Coat of arms
Stjórnarráð Íslands
  • Verkefni
    • Almannatryggingar og lífeyrir
    • Almannaöryggi
    • Atvinnuvegir
    • Auðlindir
    • Efnahagsmál
    • Félags- og fjölskyldumál
    • Fjarskipti
    • Húsnæðis- og mannvirkjamál
    • Líf og heilsa
    • Kosningar
    • Lög og réttur
    • Mannauðsmál ríkisins
    • Mannréttindi og jafnrétti
    • Menningarmál
    • Menntamál
    • Neytendamál
    • Opinber fjármál
    • Persónuréttur
    • Rekstur og eignir ríkisins
    • Samgöngur
    • Sjálfbært Ísland
    • Skipulagsmál
    • Stjórnskipan og þjóðartákn
    • Sveitarstjórnir og byggðamál
    • Trú og lífsskoðun
    • Umhverfi og náttúruvernd
    • Upplýsingatæknimál ríkisins
    • Utanríkismál
    • Útlendingar
    • Vinnumál
    • Vísindi, nýsköpun og rannsóknir
    • Öll verkefni
    • Efst á baugi
      • Fréttir
      • Nýjast
      • Fyrirspurnir frá Alþingi
      • Fyrir fjölmiðla
      • Eldri fréttir
    • Gögn
      • Rit og skýrslur
      • Úrskurðir og álit
      • Eyðublöð
      • Stefnur og áætlanir
      • Styrkir og sjóðir
      • Hugtakasafn
      • Lög og reglugerðir
      • Málaskrár ráðuneyta
      • Mælaborð
      • Hönnunarstaðall
    • Ráðuneyti
      • Forsætisráðuneytið
      • Atvinnuvegaráðuneytið
      • Dómsmálaráðuneytið
      • Félags- og húsnæðismálaráðuneytið
      • Fjármála- og efnahagsráðuneytið
      • Heilbrigðisráðuneytið
      • Innviðaráðuneytið
      • Menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðuneytið
      • Mennta- og barnamálaráðuneytið
      • Umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytið
      • Utanríkisráðuneytið
      • Sendiskrifstofur
      • Samstarfsráðherra Norðurlanda
      • Starfsfólk
      • Stofnanir
      • Nefndir
      • Símanúmer og staðsetning ráðuneyta
      • Umbra
    • Ríkisstjórn
      • Skipan ríkisstjórnar
      • Ríkisstjórnarfundir
      • Stjórnarsáttmáli
      • Ráðherranefndir
      • Reglur um starfshætti
      • Reglur um ferðakostnað og starfskjör ráðherra
      • Siðareglur, hagsmunir og hagsmunaverðir
      • Þingmálaskrá
      • Ríkisráð
      • Sögulegt efni
      • Fyrir fjölmiðla
    EN
    • Verkefni
      • Almannatryggingar og lífeyrir
      • Almannaöryggi
      • Atvinnuvegir
      • Auðlindir
      • Efnahagsmál
      • Félags- og fjölskyldumál
      • Fjarskipti
      • Húsnæðis- og mannvirkjamál
      • Líf og heilsa
      • Kosningar
      • Lög og réttur
      • Mannauðsmál ríkisins
      • Mannréttindi og jafnrétti
      • Menningarmál
      • Menntamál
      • Neytendamál
      • Opinber fjármál
      • Persónuréttur
      • Rekstur og eignir ríkisins
      • Samgöngur
      • Sjálfbært Ísland
      • Skipulagsmál
      • Stjórnskipan og þjóðartákn
      • Sveitarstjórnir og byggðamál
      • Trú og lífsskoðun
      • Umhverfi og náttúruvernd
      • Upplýsingatæknimál ríkisins
      • Utanríkismál
      • Útlendingar
      • Vinnumál
      • Vísindi, nýsköpun og rannsóknir
      • Öll verkefni
    • Efst á baugi
      • Fréttir
      • Nýjast
      • Fyrir fjölmiðla
      • Eldri fréttir
      • Fyrirspurnir frá Alþingi
    • Gögn
      • Rit og skýrslur
      • Úrskurðir og álit
      • Eyðublöð
      • Stefnur og áætlanir
      • Styrkir og sjóðir
      • Hugtakasafn
      • Lög og reglugerðir
      • Málaskrár ráðuneyta
      • Mælaborð
      • Hönnunarstaðall
    • Ráðuneyti
      • Forsætisráðuneytið
      • Atvinnuvegaráðuneytið
      • Dómsmálaráðuneytið
      • Félags- og húsnæðismálaráðuneytið
      • Fjármála- og efnahagsráðuneytið
      • Heilbrigðisráðuneytið
      • Innviðaráðuneytið
      • Menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðuneytið
      • Mennta- og barnamálaráðuneytið
      • Umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytið
      • Utanríkisráðuneytið
      • Sendiskrifstofur
      • Samstarfsráðherra Norðurlanda
      • Starfsfólk
      • Stofnanir
      • Nefndir
      • Símanúmer og staðsetning ráðuneyta
      • Umbra
    • Ríkisstjórn
      • Skipan ríkisstjórnar
      • Ríkisstjórnarfundir
      • Stjórnarsáttmáli
      • Ráðherranefndir
      • Reglur um starfshætti
      • Reglur um ferðakostnað og starfskjör ráðherra
      • Siðareglur, hagsmunir og hagsmunaverðir
      • Þingmálaskrá
      • Ríkisráð
      • Sögulegt efni
      • Fyrir fjölmiðla
    Close navigation
    Efnisorð
    Efnisorð

