ATHUGIÐ: Þessi grein er eldri en 5 ára.
04 nóvember 2011
/
Forsætisráðuneytið

Forsætisráðherra til funda í Brussel

Forsætisráðherra fer eftir helgina til funda í Brussel. Þar mun hún eiga fundi með Herman van Rompuy, forseta leiðtogaráðs Evrópusambandsins og Jose Manuel Barrosso, forseta framkvæmdastjórnar Evrópusambandsins. Jafnframt fundar forsætisráðherra með Yves Leterme, forsætisráðherra Belgíu.