ATHUGIÐ: Þessi grein er eldri en 5 ára.
28 júlí 2011
/
Dómsmálaráðuneytið
Umsóknarfrestur um embætti hæstaréttardómara til og með 8. ágúst
Auglýst hefur verið laust til umsóknar embætti dómara við Hæstarétt Íslands til setningar meðan á leyfi skipaðs dómara stendur. Miðað er við að sett verði í embættið frá 15. september 2011 til og með 31. desember 2014.

Umsóknir skulu berast innanríkisráðuneytinu, Sölvhólsgötu 7, 150 Reykjavík og á netfangið postur@irr.is eigi síðar en 8. ágúst næstkomandi.