08 nóvember 2016Fjölmennt á lokaráðstefnu Norrænu velferðarvaktarinnarNærri 200 manns hafa skráð sig á lokaráðstefnu Norrænu velferðarvaktarinnar 10. nóvember nk. þar sem m.a. verður sagt frá norrænum velferðarvísum, viðbrögðum velferðarkerfa í efnahagskreppum með áherslu á félagsþjónustu sveitarfélaga og getu norrænu velferðarkerfanna til að takast á við nýjar áskoranir.
08 nóvember 2016Landskjörstjórn hefur úthlutað þingsætum og gefið út kjörbréf
Landskjörstjórn kom saman í gær, 7. nóvember, og úthlutaði þingsætum til frambjóðenda skv. XVI. kafla laga nr. 24/2000, um kosningar til Alþingis. Úthlutunin byggðist á skýrslum yfirkjörstjórna um kosningaúrslit í kjördæmum eftir alþingiskosningarnar sem fram fóru laugardaginn 29. október 2016.

08 nóvember 2016Tækifæri til að draga úr losun frá landbúnaðiLandbúnaðarháskóli Íslands hefur gefið út skýrslu með greiningu á losun gróðurhúsalofttegunda frá íslenskum landbúnaði, en skýrslan er hluti af verkefni innan sóknaráætlunar stjórnvalda í loftslagsmálum.
08 nóvember 2016Ný reglugerð um loftmengun og upplýsingagjöfUmhverfis- og auðlindaráðuneytið hefur gefið út reglugerð sem fjallar m.a. um viðmiðunarmörk nokkurra loftmengunarefna og upplýsingar til almennings.
08 nóvember 2016Úthlutun almenns og sértæks byggðakvóta
Samkvæmt lögum um stjórn fiskveiða er 5,3% af heildarafla í hverri fisktegund dregið af leyfilegum heildarafla og varið til ýmissa tímabundinna ráðstafana til þess að auka byggðafestu. Gunnar Bragi Sveinsson sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra hefur úthlutað alls 11.257 tonnum í sértækan og almennan byggðakvóta en ráðstöfunin byggir á þingsályktun 38/145, 2015-2016.

07 nóvember 2016652/2016. Úrskurður frá 31. október 2016
Kærð var sú ákvörðun Þjóðskjalasafns Íslands að synja um aðgang að skýrslum nafngreindra einstaklinga sem gefnar voru fyrir rannsóknarnefnd Alþingis. Þagnarskylda. Einka- og fjárhagsmálefni einstaklinga. Synjun staðfest.

