ATHUGIÐ: Þessi grein er eldri en 5 ára.
29 maí 2006
/
Utanríkisráðuneytið

Afhending trúnaðarbréfs


Afhending trúnaðarbréfs í Lúxemborg
Stefán Haukur Jóhannesson, sendiherra og Henri stórhertogi af Lúxemborg

Stefán Haukur Jóhannesson, sendiherra hefur afhent Henri, stórhertoganum af Lúxemborg, trúnaðarbréf sitt sem sendiherra Íslands í Lúxemborg. Fór afhendingin fram með viðhöfn á aðsetri stórhertogans í Lúxemborg. Sendiherra og stórhertoginn ræddu m.a. almennt um samskipti landanna og hin nánu tengsl Íslands og Lúxemborgar á sviði flugmála og viðskipta. Einnig ræddu þeir þróun efnahagsmála á Íslandi og EES-samninginn.