Coat of arms
Stjórnarráð Íslands
  • Verkefni
    • Almannatryggingar og lífeyrir
    • Almannaöryggi
    • Atvinnuvegir
    • Auðlindir
    • Efnahagsmál
    • Félags- og fjölskyldumál
    • Fjarskipti
    • Húsnæðis- og mannvirkjamál
    • Líf og heilsa
    • Kosningar
    • Lög og réttur
    • Mannauðsmál ríkisins
    • Mannréttindi og jafnrétti
    • Menningarmál
    • Menntamál
    • Neytendamál
    • Opinber fjármál
    • Persónuréttur
    • Rekstur og eignir ríkisins
    • Samgöngur
    • Sjálfbært Ísland
    • Skipulagsmál
    • Stjórnskipan og þjóðartákn
    • Sveitarstjórnir og byggðamál
    • Trú og lífsskoðun
    • Umhverfi og náttúruvernd
    • Upplýsingatæknimál ríkisins
    • Utanríkismál
    • Útlendingar
    • Vinnumál
    • Vísindi, nýsköpun og rannsóknir
    • Öll verkefni
    • Efst á baugi
      • Fréttir
      • Nýjast
      • Fyrirspurnir frá Alþingi
      • Fyrir fjölmiðla
      • Eldri fréttir
    • Gögn
      • Rit og skýrslur
      • Úrskurðir og álit
      • Eyðublöð
      • Stefnur og áætlanir
      • Styrkir og sjóðir
      • Hugtakasafn
      • Lög og reglugerðir
      • Málaskrár ráðuneyta
      • Mælaborð
      • Hönnunarstaðall
    • Ráðuneyti
      • Forsætisráðuneytið
      • Atvinnuvegaráðuneytið
      • Dómsmálaráðuneytið
      • Félags- og húsnæðismálaráðuneytið
      • Fjármála- og efnahagsráðuneytið
      • Heilbrigðisráðuneytið
      • Innviðaráðuneytið
      • Menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðuneytið
      • Mennta- og barnamálaráðuneytið
      • Umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytið
      • Utanríkisráðuneytið
      • Sendiskrifstofur
      • Samstarfsráðherra Norðurlanda
      • Starfsfólk
      • Stofnanir
      • Nefndir
      • Símanúmer og staðsetning ráðuneyta
      • Umbra
    • Ríkisstjórn
      • Skipan ríkisstjórnar
      • Ríkisstjórnarfundir
      • Stjórnarsáttmáli
      • Ráðherranefndir
      • Reglur um starfshætti
      • Reglur um ferðakostnað og starfskjör ráðherra
      • Siðareglur, hagsmunir og hagsmunaverðir
      • Þingmálaskrá
      • Ríkisráð
      • Sögulegt efni
      • Fyrir fjölmiðla
    EN
    • Verkefni
      • Almannatryggingar og lífeyrir
      • Almannaöryggi
      • Atvinnuvegir
      • Auðlindir
      • Efnahagsmál
      • Félags- og fjölskyldumál
      • Fjarskipti
      • Húsnæðis- og mannvirkjamál
      • Líf og heilsa
      • Kosningar
      • Lög og réttur
      • Mannauðsmál ríkisins
      • Mannréttindi og jafnrétti
      • Menningarmál
      • Menntamál
      • Neytendamál
      • Opinber fjármál
      • Persónuréttur
      • Rekstur og eignir ríkisins
      • Samgöngur
      • Sjálfbært Ísland
      • Skipulagsmál
      • Stjórnskipan og þjóðartákn
      • Sveitarstjórnir og byggðamál
      • Trú og lífsskoðun
      • Umhverfi og náttúruvernd
      • Upplýsingatæknimál ríkisins
      • Utanríkismál
      • Útlendingar
      • Vinnumál
      • Vísindi, nýsköpun og rannsóknir
      • Öll verkefni
    • Efst á baugi
      • Fréttir
      • Nýjast
      • Fyrir fjölmiðla
      • Eldri fréttir
      • Fyrirspurnir frá Alþingi
    • Gögn
      • Rit og skýrslur
      • Úrskurðir og álit
      • Eyðublöð
      • Stefnur og áætlanir
      • Styrkir og sjóðir
      • Hugtakasafn
      • Lög og reglugerðir
      • Málaskrár ráðuneyta
      • Mælaborð
      • Hönnunarstaðall
    • Ráðuneyti
      • Forsætisráðuneytið
      • Atvinnuvegaráðuneytið
      • Dómsmálaráðuneytið
      • Félags- og húsnæðismálaráðuneytið
      • Fjármála- og efnahagsráðuneytið
      • Heilbrigðisráðuneytið
      • Innviðaráðuneytið
      • Menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðuneytið
      • Mennta- og barnamálaráðuneytið
      • Umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytið
      • Utanríkisráðuneytið
      • Sendiskrifstofur
      • Samstarfsráðherra Norðurlanda
      • Starfsfólk
      • Stofnanir
      • Nefndir
      • Símanúmer og staðsetning ráðuneyta
      • Umbra
    • Ríkisstjórn
      • Skipan ríkisstjórnar
      • Ríkisstjórnarfundir
      • Stjórnarsáttmáli
      • Ráðherranefndir
      • Reglur um starfshætti
      • Reglur um ferðakostnað og starfskjör ráðherra
      • Siðareglur, hagsmunir og hagsmunaverðir
      • Þingmálaskrá
      • Ríkisráð
      • Sögulegt efni
      • Fyrir fjölmiðla
    Close navigation
    Líf og heilsa
    Efnisorð