07 nóvember 2016653/2016. Úrskurður frá 31. október 2016
Kærð var afgreiðsla Þjóðskjalasafns Íslands á beiðni um aðgang að gögnum sem tengjast Kaupþingi banka. Úrskurðarnefndin taldi ýmis samskipti starfsmanna bankans og annarra lúta þagnarskylduákvæði 1. mgr. 58. gr. laga nr. 161/2002 og taldi safnið bundið þagnarskyldunni samkvæmt 2. mgr. ákvæðisins.…
07 nóvember 2016654/2016. Úrskurður frá 31. október 2016
A kærði afgreiðslu Háskóla Íslands á beiðni um aðgang að gögnum. Kæranda var veittur aðgangur að gögnum tiltekinna námskeiða í eina viku. Kærandi óskaði eftir bindandi úrskurði um rétt sinn til aðgangs samkvæmt upplýsingalögum. Ekki var efnislegur ágreiningur um rétt kæranda til aðgangs heldur hvort Háskóla Íslands hafi verið heimilt að takmarka aðganginn við eina viku.…
07 nóvember 2016655/2016. Úrskurður frá 31. október 2016
Miðbaugur ehf. kærði afgreiðslu Isavia ohf. á beiðni um aðgang að gögnum varðandi samkeppni um verslunar- og veitingarekstur í Flugstöð Leifs Eiríkssonar. Úrskurðarnefndin taldi að samkeppnin fæli ekki í sér hefðbundið útboð. Engu að síður var kærandi talinn njóta réttar samkvæmt 14. gr. upplýsingalaga til aðgangs að gögnum eins og þátttakendur í útboðum.…
07 nóvember 2016656/2016. Úrskurður frá 31. október 2016Deilt var um aðgang eins aðila, að rammasamningi um innkaup vegna hjúkrunarheimila á vegum Framkvæmdasýslu ríkisins, að gögnum um samskipti og samráð við aðra rammasamningshafa.…
07 nóvember 2016657/2016. Úrskurður frá 31. október 2016Kærð var afgreiðsla sýslumannsins í Vestmannaeyjum á beiðni um aðgang að upplýsingum um fjölda þinglýstra húsaleigusamninga og kaupsamninga um húsnæði á tilteknu tímabili. Af hálfu sýslumanns kom fram að upplýsingar um fjölda samninga væru ekki fyrirliggjandi hjá embættinu. Úrskurðarnefndin tók fram að af 1. mgr. 5. gr.…
07 nóvember 2016658/2016. Úrskurður frá 31. október 2016
Kærð var afgreiðsla Borgarskjalasafns á beiðni um upplýsingar um kæranda sjálfan, en kærandi hafði fengið afhent gögn þar sem afmáðar voru upplýsingar um aðra einstaklinga.…
07 nóvember 2016Ríflega 22 þúsund heimsóknir á kjördag
Kosningavefurinn var mikið heimsóttur í aðdraganda alþingiskosninganna og á kjördag, 29. október. Heimsóknir á vefinn voru tæplega 78.000 frá 1.-29. október, þar af ríflega 22.200 á kjördag, samkvæmt talningu Google Analytics.

07 nóvember 2016Kynning á GERT fyrir náms- og starfsráðgjafa
GERT – Grunnmenntun efld í raunvísindum og tækni er samstarfsverkefni Samtaka iðnaðarins, mennta- og menningarmálaráðuneytis og Sambands íslenskra sveitarfélaga um að auka áhuga grunnskólanemenda á raunvísindum og tækni.

07 nóvember 2016Stjórn Flugþróunarsjóðs auglýsir eftir umsóknum um styrki

Stjórn Flugþróunarsjóðs auglýsir eftir umsóknum um styrki í sjóðinn. Markmið sjóðsins er að styðja við uppbyggingu nýrra flugleiða til Íslands þannig að koma megi á reglulegu millilandaflugi um alþjóðaflugvellina Akureyri og Egilsstaði.

04 nóvember 2016Sóknaráætlun í loftslagsmálum - stöðuskýrsla um framgang verkefnaStöðuskýrsla þar sem er gerð grein fyrir markmiðum hvers verkefnis Sóknaráætlunar í loftslagsmálum sem sett var fram í aðdraganda 21. aðildarríkjaþings loftslagssamnings Sameinuðu þjóðanna, sem haldin var í París í desember 2015 (COP21). Farið er yfir stöðu verkefnanna á haustmánuðum 2016, næstu skrefum og fjármögnun.
04 nóvember 2016Umsækjendur um embætti forstjóra Heilbrigðisstofnunar Austurlands
Sjö umsækjendur eru um embætti forstjóra Heilbrigðisstofnunar Austurlands sem velferðarráðuneytið auglýsti laust til umsóknar október sl.

