ATHUGIÐ: Þessi grein er eldri en 5 ára.
17 febrúar 2010
/
Utanríkisráðuneytið

Afhending trúnaðarbréfs á Ítalíu

Þórir Ibsen sendiherra, afhenti mánudaginn 15. febrúar sl. Giorgio Napolitano forseta Ítalíu, trúnaðarbréf sitt sem sendiherra gagnvart Ítalíu með aðsetur í París. Að afhendingu lokinni fundaði sendiherra með forsetanum og háttsettum embættismönnum. Við þetta tækifæri áttu sendiherra og forseti Ítalíu vinsamlegar samræður um samskipti ríkjanna og um aðildarumsókn Íslands að Evrópusambandinu.