Coat of arms
Stjórnarráð Íslands
• Verkefni
• Almannatryggingar og lífeyrir
• Almannaöryggi
• Atvinnuvegir
• Auðlindir
• Efnahagsmál
• Félags- og fjölskyldumál
• Fjarskipti
• Húsnæðis- og mannvirkjamál
• Líf og heilsa
• Kosningar
• Lög og réttur
• Mannauðsmál ríkisins
• Mannréttindi og jafnrétti
• Menningarmál
• Menntamál
• Neytendamál
• Opinber fjármál
• Persónuréttur
• Rekstur og eignir ríkisins
• Samgöngur
• Sjálfbært Ísland
• Skipulagsmál
• Stjórnskipan og þjóðartákn
• Sveitarstjórnir og byggðamál
• Trú og lífsskoðun
• Umhverfi og náttúruvernd
• Upplýsingatæknimál ríkisins
• Utanríkismál
• Útlendingar
• Vinnumál
• Vísindi, nýsköpun og rannsóknir
• Öll verkefni
• Efst á baugi
• Fréttir
• Nýjast
• Fyrirspurnir frá Alþingi
• Fyrir fjölmiðla
• Eldri fréttir
• Gögn
• Rit og skýrslur
• Úrskurðir og álit
• Eyðublöð
• Stefnur og áætlanir
• Styrkir og sjóðir
• Hugtakasafn
• Lög og reglugerðir
• Málaskrár ráðuneyta
• Mælaborð
• Hönnunarstaðall
• Ráðuneyti
• Forsætisráðuneytið
• Atvinnuvegaráðuneytið
• Dómsmálaráðuneytið
• Félags- og húsnæðismálaráðuneytið
• Fjármála- og efnahagsráðuneytið
• Heilbrigðisráðuneytið
• Innviðaráðuneytið
• Menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðuneytið
• Mennta- og barnamálaráðuneytið
• Umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytið
• Utanríkisráðuneytið
• Sendiskrifstofur
• Samstarfsráðherra Norðurlanda
• Starfsfólk
• Stofnanir
• Nefndir
• Símanúmer og staðsetning ráðuneyta
• Umbra
• Ríkisstjórn
• Skipan ríkisstjórnar
• Ríkisstjórnarfundir
• Stjórnarsáttmáli
• Ráðherranefndir
• Reglur um starfshætti
• Reglur um ferðakostnað og starfskjör ráðherra
• Siðareglur, hagsmunir og hagsmunaverðir
• Þingmálaskrá
• Ríkisráð
• Sögulegt efni
• Fyrir fjölmiðla
EN
• Verkefni
• Almannatryggingar og lífeyrir
• Almannaöryggi
• Atvinnuvegir
• Auðlindir
• Efnahagsmál
• Félags- og fjölskyldumál
• Fjarskipti
• Húsnæðis- og mannvirkjamál
• Líf og heilsa
• Kosningar
• Lög og réttur
• Mannauðsmál ríkisins
• Mannréttindi og jafnrétti
• Menningarmál
• Menntamál
• Neytendamál
• Opinber fjármál
• Persónuréttur
• Rekstur og eignir ríkisins
• Samgöngur
• Sjálfbært Ísland
• Skipulagsmál
• Stjórnskipan og þjóðartákn
• Sveitarstjórnir og byggðamál
• Trú og lífsskoðun
• Umhverfi og náttúruvernd
• Upplýsingatæknimál ríkisins
• Utanríkismál
• Útlendingar
• Vinnumál
• Vísindi, nýsköpun og rannsóknir
• Öll verkefni
• Efst á baugi
• Fréttir
• Nýjast
• Fyrir fjölmiðla
• Eldri fréttir
• Fyrirspurnir frá Alþingi
• Gögn
• Rit og skýrslur
• Úrskurðir og álit
• Eyðublöð
• Stefnur og áætlanir
• Styrkir og sjóðir
• Hugtakasafn
• Lög og reglugerðir
• Málaskrár ráðuneyta
• Mælaborð
• Hönnunarstaðall
• Ráðuneyti
• Forsætisráðuneytið
• Atvinnuvegaráðuneytið
• Dómsmálaráðuneytið
• Félags- og húsnæðismálaráðuneytið
• Fjármála- og efnahagsráðuneytið
• Heilbrigðisráðuneytið
• Innviðaráðuneytið
• Menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðuneytið
• Mennta- og barnamálaráðuneytið
• Umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytið
• Utanríkisráðuneytið
• Sendiskrifstofur
• Samstarfsráðherra Norðurlanda
• Starfsfólk
• Stofnanir
• Nefndir
• Símanúmer og staðsetning ráðuneyta
• Umbra
• Ríkisstjórn
• Skipan ríkisstjórnar
• Ríkisstjórnarfundir
• Stjórnarsáttmáli
• Ráðherranefndir
• Reglur um starfshætti
• Reglur um ferðakostnað og starfskjör ráðherra
• Siðareglur, hagsmunir og hagsmunaverðir
• Þingmálaskrá
• Ríkisráð
• Sögulegt efni
• Fyrir fjölmiðla
Close navigation
Efnisorð
Efnisorð