04 nóvember 2016Starfstími aðgerðahóps um launajafnrétti framlengdurEygló Harðardóttir, félags- og húsnæðismálaráðherra, hefur ákveðið að framlengja starfstíma aðgerðahóps stjórnvalda og samtaka aðila vinnumarkaðarins um launajafnrétti til ársloka 2018. Hópurinn kynnti tillögur að framtíðarstefnu í jafnlaunamálum 24. október síðastliðinn.
04 nóvember 2016Parísarsamningurinn gengur í gildi á heimsvísuParísarsamningurinn um aðgerðir gegn loftslagsbreytingum gengur í gildi á heimsvísu í dag, 4. nóvember. Samningurinn var samþykktur í París 12. desember 2015. Sigrún Magnúsdóttir umhverfis- og auðlindaráðherra skrifaði undir samninginn fyrir Íslands hönd 22. apríl 2016 og Alþingi samþykkti samhljóða fullgildingu hans 19. september sl. að tillögu utanríkisráðherra.…
04 nóvember 2016Aukið hagræði fyrir farþega til Bandaríkjanna
Bandarísk yfirvöld munu að ósk Íslands kanna kosti þess, að koma á fót tollskoðun og forvottun farþega á leið til Bandaríkjanna við brottför þeirra frá Keflavíkurflugvelli.

04 nóvember 2016Styrkir til menningarsamstarfs milli Noregs og Íslands
Þeir sem starfa á sviði lista og menningar í Noregi og á Íslandi geta sótt um styrki til samstarfsverkefna sem stuðla að fjörbreytilegu samstarfi á því sviði. Næsti umsóknarfrestur er til15. desember nk.

04 nóvember 2016Nordic Matters: Norræntmenningarár í London árið 2017Southbank Centre í London kynnir Nordic Matters þar sem norræn menning og listir verða í brennidepli allt árið 2017
04 nóvember 2016Þróun launa starfsmanna sem heyra undir kjararáðÍ ljósi fyrirspurna vegna nýs úrskurðar kjararáðs um laun þjóðkjörinna fulltrúa hefur fjármála- og efnahagsráðuneytið uppfært upplýsingar um launaþróunina sem birtar voru 28. apríl 2015
03 nóvember 2016Mál nr. 93/2014
Felld úr gildi ákvörðun umboðsmanns skuldara um að fella niður heimild kæranda til greiðsluaðlögunar á grundvelli 5. mgr. 13. gr., sbr. 15. gr. laga nr. 101/2010 um greiðsluaðlögun einstaklinga

03 nóvember 2016Matsmál nr. 1/2016, úrskurður 3. nóvember 2016Landsnet hf. gegn Finni Sigfúsi Illugasyni, Sólveigu Illugadóttur, Kristínu Þ. Sverrisdóttur og Héðni Sverrissyni
03 nóvember 2016Mál nr. 62/2014
Felld úr gildi ákvörðun umboðsmanns skuldara um að fella niður heimild kæranda til greiðsluaðlögunar á grundvelli 5. mgr. 13. gr. lge., sbr. 15. gr. laga nr. 101/2010 um greiðsluaðlögun einstaklinga

03 nóvember 2016Drög að lagafrumvarpi um rafrænar þinglýsingar til umsagnar
Drög að frumvarpi til breytinga á lögum um þinglýsingar (rafrænar þinglýsingar) eru nú til umsagnar hjá innanríkisráðuneytinu. Unnt er að senda ráðuneytinu athugasemdir til og með 28. nóvember næstkomandi og skulu þær sendar á netfangið postur@irr.is.

03 nóvember 2016Skýrsla um björgun og öryggi í norðurhöfum
Komin er út skýrsla stýrihóps innanríkisráðherra: Björgun og öryggi í norðurhöfum. Er þar fjallað um forsendur fyrir efldri björgunar- og viðbragðsþjónustu á Íslandi sem þjóna myndi Norður-Atlantshafi og kröfur sem gerðar eru um viðbragðsgetu.

