Breyttur afgreiðslutími

ATHUGIÐ: Þessi grein er eldri en 5 ára.
23. mars 2020
/
Sendiráð Íslands í Stokkhólmi

Í ljósi aðstæðna tengdum Covid-19 verður afgreiðslutími sendiráðsins í Stokkhólmi 10:00- 14:00 alla virka daga frá og með miðvikudeginum 25. mars og þar til annað verður og auglýst.

Við minnum á að hægt er að senda erindi með tölvupósti á stockholm@mfa.is.

Ef um er að ræða áríðandi borgaraþjónustumál, þá vinsamlega hafið samband við neyðarvakt borgaraþjónustunnar í síma +354 545 0 112 eða sendið tölvupóst á hjalp@utn.is, eða í gegnum Messenger á Facebook-síðu Utanríkisráðuneytið - utanríkisþjónusta Íslands.


Upplýsingar um borgaraþjónustu utanríkisráðuneytisins er að finna á heimasíðu ráðuneytisins: www.utn.is