Coat of arms
Stjórnarráð Íslands
  • Verkefni
    • Almannatryggingar og lífeyrir
    • Almannaöryggi
    • Atvinnuvegir
    • Auðlindir
    • Efnahagsmál
    • Félags- og fjölskyldumál
    • Fjarskipti
    • Húsnæðis- og mannvirkjamál
    • Líf og heilsa
    • Kosningar
    • Lög og réttur
    • Mannauðsmál ríkisins
    • Mannréttindi og jafnrétti
    • Menningarmál
    • Menntamál
    • Neytendamál
    • Opinber fjármál
    • Persónuréttur
    • Rekstur og eignir ríkisins
    • Samgöngur
    • Sjálfbært Ísland
    • Skipulagsmál
    • Stjórnskipan og þjóðartákn
    • Sveitarstjórnir og byggðamál
    • Trú og lífsskoðun
    • Umhverfi og náttúruvernd
    • Upplýsingatæknimál ríkisins
    • Utanríkismál
    • Útlendingar
    • Vinnumál
    • Vísindi, nýsköpun og rannsóknir
    • Öll verkefni
    • Efst á baugi
      • Fréttir
      • Nýjast
      • Fyrirspurnir frá Alþingi
      • Fyrir fjölmiðla
      • Eldri fréttir
    • Gögn
      • Rit og skýrslur
      • Úrskurðir og álit
      • Eyðublöð
      • Stefnur og áætlanir
      • Styrkir og sjóðir
      • Hugtakasafn
      • Lög og reglugerðir
      • Málaskrár ráðuneyta
      • Mælaborð
      • Hönnunarstaðall
    • Ráðuneyti
      • Forsætisráðuneytið
      • Atvinnuvegaráðuneytið
      • Dómsmálaráðuneytið
      • Félags- og húsnæðismálaráðuneytið
      • Fjármála- og efnahagsráðuneytið
      • Heilbrigðisráðuneytið
      • Innviðaráðuneytið
      • Menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðuneytið
      • Mennta- og barnamálaráðuneytið
      • Umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytið
      • Utanríkisráðuneytið
      • Sendiskrifstofur
      • Samstarfsráðherra Norðurlanda
      • Starfsfólk
      • Stofnanir
      • Nefndir
      • Símanúmer og staðsetning ráðuneyta
      • Umbra
    • Ríkisstjórn
      • Skipan ríkisstjórnar
      • Ríkisstjórnarfundir
      • Stjórnarsáttmáli
      • Ráðherranefndir
      • Reglur um starfshætti
      • Reglur um ferðakostnað og starfskjör ráðherra
      • Siðareglur, hagsmunir og hagsmunaverðir
      • Þingmálaskrá
      • Ríkisráð
      • Sögulegt efni
      • Fyrir fjölmiðla
    EN
    • Verkefni
      • Almannatryggingar og lífeyrir
      • Almannaöryggi
      • Atvinnuvegir
      • Auðlindir
      • Efnahagsmál
      • Félags- og fjölskyldumál
      • Fjarskipti
      • Húsnæðis- og mannvirkjamál
      • Líf og heilsa
      • Kosningar
      • Lög og réttur
      • Mannauðsmál ríkisins
      • Mannréttindi og jafnrétti
      • Menningarmál
      • Menntamál
      • Neytendamál
      • Opinber fjármál
      • Persónuréttur
      • Rekstur og eignir ríkisins
      • Samgöngur
      • Sjálfbært Ísland
      • Skipulagsmál
      • Stjórnskipan og þjóðartákn
      • Sveitarstjórnir og byggðamál
      • Trú og lífsskoðun
      • Umhverfi og náttúruvernd
      • Upplýsingatæknimál ríkisins
      • Utanríkismál
      • Útlendingar
      • Vinnumál
      • Vísindi, nýsköpun og rannsóknir
      • Öll verkefni
    • Efst á baugi
      • Fréttir
      • Nýjast
      • Fyrir fjölmiðla
      • Eldri fréttir
      • Fyrirspurnir frá Alþingi
    • Gögn
      • Rit og skýrslur
      • Úrskurðir og álit
      • Eyðublöð
      • Stefnur og áætlanir
      • Styrkir og sjóðir
      • Hugtakasafn
      • Lög og reglugerðir
      • Málaskrár ráðuneyta
      • Mælaborð
      • Hönnunarstaðall
    • Ráðuneyti
      • Forsætisráðuneytið
      • Atvinnuvegaráðuneytið
      • Dómsmálaráðuneytið
      • Félags- og húsnæðismálaráðuneytið
      • Fjármála- og efnahagsráðuneytið
      • Heilbrigðisráðuneytið
      • Innviðaráðuneytið
      • Menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðuneytið
      • Mennta- og barnamálaráðuneytið
      • Umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytið
      • Utanríkisráðuneytið
      • Sendiskrifstofur
      • Samstarfsráðherra Norðurlanda
      • Starfsfólk
      • Stofnanir
      • Nefndir
      • Símanúmer og staðsetning ráðuneyta
      • Umbra
    • Ríkisstjórn
      • Skipan ríkisstjórnar
      • Ríkisstjórnarfundir
      • Stjórnarsáttmáli
      • Ráðherranefndir
      • Reglur um starfshætti
      • Reglur um ferðakostnað og starfskjör ráðherra
      • Siðareglur, hagsmunir og hagsmunaverðir
      • Þingmálaskrá
      • Ríkisráð
      • Sögulegt efni
      • Fyrir fjölmiðla
    Close navigation
    Covid-19
    Efnisorð