03 nóvember 2016Rík áhersla á jafnrétti kynja í umræðum á NorðurlandaráðsþingiJafnréttismál voru ofarlega á baugi í umræðum ráðherra og þingmanna á 68. þingi Norðurlandaráðs þegar rætt var um heimsmarkmið Sameinuðu þjóðanna um sjálfbæra þróun og hvernig unnið skuli að innleiðingu þeirra á Norðurlöndunum.
03 nóvember 2016Kvikmyndin Eiðurinn sýnd í efri bekkjum grunnskólaIllugi Gunnarsson, mennta- og menningarmálaráðherra og Baltasar Kormákur, kvikmyndaleikstjóri, undirrituðu föstudaginn 28. október styrktarsamning sem ætlað er að mæta kostnaði við sýningar og kynningu á tilurð kvikmyndarinnar Eiðurinn fyrir nemendur í 9. og 10. bekk grunnskóla um land allt.
03 nóvember 2016Ísland aðili að samningi WTO um viðskiptaliprunÍsland gerðist aðili að samningi Alþjóðaviðskiptastofnarinnar, WTO, um viðskiptaliprun (Trade Facilitation Agreement) þann 31. október sl.
02 nóvember 2016Mál nr. 180/2016
Staðfest ákvörðun umboðsmanns skuldara.

Sala eigna á tímabili greiðsluaðlögunarumleitana skv. 13. gr. lge.

02 nóvember 2016Mál nr. 193/2016
Staðfest ákvörðun umboðsmanns skuldara.

Ekki nægilega glögga mynd fyrir hendi af fjárhag skuldara eða væntanlegri þróun fjárhags hans á tímabili greiðsluaðlögunar skv. b-lið 1. mgr. 6. gr. lge.

Skuldari hefur af ráðnum hug eða með grófri vanrækslu veitt rangar eða villandi upplýsingar um mikilsverðar aðstæður í málinu skv. d-lið 1. mgr. 6. gr. lge.

02 nóvember 2016Úrskurður í máli nr. IRR16100123Reykjavíkurborg: Ágreiningur um greiðslu bóta úr slysatryggingu. Frávísun
02 nóvember 2016Staðgengill forsætisráðherra á Norðurlandaráðsþingi og tengdum ráðherrafundumEygló Harðardóttir, félags- og húsnæðismálaráðherra, samstarfsráðherra Norðurlanda og staðgengill forsætisráðherra á þingi Norðurlandaráðs, tók í gær og í dag þátt í störfum Norðurlandaráðsþings í Kaupmannahöfn.
02 nóvember 2016Ísland aðili að samningi WTO um viðskiptaliprunÍsland gerðist aðili að samningi Alþjóðaviðskiptastofnarinnar um viðskiptaliprun (Trade Facilitation Agreement) þann 31. október sl. Samningnum um viðskiptaliprun er ætlað að stuðla að aukinni skilvirkni og hraða við tollframkvæmd, þ.m.t. tollafgreiðslu. Þessu markmiði skal ná með að greiða fyrir samvinnu á milli tollayfirvalda og annara yfirvalda sem fara með málefni tengd framkvæmd samningsins.
02 nóvember 2016Til umsagnar: Drög að nýrri reglugerð um heimagistingu o.fl.
Þann 1. janúar 2017 tekur gildi lagabreyting sem snýr að lögum nr. 85/2007 um veitingastaði, gististaði og skemmtanahald. Meginmarkmið breytinganna er að koma til móts við þá þróun sem orðið hefur í framboði gistirýma.