    Ekkert fannst

    Tegund
    Tegund

    Leita eftir efnisorðum

    Sýnir 401–450 af 2063
    Raða eftir:
    29. sep. 2023Heilbrigðisráðuneytið, Líf og heilsa

    Geðráð, samráðsvettvangur um geðheilbrigðismál sett á fót

    Willum Þór Þórsson heilbrigðisráðherra hefur skipað Geðráð í samræmi við aðgerðaáætlun í geðheilbrigðismálum til ársins 2027. Í Geðráði eiga sæti fulltrúar stjórnvalda, notenda geðheilbrigðisþjónustu, aðstandenda og fagfólks sem fjalla um málaflokkinn. Með þessu er tryggð aðkoma helstu haghafa að stefnumótun, umbótum og þróun á sviði geðheilbrigðismála og geðheilbrigðisþjónustu. Formaður ráðsins er Páll Matthíasson.

    29. sep. 2023Heilbrigðisráðuneytið, Líf og heilsa

    Heilbrigðisþing 2023 helgað stafrænni þróun - haldið í Hörpu 14. nóvember

    Heilbrigðisþing árið 2023 verður með sterkri norrænni skírskotun vegna formennsku Íslands í Norrænu ráðherranefndinni þetta árið. Þingið verður helgað stafrænni þróun innan heilbrigðiskerfisins með áherslu á gögn og gervigreind en Norðurlöndin í heild sinni stefna á að vera í fararbroddi þegar að þessu mikilvæga viðfangsefni kemur. Fyrirlestrar á ráðstefnunni fara fram á ensku en yfirskrift hennar er “Data and Digitalization: Crafting the Future of Sustainable Healthcare”.

    29. sep. 2023Heilbrigðisráðuneytið, Líf og heilsa

    Viðhorf íbúa landsbyggðarinnar til bráðaþjónustu í heimabyggð

    Heilbrigðisráðuneytið birtir niðurstöður könnunar sem Gallup gerði fyrir ráðuneytið á viðhorfum fólks á landsbyggðinni til bráðaþjónustu í heimabyggð. Könnunin veitir m.a. innsýn í ólík viðhorf og væntingar fólks til þjónustunnar s.s. eftir búsetu, aldri, reynslu af bráðaþjónustu í heimabyggð og ýmsum fleiri þáttum. Niðurstöðurnar veita vísbendingar um styrkleika bráðaþjónustu í landinu og hvaða þætti hennar þarf helst að efla á hverju svæði. Þær geta því nýst við stefnumótun og þróun bráðaþjónustu í landinu.

    26. sep. 2023Heilbrigðisráðuneytið, Líf og heilsa

    Eygló Harðardóttir nýr formaður stjórnar Sjúkratrygginga Íslands

    Willum Þór Þórsson heilbrigðisráðherra hefur skipað Eygló Harðardóttur formann stjórnar Sjúkratrygginga Íslands og Guðmund Magnússon varaformann. Ný inn í stjórnina kemur einnig Ólafía B. Rafnsdóttir.

    25. sep. 2023Heilbrigðisráðuneytið, Líf og heilsa

    Fjarheilbrigðisþjónusta sem gæti gjörbylt geðheilbrigðisþjónustu fyrir börn

    Nýtt meðferðarúrræði á netinu gæti tryggt mun fleiri börnum og forráðamönnum þeirra um allt land árangursríka geðheilbrigðisþjónustu. Háskólinn í Reykjavík og Heilsugæsla höfuðborgarsvæðisins vinna saman að verkefninu sem heilbrigðisráðuneytið hefur styrkt með 70 milljóna króna framlagi. Verkefnið byggist á hugrænni atferlismeðferð (HAM) þar sem foreldrum barna með kvíðaröskun eru kenndar aðferðir til að hjálpa börnum sínum að ná tökum á kvíða. Meðferðin er lágþröskuldaþjónusta sem krefst ekki sjúkdómsgreiningar til þess að tryggja tímanlega þjónustu, svokallaða snemmtæka íhlutun.

    25. sep. 2023Heilbrigðisráðuneytið, Líf og heilsa

    Embætti forstjóra Heilbrigðisstofnunar Suðurnesja auglýst laust til umsóknar

    Heilbrigðisráðuneytið auglýsir laust til umsóknar embætti forstjóra Heilbrigðisstofnunar Suðurnesja. Umsóknarfrestur er til og með 16. október næstkomandi.