    Ekkert fannst

    Tegund
    Tegund

    Leita eftir efnisorðum

    Sýnir 251–300 af 908
    Raða eftir:
    24. mar. 2021Heilbrigðisráðuneytið, Covid-19, Líf og heilsa

    Bakvarðarsveit heilbrigðisþjónustunnar endurvakin

    Ákveðið hefur verið að endurvekja bakvarðasveit heilbrigðisþjónustu. Óskað er eftir liðsinni heilbrigðisstarfsfólks sem er reiðubúið að koma tímabundið til starfa með skömmum fyrirvara, hvort heldur í fullt starf, hlutastarf eða í tímavinnu, eftir því sem aðstæður leyfa. Þeir sem voru skráðir í bakvarðasveitina og sjá sér enn fært að veita liðsinni eru beðnir um að skrá sig þar á ný.

    24. mar. 2021Mennta- og barnamálaráðuneytið, Covid-19, Menntamál

    Breytingar á skólastarfi til og með 31. mars

    Heilbrigðisráðherra hefur ákveðið að grípa til sóttvarnaraðgerða sem takmarka grunn-, framhalds- og háskólastarf frá og með fimmtudeginum 25. mars til og með 31. mars.

    24. mar. 2021Heilbrigðisráðuneytið, Covid-19, Líf og heilsa

    COVID-19: Stórhertar sóttvarnaaðgerðir taka gildi á miðnætti - fjöldatakmörk 10 manns

    Hertar reglur um sóttvarnarráðstafanir á landsvísu taka gildi á miðnætti í kvöld. Tíu manna fjöldatakmörkun verður meginregla og aðeins börn fædd 2015 og síðar verða þar undanskilin. Grunn-, framhalds-, tónlistar- og háskólum verður lokað þar til páskafrí tekur við. Margvísleg starfsemi sem rúmast ekki innan reglu um 10 manna fjöldatakmörkun verður stöðvuð. Ákvörðun heilbrigðisráðherra um hertar sóttvarnaaðgerðir byggist á tillögum sóttvarnalæknis um að grípa tafarlaust til ráðstafana vegna hópsýkinga innanlands að undanförnu til að sporna gegn frekari útbreiðslu veirunnar. Hertar reglur munu gilda í 3 vikur.

    24. mar. 2021Covid-19, Menningarmál, Menningar-٫ nýsköpunar- og háskólaráðuneytið

    Takmarkanir á íþrótta- og menningarstarfi til og með 15. apríl

    Reglur sem takmarka íþrótta-, æskulýðs- og menningarstarf taka gildi á miðnætti, samkvæmt ákvörðun ríkisstjórnar Íslands.

    24. mar. 2021Fjármála- og efnahagsráðuneytið, Efnahagsmál og opinber fjármál, Rekstur og eignir ríkisins, Covid-19

    Meira svigrúm heimilað við endurgreiðslur stuðningslána

    Lánastofnunum verður heimilt að hliðra endurgreiðslutíma stuðningslána í allt að 12 mánuði til viðbótar við þann frest sem áður var gefinn. Þetta kemur fram reglugerð sem fjármála- og efnahagsráðherra hefur undirritað en breytingin er liður í að aðstoða rekstraraðila sem eiga í erfiðleikum vegna heimsfaraldurs kórónuveiru. Liðlega 1.100 umsóknir um stuðningslán hafa verið afgreiddar að fjárhæð 9,4 milljörðum króna til u.þ.b. 945 aðila.

    23. mar. 2021Heilbrigðisráðuneytið, Covid-19, Líf og heilsa

    COVID-19: Sóttvarnaráðstafanir á landamærum hertar

    Heilbrigðisráðherra hefur ákveðið að herða sóttvarnaráðstafanir á landamærum í samræmi við tillögur sóttvarnalæknis. Meginreglan verður að börn fædd 2005 eða síðar fari í sýnatöku á landamærum og sæti fimm daga sóttkví. Þá skulu allir sem koma frá löndum þar sem nýgengi smita er yfir tilteknum viðmiðum dvelja í sóttvarnahúsi meðan á fimm daga sóttkví stendur, nema þeir hafi framvísað gildu bólusetningarvottorði eða vottorði um fyrra smit. Reglugerð heilbrigðisráðherra um þessar breytingar tekur gildi 1. apríl og gildir til loka mánaðarins.