    Ekkert fannst

    Tegund
    Tegund

    Leita eftir efnisorðum

    Sýnir 1951–2000 af 3945
    Raða eftir:
    15. maí 2020Fjármála- og efnahagsráðuneytið, Rekstur og eignir ríkisins, Covid-19, Efnahagsmál og opinber fjármál

    Stuðningur vegna greiðslu launakostnaðar á uppsagnarfresti

    Frumvarp fjármála- og efnahagsráðherra sem kveður á um stuðning úr ríkissjóði vegna greiðslu hluta launakostnaðar á uppsagnarfresti var samþykkt af ríkisstjórn og þingflokkum stjórnarflokkanna í dag. Frumvarpinu er ætla að koma til móts við fyrirtæki sem orðið hafa fyrir verulegri fjárhagslegri röskunar á atvinnurekstri vegna farsóttarinnar. Markmið stuðningsins er að draga úr líkum á fjöldagjaldþrotum fyrirtækja og tryggja réttindi launafólks.

    15. maí 2020Forsætisráðuneytið, Félags- og húsnæðismálaráðuneytið, Fjármála- og efnahagsráðuneytið, Covid-19, Dómsmálaráðuneytið

    Frumvörp um framhald hlutastarfaleiðar og aukinn stuðning við fyrirtæki samþykkt í ríkisstjórn

    Ríkisstjórnin samþykkti í morgun frumvörp fjármála- og efnahagsráðherra, félags- og barnamálaráðherra og dómsmálaráðherra. Frumvörpin eru hluti af framhaldsaðgerðum stjórnvalda í efnahagsmálum vegna heimsfaraldurs kórónaveiru sem kynntar voru þann 28. apríl sl.

    14. maí 2020Atvinnuvegaráðuneytið, Atvinnuvegir, Landbúnaður, Fjármála- og efnahagsráðuneytið

    Endurskoðun garðyrkjusamnings lokið: Ætla að auka framleiðslu á grænmeti um 25% á næstu þremur árum

    Fulltrúar Bændasamtaka Íslands, Sambands garðyrkjubænda og stjórnvalda hafa skrifað undir samkomulag um endurskoðun á samningi um starfsskilyrði framleiðenda garðyrkjuafurða, sem er einn hinna fjögurra búvörusamninga. Markmið samkomulagsins er meðal annars að stuðla að framþróun og nýsköpun í garðyrkjunni með áherslu á aðgerðir í loftslagsmálum.

    14. maí 2020Fjármála- og efnahagsráðuneytið, Rekstur og eignir ríkisins, Covid-19, Efnahagsmál og opinber fjármál

    Mikill kippur í kortanotkun og vegaumferð eykst eftir rýmkun samkomubanns

    Umsvif í hagkerfinu hafa tekið vel við sér á ný samhliða því sem faraldur COVID-19 hér á landi hefur rénað og samkomubann var rýmkað. Vegaumferð og kortavelta drógust mikið saman í upphafi faraldursins en greinileg vatnaskil urðu í seinni hluta apríl þegar umsvif byrjuðu að aukast á ný.

    13. maí 2020Fjármála- og efnahagsráðuneytið, Rekstur og eignir ríkisins, Efnahagsmál og opinber fjármál

    Virðisaukaskattur greiddur óháð uppruna þjónustu

    Í tilefni af umfjöllun um útboð á kynningarverkefnum á vegum stjórnvalda vill fjármála- og efnahagsráðuneytið árétta að virðisaukaskattur er greiddur af vöru eða þjónustu óháð því hvaðan hún er keypt. Meginreglan er sú að seljandi innheimti skattinn af kaupanda og skili honum í ríkissjóð en í þeim tilvikum þar sem vara eða þjónusta er keypt að utan fellur skattskyldan á kaupandann.

    12. maí 2020Fjármála- og efnahagsráðuneytið, Rekstur og eignir ríkisins, Covid-19, Efnahagsmál og opinber fjármál

    Búið að semja við alla viðskiptabankana um veitingu viðbótarlána

    Samningar hafa verið undirritaðir við viðskiptabankana fjóra um veitingu viðbótarlána til fyrirtækja, svonefndra brúarlána. Fjármála- og efnahagsráðuneytið fól Seðlabanka Íslands að annast framkvæmd á ábyrgðum ríkissjóðs (tengill á samning) og hefur bankinn undirritað samninga við Arion banka, Íslandsbanka, Kviku og Landsbankann.