    25. sep. 2023Líf og heilsa, Heilbrigðisráðuneytið

    Embætti forstjóra Heilbrigðisstofnunar Vestfjarða laust til umsóknar

    Heilbrigðisráðuneytið auglýsir laust til umsóknar embætti forstjóra Heilbrigðisstofnunar Vestfjarða. Umsóknarfrestur er til og með 16. október næstkomandi.

    19. sep. 2023Innviðaráðuneytið, Líf og heilsa, Sveitarstjórnir og byggðamál, Byggðamál, Heilbrigðisráðuneytið

    Fjarheilbrigðisþjónusta er byggðamál

    20 milljónir kr. voru veittar af byggðaáætlun til að styðja við verkefni á sviði fjarheilbrigðisþjónustu.

    18. sep. 2023Heilbrigðisráðuneytið, Líf og heilsa, Norrænt samstarf

    Minnt á ráðstefnuna um áfengi og lýðheilsu þriðjudaginn 19. september

    Enn eru nokkur sæti laus á norrænu ráðstefnuna „Alcohol and Public Health in the Nordics“ sem fram fer á Grand hótel Reykjavík á morgun. Fyrirlesarar koma víða að og búa að víðtækri þekkingu og reynslu á sviði rannsókna og stefnumótunar á sviði áfengismála og forvarna. Þeir sem ekki komast geta fylgst með ráðstefnunni í beinu streymi. Ráðstefnan hefst kl. 8.45 með ávarpi Willum Þórs Þórssonara heilbrigðisráðherra.

    18. sep. 2023Rit og skýrslur, Líf og heilsa, Heilbrigðisráðuneytið

    Áfangaskýrsla stýrihóps um þróun og stefnumótun um stafrænar lausnir

    september 2023 / Heilbrigðisráðuneytið Áfangaskýrsla stýrihóps um þróun og stefnumótun um stafrænar lausnir Áfangaskýrsla stýrihóps um þróun og stefnumótun um stafrænar lausnir

    15. sep. 2023Heilbrigðisráðuneytið, Líf og heilsa

    Lyf án skaða - málþing 5. október

    Landspítali stendur fyrir málþingi um skynsamlega endurskoðun lyfjameðferðar fimmtudaginn 5. október næstkomandi. Málþingið er liður í alþjóðlega gæðaátakinu; Lyf án skaða sem hófst hér á landi árið 2020. Á málþinginu verður sjónum beint að vaxandi tíðni fjöllyfjameðferðar og mikilvægi þess að móta sameiginlega sýn og verklag um góðar venjur við ávísanir lyfja til að sporna við þessari þróun. Aðalfyrirlesari er Dr. Emily G McDonald sem er þekkt fyrir rannsóknir sínar á nýjum leiðum til að auka gæði lyfjameðferðar og hefur birt yfir 100 vísindagreinar um gæði í heilbrigðisþjónustu.

    13. sep. 2023Heilbrigðisráðuneytið, Líf og heilsa

    Sigríður Dóra skipuð forstjóri Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins

    Willum Þór Þórsson heilbrigðisráðherra hefur skipað Sigríði Dóru Magnúsdóttur forstjóra Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins til næstu fimm ára, frá 15. september nk. Lögskipuð hæfnisnefnd sem metur hæfni umsækjenda um stöður forstjóra heilbrigðisstofnana mat Sigríði Dóru mjög vel hæfa. Sex sóttu um embættið.

    31. ágú. 2023Heilbrigðisráðuneytið, Líf og heilsa

    Styrkfjárhæðir vegna almennra tannréttinga nær þrefaldast

    Willum Þór Þórsson heilbrigðisráðherra hefur, með breytingu á reglugerð um þátttöku Sjúkratrygginga í kostnaði við tannlækningar, nær þrefaldað styrki til almennra tannréttinga. Hækkunin tekur gildi 1. september næstkomandi. Styrkir til tannréttinga eru tvískiptir. Styrkur til meðferðar í bæði efri og neðri góm hækkar úr 150.000 kr. Í 430.000 kr og styrkur vegna tannréttinga sem krefjast einungis meðferðar í efri eða neðri gómi hækkar úr 100.000 kr. í 290.000 kr.

    28. ágú. 2023Heilbrigðisráðuneytið, Líf og heilsa

    Til umsagnar: Frumvarp til breytinga á lögum um vísindarannsóknir á heilbrigðissviði

    Birt hefur verið til umsagnar frumvarp til breytinga á 13. gr. laga um vísindarannsóknir á heilbrigðissviði. Markmið frumvarpsins er að einfalda og stytta málsmeðferð umsókna um tilteknar vísindarannsóknir, m.a. með því að skilgreina hvers konar umsóknir vísindasiðanefnd og siðanefndum heilbrigðisrannsókna er skylt að senda til umfjöllunar hjá Persónuvernd. Efni frumvarpsins er byggt á sameiginlegum tillögum vísindasiðanefndar og Persónuverndar þessa efnis. Umsagnarfrestur er til 20. september næstkomandi.