    22. mar. 2021Fjármála- og efnahagsráðuneytið, Efnahagsmál og opinber fjármál, Rekstur og eignir ríkisins, Covid-19

    Fjármálaáætlun 2022-2026: Réttar ráðstafanir skiluðu árangri og björtum horfum

    Aðgerðir stjórnvalda vegna heimsfaraldurs kórónuveiru hafa skilað miklum árangri og útlitið fram undan er bjartara en gert var ráð fyrir í fyrra. Ráðstöfunartekjur heimilanna jukust árið 2020 og reyndist samdráttur umtalsvert minni en áætlað var. Þetta eru meginatriðin í nýrri fjármálaáætlun fyrir 2022-2026, sem kynnt er í dag.

    17. mar. 2021Fjármála- og efnahagsráðuneytið, Efnahagsmál og opinber fjármál, Rekstur og eignir ríkisins, Covid-19

    Hátt í sex hundruð umsóknir um viðspyrnustyrki afgreiddar

    Greiddar hafa verið 734 milljónir króna í viðspyrnustyrki en hátt í sex hundruð umsóknir um styrkina bárust á fyrstu tveimur vikunum eftir að Skatturinn opnaði fyrir þær.

    17. mar. 2021Covid-19, Menningarmál, Menningar-٫ nýsköpunar- og háskólaráðuneytið

    Rúmlega 350 milljónir kr. í menningartengda tekjufallsstyrki

    Þegar hafa verið greiddar út 356,8 milljónir kr. í tekjufallsstyrki til rekstraraðila í menningargeiranum og skapandi menningargreinum.

    16. mar. 2021Heilbrigðisráðuneytið, Covid-19, Líf og heilsa

    COVID-19: Breytingar á sóttvarnaráðstöfunum innanlands 18. mars

    Heilbrigðisráðherra hefur ákveðið breytingar á sóttvarnaráðstöfunum sem taka gildi 18. mars og byggja í meginatriðum á tillögum sóttvarnalæknis. Þær fela fyrst og fremst í sér auknar kröfur um skráningu gesta og smitgát í tengslum við viðburði. Þá eru einnig gerðar ríkari kröfur til sóttvarnaráðstafana þar sem boðið er upp á hlaðborð. Gildistími reglugerðar um þessar breytingar er til 9. apríl næstkomandi.

    16. mar. 2021Heilbrigðisráðuneytið, Covid-19, Líf og heilsa

    COVID-19: Vottorð um bólusetningu eða fyrri sýkingu tekin gild á landamærum óháð uppruna

    Heilbrigðisráðherra hefur ákveðið, í samræmi við tillögur sóttvarnalæknis, að vottorð um bólusetningu gegn COVID-19 og vottorð um fyrri covid sýkingu verði tekin gild á landamærum Íslands, hvort sem þau eru upprunnin innan EES svæðisins eða utan þess, að því tilskyldu að þau uppfylli sömu kröfur og leiðbeiningar sóttvarnalæknis. Einstaklingar sem framvísa slíkum vottorðum þurfa hvorki að fara í sýnatöku eða sóttkví né framvísa vottorði um neikvætt PCR-próf á landamærunum.

    16. mar. 2021Covid-19, Ferðaþjónusta, Atvinnuvegir, Atvinnuvegaráðuneytið

    Þórdís Kolbrún opnar vefinn: Jafnvægisás.is

    Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir, ferðamála-, iðnaðar- og nýsköpunarráðherra opnaði í dag Jafnvægisás ferðamála á vefsíðunni www.jafnvægisás.is.

    15. mar. 2021Félags- og húsnæðismálaráðuneytið, Covid-19, Vinnumál, Forsætisráðuneytið

    Hefjum störf – umfangsmiklar vinnumarkaðsaðgerðir fyrir atvinnuleitendur og atvinnulífið

    Markmiðið er að með átakinu verði til allt að 7.000 tímabundin störf í samvinnu við atvinnulífið, opinberar stofnanir, sveitarfélög og félagasamtök.

    12. mar. 2021Covid-19, Heilbrigðisráðuneytið, Forsætisráðuneytið

    Skýrsla um árangursmat mismunandi aðgerða á landamærum

    Hópur vísindafólks við Háskóla Íslands, undir handleiðslu Thors Aspelund, hefur rannsakað áhrif mismunandi sóttvarnaaðgerða á landamærum. Verkefnið var unnið í framhaldi af styrk ríkisstjórnarinnar til rannsókna á áhrifum sóttvarnaaðgerða á þróun COVID-19.