    08. maí 2020Fjármála- og efnahagsráðuneytið, Kærunefnd útboðsmála, Úrskurðir

    Mál nr. 2/2020. Úrskurður kærunefndar útboðsmála.

    Óvirkni samnings. Uppsögn samnings. Mistök við tilboðsgerð. Tilboðsskrá. Ógilt tilboð. Jafnræði bjóðenda.

    07. maí 2020Fjármála- og efnahagsráðuneytið, Rekstur og eignir ríkisins, Covid-19, Efnahagsmál og opinber fjármál

    Greining á mögulegri stærðargráðu áfalls vegna heimsfaraldurs kórónuveiru

    Fjármála- og efnahagsráðuneytið hefur unnið greiningar sem miða að því að varpa ljósi á mögulega stærðargráðu áfallsins sem hagkerfið stendur frammi fyrir vegna heimsfaraldurs kórónuveiru.

    07. maí 2020Fjármála- og efnahagsráðuneytið, Rekstur og eignir ríkisins, Efnahagsmál og opinber fjármál

    Ný arðgreiðslustefna fyrir Landsvirkjun: 10 milljarða króna arðgreiðsla á árinu 2020

    Ný arðgreiðslustefna Landsvirkjunar var samþykkt á fundi stjórnar fyrirtækisins í lok apríl sl. Á grundvelli hennar gerði stjórnin tillögu þann 20. apríl um að fyrirtækið greiddi 10 milljarða króna til ríkisins, sem er eini eigandi Landsvirkjunar og féllst aðalfundur á þessa ráðstöfun undir lok mánaðarins.

    05. maí 2020Fjármála- og efnahagsráðuneytið, Rekstur og eignir ríkisins, Covid-19, Nýsköpun, Efnahagsmál og opinber fjármál

    Könnun á nýjum lausnum stofnana vegna heimsfaraldurs kórónuveiru

    Undanfarið hafa fjölmargar opinberar stofnanir brugðist við heimsfaraldri kórónuveiru með ýmsum breytingum á starfsemi sinni sem miðað hafa að því að tryggja að hægt sé að sinna verkefnum stofnana og veita opinbera þjónustu. Sem dæmi um breytingar má nefna aukna stafræna þjónustu í gegnum Ísland.is og nýjar samskiptaleiðir við veitingu heilbrigðisþjónustu.

    04. maí 2020Fjármála- og efnahagsráðuneytið, Rekstur og eignir ríkisins, Upplýsingatæknimál ríkisins, Efnahagsmál og opinber fjármál

    Allir reikningar ríkisstofnana og ríkissjóðs orðnir rafrænir

    Allir reikningar frá ríkissjóði og ríkisstofnunum eru orðnir rafrænir og gildir það frá og með 1.maí. Markmiðið er að lækka viðskiptakostnað allra aðila, nútímavæða viðskiptaumhverfi ríkisins með auknu framboði stafrænnar þjónustu og framfylgja umhverfissjónarmiðum.

    30. apr. 2020Forsætisráðuneytið, Fjármála- og efnahagsráðuneytið, Innviðaráðuneytið, Covid-19, Atvinnuvegaráðuneytið

    Staða Icelandair

    Undanfarnar vikur hefur fulltrúum stjórnvaldaverið haldið upplýstum um stöðu Icelandair þar sem fram hefur komið að félagið vinnur að fjárhagslegri endurskipulagningu og söfnun nýs hlutafjár.

    30. apr. 2020Fjármála- og efnahagsráðuneytið, Rekstur og eignir ríkisins

    Auglýst eftir forstjóra Ríkiskaupa

    Fjármála- og efnahagsráðuneytið leitar að framsýnum leiðtoga með brennandi áhuga á að bæta þjónustu og rekstur ríkisins sem forstjóri Ríkiskaupa.

    30. apr. 2020Fjármála- og efnahagsráðuneytið, Rekstur og eignir ríkisins, Covid-19, Efnahagsmál og opinber fjármál

    Eftirlitsnefnd vegna viðbótarlána skipuð

    Fjármála- og efnahagsráðherra hefur skipað þriggja manna nefnd til að hafa eftirlit með framkvæmd veitingar viðbótarlána lánastofnana með ríkisábyrgð. Í nefndinni eiga sæti; Einar Páll Tamimi, formaður, Kristrún Heimisdóttir og Ásta Dís Óladóttir.