    25. ágú. 2023Heilbrigðisráðuneytið, Líf og heilsa

    Umsækjendur um embætti forstjóra Geislavarna ríkisins

    Tveir sóttu um embætti forstjóra Geislavarna ríkisins sem auglýst var laust til umsóknar í byrjun ágúst sl.

    25. ágú. 2023Líf og heilsa, Heilbrigðisráðuneytið, Norrænt samstarf

    Norræn ráðstefna um áfengi og lýðheilsu 19. september

    Heilbrigðisráðuneytið í samvinnu við embætti landlæknis stendur fyrir norrænni ráðstefnu um áfengi og lýðheilsu á Grand hótel Reykjavík 19. september næstkomandi. Ráðstefnan er liður í viðburðum sem efnt er til í tengslum við formennsku Íslands í Norrænu ráðherranefndinni á þessu ári. Ráðstefnan fer fram á ensku og ber yfirskriftina Alcohol and Public Health in the Nordics.

    23. ágú. 2023Heilbrigðisráðuneytið, Líf og heilsa

    SPOEX styrkt til tækjakaupa vegna meðferðar við psoriasis og exemi

    Willum Þór Þórsson heilbrigðisráðherra heimsótti göngudeild SPOEX, samtaka psoriasis- og exemsjúklinga, þegar tekin voru í notkun ný tæki til meðferðar við psoriasis. Þörf fyrir endurnýjun búnaðarins var orðin brýn og með 15 milljóna króna fjárframlagi frá heilbrigðisráðuneytinu var félaginu gert kleift að kaupa nýja ljósaskápa og nýtt fóta- og handaljósatæki. Allt að 70 manns nýta sér þjónustu göngudeildarinnar nokkrum sinnum í viku hverri og eru komur allt að 200.

    17. ágú. 2023Heilbrigðisráðuneytið, Líf og heilsa

    Ný reglugerð um menntun lækna

    Heilbrigðisráðherra hefur sett nýja reglugerð sem kveður á um menntun, réttindi og skyldur lækna og skilyrði til að hljóta lækningaleyfi og sérfræðileyfi. Eldri reglugerð nr. 467/2015 fellur þar með úr gildi. Nýja reglugerðin felur í sér töluverðar breytingar á umgjörð og stjórnskipulagi sérnáms lækna. Einnig hefur fagleg umgjörð sérnámsins verið endurskoðuð og efld með hliðsjón af þeirri þróun sem orðið hefur á sérnámi í læknisfræði hér á landi á liðnum árum. Kröfur til námsins hafa verið skýrðar nánar og hvernig mat á sérnámi fer fram, framvinda, og námslok. Öflugt sérnám lækna er enda mikilvægur þáttur í mönnun heilbrigðiskerfisins til framtíðar.

    11. ágú. 2023Rit og skýrslur, Líf og heilsa, Heilbrigðisráðuneytið

    Hlutverk og verkefni veitenda geðheilbrigðisþjónustu

    ágúst 2023 / Heilbrigðisráðuneytið Hlutverk og verkefni veitenda geðheilbrigðisþjónustu Hlutverk og verkefni veitenda geðheilbrigðisþjónustu

    11. ágú. 2023Heilbrigðisráðuneytið, Líf og heilsa

    Skýrsla um hlutverk veitenda geðheilbrigðisþjónustu

    Starfshópur sem heilbrigðisráðherra fól að skilgreina hlutverk og verkefni þeirra aðila sem veita fyrsta, annars og þriðja stigs geðheilbrigðisþjónustu hefur skilað skýrslu með niðurstöðum sínum. Verkefnið er liður í framkvæmd aðgerðaáætlunar í geðheilbrigðismálum til ársins 2027 sem samþykkt var á Alþingi í júní sl.

    08. ágú. 2023Heilbrigðisráðuneytið, Líf og heilsa

    Embætti forstjóra Geislavarna ríkisins laust til umsóknar

    Heilbrigðisráðuneytið hefur auglýst laust til umsóknar embætti forstjóra Geislavarna ríkisins. Umsóknarfrestur er til 22. ágúst næstkomandi.

    27. júl. 2023Heilbrigðisráðuneytið, Líf og heilsa

    Tímamótasamningur um tannréttingar

    Heilbrigðisráðherra ásamt fulltrúum Sjúkratrygginga og tannréttingasérfræðinga undirrituðu samning um tannréttingar í heilbrigðisráðuneytinu í dag en þetta er í fyrsta sinn sem slíkur samningur hefur verið gerður um þjónustu tannréttingasérfræðinga. Samningurinn felur í sér mikilvæg tímamót og skapar meðal annars forsendur til þess að auka greiðsluþátttöku ríkisins í tannréttingum.