    12. mar. 2021Heilbrigðisráðuneytið, Covid-19, Líf og heilsa

    COVID-19 Tafir á afhendingu bóluefnis frá AstraZeneca – bólusetningardagatal uppfært

    Tafir verða á afhendingu bóluefnis frá AstraZeneca til allra landa í samstarfi Evrópuþjóða um kaup á bólefni.

    12. mar. 2021Covid-19, Menningarmál, Menningar-٫ nýsköpunar- og háskólaráðuneytið

    Íþrótta- og æskulýðsstarf komist á skrið á ný

    Lilja Alfreðsdóttir mennta- og menningarmálaráðherra hefur staðfest tillögur Íþrótta- og Ólympíusamband Íslands að skiptingu á 300 milljóna kr. stuðningi til íþróttafélaga sem starfrækja skipulagt íþróttastarf fyrir börn og unglinga 6-18 ára.

    12. mar. 2021Atvinnuvegaráðuneytið, Covid-19, Landbúnaður, Atvinnuvegir

    970 milljónir til sauðfjár- og nautgripabænda til að mæta áhrifum COVID-19

    Kristján Þór Júlíusson,​ sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra, hefur lokið við útfærslu á ráðstöfun fjármuna til sauðfjár- og nautgripabænda til að mæta áhrifum COVID-19 á íslenskan landbúnað. Aðgerðin er liður í aðgerðaáætlun í 12 liðum til að styrkja stoðir íslensks landbúnaðar m.a. í ljósi þeirra beinu og óbeinu áhrifa sem kórónaveirufaraldurinn hefur haft á greinina. Áætlunin var kynnt í ríkisstjórn 12. febrúar sl. og á opnum fundi þann 17. febrúar.

    11. mar. 2021Fjármála- og efnahagsráðuneytið, Efnahagsmál og opinber fjármál, Rekstur og eignir ríkisins, Covid-19

    560 sóttu um viðspyrnustyrki fyrstu vikuna

    Alls sóttu 560 rekstraraðilar um viðspyrnustyrki í fyrstu vikunni eftir að opnað var fyrir umsóknir hjá Skattinum. Nú þegar hafa verið greiddar 194 milljónir króna í slíkan styrk til 154 rekstraraðila.

    09. mar. 2021Atvinnuvegir, Umhverfi og náttúruvernd, Byggðamál, Covid-19, Ferðaþjónusta, Landgræðsla og skógrækt, Atvinnuvegaráðuneytið

    Kynningarfundur í dag: Ráðherrar kynna úthlutun ársins úr Framkvæmdasjóði ferðamannastaða og Landsáætlun um uppbyggingu innviða

    Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir, ferðamála-, iðnaðar, og nýsköpunarráðherra og Guðmundur Ingi Guðbrandsson, umhverfis- og auðlindaráðherra munu kynna úthlutun ársins 2021 úr Framkvæmdasjóði ferðamannastaða og Landsáætlun um uppbyggingu innviða á sameiginlegum fundi á morgun þriðjudag, 9. mars. Kynningin hefst kl. 13:30 og verður haldin í Norræna húsinu.

    09. mar. 2021Rit og skýrslur, Menntamál, Covid-19, Mennta- og barnamálaráðuneytið

    Nám og líðan framhaldsskólanema á tímum COVID-19

    mars 2021 / Mennta- og barnamálaráðuneytið Nám og líðan framhaldsskólanema á tímum COVID-19 Niðurstöður könnunar á líðan, námi og aðstæðum framhaldsskólanema sem lögð var fyrir veturinn 2020. Könnunin var unnin af Sambandi íslenskra framhaldsskólanema (SÍF) í samvinnu við mennta-og menningarmálaráðuneytið

    05. mar. 2021Utanríkisráðuneytið, Alþjóðamál, Covid-19, Loftslagsmál, Öryggis- og varnarmál, Utanríkismál

    Fyrsti norræni utanríkisráðherrafundur ársins

    Alþjóðamál, öryggis- og varnarmál og COVID-19 voru efst á baugi á fundi utanríkisráðherra Norðurlanda sem fram fór í dag. Guðlaugur Þór Þórðarson, utanríkis- og þróunarsamvinnuráðherra segir samband ríkjanna standa sterkar eftir kórónuveirufaraldurinn.

    04. mar. 2021Félags- og húsnæðismálaráðuneytið, Covid-19, Félags- og fjölskyldumál

    125 milljónir króna til örvunar á félagsstarfi og heilsueflingar fullorðinna

    Aðgerðirnar eru mótaðar af starfshópi um lífskjör og aðbúnað aldraðra, og eru hluti af viðspyrnuáætlun ríkisstjórnarinnar.

    03. mar. 2021Ferðaþjónusta, Covid-19, Atvinnuvegir, Atvinnuvegaráðuneytið

    Visit Iceland – upplýsingamiðlun til ferðamanna stórefld

    Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir, ferðamála-, iðnaðar- og nýsköpunarráðherra undirritaði í dag samning við Íslandsstofu og Ferðamálastofu um heildstæða landkynningar- og upplýsingaþjónustu fyrir ferðamenn undir merkjum Visit Iceland.

