Erfðanefnd landbúnaðarins 2026-2029

Erfðanefnd landbúnaðarins starfar samkvæmt 16. gr. búnaðarlaga nr. 70/1998 og skal hún skipuð til þriggja ára í senn. Í nefndinni sitja sjö fulltrúar og jafnmargir til vara, einn frá Bændasamtökum Íslands, tveir frá Landbúnaðarháskóla Íslands, einn frá Landi og skógi, einn frá Hafrannsóknastofnun og einn frá Náttúrufræðistofnun Íslands. Ráðherra skipar formann án tilnefningar.

Helstu verkefni nefndarinnar eru:

a) að annast samráð innan lands um varðveislu erfðaauðlinda í landbúnaði, 
b) að hvetja til rannsókna á sviði erfðaauðlinda í landbúnaði, 
c) að stuðla að miðlun þekkingar um erfðaauðlindir og gildi þeirra, jafnt með kennslu sem upplýsingagjöf til almennings, 
d) að veita hagsmunaaðilum og stjórnvöldum ráðgjöf um varðveislu og nýtingu erfðaauðlinda í landbúnaði, 
e) að annast samskipti við erlenda aðila á þessu sviði í samstarfi við tengiliði Íslands hjá alþjóðastofnunum. 

Nefndin er þannig skipuð:
Aðalmenn:

  • Sæmundur Sveinsson, formaður, án tilnefningar,
  • Leó Alexander Guðmundsson, tilnefndur af Hafrannsóknarstofnun,
  • Kristinn Pétur Magnússon, tilnefndur af Náttúrufræðistofnun,
  • Brynja Hrafnkelsdóttir, tilnefnd af Landi og Skógi,
  • Þorvaldur Kristjánsson, tilnefndur af Bændasamtökum Íslands,
  • Birna Kristín Baldursdóttir, tilnefnd af Landbúnaðarháskóla Íslands,
  • Ólöf Ósk Guðmundsdóttir, tilnefnd af Landbúnaðarháskóla Íslands,

     

Varamenn:

  • Bryndís Eiríksdóttir, án tilnefningar,
  • Jóhannes Guðbrandsson, tilnefndur af Hafrannsóknarstofnun,
  • Magnus Göransson, tilnefndur af Náttúrufræðistofnun,
  • Brynjar Skúlason, tilnefndur af Landi og Skógi,
  • Sigurborg Hanna Sigurðardóttir, tilnefnd af Bændasamtökum Íslands,
  • Jón Hjalti Eiríksson, tilnefndur af Landbúnaðarháskóla Íslands,
  • Hrannar Smári Hilmarsson, tilnefndur af Landbúnaðarháskóla Íslands,