Ekkert fannst

Tegund
Tegund

Leita eftir efnisorðum

Sýnir 3051–3100 af 3887
Raða eftir:
29. ágú. 2012Forsætisráðuneytið, Úrskurðarnefnd um upplýsingamál, Úrskurðir

A-443/2012. Úrskurður frá 29. ágúst 2012

Kærð var sú ákvörðun Þjóðskjalasafns Íslands að synja um aðgang að skýrslum 18 stjórnenda og starfsmanna Glitnis fyrir rannsóknarnefnd Alþingis. Aðgangur heimilaður að skýrslu eins aðila, en synjað vegna annarra. Einka- eða fjárhagsmálefni einstaklinga. Þagnarskylda.

20. ágú. 2012Forsætisráðuneytið, Úrskurðarnefnd um upplýsingamál, Úrskurðir

A-440/2012. Úrskurður frá 5. júlí 2012

Kærð var synjun Tryggingastofnunar ríkisins á beiðni um aðgang að upplýsingum um fjölda örorkulífeyrisþega og skattskyldar tekjur frá TR í maí og nóvember á árunum 2008-2011, sundurliðað eftir tekjubili. Fyrirliggjandi gögn. Upplýsingar í ótilteknum fjölda mála. Synjun staðfest.

18. ágú. 2012Forsætisráðuneytið, Úrskurðarnefnd um upplýsingamál, Úrskurðir

A-439/2012. Úrskurður frá 5. júlí 2012.

Kærð var synjun Eftirlaunasjóðs starfsmanna Hafnarfjarðarbæjar á beiðni um aðgang að afriti starfslokasamnings sjóðsins við fyrrum framkvæmdastjóra hans. Gildissvið upplýsingalaga. Frávísun.

18. ágú. 2012Forsætisráðuneytið, Úrskurðarnefnd um upplýsingamál, Úrskurðir

A-438/2012. Úrskurður frá 5. júlí 2012.

Kærð var synjun Hafnarfjarðarbæjar á beiðni um aðgang að 1) skilmálaskjali, dags. 5. desember 2011, milli Hafnarfjarðarbæjar og [B] og [C], sem samþykkt var í bæjarstjórn 7. desember 2011 og 2) yfirliti gagna varðandi endurfjármögnun lána Hafnarfjarðarbæjar hjá [B]. Fyrirliggjandi gögn. Frávísun að hluta. Aðgangur veittur að skilmálaskjali að hluta. Krafa um frestun réttaráhrifa.

10. ágú. 2012Forsætisráðuneytið, Úrskurðarnefnd um upplýsingamál, Úrskurðir

B-442/2012. Úrskurður frá 10. ágúst 2012.

Kröfu um frestun réttaráhrifa úrskurðar A-442/2012 frá 5. júlí 2012 hafnað.

09. ágú. 2012Forsætisráðuneytið, Úrskurðarnefnd um upplýsingamál, Úrskurðir

A-434/2012. Úrskurður frá 28. júní 2012

Kærð var synjun Flugmálastjórnar Íslands á beiðni um aðgang að gögnum. Aðild að stjórnsýslumáli. Hluti af gögnun ekki fyrirliggjandi hjá Flugmálastjórn Íslands. Samskipti við önnur ríki eða fjölþjóðastofnanir. Aðgangur veittur að hluta. Frávísun að hluta.

02. ágú. 2012Forsætisráðuneytið, Ræður og greinar

Bjartsýni og bölmóður

"En umheimurinn er ekki eina ógnunin. Barlómur og bölsýni stjórnarandstöðu og áhanganda þeirra í hagsmunasamtökum er efnahagsvandamál. Söngur þessa karlakórs verður góðu heilli sífalskari eftir því sem óyggjandi hagtölur sýna skýrari árangur," segir Jóhanna Sigurðardóttir forsætisráðherra m.a. í grein í Viðskiptablaðinu 2. ágúst 2012.

30. júl. 2012Forsætisráðuneytið, Ræður og greinar

Línurnar skýrast

"Þannig hefur ríkisstjórnin uppi áform um að auka stuðning við barnafjölskyldur með hækkun barnabóta. Reynslan hefur kennt okkur að það er markviss aðgerð sem nær til ungra skuldugra fjölskyldna með börn á framfæri. Sömuleiðis er ætlunin að hækka fæðingarorlofsgreiðslur og lengja fæðingarorlofið í áföngum," segir Jóhanna Sigurðardóttir forsætisráðherra m.a. í grein sem birtist í Fréttablaðinu 30. júlí 2012.

20. júl. 2012Forsætisráðuneytið, Úrskurðarnefnd um upplýsingamál, Úrskurðir

B-438/2012. Úrskurður frá 20. júlí 2012.