    29. apr. 2020Heilbrigðisráðuneytið, Atvinnuvegir, Líf og heilsa, Upplýsingatæknimál ríkisins, Vísindi nýsköpun og rannsóknir, Covid-19, Heilbrigðismál, Nýsköpun, Fjármála- og efnahagsráðuneytið, Menningar-٫ nýsköpunar- og háskólaráðuneytið

    Hakkaþon um nýsköpun í heilbrigðisþjónustu

    Almenningur og frumkvöðlar taka höndum saman um að finna nýjar lausnir á sviði heilbrigðisþjónustu til gera heilbrigðiskerfinu betur kleift að fást við nýjar áskoranir vegna COVID-19. Dagana 22.-24. maí verður haldin nýsköpunarkeppni þar sem einstaklingum og frumkvöðlum gefst kostur á aðkeppa um bestu lausnirnar. Vefsíða keppninnar var formlega opnuð í dag hakkathon.island.is.

    29. apr. 2020Fjármála- og efnahagsráðuneytið, Rekstur og eignir ríkisins, Efnahagsmál og opinber fjármál, Covid-19

    Framkvæmdir við endurgerð Hegningarhússins hefjast í sumar

    Ríkiseignir og Minjavernd hafa gengið frá undirritun samstarfssamnings um að hefja fyrsta áfanga við endurgerð á Hegningarhúsinu Skólavörðustíg. Húsið er friðað samkvæmt lögum um menningarminjar og mikilvægt að viðgerð hússins taki mið af upprunalegri gerð þess, bæði hvað efnisval og handverk varðar.

    28. apr. 2020Forsætisráðuneytið, Félags- og húsnæðismálaráðuneytið, Fjármála- og efnahagsráðuneytið, Covid-19, Dómsmálaráðuneytið

    Framhald hlutastarfaleiðar og aukinn stuðningur við fyrirtæki

    Fyrirtækjum sem orðið hafa fyrir umfangsmiklu tekjutapi verður gefinn kostur á að sækja um stuðning úr ríkissjóði vegna greiðslu hluta launakostnaðar á uppsagnarfresti til að tryggja réttindi launafólks og koma í veg fyrir fjöldagjaldþrot fyrirtækja.

    22. apr. 2020Úrskurðir, Atvinnuvegaráðuneytið, Úrskurðir ferðaþjónusta, Fjármála- og efnahagsráðuneytið, Stjórnsýslukærur - úrskurðir

    Úrskurður vegna brota á reglum um skráða gististarfsemi

    Heimagisting. Stjórnvaldssekt. Gististarfsemi.

    22. apr. 2020Fjármála- og efnahagsráðuneytið, Kærunefnd útboðsmála, Úrskurðir

    Mál nr. 34/2019. Úrskurður kærunefndar útboðsmála.

    Með kæru móttekinni hjá kærunefnd útboðsmála 27. desember 2019 kærði Smith & Norland hf. útboð varnaraðila Reykjavíkurborgar nr. 14356 auðkennt „Rammasamningur um stýribúnað umferðarljósa“. Kærandi krefst þess að ákvörðun varnaraðila um að fella niður hið kærða útboð verði ógilt, „svo og að lagt verði fyrir varnaraðila að halda áfram því ferli útboðsins er fólst í tillögu hans til innkauparáðs borgarinnar 27. nóvember 2019.“ Kærandi krefst þess einnig að kærunefnd útboðsmála láti uppi álit sitt á skaðabótaskyldu varnaraðila auk þess sem hann krefst málskostnaðar úr hendi varnaraðila.

    22. apr. 2020Fjármála- og efnahagsráðuneytið, Kærunefnd útboðsmála, Úrskurðir

    Mál nr. 29/2019. Úrskurður kærunefndar útboðsmála.

    Kröfugerð. Bindandi samningur. Kominn var á bindandi samningur á milli varnaraðila samkvæmt 1. mgr. 114. gr. laga nr. 120/2016 um opinber innkaup. Þegar af þeirri ástæðu var hvorki unnt að ógilda val varnaraðila á tilboði né velja tilboð kæranda í hinu kærða útboði, en aðrar kröfur voru ekki gerðar. Kröfum kæranda var því hafnað.

    21. apr. 2020Fjármála- og efnahagsráðuneytið, Rekstur og eignir ríkisins, Covid-19, Efnahagsmál og opinber fjármál

    Kynningarefni vegna framhaldsaðgerða stjórnvalda í tengslum við heimsfaraldur kórónaveiru

    Framhaldsaðgerðir stjórnvalda vegna heimsfaraldurs kórónaveiru voru kynntar á blaðamannafundi í dag. Meðfylgjandi eru glærur sem tengjast kynningunni.

    21. apr. 2020Forsætisráðuneytið, Covid-19, Innviðaráðuneytið, Fjármála- og efnahagsráðuneytið

    Varnir, vernd og viðspyrna gegn efnahagslegum og félagslegum áföllum

    Lokunarstyrkir til fyrirtækja sem var gert að hætta starfsemi vegna sóttvarna. Stuðningslán til lítilla og meðalstórra fyrirtækja Fyrirtækjum heimilað að jafna tekjuskatt 2019 með tapi 2020.

    21. apr. 2020Fjármála- og efnahagsráðuneytið, Kærunefnd útboðsmála, Úrskurðir

    Mál nr. 13/2020. Ákvörðun kærunefndar útboðsmála.