    03. mar. 2021Fjármála- og efnahagsráðuneytið, Efnahagsmál og opinber fjármál, Rekstur og eignir ríkisins, Covid-19

    Opnað fyrir umsóknir um viðspyrnustyrki

    Móttaka umsókna um viðspyrnustyrki er nú hafin hjá Skattinum.

    01. mar. 2021Heilbrigðisráðuneytið, Covid-19, Líf og heilsa

    COVID-19: Upplýsingar um bólusetningar í viku hverri

    Um 8.900 einstaklingar verða bólusettir á landsvísu í þessari viku, þ.e. dagana 1. – 7. mars. Þetta kemur fram í tilkynningu sóttvarnalæknis í dag sem birtir áætlun um bólusetningar hverrar viku á vef embættis landlæknis. Eins og fram kemur í tilkynningunni verða einstaklingar í aldurshópnum 80 ára og eldri bólusettir með 4.600 skömmtum af bóluefni Pfizer og 4.300 starfsmenn hjúkrunar- og dvalarheimila verða bólusettir með bóluefni Astra Zeneca. Allt bóluefni sem fer í dreifingu í vikunni verður notað til að bólusetja fyrri bólusetningu.

    01. mar. 2021Fjármála- og efnahagsráðuneytið, Efnahagsmál og opinber fjármál, Covid-19

    Ánægja með aðgerðir stjórnvalda og batnandi fjárhagsstaða fyrirtækja

    Mikil ánægja mælist með efnahagsaðgerðir stjórnvalda vegna Covid-19 og meirihluti fyrirtækja telur sig standa fjárhagslega vel til að takast á við tímabundin áföll næstu mánuði. Mun fleiri fyrirtæki sjá fram á fjölgun starfsfólks heldur en fækkun.

    26. feb. 2021Fjármála- og efnahagsráðuneytið, Efnahagsmál og opinber fjármál, Rekstur og eignir ríkisins, Covid-19

    Tæpir átta milljarðar greiddir í tekjufallsstyrki

    Um 1.400 rekstraraðilar hafa fengið um 7,8 milljarða króna greidda í tekjufallsstyrki vegna heimsfaraldurs kórónuveiru. Tekjufallsstyrkir nýtast rekstraraðilum sem orðið hafa fyrir verulegu tekjufalli í heimsfaraldrinum og er markmiðið að viðhalda atvinnustigi og efnahagsumsvifum með því að styðja þau fyrirtæki og einyrkja þar sem tekjufall er meira en 40%.

    25. feb. 2021Mennta- og barnamálaráðuneytið, Covid-19, Menntamál

    Líðan og áhrif COVID-19 á framhaldsskólanema

    Niðurstöður könnunar á líðan, námi og aðstæðum framhaldsskólanema sem lögð var fyrir fyrr í vetur bendir til þess að meirihluti nemenda sé ánægður með viðbrögð framhaldsskólanna við COVID-19 og upplifi sig örugg í skólanum.

    24. feb. 2021Félags- og húsnæðismálaráðuneytið, Félags- og fjölskyldumál, Covid-19, Dómsmálaráðuneytið

    Stuðningur við börn í viðkvæmri stöðu til að draga úr líkum á ofbeldisbrotum þeirra

    Hluti af tillögum aðgerðateymis gegn ofbeldi.

    23. feb. 2021Mennta- og barnamálaráðuneytið, Covid-19, Menntamál

    Rýmkun á skólastarfi, háskólar geta hafið staðnám að nýju

    Mestu breytingarnar felast í afnámi 2 metra reglunnar í öllu skólastarfi og hækkun hámarksfjölda nemenda í framhalds- og háskólum í 150 frá og með næstu mánaðarmótum.

    23. feb. 2021Heilbrigðisráðuneytið, Covid-19, Mennta- og barnamálaráðuneytið, Líf og heilsa

    COVID-19: Létt á takmörkunum í skólastarfi frá 24. febrúar

    Almennt verður heimilaður hámarksfjöldi nemenda 150 í hverju rými og blöndun milli sóttvarnahólfa heimil á öllum skólastigum, líka í háskólum. Regla um nándarmörk verður 1 metri í stað tveggja og gildir það jafnt milli nemenda og starfsfólks. Aðeins þarf að bera grímur ef ekki er unnt að virða 1 metra regluna. Á öllum skólastigum öðrum en á háskólastigi verður foreldrum, aðstandendum og öðrum utanaðkomandi heimilt að koma inn í skólabyggingar, að uppfylltum reglum um sóttvarnir. Þetta eru meginbreytingarnar á takmörkun skólastarfs sem heilbrigðisráðherra hefur ákveðið, í samræmi við tillögur sóttvarnalæknis og að höfðu samráði við mennta- og menningarmálaráðuneytið.