Kröfu um frestun réttaráhrifa úrskurðar A-438/2012 frá 5. júlí 2012 hafnað.

13. júl. 2012Forsætisráðuneytið, Úrskurðarnefnd um upplýsingamál, Úrskurðir

A-433/2012. Úrskurður frá 28. júní 2012

Kærður var dráttur á svörum frá Landlækni vegna erindis til embættisins þar sem farið var fram á aðgang að kaupsamningi og öllum tengdum gögnum yfir Cervarix bóluefnið. Upplýsingar er varða mikilvæg fjárhags- eða viðskiptamálefni lögaðila. Ráðstöfun almannafjár. Landlækni gert að afhenda kæranda rammasamning nr. 2870, dags. 24. júní 2011, um kaup á bóluefni gegn HPV sýkingum til notkunar í almennum bólusetningum á Íslandi í heild sinni. Landlækni bar einnig að afhenda kæranda útboðslýsingu vegna útboðs Ríkiskaupa nr. 15054, útboð á bóluefni gegn HPV (Human Papilloma Veiru) til notkunar í almennum bólusetningum á Íslandi, væri hún fyrirliggjandi hjá embættinu. Þá var staðfest ákvörðun Landlæknis um synjun á afhendingu afrits af tilboði GlaxoSmithKleine ehf., dags. 14.…

10. júl. 2012Forsætisráðuneytið, Úrskurðarnefnd um upplýsingamál, Úrskurðir

A-431/2012. Úrskurður frá 28. júní 2012

Kærð var synjun landlæknis á að afhenda kæranda afrit af gögnum er varða rammasamning nr. 2143, dags. 25. september 2009, annars vegar og afrit af gögnum er varða rammasamningi nr. 2144, dags. 2. október 2009, hins vegar, þ.e. óskað var eftir afritum af umræddum rammasamningum í heild sinni, án útstrikana, tilboðum seljenda og útboðslýsingum þeirra. Upplýsingar er varða mikilvæg fjárhags- eða viðskiptamálefni lögaðila. Ráðstöfun almannafjár. Aðgangur veittur að hluta. Landlækni gert að afhenda kæranda útboðslýsingu vegna útboðs Ríkiskaupa nr. 14042, sem beiðni kæranda um aðgang að gögnum laut að, enda um opið útboð að ræða, væri hún fyrirliggjandi hjá embættinu.

10. júl. 2012Forsætisráðuneytið, Úrskurðarnefnd um upplýsingamál, Úrskurðir

A-430/2012. Úrskurður frá 28. júní 2012

Kærð var synjun landlæknis á að afhenda kæranda afrit af tilboði dags. 14. apríl 2011, sem lagt var fram af fyrirtækinu GlaxoSmithKleine ehf. vegna útboðs nr. NR 15036 og af útboðslýsingu Ríkiskaupa vegna þess útboðs. Upplýsingar sem varða mikilvæg fjárhags- eða viðskiptamálefni lögaðila. Aðgangi hafnað. Landlækni gert að afhenda kæranda útboðslýsingu vegna útboðs Ríkiskaupa nr. 15036, sem beiðni kæranda um aðgang að gögnum laut að, enda um opið útboð að ræða, væri hún fyrirliggjandi hjá embættinu.

10. júl. 2012Forsætisráðuneytið, Úrskurðarnefnd um upplýsingamál, Úrskurðir

A-429/2012. Úrskurður frá 28. júní 2012

Kærður var dráttur á svörum frá velferðarráðuneytinu vegna erindis þar sem farið var fram á afrit af kaupsamningi milli ráðuneytisins og GlaxoSmithKline ehf. um kaup á Synflorix-bóluefni gegn pneumókokkum, svo og öllum undirliggjandi samningum varðandi málið. Gögn þegar verið afhent að hluta. Önnur gögn ekki fyrirliggjandi hjá ráðuneytinu. Kæruheimild. Frávísun.

05. júl. 2012Forsætisráðuneytið, Úrskurðarnefnd um upplýsingamál, Úrskurðir

A-442/2012. Úrskurður frá 5. júlí 2012.

Kærð var synjun Landspítala háskólasjúkrahúss á gögnum er vörðuðu opinber, en óútboðsskyld, innkaup spítalans á tilteknum vöruflokkum. Beiðni um gögn nægilega afmörkuð við tilgreind mál. Aðgangur aðila að gögnum er varða hann sjálfan. Aðgangur veittur að hluta. Mikilvægir fjárhags- og viðskiptahagsmunir. Ráðstöfun almannafjár.

05. júl. 2012Forsætisráðuneytið, Úrskurðarnefnd um upplýsingamál, Úrskurðir

B-418/2012. Úrskurður frá 5. júlí 2012

Úrskurður úrskurðarnefndar um upplýsingamál frá 20. apríl 2012 nr. A-418/2012 felldur úr gildi. Ekki efni til að taka afstöðu til kröfu um að frestað yrði réttaráhrifum úrskurðarins.