    Stöðvunarkrafa samþykkt. Kröfu kæranda um stöðvun útboðs um kaup á einkennisfatnaði fyrir lögreglu um stundarsakir var samþykkt.

    21. apr. 2020Fjármála- og efnahagsráðuneytið, Kærunefnd útboðsmála, Úrskurðir

    Mál nr. 33/2019. Úrskurður kærunefndar útboðsmála.

    Með kæru móttekinni hjá kærunefnd útboðsmála 18. desember 2019 kærði Íslensk orkumiðlun ehf. útboð Veitna ohf. og Orkuveitu Reykjavíkur – Vatns- og fráveitu sf. (hér eftir vísað til sem varnaraðila) auðkennt „VEIK-2019-11 Raforkukaup fyrir Veitur“. Kærandi krefst þess aðallega að felld verði úr gildi ákvörðun varnaraðila um að hafna tilboði kæranda vegna raforkukaupa í flokki C í hinu kærða útboði, að felld verði úr gildi ákvörðun varnaraðila að ganga að tilboði Orku náttúrunnar ehf. vegna raforkukaupa í flokki C og að varnaraðilum verði gert að taka tilboði kæranda í sama flokki. Kærandi krefst þess til vara að kærunefnd útboðsmála lýsi útboðið ógilt. Þá er þess krafist í öllum tilvikum að kærunefnd útboðsmála láti uppi álit sitt á skaðabótaskyldu varnaraðila gagnvart kæranda.…

    20. apr. 2020Fjármála- og efnahagsráðuneytið, Efnahagsmál og opinber fjármál, Rekstur og eignir ríkisins, Covid-19, Atvinnuvegir

    ESA: Veiting ábyrgða á viðbótarlánum lánastofnana til fyrirtækja vegna COVID-19 samrýmist framkvæmd EES-samningsins

    Eftirlitsstofnun EFTA, ESA, féllst í dag á að fyrirhuguð veiting ábyrgða á viðbótarlánum lánastofnana til fyrirtækja, í tengslum við heimsfaraldur kórónuveiru (COVID-19), samrýmist framkvæmd EES-samningsins. Um er að ræða fyrsta íslenska ríkisaðstoðarkefið í tengslum við faraldurinn sem kemur til kasta ESA.

    17. apr. 2020Fjármála- og efnahagsráðuneytið, Rekstur og eignir ríkisins, Efnahagsmál og opinber fjármál, Covid-19

    Samningur um framkvæmd á veitingu ábyrgða gagnvart lánastofnunum vegna viðbótarlána þeirra til fyrirtækja

    Fjármála- og efnahagsráðuneytið og Seðlabanki Íslands hafa undirritað samning um skilmála við framkvæmd á veitingu ábyrgða ríkisins á viðbótarlánum lánastofnana til fyrirtækja í tengslum við heimsfaraldur kórónaveiru.

    16. apr. 2020Fjármála- og efnahagsráðuneytið

    Á annað hundrað umsóknir um starf markaðsstjóra Stafræns Íslands

    Fjármála- og efnahagsráðuneytið auglýsti á dögunum laust til umsóknar starf markaðsstjóra Stafræns Íslands. Umsóknarfresturinn rann út 7. apríl og bárust 116 umsóknir en 14 hafa dregið sig til baka.

    15. apr. 2020Fjármála- og efnahagsráðuneytið, Rekstur og eignir ríkisins, Upplýsingatæknimál ríkisins, Efnahagsmál og opinber fjármál

    Ánægja með opinbera þjónustu samkvæmt fyrstu samræmdu könnuninni

    Almennt er mikil ánægja með opinbera þjónustu samkvæmt niðurstöðum úr fyrstu samræmdu könnun á þjónustu ríkisstofnana sem gerð var í janúar síðastliðnum.

    15. apr. 2020Forsætisráðuneytið, Mennta- og barnamálaráðuneytið, Fjármála- og efnahagsráðuneytið, Menntamál

    Afborganir námslána lækkaðar

    Tekjutengd afborgun námslána lækkar þegar bæði vextir og endurgreiðsluhlutfall á eldri námslánum LÍN verða lækkuð á næstunni. Ábyrgðarmenn á um 30.000 lánum verða felldir brott til að tryggja jafnræði og uppgreiðsluafsláttur hækkaður upp í allt að 15% þegar tillögur um að bæta stuðning við greiðendur námslána verða innleiddar.

    08. apr. 2020Fjármála- og efnahagsráðuneytið, Rekstur og eignir ríkisins, Efnahagsmál og opinber fjármál, Covid-19

    Vegna umræðu um launakjör þjóðkjörinna fulltrúa og æðstu embættismanna ríkisins

    Vegna umræðu um launakjör þjóðkjörinna fulltrúa og æðstu embættismanna ríkisins tekur fjármála- og efnahagsráðuneytið eftirfarandi fram: 27. mars sl. birtist á vef ráðuneytisins tilkynning um að Alþingi hefði samþykkt að hækkun sem samkvæmt lögum skyldi taka gildi 1. júlí 2020 yrði frestað til 1. janúar 2021. Um var að ræða breytingartillögu fjármála- og efnahagsráðherra, til efnahags- og viðskiptanefndar við bandorm um aðgerðir til að mæta efnahagslegum áhrifum í kjölfar heimsfaraldurs kórónaveiru.

