ATHUGIÐ: Þessi grein er eldri en 5 ára.
14 ágúst 2013
/
Forsætisráðuneytið

Ábendingar til hagræðingarhóps ríkisstjórnarinnar


!

Á vef forsætisráðuneytisins hefur verið komið upp svæði þar sem almenningi er boðið að koma á framfæri hugmyndum og ábendingum til hagræðingarhóps ríkisstjórnarinnar um hluti sem betur mega fara í rekstri ríkisins. Einnig er hægt að senda hugmyndir og ábendingar til hópsins á netfangið hagraeding@for.stjr.is.

Hagræðingarhópurinn starfar undir stjórn Ásmundar Einars Daðasonar, alþm., og í honum sitja auk hans Guðlaugur Þór Þórðarson, alþm., Vigdís Hauksdóttir, alþm. og Unnur Brá Konráðsdóttir, alþm..

Markmiðið er að hagræðingarhópurinn leggi fram tillögur sem miði að því að auka framleiðni í rekstri ríkisins umtalsvert. 

Sjá nánar í erindisbréfi hagræðingarhópsins.