01 nóvember 2016Úthlutun styrkja til gæðaverkefnaí heilbrigðisþjónustuKristján Þór Júlíusson heilbrigðisráðherra veitti í gær styrki til átta gæðaverkefna í heilbrigðisþjónustunni. Að þessu sinni var sérstök áhersla lögð á verkefni sem eru til þess fallin að auka samfellu og samhæfingu í meðferð sjúklinga milli heilsugæslu, sérfræðiþjónustu og sjúkrahúsa.
01 nóvember 2016Fundur á netinu hjá SÞ í Genf um mannréttindi á ÍslandiStaða mannréttinda á Íslandi er nú til umfjöllunar á fundi mannréttindaráðs Sameinuðu þjóðanna í Genf. Fundurinn stendur milli kl. 13.30 og 17 að íslenskum tíma og er unnt að fylgjast með honum í streymi á netinu.
01 nóvember 2016Fjölmargir ræddu stöðu mannréttinda á Íslandi á fundi hjá SÞFulltrúar kringum 60 ríkja voru á mælendaskrá á fundi mannréttindaráðs Sameinuðu þjóðanna í Genf í dag þegar fjallað var um stöðu mannréttinda á Íslandi. Í kjölfar inngangsræðu Ragnhildar Hjaltadóttur, ráðuneytisstjóra innanríkisráðuneytis og formanns sendinefndar Íslands, tóku margir til máls með spurningar og ábendingar.…
01 nóvember 201625 milljónir til Neyðarsjóðs SÞ vegna Haítí og SýrlandsLilja Alfreðsdóttir utanríkisráðherra hefur ákveðið að veita 25 milljónum króna til Neyðarsjóðs Sameinuðu þjóðanna, m.a. vegna hamfaranna á Haiti og afleiðinga átakanna í Sýrlandi.
01 nóvember 2016Umsækjendur um stöðu safnstjóra Listasafns Íslands
Umsóknarfrestur um stöðu safnstjóra Listasafns Íslands rann út mánudaginn 10. október sl. Mennta- og menningarmálaráðuneyti bárust 20 umsóknir um stöðuna, frá tólf konum og átta körlum.

31 október 2016Ministry for Foreign AffairsResults of 29 October parliamentary elections
The unofficial results of the parliamentary elections held on 29 October 2016, are as following, based on information from Senior Election Commissions.

31 október 2016Aukið fjármagn vegna uppbyggingar hagkvæms leiguhúsnæðisRíkisstjórnin samþykkti fyrir skömmu tillögu félags- og húsnæðismálaráðherra um að tryggja aukið fjármagn í fjáraukalögum þessa árs ef þörf krefur til að mæta mikilli eftirspurn eftir stofnframlögum vegna uppbyggingar eða kaupa á hagkvæmu leiguhúsnæði. Umsóknir liggja fyrir um stofnframlög til að koma á fót um 570 hagkvæmum leiguíbúðum víða um land.
31 október 2016Staða mannréttindamála á Íslandi tekin fyrir á fundi hjá Sameinuðu þjóðunum
Staða mannréttinda á Íslandi verður tekin fyrir á fundi mannréttindaráðs Sameinuðu þjóðanna í Genf á morgun, þriðjudag. Sendinefnd Íslands leggur þar til grundvallar skýrslu um stöðu mála og greinir frá því til hvaða aðgerða hefur verið gripið í kjölfar síðustu úttektar mannréttindaráðsins þar sem lögð voru fram allmörg tilmæli.

