ATHUGIÐ: Þessi grein er eldri en 5 ára.
16 janúar 2012
/
Félags- og húsnæðismálaráðuneytið
Heilbrigðisráðuneytið

Velferðarráðherra heilsast vel eftir aðgerð

Guðbjartur Hannesson velferðarráðherra fór í aðgerð vegna bráðrar botnlangabólgu á Heilbrigðisstofnun Vesturlands í gær. Aðgerðin tókst vel og lætur ráðherra vel af líðan sinni en þarf að halda kyrru fyrir í nokkra daga að læknisráði.