samráðsgáttinni um opið samráð stjórnvalda við almenning og senda umsagnir til 1. mars nk.

    14. feb. 2018Sveitarstjórnir og byggðamál, Innviðaráðuneytið, Norrænt samstarf

    Íslenskir landshlutar koma vel út úr norrænum samanburði

    Íslenskir landshlutar koma mjög vel út í samanburði á efnahagslegri og félagslegri stöðu og horfum fyrir einstaka landshluta. Höfuðborgarsvæðið lendir í fjórða sæti og Vestfirðir fikra sig upp um 17 sæti. Þetta eru m.a. niðurstöður skýrslu Norrænu ráðherranefndarinnar sem gefin var út í síðustu viku.

    14. feb. 2018Innviðaráðuneytið, Álit á sviði sveitarstjórnarmála, Úrskurðir

    Álit samgöngu- og sveitarstjórnarráðuneytisins í máli nr. SRN17070004

    Borgarbyggð, samningur um álagningu og greiðslu gatnagerðargjalds

    08. feb. 2018Sveitarstjórnir og byggðamál, Innviðaráðuneytið, Byggðamál

    Byggðarannsóknasjóður auglýsir eftir umsóknum um styrki til rannsókna á sviði byggðamála

    Byggðarannsóknasjóður, sem hefur þann tilgang að efla byggðarannsóknir og bæta þekkingargrunn fyrir stefnumótun og aðgerðir í byggðamálum, auglýsir eftir umsóknum um styrki til rannsókna. Umsóknir þurfa að berast Byggðastofnun fyrir miðnætti fimmtudaginn 15. mars 2018.

    08. feb. 2018Innviðaráðuneytið

    Samstarfsráðherrar Norðurlanda funda í Stokkhólmi

    Sigurður Ingi Jóhannsson, samgöngu- og sveitarstjórnarráðherra sem jafnframt er samstarfsráðherra Norðurlanda, tók í dag þátt í fundi samstarfsráðherra Norðurlanda sem fram fór í Stokkhólmi. Er þetta fyrsti fundurinn undir formennsku Svíþjóðar í Norrænu ráðherranefndanefndinni.

    07. feb. 2018Samgöngur og fjarskipti, Flug og flugvellir, Innviðaráðuneytið

    Flugvallarskilyrði í Hvassahrauni verði fullrannsökuð

    Starfshópur um framtíð Reykjavíkurflugvallar skilaði Sigurði Inga Jóhannssyni, samgöngu- og sveitarstjórnarráðherra, nýverið áfangaskýrslu sinni. Jón Gunnarsson, fyrrverandi ráðherra, skipaði hópinn í september síðastliðnum.

    07. feb. 2018Innviðaráðuneytið, Flug og flugvellir, Rit og skýrslur, Samgöngur

    Áfangaskýrsla um framtíð Reykjavíkurflugvallar

    Starfshópur um framtíð Reykjavíkurflugvallar skilaði Sigurði Inga Jóhannssyni, samgöngu- og sveitarstjórnarráðherra, nýverið áfangaskýrslu sinni. Jón Gunnarsson, fyrrverandi ráðherra, skipaði hópinn í september síðastliðnum.

    07. feb. 2018Sveitarstjórnir og byggðamál, Innviðaráðuneytið

    Forseti sænska þingsins átti fund með samgöngu- og sveitarstjórnarráðherra

    Forseti sænska þjóðþingsins, Urban Ahlin, heimsótti nýverið Sigurð Inga Jóhannsson samgöngu- og sveitarstjórnarráðherra ásamt fylgdarliði en hann var hérlendis í opinberri heimsókn ásamt fjórum þingmönnum. Ræddi hann við ráðherra og nánustu samstarfsmenn í ráðuneytinu.

    02. feb. 2018Samgöngur og fjarskipti, Fjarskipti, Netöryggi, Innviðaráðuneytið

    Mótun heildarlöggjafar um net- og upplýsingaöryggi

    Sigurður Ingi Jóhannsson, samgöngu- og sveitarstjórnarráðherra kynnti á ríkisstjórnarfundi í dag, mótun heildarlöggjafar um net- og upplýsingaöryggi sem er næsta skref til eflingar netöryggis á Íslandi.

    31. jan. 2018Sveitarstjórnir og byggðamál, Innviðaráðuneytið

    Byggðastofnun falin gerð þjónustukorts í samstarfi við Samband íslenskra sveitarfélaga

    Sigurður Ingi Jóhannsson, samgöngu- og sveitarstjórnarráðherra, hefur falið Byggðastofnun að vinna þjónustukort í samstarfi við Samband íslenskra sveitarfélaga. Kortið á að sýna á aðgengi landsmanna að þjónustu hins opinbera og einkaaðila. Er það í samræmi við sáttmála ríkisstjórnarinnar.

    25. jan. 2018Samgöngur og fjarskipti, Fjarskipti, Fjármála- og efnahagsráðuneytið, Netöryggi, Innviðaráðuneytið

    Samið um þjónustu Netöryggissveitarinnar við stjórnsýsluna

    Í dag var undirritaður fyrsti þjónustusamningur sem gerður hefur verið um þjónustu Netöryggissveitar Póst- og fjarskiptastofnunar við stjórnsýsluna. Samninginn undirrituðu fulltrúar fjármála- og efnahagsráðuneytisins og Póst- og fjarskiptastofnunar.

    • First
    • Prev
    • 37
    • 38
    • 39
    • 40
    • 41
    • Next
    • Last
    Logo
    • Um vefinn
    • Áskrift
    • Veftré
    • Fyrirvari
    +354 545 8000
    Staðsetning ráðuneyta, opnunartími og netföng
    Hafa samband

    Hafa samband