31 október 2016Styrkir til verkefna lausir til umsóknarOpnað hefur verið fyrir umsóknir um styrki til verkefna á sviði umhverfis- og auðlindamála og er umsóknarfrestur til kl. 16:00 1. desember 2016. Skila skal inn umsóknum á rafrænu formi á eyðublaðavef Stjórnarráðsins.
29 október 2016Kjörstöðum verður víðast hvar lokað klukkan 22 í kvöldKosið er til Alþingis í dag og eru alls 246.515 manns á kjörskrá. Kjörstaðir eru langflestir opnir til klukkan 22 í kvöld en nefna má að í Grímsey er kosningu lokið og var kjörkassinn þaðan kominn á talningarstað á Akureyri nokkru eftir hádegið í dag.
28 október 2016Þjóðarsáttmáli um læsiHaustið 2015 gerðu mennta- og menningarmálaráðuneyti og sveitarfélög með sér Þjóðarsáttmála um læsi um það markmið að öll börn geti við lok grunnskóla lesið sér til gagns. Verkefnið er hluti af aðgerðaáætlun í kjölfar Hvítbókar um umbætur í menntun. Framlag ráðuneytisins verður í formi ráðgjafar, stuðnings, lesskimunar og aukins samstarfs við foreldra.
28 október 2016Nýir tímar - kynningarrit um grunnskólamálÍ ritinu er meðal annars gerð grein fyrir nýju einkunnakerfi, þjóðarsáttmála um læsi og samræmdum könnunarprófum. Í ritinu er meðal annars gerð grein fyrir nýju einkunnakerfi, þjóðarsáttmála um læsi og samræmdum könnunarprófum.
28 október 2016Skaðaminnkunar-verkefnið Frú Ragnheiður fær 5 m.kr. styrkHeilbrigðisráðherra hefur ákveðið að veita Rauða krossinum í Reykjavík 5 milljónir króna til áframhaldandi vinnu að skaðaminnkandi verkefnum í nafni Frú Ragnheiðar. Í samningi um fjárframlagið er m.a. kveðið á um þjónustu alla daga vikunnar, fjölgun sjálfboðaliða og útgáfu bæklings um örugga sprautunotkun.
28 október 2016Samningur um byggingu hjúkrunarheimilis í Hafnarfirði
Heilbrigðisráðherra hefur staðfest nýjan samning milli velferðarráðuneytisins og Hafnarfjarðarkaupstaðar um byggingu 60 rýma hjúkrunarheimilis í bæjarfélaginu. Áætlað er að heimilið verði tilbúið vorið 2018.

28 október 2016Reglur um bifreiðamál hreyfihamlaðra rýmkaðarFélags- og húsnæðismálaráðherra hefur sett reglugerð sem heimilar að veita hreyfihömluðum styrki og uppbætur vegna bifreiða þótt þeir hafi ekki bílpróf ef þeir búa í sjálfstæðri búsetu og eru með persónulegan aðstoðarmann samkvæmt samningi við viðkomandi sveitarfélag.
28 október 2016Endurskoðun laga um málefni fatlaðs fólks og félagsþjónustu sveitarfélagaStarfshópur sem félags- og húsnæðismálaráðherra skipaði árið 2014 til að vinna að endurskoðun laga um málefni fatlaðs fólks og laga um félagsþjónustu sveitarfélaga, auk þess að vinna að fullgildingu samnings Sameinuðu þjóðanna um réttindi fatlaðs fólks, skilaði ráðherra tillögum sínum í dag.
28 október 2016Samráð um reglur um flutninga á vegum
Framkvæmdastjórn Evrópusambandsins hóf í september 2016 opið samráð um að bæta félagslegar reglur í flutningum á landi eða the social legislation in road transport. Samráðið stendur til 11. desember 2016.

28 október 2016Margvísleg þjónusta veitt á kjördagKosið verður til Alþingis á morgun, laugardaginn 29. október. Á kjörskrá eru alls 246.515 kjósendur eða 3,7% fleiri en voru á kjörskrá við síðustu alþingiskosningar 27. apríl 2013. Konur eru 123.627 og karlar 122.888. Kjörstaðir verða yfirleitt opnir frá klukkan 9 árdegis til 22 að kvöldi.
28 október 2016Skýrsla um þróun reglubyrði atvinnulífsins á 143. til 145. löggjafarþingiSumarið 2015 fór ráðgjafarnefnd um opinberar eftirlitsreglur þess á leit við forsætisráðuneytið að taka saman yfirlit yfir þau frumvörp sem urðu að lögum á 143. til 145. löggjafarþingi og leggja auknar byrðar á atvinnulífið eða einfalda það regluverk sem fyrirtæki starfa eftir. Er niðurstöðuna að finna í skýrslu þessari.
28 október 2016Aðsetur yfirkjörstjórna á kjördagYfirkjörstjórnir  hafa auglýst hvar þær munu hafa aðsetur á kjördag í alþingiskosningunum næstkomandi laugardag, 29. október. Aðsetur kjörstjórnanna, bæði meðan kosning fer fram og við talningu atkvæða, eru eftirfarandi:

28 október 2016Leiðbeiningarmyndband um atkvæðagreiðslu á kjördag
Vakin er athygli á því að nú hefur verið sett inn hér á síðuna leiðbeiningarmyndband um atkvæðagreiðslu á kjördag. Vefslóðin er eftirfarandi:

28 október 2016Þjónusta sýslumanna á kjördag vegna atkvæðagreiðslu utan kjörfundarÁ vefnum syslumenn.is eru upplýsingar frá embættum sýslumanna um það hvert kjósendur geta snúið sér til að greiða atkvæði utan kjörfundar á kjördag.…
28 október 2016Þjónusta á kjördag
Í innanríkisráðuneytinu verða veittar upplýsingar vegna alþingiskosninganna á morgun, laugardaginn 29. október, meðan kjörfundur stendur yfir eða frá klukkan 9 að morgni til klukkan 22 að kvöldi.

28 október 2016Aðgerðir til að draga úr tjóni bænda af völdum ágangs gæsa og álfta á ræktunarlönd
Umhverfis- og auðlindaráðuneytið og atvinnu- og nýsköpunarráðuneytið hafa ákveðið að unnið verði að aðgerðaáætlun vegna ágangs gæsa og álfta í akra og tún bænda og fela stofnunum sínum að vinna að framgangi hennar.

28 október 2016Samningur um stofnstyrk vegna uppbyggingar Salthússins á SiglufirðiIllugi Gunnarsson, mennta- og menningarmálaráðherra og Aníta Elefsen, safnstjóri Síldarminjasafns Íslands undirrituðu í vikunni samning um stofnstyrk til að fjármagna hluta kostnaðar við uppbyggingu á svonefndu Salthúsi á byggingasvæði safnsins.
28 október 2016Endurnýjun samnings um samstarf ríkis og Akureyrarbæjar um menningamál á AkureyriIllugi Gunnarsson, mennta- og menningarmálaráðherra og Eiríkur Björn Björgvinsson, bæjarstjóri Akureyrar, endurnýjuðu í vikunni samstarfssamning ríkis og Akureyrarbæjar um menningarmál. Samstarf hefur verið á þessu sviði frá árinu 1997.
28 október 2016Undirritun samnings vegna lögreglunáms á háskólastigiIllugi Gunnarsson, mennta- og menningarmálaráðherra og Sigrún Stefánsdóttir, forseti hug- og félagsvísindasviðs Háskólans á Akureyri, undirrituðu í vikunni samning milli ráðuneytisins og skólans vegna lögreglunáms á háskólastigi.
28 október 2016Iðnaðar- og viðskiptaráðherra fundaði með aðstoðarorkumálaráðherra BandaríkjannaRagnheiður Elín Árnadóttir, iðnaðar- og viðskiptaráðherra, fundaði í gær með Elizabeth Sherwood-Randall, aðstoðarorkumálaráðherra Bandaríkjanna í Washington. Á fundinum ræddu ráðherrarnir m.a. um jarðhitamál og samstarf ríkjanna á norðurslóðum á sviði orkumála. Rætt var um starf Jarðhitaskóla háskóla Sameinuðu þjóðanna á Íslandi og verkefni Íslendinga um heim allan á sviði jarðhita.…
28 október 2016Strandríkjafundum um kolmunna og norsk-íslenska síld lokið án niðurstöðu um skiptingu
Í gær lauk strandríkjafundum um kolmunna og norsk-íslenska síld sem staðið hafa í London síðan á mánudag. Ekki var samið um skiptingu stofnanna milli strandríkjanna en samkomulag varð um að fylgja skyldi ráðgjöf Alþjóða hafrannsóknaráðsins (ICES) um hámarksveiði á árinu 2017.