    23. feb. 2021Utanríkisráðuneytið, Utanríkismál, Covid-19, Mannréttindi, Mannréttindi og jafnrétti

    Guðlaugur Þór ávarpaði mannréttindaráð Sameinuðu þjóðanna

    Guðlaugur Þór Þórðarson utanríkis- og þróunarsamvinnuráðherra varaði við því að heimsfaraldurinn væri notaður sem átylla til að skerða frelsi og borgaraleg réttindi í ávarpi sínu í mannréttindarráði Sameinuðu þjóðanna í dag. Hann fagnaði sérstaklega ákvörðun Bandaríkjastjórnar að gerast aftur virkur þátttakandi í starfi mannréttindaráðsins. Ekki væri um gallalausa stofnun að ræða en einmitt þess vegna þyrftu lýðræðisríki að vinna að umbótum á mannréttindaráðinu og halda á lofti frelsi og mannréttindum.

    23. feb. 2021Fjármála- og efnahagsráðuneytið, Efnahagsmál og opinber fjármál, Rekstur og eignir ríkisins, Covid-19

    5,6 milljarðar króna í auknar endurgreiðslur vegna framkvæmda

    Frá því að heimsfaraldur kórónuveiru hófst hafa verið endurgreiddir um 5,6 milljarðar króna aukalega af virðisaukaskatti (VSK) vegna margs konar framkvæmda en endurgreiðslurnar nýtast einkum einstaklingum og félögum á borð við sveitarfélög, almannaheillafélög og íþróttafélög.

    23. feb. 2021Heilbrigðisráðuneytið, Covid-19, Líf og heilsa

    COVID-19: Fjöldatakmörk verða 50 manns frá 24. febrúar

    Almennar fjöldatakmarkanir verða 50 manns samkvæmt nýjum reglum um samkomutakmarkanir sem taka gildi 24. febrúar. Heimilt verður að hafa að hámarki 200 viðskiptavini í verslunum, á söfnum, í kirkjum og á tilteknum viðburðum. Sund- og baðstöðum og skíðasvæðum verður heimilt að taka á móti 75% af leyfilegum hámarksfjölda gesta. Sama máli gegnir um heilsu- og líkamsræktarstöðvar en þar er jafnframt óheimilt að hafa fleiri en 50 manns í rými. Á íþróttakeppnum verður nú heimilt að hafa áhorfendur. Þetta er megininntak tilslakana á samkomutakmörkunum sem heilbrigðisráðherra hefur ákveðið að gera í samræmi við tillögur sóttvarnalæknis.

    19. feb. 2021Heilbrigðisráðuneytið, Covid-19, Líf og heilsa

    COVID-19: Bólusetningardagatal

    Heilbrigðisráðuneytið í samvinnu við sóttvarnalækni hefur útbúið bólusetningardagatal vegna COVID-19, miðað við fyrirliggjandi upplýsingar um afhendingu bóluefna og áætlanir þar að lútandi. Dagatalinu er ætlað að gefa fólki vísbendingu um hvenær líklegt er að bólusetning hefjist í einstökum forgangshópum. Dagatalið er birt með fyrirvara, enda að hluta til um áætlun að ræða sem mun taka breytingum. Gangi forsendur eftir lýkur bólusetningu gegn COVID-19 hér á landi fyrir lok júní næstkomandi.

    19. feb. 2021Fjármála- og efnahagsráðuneytið, Efnahagsmál og opinber fjármál, Rekstur og eignir ríkisins, Covid-19

    Yfir 7 milljarðar greiddir í tekjufallsstyrki

    Yfir 7 milljarðar hafa verið greiddir í tekjufallsstyrki til 1.215 rekstraraðila frá því að afgreiðsla umsókna hófst hjá Skattinum um miðjan janúar. Um 67% fjárhæðanna hafa farið til fyrirtækja í ferðaþjónustu, sem er svipað hlutfall og í öðrum úrræðum sem stjórnvöld hafa kynnt til sögunnar í tugmilljarða stuðningi við fólk og fyrirtæki vegna heimsfaraldurs kórónuveiru.

    17. feb. 2021Atvinnuvegaráðuneytið, Covid-19, Framkvæmd búvörusamninga, Landbúnaður, Atvinnuvegir

    Aðgerðaáætlun til eflingar íslensks landbúnaðar kynnt

    Kristján Þór Júlíusson, sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra, kynnti í morgun tímasetta aðgerðaáætlun í 12 liðum til eflingar íslensks landbúnaðar. Aðgerðunum er ætlað að styrkja stoðir íslensks landbúnaðar í ljósi þeirra beinu og óbeinu áhrifa sem COVID-19 hefur haft á greinina. Tilgangur aðgerðanna er að skapa öfluga viðspyrnu fyrir íslenskan landbúnað og auðvelda honum að nýta tækifæri framtíðarinnar.