05. júl. 2012Forsætisráðuneytið, Úrskurðarnefnd um upplýsingamál, Úrskurðir

A-441/2012. Úrskurður frá 5. júlí 2012

Kærð var afgreiðsla Vestmannaeyjabæjar á erindi kæranda þar sem óskað var eftir afhendingu samnings við Hjallastefnuna ehf. um rekstur leikskólans Sóla í Vestmannaeyjum. Erindi kærða hafði verið svarað á þá leið að umbeðin gögn væru ekki fyrirliggjandi hjá bænum, en að unnið væri að gerð þeirra. Frávísun.

05. júl. 2012Forsætisráðuneytið, Úrskurðarnefnd um upplýsingamál, Úrskurðir

A-437/2012. Úrskurður frá 5. júlí 2012

Kærður var dráttur á svörum frá landlækni vegna beiðni um afrit af kaupsamningum og öllum tengdum gögnum við níu innflutningsaðila varðandi kaup á 630.000 hlífðarsloppum, öndunargrímum, augnhlífum og hlífðarsvuntum. Fyrirliggjandi gögn.
Öryggi og varnir ríkisins. Viðskiptahagsmunir. Synjun staðfest að hluta. Aðgangur veittur að hluta.

05. júl. 2012Forsætisráðuneytið, Úrskurðarnefnd um upplýsingamál, Úrskurðir

A-428/2012. Úrskurður frá 18. júní 2012

Kærð var sú ákvörðun ríkislögreglustjóra að synja um afhendingu á gögnum um kaup embættisins á búningum af tilteknum lögaðila á árinu 2009 fyrir aðgerðarhóp lögreglunnar. Kærandi hafði þegar fengið afrit af tilboði lögaðilans ásamt pöntun. Kæran laut því eingöngu að aðgangi að reikningum. Ekki fallist á að aðgangur kæranda að reikningunum væri líklegur til að geta valdið lögaðilanum tjóni. Ríkislögreglustjóra gert að afhenda kæranda umbeðna reikninga.

05. júl. 2012Forsætisráðuneytið, Úrskurðarnefnd um upplýsingamál, Úrskurðir

A-427/2012. Úrskurður frá 18. júní 2012

Kærð var synjun Akureyrarkaupstaðar á beiðni um aðgang að drögum að yfirlýsingu vegna samstarfs við Denverborg, sem samþykkt var á fundi bæjarráðs Akureyrarkaupstaðar þann 3. maí 2012. Vinnuskjöl. Endanleg ákvörðun um afgreiðslu máls. Fallist á afhendingu gagnsins.

05. júl. 2012Forsætisráðuneytið, Úrskurðarnefnd um upplýsingamál, Úrskurðir

A-426/2012. Úrskurður frá 18. júní 2012

Kærð var sú ákvörðun Áfengis- og tóbaksverlsunar ríkisins, ÁTVR, að synja beiðni um aðgang að gögnum varðandi reynslusölu á áfengi í verslunum ÁTVR, lögfræðiþjónustu o.fl. Kærði gerði kröfu um frávísun málsins eða staðfestingu synjunar. ÁTVR bar að afhenda kæranda skjal með heitinu „ferli umsókna um reynslusölu hjá ÁTVR“ í samræmi við ákvörðun sína. Beiðni kæranda laut að öðru leyti að ekki að tilteknu máli eða tilgreindum málum í skilningi upplýsingalaga. Frávísun.

05. júl. 2012Forsætisráðuneytið, Úrskurðarnefnd um upplýsingamál, Úrskurðir

A-425/2012. Úrskurður frá 18. júní 2012

Kærð var afgreiðsla innanríkisráðuneytisins á beiðni um leiðbeinandi yfirlit yfir lögmælt verkefni sveitarfélaga flokkuð eftir því hvort verkefni eru skyldubundin eða ekki. Við afgreiðslu upplýsingabeiðna var ekki fylgt þeirri reglu 11. gr. upplýsingalaga nr. 50/1996 að stjórnvaldi beri að taka ákvörðun um, hvort það verði við beiðni um aðgang að gögnum, svo fljótt sem verða megi. Ennfremur ekki þeirri reglu að skýra skuli þeim, sem fer fram á aðgang að gögnum frá ástæðum tafa og hvenær ákvörðunar sé að vænta, hafi beiðni ekki verið afgreidd innan sjö daga frá móttöku hennar. Frávísun. Gögn liggja ekki fyrir.