    07. apr. 2020Fjármála- og efnahagsráðuneytið

    Moody´s birtir álit á lánshæfi Íslands – A2 lánshæfiseinkunn er óbreytt með stöðugum horfum

    Alþjóðlega matsfyrirtækið Moody´s Investors Service birti í dag uppfært álit í tengslum við lánshæfi ríkissjóðs. Álitið felur ekki í sér endurskoðun á lánshæfiseinkunn ríkissjóðs, sem er áfram A2 með stöðugum horfum.

    07. apr. 2020Fjármála- og efnahagsráðuneytið, Efnahagsmál og opinber fjármál, Rekstur og eignir ríkisins, Atvinnuvegir, Covid-19

    Aukin fjárfesting á Suðurnesjum

    Í samræmi við heimildir í fjáraukalögum fyrir árið 2020 hefur fjármála- og efnahagsráðherra ákveðið að auka við hlutafé Isavia ohf. um 4 milljarða króna með því skilyrði að félagið ráðist í innviðaverkefni á Keflavíkurflugvelli strax á þessu ári.

    03. apr. 2020Fjármála- og efnahagsráðuneytið, Efnahagsmál og opinber fjármál, Líf og heilsa, Rekstur og eignir ríkisins, Covid-19, Heilbrigðisráðuneytið

    Vaktaálagsauki hjúkrunarfræðinga á Landspítala tryggður

    Vaktaálagsauki sem hjúkrunarfræðingar á Landspítala hafa fengið vegna tilraunaverkefnis spítalans verður framlengdur til næstu mánaða og nauðsynlegar fjárveitingar tryggðar. Þetta kemur fram í bréfi sem fjármála- og efnahagsráðherra og heilbrigðisráðherra hafa sent forstjóra Landspítala vegna málsins.

    01. apr. 2020Fjármála- og efnahagsráðuneytið, Rekstur og eignir ríkisins, Covid-19, Efnahagsmál og opinber fjármál

    Skatturinn með framkvæmd ýmissa úrræða sem tengjast heimsfaraldri kórónuveiru

    Efnahagsaðgerðir stjórnvalda vegna heimsfaraldurs kórónuveiru sem Alþingi hefur samþykkt fela í sér margs konar ráðstafanir sem hafa það að markmiði að tryggja afkomu fólks og fyrirtækja, verja grunnstoðir samfélagsins og skapa öfluga viðspyrnu fyrir efnahagslífið. Hluti þeirra snýr að ýmsum opinberum sköttum og gjöldum, svo sem hækkun á endurgreiðslu virðisaukaskatts, greiðslufresti vegna aðflutningsgjalda, frestun gjalddaga, niðurfellingu gistináttaskatts o.fl.

    01. apr. 2020Fjármála- og efnahagsráðuneytið, Rekstur og eignir ríkisins, Covid-19, Efnahagsmál og opinber fjármál

    Horft verði fram hjá kröfum um ávöxtun og arðgreiðslur á árinu 2020

    Í ljósi þeirra aðstæðna sem leiða af heimsfaraldri COVID-19, m.a. viðbrögðum markaðsaðila undanfarið, og með vísan til ákvæða eigandastefnu ríkisins fyrir fjármálafyrirtæki sendi fjármála- og efnahagsráðherra bréf til Bankasýslu ríkisins 20. mars sl. þar sem farið er fram á að Bankasýslan horfi fram hjá kröfum um ávöxtun og arðgreiðslur á árinu 2020 og að þessum skilaboðum verði komið áfram til stjórna fjármálafyrirtækja í eigu ríkisins.

    31. mar. 2020Fjármála- og efnahagsráðuneytið, Rekstur og eignir ríkisins, Efnahagsmál og opinber fjármál, Covid-19

    Skatturinn felli tímabundið niður álag vegna skila á virðisaukaskatti á gjalddaga í apríl

    Samkvæmt lögum um virðisaukaskatt, er 6. apríl 2020 gjalddagi virðisaukaskatts vegna uppgjörstímabilsins janúar og febrúar 2020.

