02. feb. 2024Mannréttindi og jafnrétti, Dómsmálaráðuneytið, Forsætisráðuneytið
Herferðinni Orðin okkar hleypt af stokkunum
Í gær hleypti Jafnréttisstofa af stokkunum herferðinni Orðin okkar með stuðningi forsætisráðuneytisins. Herferðinni er ætlað að hvetja fólk til umhugsunar um áhrifamátt orða sinna. Orð geta sært, sundrað og brotið niður en þau geta einnig nært, huggað og sameinað.