    27. júl. 2023Rit og skýrslur, Líf og heilsa, Heilbrigðisráðuneytið

    Fimm ára aðgerðaáætlun heilbrigðisráðherra um framkvæmd heilbrigðisstefnu 2024 til 2028

    júlí 2023 / Heilbrigðisráðuneytið Fimm ára aðgerðaáætlun heilbrigðisráðherra um framkvæmd heilbrigðisstefnu 2024 til 2028 Fimm ára aðgerðaáætlun heilbrigðisráðherra um framkvæmd heilbrigðisstefnu 2024 til 2028

    26. júl. 2023Heilbrigðisráðuneytið, Líf og heilsa

    Ólafur Baldursson leiðir verkefni um framtíð læknisþjónustu á Íslandi

    Heilbrigðisráðherra hefur falið dr. Ólafi Baldurssyni framkvæmdastjóra lækninga á Landspítala að leiða verkefnið „Framtíð læknisþjónustu á Íslandi“. Hans hlutverk er að tryggja samhæfingu og samþættingu verkefnisins með viðeigandi aðkomu, samþykki og þátttöku haghafa. Ólafur hefur fengið ársleyfi frá stjórnunarstörfum á Landspítala til að vinna við þetta umfangsmikla og mikilvæga verkefni.

    07. júl. 2023Heilbrigðisráðuneytið, Líf og heilsa

    Tillögur um sértækar aðgerðir til að styrkja mönnun heilbrigðisþjónustu og jafna aðgengi

    Starfshópur sem Willum Þór Þórsson heilbrigðisráðherra fól að gera tillögur um leiðir til að jafna aðgang að ýmis konar sérfræðiþjónustu á heilbrigðissviði óháð búsetu hefur skilað niðurstöðum sínum. Tillögur hópsins snúa einkum að því hvernig nýta megi heimildir í lögum um Menntasjóð námsmanna til að beita tímabundnum ívilnunum við endurgreiðslu námslána, til að styrkja mönnun sérfræðinga í heilbrigðisþjónustu, einkum í dreifðum byggðum.

    07. júl. 2023Rit og skýrslur, Heilbrigðisráðuneytið, Líf og heilsa

    Tillögur starfshóps heilbrigðisráðherra til jöfnunar á aðgengi að sérfræðiþjónustu á heilbrigðissviði óháð búsetu

    júlí 2023 / Heilbrigðisráðuneytið Tillögur starfshóps heilbrigðisráðherra til jöfnunar á aðgengi að sérfræðiþjónustu á heilbrigðissviði óháð búsetu Tillögur starfshóps heilbrigðisráðherra til jöfnunar á aðgengi að sérfræðiþjónustu á heilbrigðissviði óháð búsetu

    04. júl. 2023Heilbrigðisráðuneytið, Líf og heilsa

    Bólusetningar í apótekum

    Í samstarfi heilbrigðisráðuneytisins og Lyfju hefur verið undirbúið tilraunaverkefni um bólusetningar í apótekum sem lyfjafræðingar munu annast. Markmiðið er að bæta þjónustu við notendur, auka aðgengi að heilbrigðisþjónustu, létta álagi af heilbrigðisstofnunum og efla hlutverk lyfjafræðinga innan heilbrigðiskerfisins.

    27. jún. 2023Heilbrigðisráðuneytið, Líf og heilsa

    Samningur Sjúkratrygginga Íslands um þjónustu sérgreinalækna í höfn

    Sjúkratryggingar Íslands og Læknafélag Reykjavíkur hafa náð samkomulagi um þjónustu sérgreinalækna. Samningurinn er langtímasamningur til 5 ára og tekur samningurinn að fullu gildi 1. september 2023. Samningurinn stuðlar að umtalsverðri lækkun á greiðsluþátttöku almennings í þjónustu sérfræðilækna og myndar styrka umgjörð um starfsemi sérfræðilækna sem stuðlar bæði að framþróun þjónustunnar og auknu aðgengi að henni.

    21. jún. 2023Heilbrigðisráðuneytið, Líf og heilsa

    Rúmum milljarði kr. úthlutað úr Framkvæmdasjóði aldraðra

    Willum Þór Þórsson heilbrigðisráðherra hefur úthlutað rúmlega 1 milljarði króna úr Framkvæmdasjóði aldraðra. Hlutverk sjóðsins er að stuðla að uppbyggingu og efla öldrunarþjónustu um allt land. Alls voru veittir styrkir til 57 verkefna til margvíslegra framkvæmda og endurbóta á hjúkrunarheimilum um allt land, auk nýframkvæmdar við byggingu þjónustumiðstöðvar í Grindavík.

