30. jún. 2023Utanríkisráðuneytið, Heilbrigðisráðuneytið, Almannatryggingar og lífeyrir, Utanríkismál, Alþjóðamál, Félags- og húsnæðismálaráðuneytið
Samningur um réttindi á sviði almannatrygginga undirritaður við Bretland
Ísland, Liechtenstein og Noregur skrifuðu í dag undir samning við Bretland um samræmingu almannatrygginga. Samningurinn er gerður þar sem reglur EES-samningsins gilda ekki lengur um Bretland og kveður á um framtíðarfyrirkomulag hvað varðar réttindi á sviði almannatrygginga, aðallega lífeyrisréttindi og sjúkratryggingar þeirra sem fara eða flytjast milli landanna.