    27. mar. 2020Fjármála- og efnahagsráðuneytið, Rekstur og eignir ríkisins, Covid-19, Efnahagsmál og opinber fjármál

    Laun þjóðkjörinna fulltrúa og æðstu embættismanna fryst til áramóta

    Laun alþingismanna, ráðherra, ráðuneytisstjóra og æðstu embættismanna verða fryst til 1. janúar 2021, verði breytingartillaga fjármála- og efnahagsráðherra, til efnahags- og viðskiptanefndar við bandorm um aðgerðir til að mæta efnahagslegum áhrifum í kjölfar heimsfaraldurs kórónaveiru, samþykkt á Alþingi. Þetta er annað árið í röð sem lögbundinni hækkun þjóðkjörinna fulltrúa, ráðherra og ráðuneytisstjóra er seinkað, en hækkun sem átti að koma til framkvæmda 1. júlí 2019 var slegið á frest í tengslum við gerð lífskjarasamninga.

    27. mar. 2020Fjármála- og efnahagsráðuneytið, Rekstur og eignir ríkisins, Covid-19, Norrænt samstarf, Efnahagsmál og opinber fjármál

    Ráðherrar Norðurlanda og Eystrasaltsríkja í bankaráði NIB óska aðgerða til að draga úr efnahagsáhrifum heimsfaraldurs kórónuveiru

    Ráðherrar Norðurlanda og Eystrasaltsríkja í bankaráði Norræna fjárfestingarbankans (NIB) óskuðu í dag eftir því að bankinn gripi til skjótra aðgerða til þess að draga úr efnahagslegum áhrifum heimsfaraldurs kórónuveiru.

    25. mar. 2020Fjármála- og efnahagsráðuneytið, Rekstur og eignir ríkisins, Upplýsingatæknimál ríkisins, Covid-19, Efnahagsmál og opinber fjármál

    Umfangsmikil aukning í fjárfestingu í stafrænum innviðum

    Umfangsmikil aukning fjárfestingar í tækni, stafrænum lausnum og betri upplýsingakerfum í þágu einstaklinga og fyrirtækja var í dag samþykkt af þingflokkum stjórnarflokkanna. Aukningin er hluti af 15 ma. kr. fjárfestingaátaki sem kynnt var um liðna helgi og er liður í viðamiklum aðgerðum ríkisstjórnarinnar vegna kórónaveirunnar. Alls verða framlög aukin um 1.350 m.kr. á árinu 2020 til verkefna á sviði nýsköpunar, upplýsingatækni, netöryggis og stafrænnar þjónustu, samkvæmt þingsályktun fjármála- og efnahagsráðherra sem rædd verður á Alþingi nú í vikunni.

    25. mar. 2020Fjármála- og efnahagsráðuneytið, Kærunefnd útboðsmála, Úrskurðir

    Mál nr. 9/2020. Ákvörðun kærunefndar útboðsmála.

    Hönnunarsamkeppni. Forval. Stöðvunarkrafa samþykkt. Kröfu kærenda um stöðvun forvals varnaraðila vegna þátttöku í hönnunarsamkeppni var samþykkt vegna ágalla á forsendum fyrir vali umsókna.

    25. mar. 2020Fjármála- og efnahagsráðuneytið, Kærunefnd útboðsmála, Úrskurðir

    Mál nr. 8/2020. Ákvörðun kærunefndar útboðsmála.

    Örútboð. Rammasamningu. Bindandi samningur. Stöðvunarkröfu hafnað. Kröfu kæranda um stöðvun samningsgerðar vegna örútboðs sem fór fram á grundvelli rammasamnings var hafnað þar sem kominn var á bindandi samningur, sbr. 1. mgr. 114. gr. laga um opinber innkaup.

    25. mar. 2020Fjármála- og efnahagsráðuneytið, Kærunefnd útboðsmála, Úrskurðir

    Mál nr. 7/2020. Ákvörðun kærunefndar útboðsmála.

    Fyrirvarar. Stöðvun aflétt. Fallist var á kröfu varnaraðila um að sjálfkrafa stöðvun útboðs vegna skýrslugerðar fyrir heilbrigðisráðuneytið yrði aflétt.

    25. mar. 2020Fjármála- og efnahagsráðuneytið, Kærunefnd útboðsmála, Úrskurðir

    Mál nr. 5/2020. Ákvörðun kærunefndar útboðsmála.

    Hafnað að aflétta stöðvun samningsgerðar. Hafnað var kröfu varnaraðila um að aflétta banni við samningsgerð í kjölfar innkaupaferlisins „Aðalskipulag Suðurnesjabæjar“.

    23. mar. 2020Fjármála- og efnahagsráðuneytið, Kærunefnd útboðsmála, Úrskurðir

    Mál nr. 4/2020. Ákvörðun kærunefndar útboðsmála.

    Hönnunarsamkeppni. Forval. Stöðvunarkrafa samþykkt. Kröfu kærenda um stöðvun forvals varnaraðila vegna þátttöku í hönnunarsamkeppni var samþykkt, sbr. 1. mgr. 110. gr. laga um opinber innkaup.

    23. mar. 2020Fjármála- og efnahagsráðuneytið, Kærunefnd útboðsmála, Úrskurðir

    Mál nr. 3/2020. Ákvörðun kærunefndar útboðsmála.

