ATHUGIÐ: Þessi grein er eldri en 5 ára.
08 apríl 1997
/
Utanríkisráðuneytið

Heimsókn Pavol Hamzik, utanr.rh. Slóvakíu


FRÉTTATILKYNNING
frá utanríkisráðuneytinu
_____________


Nr. 27

Pavol Hamzik, utanríkisráðherra Slóvakíu, heimsækir Ísland dagana 10.-11. apríl 1997. Ráðherrann á hér fundi með utanríkisráðherra og fjármálaráðherra, heimsækir Alþingi og heldur fyrirlestur á fundi Samtaka um vestræna samvinnu.

Utanríkisráðuneytið,
Reykjavík, 8. apríl 1997.