04. júl. 2012Forsætisráðuneytið, Úrskurðarnefnd um upplýsingamál, Úrskurðir

A-424/2012. Úrskurður frá 18. júní 2012

Kærð var sú ákvörðun Hafnarfjarðarbæjar að synja beiðni um aðgang að kostnaðarliðum vegna 17. júní hátíðarhalda í Hafnarfirði, þ.e. synjun afhendingar gagna varðandi leigu á hljóð- og ljósabúnaði á Víðistaðatúni vegna hátíðahalda 17. júní 2011, verktakagreiðslum til verktaka sem unnu verkið, flutningskostnað á tækjabúnaði og sviði og einnig heildarkostnað á verkinu með og án skemmtikrafta. Frávísun að því er varðaði yfirlit úr bókhaldskerfi Hafnarfjarðarbæjar. Fallist á aðgang að reikningi einstaklings vegna hátíðarhaldanna, enda ekki talið vera til þess fallið að skaða viðskiptahagsmuni hans að veita aðgang að reikningnum.

29. jún. 2012Forsætisráðuneytið, Úrskurðarnefnd um upplýsingamál, Úrskurðir

A-436/2012. Úrskurður frá 29. júní 2012

Kærð var synjun fjármálaráðuneytisins á beiðni um aðgang að samningi um vörslu og skilyrtan virðisrétt og að hluthafasamkomulagi fjármálaráðuneytisins og Skilanefndar Kaupþings um Arionbanka. Mikilvægir fjárhags- eða viðskiptahagsmunir fyrirtækja og annarra lögaðila. Frávísun að hluta. Staðfest synjun um aðgang að samningi um vörslu og skilyrtan virðisrétt. Aðgangur veittur að hluta að hlutafjársamkomulagi.

29. jún. 2012Forsætisráðuneytið, Úrskurðarnefnd um upplýsingamál, Úrskurðir

A-423/2012. Úrskurður frá 18. júní 2012

Kærð var sú ákvörðun Seðlabanka Íslands að synja beiðni um aðgang að upplýsingum um hvert bókfært virði seljendaláns bankans til nýrra eigenda hins danska FIH banka hefði verið í bókum Seðlabankans um áramótin 2011 til 2012. Í kærunni var ennfremur óskað eftir því að Seðlabankinn afhenti afrit af þeim kaupsamningi sem hann gerði við nýja eigendur FIH bankans þegar bankinn var seldur í október 2010. Staðfest ákvörðun Seðlabanka Íslands um synjun á beiðni um aðgang að bókfærðu virði seljendaláns en þar sem ekki lá fyrir synjun á beiðni um afrit af kaupsamningi við nýja eigendur FIH bankans var þeim hluta kærunnar vísað frá.

29. jún. 2012Forsætisráðuneytið, Úrskurðarnefnd um upplýsingamál, Úrskurðir

A-422/2012. Úrskurður frá 18. júní 2012

Kærð var sú ákvörðun velferðarráðuneytisins um synjun á beiðni um aðgang annars vegar að samningi heilbrigðis- og tryggingamálaráðuneytisins við lögaðila um kaup á hugbúnaði fyrir heilsugæslustöðvar og hins vegar að samningi heilbrigðisráðuneytisins við lögaðila um kaup á rafrænum læknabréfum ásamt uppsetningu. Fallist var á beiðni kæranda að undanskildu einu fylgiskjali.

28. jún. 2012Forsætisráðuneytið, Úrskurðarnefnd um upplýsingamál, Úrskurðir

A-435/2012. Úrskurður frá 28. júní 2012

Kærð var synjun Seðlabanka Íslands á beiðni um aðgang að hljóðritun milli formanns bankastjórnar Seðlabanka Íslands og forsætisráðherra um lánveitingu. Sérákvæði um þagnarskyldu. Synjun staðfest.

28. jún. 2012Forsætisráðuneytið, Úrskurðarnefnd um upplýsingamál, Úrskurðir

A-432/2012. Úrskurður frá 28. júní 2012

Kærður var dráttur á svörum frá Landlækni vegna erindis, þar sem farið var fram á aðgang að kaupsamningum og öllum tengdum gögnum yfir veirulyfin Tamiflu og Relenza frá árinu 2006 til þess dags er beiðnin var sett fram. Landlæknir synjaði í kjölfarið beiðninni. Öryggi ríkisins. Synjun staðfest.

28. jún. 2012Forsætisráðuneytið, Úrskurðarnefnd um upplýsingamál, Úrskurðir

A-421/2012. Úrskurður frá 18. júní 2012

Kærð var sú ákvörðun sýslumanns að synja beiðni um afrit af skýrslu frá fyrirtækinu Líf og sál ehf. til lögreglustjóra í tilefni ásakana um einelti kæranda í garð tiltekinna lögreglumanna. Kærandi hafði einungis fengið í hendur niðurlag skýrslunnar. Synjun staðfest varðandi lýsingar einstakra starfsmanna. Kærandi skyldi þó fá aðgang að öðrum hlutum skýrslunnar.