    Með kæru 30. janúar 2020 kærði Verkís hf. útboð Ríkiskaupa fyrir hönd Þjóðgarðsins á Þingvöllum (hér eftir vísað til sem varnaraðila) nr. 21010 „Innheimtuþjónusta fyrir þjóðgarðinn á Þingvöllum“. Kærandi gerir aðallega þá kröfu að útboðið verði fellt úr gildi og lagt fyrir varnaraðila að auglýsa útboðið á nýjan leik. Til vara er þess krafist að „ákvörðun varnaraðila um að hafna því að þeir þjónustuaðilar sem kjósa að nýta núverandi búnað skuli kaupa hann af þjóðgarðinum, á uppreiknuðu kaupverði samkvæmt neysluvísitölu“ verði felld úr gildi og lagt verði fyrir varnaraðila að gera slíkar breytingar. Þá er gerð krafa um að kærunefndin veiti álit á skaðabótaskyldu varnaraðila gagnvart kæranda. Jafnframt er gerð krafa um málskostnað.…

    21. mar. 2020Forsætisráðuneytið, Innviðaráðuneytið, Fjármála- og efnahagsráðuneytið, Covid-19

    Viðspyrna fyrir Ísland - efnahagsaðgerðir stjórnvalda vegna COVID-19

    Ríkið greiðir allt að 75% launa fólks næstu mánuði. ​Ríkisábyrgð á brúarlánum til fyrirtækja.

    21. mar. 2020Fjármála- og efnahagsráðuneytið, Rekstur og eignir ríkisins, Covid-19, Efnahagsmál og opinber fjármál, Forsætisráðuneytið, Innviðaráðuneytið

    Sameiginleg yfirlýsing ríkisstjórnar Íslands, Samtaka fjármálafyrirtækja og Landssamtaka lífeyrissjóða um viðbrögð vegna heimsfaraldurs kórónuveiru

    Í yfirlýsingu ríkisstjórnarinnar frá 10. mars sl. segir að stjórnvöld muni efna til virks samráðs við Samtök fjármálafyrirtækja um viðbrögð þeirra við fyrirsjáanlegum lausafjár- og greiðsluörðugleikum fyrirtækja í ferðaþjónustu. Síðan yfirlýsingin var gefin hefur útbreiðsla faraldursins verið hröð og fjölmörg ríki hafa gripið til umfangsmikilla ráðstafana til að hefta hana. Þær aðgerðir hafa víðtæk áhrif á efnahagshorfur, allt atvinnulíf, heimili og einstaklinga.

    17. mar. 2020Fjármála- og efnahagsráðuneytið, Rekstur og eignir ríkisins, Efnahagsmál og opinber fjármál, Covid-19

    Vegna útgáfumála ríkissjóðs

    Í ljósi atburða síðustu vikna í tengslum við Covid-19 er fyrirsjáanlegt að fjárþörf ríkissjóðs mun aukast umtalsvert frá fyrri spám. Mikil óvissa er um efnahagshorfur næstu mánuði og því er erfitt að meta lánsfjárþörf ríkissjóðs fyrir yfirstandandi ár. Einnig er óljóst hversu mikil þörfin verður annars vegar til skemmri tíma og hins vegar til lengri tíma.

    16. mar. 2020Fjármála- og efnahagsráðuneytið, Efnahagsmál og opinber fjármál, Rekstur og eignir ríkisins, Atvinnuvegir, Covid-19

    Skipting gjalddaga á staðgreiðslu opinberra gjalda og tryggingagjalds

    Alþingi hefur samþykkt frumvarp ríkisstjórnarinnar um tvískiptingu á gjalddaga staðgreiðslu opinberra gjalda og tryggingagjalds Breytingin felur í sér að í stað þess að greiða eigi alla kröfuna mánudaginn 16. mars verður greiðsla hennar tvískipt.

    13. mar. 2020Fjármála- og efnahagsráðuneytið, Rekstur og eignir ríkisins, Upplýsingatæknimál ríkisins, Covid-19, Efnahagsmál og opinber fjármál

    Ríkisstofnanir vel í stakk búnar fyrir fjarvinnu starfsfólks

    Nýtt skrifstofuumhverfi ríkisins, Microsoft 365, reynist vel við að tryggja að starfsfólk ríkisins geti á næstunni sinnt störfum sínum að heiman í ljósi Covid-19 faraldursins og hefur í för með sér að flestar stofnanir þurfa engar viðbótarfjárfestingar til þess að starfsmenn geti unnið heiman frá. Þar gegnir kerfið Teams lykilhlutverki, sem heldur utan um vinnu verkefnahópa, samvinnu í skjölum og fjarfundi.

    • First
    • Prev
    • 38
    • 39
    • 40
    • 41
    • 42
    • Next
    • Last
    Logo
    • Um vefinn
    • Áskrift
    • Veftré
    • Fyrirvari
    +354 545 8000
    Staðsetning ráðuneyta, opnunartími og netföng
    Hafa samband

    Hafa samband