    20. jún. 2023Heilbrigðisráðuneytið, Líf og heilsa

    Stórefld þjónusta í síma 1700 og með netspjalli

    Willum Þór Þórsson heilbrigðisráðherra ýtti í dag úr vör kynningarátaki á stóraukinni þjónustu og ráðgjöf um heilsutengd málefni í símanúmerinu 1700 og á netspjalli Heilsuveru. Markmiðið með eflingu þjónustunnar er að auka þjónustu við almenning með heilbrigðistengdri ráðgjöf og vegvísun í viðeigandi þjónustu.

    19. jún. 2023Heilbrigðisráðuneytið, Líf og heilsa

    Fyrsta brautskráning sjúkraliða úr fagnámi til diplómaprófs við Háskólann á Akureyri

    Fyrsti hópurinn sem lagt hefur stund á fagnám til diplómaprófs fyrir starfandi sjúkraliða útskrifaðist frá Háskólanum á Akureyri 10. júní síðastliðinn. Skólinn er fyrstur háskóla hér á landi til að bjóða upp á þetta nám. Það er skipulagt með áherslu á sveigjanleika sem gerir nemendum kleift að stunda það samhliða störfum. Námið er ætlað sjúkraliðum sem vilja auka þekkingu sína og efla starfshæfni í geðheilbrigðisþjónustu, öldrunar- og heimahjúkrun. Alls voru 20 sjúkraliðar sem útskrifuðust úr náminu, allir af kjörsviði öldrunar- og heimahjúkrunar.

    16. jún. 2023Heilbrigðisráðuneytið, Líf og heilsa

    Umsækjendur um embætti forstjóra Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins

    Sex sóttu um embætti forstjóra Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins sem auglýst var laust til umsóknar í maí síðastliðnum.

    13. jún. 2023Heilbrigðisráðuneytið, Líf og heilsa

    Samningur undirritaður um uppsteypu bílakjallara Nýs Landspítala

    Í dag undirrituðu heilbrigðisráðherra, Willum Þór Þórsson, og Þorvaldur Gissurarson forstjóri ÞG verk samning Nýs Landspítala ohf. um uppsteypu á bílakjallara undir Sóleyjartorgi við hliðina á meðferðarkjarnanum. Auk þess vottuðu samninginn þær Hjördís Ýrr Skúladóttir, formaður MS félags Íslands og Sigríður Jóhannsdóttir, formaður Samtaka sykursjúkra á Íslandi (Diabetes Ísland).

    13. jún. 2023Heilbrigðisráðuneytið, Líf og heilsa

    Lagabreyting: Rýmri skilyrði um geymslu og nýtingu fósturvísa og kynfrumna

    Alþingi hefur samþykkt frumvarp Willum Þórs Þórssonar heilbrigðisráðherra um breytingu á lögum um tæknifrjóvgun nr. 55/1999. Með breytingunni verður virtur vilji einstaklinga eða pars, sem hefur geymt kynfrumur eða fósturvísa í tæknifrjóvgunarferli, til að nýta þau þótt áður hafi komið til sambúðarslita eða annar aðilinn látist. Afnumið verður ákvæði gildandi laga um að kynfrumum eða fósturvísum skuli skilyrðislaust eytt við þessar aðstæður.

    13. jún. 2023Líf og heilsa, Heilbrigðisráðuneytið

    Ný lög: Hækkun starfslokaaldurs heilbrigðisstarfsfólks

    Alþingi hefur samþykkt frumvarp Willum Þórs Þórssonar heilbrigðisráðherra sem felur í sér tímabundna undanþágu frá almennri reglu um 70 ára starfslokaaldur ríkisstarfsmanna. Þar með verður heilbrigðisstarfsfólki sem vinnur klínísk störf gert kleift að starfa til 75 ára aldurs hjá opinberum heilbrigðisstofnunum á grundvelli ráðningarsamnings.

    09. jún. 2023Heilbrigðisráðuneytið, Líf og heilsa

    Nýr samningur um tannlæknaþjónustu

    Sjúkratryggingar Íslands hafa gert nýjan samning um tannlæknaþjónustu. Þjónustan sem samningurinn fjallar um eru forvarnir og tannlækningar barna til 18 ára aldurs, tannlækningar aldraðra og öryrkja og tannlækningar vegna alvarlegra meðfæddra galla, slysa eða sjúkdóma, annarra en tannréttinga. Samningurinn tekur við af þremur eldri samningum um sömu þjónustu.

    01. jún. 2023Heilbrigðisráðuneytið, Líf og heilsa

    Aðgerðaáætlun í geðheilbrigðismálum samþykkt á Alþingi

    Alþingi hefur samþykkt þingsályktunartillögu heilbrigðisráðherra um aðgerðaáætlun í geðheilbrigðismálum til ársins 2027. Áætlunin felur í sér 27 aðgerðir til að hrinda í framkvæmd stefnu í geðheilbrigðismálum til ársins 2030 sem samþykkt var á Alþingi 15. júní 2022. Þingsályktunin var samþykkt einróma með öllum greiddum atkvæðum þingmanna.