27. jún. 2012Forsætisráðuneytið, Úrskurðarnefnd um upplýsingamál, Úrskurðir

A-420/2012. Úrskurður frá 18. júní 2012

Kærð var meint synjun Þjónustumiðstöðvar Miðborgar og Hlíða á beiðni um afhendingu allra gagna er vörðuðu meint kynferðisbrot gagnvart dóttur kæranda á Sólheimum, vistheimili Skúlagötu 46 og víðar. Kæruheimild var ekki fyrir hendi þar sem ekki var um synjun að ræða,  kæranda hafði verið boðinn aðgangur að þeim gögnum sem lágu fyrir hjá kærða. Frávísun.

26. jún. 2012Forsætisráðuneytið, Úrskurðarnefnd um upplýsingamál, Úrskurðir

A-419/2012. Úrskurður frá 18. júní 2012

Kærð var sú ákvörðun Þjóðskjalasafns Íslands að synja um aðgang að skýrslum fimm einstaklinga sem gefnar voru fyrir rannsóknarnefnd Alþingis. Þagnarskylda. Synjun staðfest.

22. jún. 2012Forsætisráðuneytið, Ræður og greinar

Sáttavilji ítrekaður

„Nú liggur niðurstaða Héraðsdóms fyrir og er dómurinn í góðu samræmi við þá sátt sem ég ítrekað bauð,“ segir Jóhanna Sigurðardóttir, forsætisráðherra, meðal annars í grein í Fréttablaðinu 22. júní 2012.

19. jún. 2012Forsætisráðuneytið, Ræður og greinar

Jafnlaunastaðall

Ávarp forsætisráðherra, Jóhönnu Sigurðardóttur, á fundi til kynningar á frumvarpi um jafnlaunastaðal, Grand Hótel Reykjavík, 19. júní 2012.

19. jún. 2012Forsætisráðuneytið, Ræður og greinar

Nýir sigrar jafnréttisbaráttunnar

„Kvenréttindadagurinn er greyptur í sögu jafnréttis kynjanna og mannréttinda hér á landi. Sjaldan eða aldrei sem í dag getum við fagnað jafn stórum áföngum á jafn stuttum tíma.“ segir Jóhanna Sigurðardóttir, forsætisráðherra, meðal annars í grein í Fréttablaðinu á kvenréttindadaginn 19. júní 2012.

17. jún. 2012Forsætisráðuneytið, Ræður og greinar

Ávarp forsætisráðherra, Jóhönnu Sigurðardóttur, á Austurvelli 17. júní 2012

"Löggjafarþingið hefur nú tekið af allan vafa og samþykkt að leggja í dóm þjóðarinnar, hvort tillögur Stjórnlagaráðs eigi að verða grundvöllur að nýrri stjórnarskrá fyrir Ísland.
Sú mikilvæga þjóðaratkvæðagreiðsla mun fara fram síðar á þessu ári.
Brýnt er að hefja á næstu vikum markvissa fræðslu um tillögur Stjórnlagaráðs, þannig að þjóðin gangi vel upplýst til þjóðaratkvæðagreiðslunnar.Verði það niðurstaða þjóðarinnar gæti ný stjórnarskrá tekið gildi þegar á næsta ári – jafnvel á þjóðhátíðardaginn 17. júní árið 2013," sagði Jóhanna Sigurðardóttir forsætisráðherra meðal annars í ávarpi sínu.

12. jún. 2012Rit og skýrslur, Forsætisráðuneytið

Skýrsla um ráðstöfun lands og landsréttinda innan þjóðlendna og tekna af gjöldum fyrir slík réttindi

Forsætisráðherra hefur gefið Alþingi skýrslu um ráðstöfun lands og landsréttinda innan þjóðlendna og tekna af gjöldum fyrir slík réttindi.

07. jún. 2012Forsætisráðuneytið, Ræður og greinar

Þegar hátt er reitt til höggs

„Útvegsmenn hafa reitt hátt til höggs undanfarnar vikur og kosta nú óbilgjarnan og villandi áróður gegn áformum löglega kjörinna stjórnvalda um að breyta stjórn fiskveiða og innheimta eðlilegt og réttlátt veiðigjald af útgerðum fyrir afnot af auðlind í eigu þjóðarinnar.“ segir Jóhanna Sigurðardóttir, forsætisráðherra, meðal annars í grein í Fréttablaðinu 7. júní 2012.

20. maí 2012Forsætisráðuneytið, Ræður og greinar

Ný atvinnustefna - framkvæmdum hraðað

Við höfum einsett okkur að gera ríkisreksturinn sjálfbæran á nýjan leik og sá er auðvitað kjarninn í efnahagsstefnu ríkisstjórnarinnar. Athuganir benda til þess að af 39 milljarða króna fjárfestingum samkvæmt áætluninni muni um 17 milljarðar króna skila sér sem tekjur í ríkissjóð á næstu þremur árum. Þetta er meðal þess sem fram kemur í grein eftir Jóhönnu Sigurðardóttur forsætisráðherra í helgarblaði Fréttablaðsins 19. maí 2012.

