ATHUGIÐ: Þessi grein er eldri en 5 ára.
29 ágúst 2000
/
Dómsmálaráðuneytið

Um hlaupahjól.


Um hlaupahjól


Dóms- og kirkjumálaráðuneytið vill að gefnu tilefni taka fram að hlaupahjól með hjálparmótor falla undir skilgreiningu umferðarlaga á ,,léttu bifhjóli".
Slík hjól þarf þ.a.l. að skrá og um ökumann gilda sömu reglur og um ökumenn léttra bifhjóla.

Í dóms- og kirkjumálaráðuneytinu,
29. ágúst 2000.