    31. maí 2023Heilbrigðisráðuneytið, Líf og heilsa

    Rúmlega 1730 skömmtum af naloxón neyðarlyfi dreift

    Lyf á nefúðaformi sem inniheldur naloxón getur reynst lífsbjargandi sem fyrstu viðbrögð við ofskömmtun ópíóíða. Breytt fyrirkomulag við afhendingu lyfsins hefur bætt til muna aðgengi að lyfinu um allt land, einstaklingum að kostnaðarlausu.

    30. maí 2023Heilbrigðisráðuneytið, Líf og heilsa, Ræður og greinar

    Grein eftir Willum Þór Þórsson heilbrigðisráðherra: Eitt dauðsfall er of mikið

    Í gær voru áhrifaríkir og fallegir tónleikar haldnir í Hörpu til að vekja athygli á ópíóðafíkn og styrkja skaðaminnkandi úrræði Rauða krossins. Undanfarið hefur mikil umræða skapast í samfélaginu um ópíóðafíkn og þann skaða sem af henni getur hlotist. Hér á landi eru vísbendingar um að ópíóðar séu í aukinni umferð í samfélaginu og að notkun þeirra sé að aukast þrátt fyrir það að dregið hafi úr lyfjaávísunum á ópíóða undanfarin ár. Það er mikilvægt að fylgjast vel með þróuninni, bregðast hratt við og tryggja að viðeigandi úrræði séu til staðar og aðgengi að þeim sé tryggt.

    30. maí 2023Heilbrigðisráðuneytið, Líf og heilsa, Ræður og greinar

    Grein eftir Willum Þór Þórsson heilbrigðisráðherra: Eitt dauðsfall er of mikið

    Í gær voru áhrifaríkir og fallegir tónleikar haldnir í Hörpu til að vekja athygli á ópíóðafíkn og styrkja skaðaminnkandi úrræði Rauða krossins. Undanfarið hefur mikil umræða skapast í samfélaginu um ópíóðafíkn og þann skaða sem af henni getur hlotist. Hér á landi eru vísbendingar um að ópíóðar séu í aukinni umferð í samfélaginu og að notkun þeirra sé að aukast þrátt fyrir það að dregið hafi úr lyfjaávísunum á ópíóða undanfarin ár. Það er mikilvægt að fylgjast vel með þróuninni, bregðast hratt við og tryggja að viðeigandi úrræði séu til staðar og aðgengi að þeim sé tryggt.

    26. maí 2023Heilbrigðisráðuneytið, Líf og heilsa

    Lykiláfanga í sögu tóbaksvarna fagnað – 20 ár frá samþykkt tóbaksvarnasáttmála WHO

    Tuttugu ár eru liðin frá því að alþjóðlegur sáttmáli Alþjóðaheilbrigðismálastofnunarinnar (WHO) um bann við tóbaksauglýsingum og margvíslegar aðgerðir til að sporna við reykingum var staðfestur. Sáttmálinn var jafnframt fyrsti alþjóðlegi samningurinn um lýðheilsu. Þessara tímamóta verður minnst á morgun á 75. þingi Alþjóðaheilbrigðismálastofnunarinnar sem nú stendur yfir í Genf.

    26. maí 2023Heilbrigðisráðuneytið, Líf og heilsa

    Embætti forstjóra Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins laust til umsóknar

    Heilbrigðisráðuneytið auglýsir laust til umsóknar embætti forstjóra Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins. Heilsugæsla höfuðborgarsvæðisins starfar samkvæmt lögum um heilbrigðisþjónustu, nr. 40/2007. Heilsugæsla höfuðborgarsvæðisins veitir íbúum höfuðborgarsvæðisins alhliða heilsugæsluþjónustu sem grundvallast á sérþekkingu fagstétta og víðtæku þverfaglegu samstarfi. Umsóknarfrestur er til 15. júní næstkomandi.

    25. maí 2023Heilbrigðisráðuneytið, Líf og heilsa

    Tilkynningar um heimilisofbeldi til lögreglu - breyting á lögum um heilbrigðisstarfsmenn

    Samþykkt hefur verið á Alþingi frumvarp Willum Þórs Þórssonar heilbrigðisráðherra til breytingar á lögum um heilbrigðisstarfsmenn. Með lagabreytingunni eru skýrðar heimildir heilbrigðisstarfsfólks til að tilkynna lögreglu um heimilisofbeldi í samráði við þolanda sem leitar á heilbrigðisstofnun. Tilgreint er hvaða upplýsingum er heimilt að miðla til lögreglu þannig að henni sé kleift að gera viðeigandi ráðstafanir til að tryggja þolanda nauðsynlega vernd og stuðning.