28 október 2016Aðgerðirstjórnvalda gegn skattsvikum o.fl. í samræmi við aðgerðaráætlun OECD og G20 ríkjanna
Nýverið voru samþykkt á Alþingi lög um aðgerðir stjórnvalda gegn skattsvikum o.fl. sem eru mikilvægur þáttur í aðgerðaráætlun íslenskra stjórnvalda gegn meintum skattaundanskotum og notkun skattaskjóla. Jafnframt er þessi lagasetning í samræmi við þær alþjóðlegu skuldbindingar og samstarf sem Ísland hefur tekið virkan þátt í á undanförnum árum í baráttunni gegn skattsvikum.

28 október 2016Dagpeningar ríkisstarfsmanna á ferðalögum innanlands - auglýsing nr. 2/2016
Ferðakostnaðarnefnd hefur ákveðið dagpeninga til greiðslu gisti- og fæðiskostnaðar ríkisstarfsmanna á ferðalögum innanlands á vegum ríkisins sem hér segir:

28 október 2016Álagning lögaðila vegna rekstrarársins 2015Ríkisskattstjóri hefur lokið álagningu á lögaðila á grundvelli rekstrarársins 2015. Álögð gjöld eru samtals 172,4 ma.kr. samanborið við 183,8 ma.kr. á síðasta ári. Lækkunin skýrist af því að sérstakur skattur á fjármálafyrirtæki („bankaskattur“) er ekki lengur lagður á slitabú fjármálafyrirtækja og því dregst sá liður saman um 25 ma.kr. milli ára.
27 október 2016Skýrsla um stöðu mannréttindamála á ÍslandiKomin er út íslensk þýðing á skýrslu stjórnvalda vegna allsherjarúttektar mannréttindaráðs Sameinuðu þjóðanna á stöðu mannréttindamála á Íslandi (Universal Periodic Review – UPR). Í skýrslunni er farið yfir hvernig íslensk stjórnvöld hafa fylgt eftir tilmælum eftir fyrri úttekt SÞ og greint frá til hvaða aðgerða hefur verið gripið til að bæta stöðu mannréttindamála á Íslandi.
27 október 2016Skýrsla starfshóps um Hofstaði í Mývatnssveit: Með samvinnu að leiðarljósi.Í skýrslunni eru greindir möguleikar á nýtingu Hofsstaða í Skútustaðahreppi og settar fram tillögur að uppbyggingu og skipulagi á jörðinni.
27 október 2016Mál nr. 92/2014
Staðfest ákvörðun umboðsmanns skuldara um að fella niður heimild kærenda til greiðsluaðlögunar á grundvelli 5. mgr. 13. gr., sbr. 15. gr. laga nr. 101/2010 um greiðsluaðlögun einstaklinga

27 október 2016Úrskurður nr. 397/2016
Dyflinnarmál, Þýskaland, barnafjölskylda, sérstakar ástæður, ákvörðun ÚTL staðfest

27 október 2016Úrskurður nr. 396/2016
Dyflinnarmál, Þýskaland, barnafjölskylda, sérstakar ástæður, ákvörðun ÚTL staðfest

27 október 2016Úrskurður nr. 394/2016
Dyflinnarmál, Þýskaland, barnafjölskylda, sérstakar ástæður, ákvörðun ÚTL staðfest

27 október 2016Úrskurður nr. 395/2016
Dyflinnarmál, Þýskaland, barnafjölskylda, sérstakar ástæður, ákvörðun ÚTL staðfest

27 október 2016Mál nr. 53/2014
Staðfest ákvörðun umboðsmanns skuldara um að fella niður heimild kæranda til greiðsluaðlögunar á grundvelli 5. mgr. 13. gr. lge., sbr. 15. gr. laga nr. 101/2010 um greiðsluaðlögun einstaklinga

27 október 2016Mál nr. 72/2014
Staðfest ákvörðun umboðsmanns skuldara um að fella niður heimild kæranda til greiðsluaðlögunar á grundvelli 5. mgr. 13. gr. lge., sbr. 15. gr. laga nr. 101/2010 um greiðsluaðlögun einstaklinga