12. maí 2012Forsætisráðuneytið, Ræður og greinar

Við látum verkin tala

„Ég er þess fullviss að þeir [útgerðarmenn] muni virða rétt lýðræðislega kjörinna  valdhafa til þess að taka endanlegar ákvarðanir um auðlindirnar. Eðlilegt gjald af auðlindum hafsins mun meðal annars gera ríkisstjórninni kleift að hraða samgöngubótum, uppbyggingu græna hagkerfisins og sóknaráætlun landshluta,“ segir Jóhanna Sigurðardóttir, forsætisráðherra, meðal annars í grein í Fréttablaðinu 12. maí 2012.

08. maí 2012Forsætisráðuneytið, Ræður og greinar

Stofnfundur Austurbrúar

Ræða Jóhönnu Sigurðardóttur, forsætisráðherra, á stofnfundi Austurbrúar á Egilsstöðum 8. maí 2012.

08. maí 2012Forsætisráðuneytið, Úrskurðarnefnd um upplýsingamál, Úrskurðir

A-418/2012. Úrskurður frá 20. apríl 2012

Kærð var synjun Landspítala háskólasjúkrahúss á gögnum er vörðuðu opinber, en óútboðsskyld, innkaup spítalans á tilteknum vöruflokkum. Beiðni um gögn nægilega afmörkuð við tilgreind mál. Aðgangur aðila að gögnum er varða hann sjálfan. Ekki sýnt fram á að aðgangur að gögnunum gæti skaðað samkeppnisstöðu Landspítala eða hagsmuni viðskiptamanna spítalans, í samkeppni við kæranda. Ekki fallist á að aðgangur að gögnunum gæti verið til þess fallinn að valda fyrirtækjunum tjóni yrðu upplýsingarnar gerðar opinberar. Ráðstöfun almannafjár. Aðgangur veittur.

08. maí 2012Forsætisráðuneytið, Úrskurðarnefnd um upplýsingamál, Úrskurðir

A-417/2012. Úrskurður frá 20. apríl 2012

Kærð var synjun landbúnaðar- og sjávarútvegsráðuneytisins á afhendingu efnahagsreikninga Bændasamtaka Íslands fyrir árin 2008-2010. Mikilvægir fjárhags- og viðskiptahagsmunir fyrirtækja og annarra lögaðila. Ráðstöfun opinberra fjármuna. Aðgangur veittur.

08. maí 2012Forsætisráðuneytið, Úrskurðarnefnd um upplýsingamál, Úrskurðir

A-416/2012. Úrskurður frá 20. apríl 2012

Kærð var synjun utanríkisráðuneytisins á aðgangi að skrá yfir þá muni sem tilteknum starfsmanni ráðuneytisins og eiginkonu hans voru bættir eftir að þeir eyðilögðust við flutning til Bandaríkjanna árið 2011. Einka- og fjárhagsmálefni einstaklinga. Friðhelgi heimilis. Synjun staðfest.

08. maí 2012Forsætisráðuneytið, Úrskurðarnefnd um upplýsingamál, Úrskurðir

A-415/2012. Úrskurður frá 20. apríl 2012

Kærð var synjun Þingvallanefndar á afhendingu gagna er vörðuðu annars vegar forkaupsrétt nefndarinnar að sumarhúsi, þ.e. samþykktu kauptilboði í sumarhúsið, tölvupóstum milli nefndarmanna í Þingvallanefnd vegna forkaupsréttarins og bréfi lögmanns Þingvallanefndar til lóðarleigusamningshafa um að fallið væri frá forkaupsrétti og hins vegar aðgangi að dreifibréfum sumarhúsaeigenda, ásamt álitsgerð lögfræðings, en gögnin höfðu verið lögð fram á fundum Þingvallanefndar. Synjað var á grundvelli 5. gr. upplýsingalaga. Ekki varð af kaupum þeim sem forkaupsrétturinn varðaði og skjölum þar að lútandi því ekki þinglýst. Einka- og fjárhagsmálefni einstaklinga Gögn er varða ákvörðun um hvort beita skuli opinberum fjárheimildum til forkaupsréttar.…

03. maí 2012Forsætisráðuneytið, Úrskurðarnefnd um upplýsingamál, Úrskurðir

A-414/2012. Úrskurður frá 20. apríl 2012

Kærð var synjun Ríkiskaupa á afhendingu upplýsinga um tilboðsfjárhæðir annars bjóðanda í útboði Ríkiskaupa á flugsætum til og frá Íslandi. Kærandi var sjálfur þátttakandi í útboðinu. Þátttakandi í útboði telst aðili máls í skilningi þessa ákvæðis þegar hann fer fram á að fá aðgang að útboðsgögnum, þ. á m. gögnum frá öðrum þátttakendum í útboði, sem verða til áður en til samninga er gengið við tiltekinn bjóðanda. Með vísan til þessa leit úrskurðarnefndin svo á að 9. gr. upplýsingalaga gilti um aðgang kæranda að umbeðnum gögnum. Ekki fallist á að sýnt hefði verið fram á að það eitt og sér, gæti skaðað samkeppnisstöðu ríkisins á útboðsmarkaði, þótt kæranda yrði veittur aðgangur að umræddum tilboðsgögnum.…

02. maí 2012Rit og skýrslur, Forsætisráðuneytið

Reglur um mat á hæfni umsækjenda

Forsætisráðherra hefur í kjölfar samráðs í ríkisstjórn gefið út reglur um ráðgefandi nefndir sem eiga að meta hæfni umsækjenda um embætti við Stjórnarráð Íslands.

