06 október 2025
Samþykkt að stofna rannsóknarnefnd um mannréttindabrot í Afganistan
Mannréttindaráð Sameinuðu þjóðanna samþykkti samhljóða í dag ályktun um að stofna óháða rannsóknarnefnd um stöðu mannréttinda í Afganistan. Aðeins Kína sagði sig frá ákvörðun ráðsins. Ísland hefur lengi kallað eftir því að rannsóknarnefnd verði stofnuð og leiddi sameiginlega yfirlýsingu þess efnis í ráðinu í mars, í samstarfi við Suður-Afríku og Chile.