Sendiráð Íslands í Peking lokað til 10. febrúar

ATHUGIÐ: Þessi grein er eldri en 5 ára.
04. febrúar 2020
/
Sendiráð Íslands í Peking

Í samræmi við aðgerðir kínverskra stjórnvalda við að takmarka útbreiðslu Kóróna veirunnar í Kína verður sendiráð Íslands í Peking lokað til 10. febrúar nk. Íslenskum ríkisborgurum í neyð er bent á neyðarsíma utanríkisráðuneytisins: +354 545 0112.

Áritanadeild sendiráðsins sem og áritanamiðstöðvar Íslands í Kína verða einnig lokaðar fram til 10. febrúar nk. Ef um neyðartilfelli er að ræða býðst umsækjendum að senda tölvupóst á netfangið visa.beijing@mfa.is og tilgreina ástæður ætlaðrar ferðar og áætlaðan borttfarardag.