    17. feb. 2021Atvinnuvegaráðuneytið, Covid-19, Framkvæmd búvörusamninga, Landbúnaður, Atvinnuvegir

    Aðgerðaáætlun til eflingar íslensks landbúnaðar kynnt

    Kristján Þór Júlíusson, sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra, kynnti í morgun tímasetta aðgerðaáætlun í 12 liðum til eflingar íslensks landbúnaðar. Aðgerðunum er ætlað að styrkja stoðir íslensks landbúnaðar í ljósi þeirra beinu og óbeinu áhrifa sem COVID-19 hefur haft á greinina. Tilgangur aðgerðanna er að skapa öfluga viðspyrnu fyrir íslenskan landbúnað og auðvelda honum að nýta tækifæri framtíðarinnar.

    17. feb. 2021Forsætisráðuneytið, Covid-19

    Líkan um áhrif bólusetningar á áhættustig vegna COVID-19

    Hröð bólusetning elstu aldurshópanna dregur mjög úr fjölda þeirra sem veikjast lífshættulega af COVID-19. Hermilíkan sem þróað hefur verið á vegum forsætisráðuneytis og heilbrigðisráðuneytis gerir það mögulegt að skoða líklegar sviðsmyndir um hvernig áhættustig vegna faraldursins breytist eftir því sem bólusetningum miðar áfram.

    16. feb. 2021Ræður og greinar, Heilbrigðisráðuneytið, Covid-19, Líf og heilsa

    Hraðari afhending bóluefna

    16 febrúar 2021 / Heilbrigðisráðuneytið Hraðari afhending bóluefna Svandís Svavarsdóttir heilbrigðisráðherra Svandís Svavarsdóttir heilbrigðisráðherra skrifar: Staðan á Covid-19-faraldrinum er góð hérlendis í alþjóðlegum samanburði. Ísland er í grænum flokki samkvæmt litakóðunarkerfi á korti Sóttvarnastofnunar Evrópu en land fær grænan lit ef nýgengi smita síðustu fjórtán daga á hverja 100 þúsund íbúa er undir 25 og hlutfall jákvæðra sýna undir 4%. Í gær, 15

    16. feb. 2021Heilbrigðisráðuneytið, Covid-19, Líf og heilsa

    COVID-19: Spornað gegn útbreiðslu smita með hertum aðgerðum á landamærum

    Öllum sem koma til landsins frá og með 19. febrúar næstkomandi verður skylt að framvísa nýlegu vottorði um neikvæða niðurstöðu úr PCR-prófi fyrir brottför á leið til Íslands og á landamærum við komuna. Kemur sú ráðstöfun til viðbótar kröfu um tvöfalda skimun. Frá sama tíma verður þeim sem greinast með COVID-19 við skimun á landamærum skylt að dvelja í sóttvarnahúsi ef önnur viðunandi aðstaða til einangrunar er ekki fyrir hendi eða ef einstaklingur er með afbrigði veirunnar sem eru þekkt fyrir að vera meira smitandi en önnur eða valda alvarlegri veikindum. Heilbrigðisráðherra kynnti ákvörðun þessa efnis á fundi ríkisstjórnar í dag og er hún í samræmi við tillögur sóttvarnalæknis um hertar aðgerðir á landamærum.

    15. feb. 2021Heilbrigðisráðuneytið, Covid-19, Líf og heilsa

    COVID-19: Bólusetning verður langt komin í lok júní

    Gera má ráð fyrir að hægt verði að bólusetja tæplega 190.000 einstaklinga hér á landi fyrir lok júní næstkomandi með bóluefnum Pfizer, AstraZeneca og Moderna sem öll eru með markaðsleyfi og komin í notkun hér á landi. Þetta er mun meira en áður var vænst. Mestu munar annars vegar um nýjan samning Evrópusambandsins við Pfizer sem tryggir Íslandi bóluefni fyrir 25.000 til 30.000 manns strax á öðrum ársfjórðungi, til viðbótar fyrri samningum. Gert er ráð fyrir að Ísland undirriti samning um aukið magn bóluefna frá Pfizer á grundvelli nýs samnings Evrópusambandsins fyrir lok þessarar viku. Einnig mun aukin framleiðslugeta AstraZeneca hafa áhrif. Alls verður rúmlega 280.000 einstaklingum boðin bólusetning hér á landi, þ.e. öllum sem eru 16 ára og eldri..…

    15. feb. 2021Heilbrigðisráðuneytið, Covid-19, Líf og heilsa

    COVID-19: Kröfur til skyndigreiningarprófa

    Heilbrigðisráðherra hefur birt í Stjórnartíðindum fagleg fyrirmæli embættis landlæknis um skyndigreiningarpróf sem heimilt verður að nota hér á landi. Aðeins verður heimilt að nota próf sem mæla mótefnavaka (antigen) og þá einungis þau skyndigreiningarpróf sem hlotið hafa tilskilin leyfi heilbrigðisráðuneytisins. Gerð er krafa um að jákvæðar niðurstöður úr skyndigreiningarprófi verði staðfestar með RT-PCR prófi til að tryggja raðgreiningu veirunnar.