    25. maí 2023Heilbrigðisráðuneytið, Líf og heilsa

    Ný reglugerð um starfsleyfi þriðjaríkisborgara til að starfa sem heilbrigðisstarfsmenn

    Willum Þór Þórsson heilbrigðisráðherra hefur sett heildarreglugerð sem kveður á um meðferð umsókna þriðjaríkisborgara, þ.e. ríkisborgara utan Evrópska efnahagssvæðisins og Sviss sem vilja starfa hér á landi sem heilbrigðisstarfsmenn. Markmið reglugerðarinnar er að einfalda og skýra kröfur til slíkra umsókna og stuðla að aukinni skilvirkni við meðferð þeirra.

    25. maí 2023Félags- og húsnæðismálaráðuneytið, Fjármála- og efnahagsráðuneytið, Líf og heilsa, Félags- og fjölskyldumál, Efnahagsmál og opinber fjármál, Málefni eldra fólks, Heilbrigðisráðuneytið

    Gott að eldast: Eldra fólk er virði en ekki byrði

    Eldra fólk leggur mikið til samfélagsins og mikilvægt er að stuðla að auknu heilbrigði þessa hóps. Þetta sýnir kostnaðar- og ábatagreining sem KPMG hefur unnið fyrir stjórnvöld vegna heildarendurskoðunar á þjónustu við eldra fólk: Gott að eldast.

    12. maí 2023Heilbrigðisráðuneytið, Líf og heilsa

    Norrænt samstarf um heilabilun og kynning á FINGER forvarna- og rannsóknaverkefninu

    Þekkt forvarna- og rannsóknaverkefni um heilabilun sem kallast FINGER verður kynnt á opnum fundi þriðjudaginn 16. maí næstkomandi. Verkefnið er finnskt og var þróað og skipulagt af prófessor Miiu Kivipelto. Niðurstöður þess hafa vakið athygli fyrir góðan árangur hjá þátttakendum og orðið að fyrirmynd margra forvarnaverkefna á þessu sviði víða um lönd. Kynningarfundurinn er haldinn í tengslum við árlegan vorfund norræna samstarfshópsins um heilabilun sem fram fer í Reykjavík dagana 15. og 16. maí.

    12. maí 2023Heilbrigðisráðuneytið, Líf og heilsa

    Stofnuð verði þekkingar- og ráðgjafarmiðstöð um ME-sjúkdóminn

    Willum Þór Þórsson heilbrigðisráðherra hefur ákveðið að fela Sjúkrahúsinu á Akureyri í samvinnu við Heilbrigðisstofnun Norðurlands að koma á fót þekkingar- og ráðgjafarmiðstöð um ME sjúkdóminn. Alþjóðlegi ME dagurinn er í dag sem miðar að því að efla vitund um sjúkdóminn sem veldur langvarandi vöðvaverkjum og bólgum í heila eða mænu.

    10. maí 2023Heilbrigðisráðuneytið, Líf og heilsa

    Til umsagnar: Breyting á geymslutíma kynfrumna og fósturvísa vegna tæknifrjóvgunar

    Birt hafa verið til umsagnar drög að breytingu á reglugerð um tæknifrjóvgun sem gerir ráð fyrir að hámarksgeymslutími kynfrumna og fósturvísa verði rýmkaður til muna. Ýmis sjónarmið liggja að baki áformaðri breytingu þar sem horft hefur verið til ólíkra aðstæðna fólks, t.d. sem hefur ungt að aldri þurft að geyma kynfrumur vegna veikinda en gæti enn verið á barneignaaldri þegar núgildandi hámarksgeymslutími kynfrumna er liðinn. ​

    09. maí 2023Heilbrigðisráðuneytið, Líf og heilsa

    Skýrsla: Stafrænt aðgengi barna að klámi og áhrif þess á heilsu og líðan

    Embætti landlæknis hefur lokið mati á áhrifum stafræns aðgengis barna og ungmenna að klámi á heilsu þeirra og líðan og hefur skýrsla með niðurstöðum matsins verið birt. Matið var gert í samræmi við ályktun Alþingis um forvarnir meðal barna og ungmenna gegn kynferðislegu og kynbundnu ofbeldi. Á grundvelli þess verða mótaðar tillögur um aðgerðir sem stuðla að kynheilbrigði ungs fólks.

    04. maí 2023Heilbrigðisráðuneytið, Líf og heilsa

    Aukið fjármagn til heilsugæslu og heimahjúkrunar

    Heilbrigðisráðherra hefur ráðstafað 300 milljónum króna af fjárlögum ársins til að efla heimahjúkrun um allt land. Jafnframt hefur verið bætt 1,4 milljörðum króna inn í fjármögnunarlíkan heilsugæslu til að styrkja enn frekar hlutverk heilsugæslu á landsvísu sem fyrsta viðkomustað fólks í heilbrigðiskerfinu.

    • First
    • Prev
    • 7
    • 8
    • 9
    • 10
    • 11
    • Next
    • Last
    Logo
    • Um vefinn
    • Áskrift
    • Veftré
    • Fyrirvari
    +354 545 8000
    Staðsetning ráðuneyta, opnunartími og netföng
    Hafa samband

    Hafa samband