ATHUGIÐ: Þessi grein er eldri en 5 ára.
12 maí 2020
/

Breyttur opnunartími sendiráðsins

{image.Description}

Sendiráðið í París vekur athygli á breyttum opnunartíma í ljósi aðstæðna tengdum Covid-19 faraldrinum.

Frá og með þriðjudeginum 12. maí verður afgreiðsla sendiráðsins opin alla virka daga frá kl. 10:00- 14:00. Almennar fyrirspurnir og tímapantanir fyrir vegabréfaumsóknir má senda á netfangið paris@mfa.is. Símsvörun sendiráðsins verður opin á sama tíma í síma +33 (0)1 44 17 32 85.


Utan opnunartíma sendiráðsins má vegna áríðandi borgaraþjónustumála hafa samband við neyðarvakt borgaraþjónustunnar í síma +354 545 0 112, senda tölvupóst á hjalp@utn.is eða í gegnum Messenger á Facebook-síðu utanríkisráðuneytisins. Upplýsingar um borgaraþjónustu utanríkisráðuneytisins er að finna á heimasíðu ráðuneytisins: www.utn.is.