    12. feb. 2021Covid-19, Menningarmál, Menningar-٫ nýsköpunar- og háskólaráðuneytið

    Stuðningur við starf æskulýðsfélaga vegna COVID-19

    Mennta- og menningarmálaráðherra hefur úthlutað 50 milljónum kr. til æskulýðsfélaga sem sem standa fyrir skipulögðu starfi fyrir börn og ungmenni.

    11. feb. 2021Vísindi nýsköpun og rannsóknir, Covid-19, Nýsköpun, Atvinnuvegir, Menningar-٫ nýsköpunar- og háskólaráðuneytið

    Nýir nýsköpunarstyrkir: 100 milljónir í Lóu - nýsköpunarstyrki fyrir landsbyggðina

    Ferðamála-, iðnaðar- og nýsköpunarráðherra auglýsir eftir umsóknum um Lóu - nýsköpunarstyrki fyrir landsbyggðina.

    11. feb. 2021Innviðaráðuneytið, Covid-19, Norrænt samstarf, Utanríkismál

    Mikilvægt að standa vörð um norrænt samstarf á tímum faraldurs

    Sigurður Ingi Jóhannsson, samstarfsráðherra Norðurlanda, sat í dag á fjarfund samstarfsráðherra Norðurlanda.

    11. feb. 2021Fjármála- og efnahagsráðuneytið, Efnahagsmál og opinber fjármál, Rekstur og eignir ríkisins, Covid-19

    12 milljarðar í lán með ríkisábyrgð til fyrirtækja í rekstrarvanda vegna Covid-19

    Fyrirtæki í rekstrarvanda vegna Covid-19 fengu lán með ríkisábyrgð fyrir tæpa 12 milljarða króna á árinu 2020 en lánin voru einkum nýtt af fyrirtækjum í ferðaþjónustu.

    11. feb. 2021Auðlindir, Líf og heilsa, Covid-19, Ferðaþjónusta, Fiskeldi, Framkvæmd búvörusamninga, Landbúnaður, Nýsköpun, Sjávarútvegur, Atvinnuvegir, Atvinnuvegaráðuneytið

    Skýrslu um fæðuöryggi á Íslandi skilað

    Innlend matvælaframleiðsla stendur fyrir stórum hluta fæðuframboðs á Íslandi og þá sérstaklega próteini. Garðyrkjan sér fyrir um 43% af framboði grænmetis, búfjárrækt um 90% af kjöti, 96% af eggjum og 99% af mjólkurvörum. Mikilvægt er að marka stefnu um hvernig tryggja megi fæðuöryggi þjóðarinnar. Þetta eru​niðurstöður skýrslu um fæðuöryggi á Íslandi sem unnin var af Landbúnaðarháskóla Íslands að beiðni Kristjáns Þórs Júlíussonar.

    11. feb. 2021Heilbrigðisráðuneytið, Covid-19, Líf og heilsa

    COVID 19: Fyrirliggjandi upplýsingar um afhendingu bóluefna

    Ísland hefur samið við fimm lyfjaframleiðendur um bóluefni gegn COVID-19. Bóluefni þriggja þeirra eru komin með markaðsleyfi og bólusetning með þeim hafin hér á landi. Samningar Íslands um þessi þrjú bóluefni, þ.e. Pfizer, AstraZeneca og Moderna, kveða á um skammta sem duga til að bólusetja 304.000 einstaklinga. Samkvæmt fyrirliggjandi áætlunum um afhendingu þessara bóluefna er gert ráð fyrir að í lok mars hafi Íslandi borist bóluefni fyrir samtals um 45.000 einstaklinga.

    10. feb. 2021Fjármála- og efnahagsráðuneytið, Efnahagsmál og opinber fjármál, Rekstur og eignir ríkisins, Covid-19

    Sex milljarðar greiddir í tekjufallsstyrki

    Síðastliðinn mánuð hafa yfir 1.000 rekstraraðilar fengið greidda rúma sex milljarða króna í tekjufallsstyrki vegna heimsfaraldurs kórónuveiru, en alls hafa tugir milljarða verið greiddir í fjölbreyttan stuðning í úrræðum ríkisstjórnarinnar vegna faraldursins.

    • First
    • Prev
    • 4
    • 5
    • 6
    • 7
    • 8
    • Next
    • Last
    Logo
    • Um vefinn
    • Áskrift
    • Veftré
    • Fyrirvari
    +354 545 8000
    Staðsetning ráðuneyta, opnunartími og netföng
    Hafa samband

    Hafa samband