26. apr. 2012Rit og skýrslur, Forsætisráðuneytið

Ísland 2020 – skýrsla um framvinduna

Eins og mælt var fyrir í samþykkt ríkisstjórnarinnar um Ísland 2020 hefur forsætisráðuneytið unnið stöðuskýrslu um hvernig miðar í átt að þeirri framtíðarsýn sem þar var sett fram.

13. apr. 2012Forsætisráðuneytið, Úrskurðarnefnd um upplýsingamál, Úrskurðir

A-413/2012. Úrskurður frá 29. mars 2012

Kærð var synjun Bankasýslu ríkisins á því að afhenda lista yfir alla umsækjendur um stöðu forstjóra stofnunarinnar, einnig þeirra sem dregið höfðu umsókn sína til baka eftir að umsóknarfresti lauk en áður en listinn var birtur. Bankasýsla ríkisins hafði hafnað því að birta nöfn þeirra sem dregið höfðu umsókn sína til baka, en birti lista yfir aðra umsækjendur. Málshraðareglu 11. gr. upplýsingalaga fullnægt. Einstaklingur sem sótt hefur um opinbert starf en dregur umsókn sína til baka verður almennt ekki lengur talinn umsækjandi um starfið. Synjun staðfest.…

12. apr. 2012Forsætisráðuneytið, Úrskurðarnefnd um upplýsingamál, Úrskurðir

B-412/2012. Úrskurður frá 15. nóvember 2012

Beiðni um endurupptöku úrskurðar nr. A-412/2012 hafnað.

11. apr. 2012Forsætisráðuneytið, Úrskurðarnefnd um upplýsingamál, Úrskurðir

A-412/2012. Úrskurður frá 29. mars 2012

Kærð var afgreiðsla Kópavogsbæjar á beiðni um aðgang að gögnum er tengdust landi sem undirrituð hafði verið eignarnámssátt um þann 30. janúar 2007 milli aðila. Við afgreiðslu upplýsingabeiðna var ekki fylgt þeirri reglu 11. gr. upplýsingalaga nr. 50/1996 að stjórnvaldi beri að taka ákvörðun um, hvort það verði við beiðni um aðgang að gögnum, svo fljótt sem verða megi. Ennfremur ekki þeirri reglu að skýra skuli þeim, sem fer fram á aðgang að gögnum frá ástæðum tafa og hvenær ákvörðunar sé að vænta, hafi beiðni ekki verið afgreidd innan sjö daga frá móttöku hennar. Gögn ekki afhent úrskurðarnefnd, sbr. 2. mgr. 16. gr. upplýsingalaga, sbr. 3. gr. laga nr. 83/2000, jafn skjótt og ætla mátti að unnt hefði verið. Hlutverk úrskurðarnefndar. Fyrirliggjandi gögn. Vinnuskjöl.…

11. apr. 2012Forsætisráðuneytið, Úrskurðarnefnd um upplýsingamál, Úrskurðir

A-411/2012. Úrskurður frá 22. mars 2012

Kærð var synjun Fjármálaeftirlitsins á aðgangi að stofnefnahagsreikningum Nýja Landsbanka Íslands hf., Nýja Kaupþings banka hf. og Nýja Glitnis banka hf., þ.e. þeim sem upphaflega voru útbúnir og afhentir stjórnum nýju bankanna þriggja á grundvelli laga nr. 125/2008, um heimild til fjárveitingar úr ríkissjóði vegna sérstakra aðstæðna á fjármálamarkaði o.fl., ásamt greinargerð um það hvernig eignir og skuldir voru klofnar út úr efnahag gömlu bankanna, þ.e. Landsbanka Íslands hf., Glitnis banka hf. og Kaupþings banka hf. Jafnframt var kærð synjun á aðgangi að afritum af öðrum gögnum sem innihéldu upplýsingar um þær forsendur sem lagðar hefðu verið til grundvallar við gerð framangreindra stofnefnahagsreikninga þar sem gerð þeirra væri að öðru leyti rakin. Vinnuskjöl. Gögn m.a.…

• First
• Prev
• 60
• 61
• 62
• 63
• 64
• Next
• Last
Logo
• Um vefinn
• Áskrift
• Veftré
• Fyrirvari
+354 545 8000
Staðsetning ráðuneyta, opnunartími og netföng
Hafa samband

Hafa samband